Morgunblaðið - 02.05.2009, Side 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18
VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR
Sími: 561-4114
Frá 9. apríl til 3. maí
G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R
R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T
O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR
STYRKUR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu
ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis
á næsta skólaári 2009-2010.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform, sendist fyrir 10. júní 2009
til formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 8620,
128 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.
Góður trompetleikur í vorsól á
kosningadegi kippir manni um
stund í kjörklefa þar sem x er sett
við aðeins einn lista og það X verð-
ur stórt ef kjörhljómur og kjör-
tónar hafa kætt og glatt mann í
slíku eins lista kjöri. Að vísu fá Vil-
hjálmur Ingi og Helga Bryndís ekki
tryggt sæti á þjóðþingi að þessu
sinni, en þau fengu öruggt sæti hjá
mér sem framúrskarandi flytjendur
í mínu hjartaþingi. Sú mikla tækni
sem Vilhjálmur Ingi ræður yfir,
ásamt næmri tónvísi, lýstu af flutn-
ingi tónverkanna frá upphafi til
loka. Þar fór saman mikið öryggi í
hröðum hlaupum og einstök mýkt í
lagrænum og rólegri tónhend-
ingum. Þessi ótvíræðu snilldartök
hans voru hvað áhrifamest í hinum
mikla trompetgjörningi Aruturians,
en túlkun á konserti hans í lok tón-
leikanna má hver trompetleikari
hafa verið hreykinn af. Konsertinn
var á sínum tíma saminn fyrir þann
sem kallaður var „Paganini tromp-
etsins“ í Rússlandi, Timofei Doksc-
hitzer, og hygg ég að margur snjall
trompetleikarinn hafa mátað sig við
þennan skrautlega tónabúning.
Samleikur Helgu Bryndísar og Vil-
hjálms Inga var hrífandi. Bras-
skvintettinn fannst mér skorta lit-
ríkari blæbrigði og sér í lagi veikari
og mýkri leik. Ég veit að þessi
kvintett hefur alla burði til að leika
enn betur. Ég tel að slíkan auð sem
fólginn er í upplagi þessa kvintetts
þurfi að ávaxta mun betur og leggja
rækt við hann sem skili enn ríku-
legri uppskeru. Þetta voru samt
tónleikar sem skilja eftir í brjósti
birtu hækkandi sólar og aukinnar
trúar á land og þjóð.
Kjörhljómur
á kjördegi
TÓNLIST
Trompettónleikar í Laugar-
borgbbbbn
Á efnisskrá:
Legend eftir G. Enesco, Fantasietta eftir
M. Bitsch, Caprice eftir J. Turin, Etýða
eftir Theo Charlier, lokaþáttur úr Kvin-
tett nr. 3 eftir V. Ewald og trompetkons-
ert eftir A. Arutunian. Flytjendur: Vil-
hjálmur Ingi Sigurðsson á trompet og
Helga Bryndís Magnúsdóttir á píanó,
ásamt Blásarakvintett Norðurlands,
sem auk Vilhjálms er skipaður: trompet
Hjálmar Sigurbjörnsson, básúna Kaldo
Kiis, horn Kjartan Ólafsson og túba
Helgi Þ. Svavarsson (í verki V. Ewald).
Laugardaginn 25. apríl kl. 15.00.
JÓN HLÖÐVER
ÁSKELSSON
TÓNLIST
Nafnið er grípandi, Lennon og
Baktus. Óvenjulegt par, eins og
skrifað er í sýningarskrá. Í Lista-
sal Mosfellsbæjar má nú til 24.
maí sjá samsýningu sjö lista-
manna. Sum þeirra eiga að baki
listnám á háskólastigi, önnur hafa
farið á námskeið eða eru sjálf-
menntuð í faginu. Þegar sýningin
er skoðuð renna myndir þeirra þó
áreynslulaust saman í lifandi og
litríka heild. Mér sýnist lista-
mennirnir hér vera valdir saman
vegna þess að verk þeirra eiga
snertifleti, í vinnuaðferðum, lita-
meðferð og viðfangsefni, en ekki
síður í spuna hugmyndaflugs.
Þrír listamannanna sýna verk
unnin í tré, stillt upp umhverfis
siglutré með segli í salnum
miðjum, líkt og fley fyrir þöndum
seglum. Þetta eru þeir Gauti Ás-
geirsson sem sker eftirminnileg
andlit úr tré og hefur næmt auga
fyrir möguleikum viðarins, kvist-
um og greinastubbum sem öðlast
nýtt hlutverk. Aron Eysteinn Hall-
dórsson sýnir farartæki, bíla og
lestir sem hvert og eitt hefur sín
persónulegu sérkenni, annað en
stöðluð leikfangaframleiðsla sam-
tímans. Baldur Geir Bragason
smíðar steinaldarmannslega lurka
og lakkar með dökku lakki, í þeim
kallast á notagildi og nýtt sam-
hengi.
Þau Sigga Björg Sigurðardóttir,
Ísak Óli Sævarsson, Sigrún Huld
Hrafnsdóttir og Davíð Örn Hall-
dórsson eru öll teiknarar og mál-
arar og vinna verk sýn á tvívíðum
fleti. Hér vinna vel saman litrík
verk og teikningar, þar sem sam-
vinna á sér stað í framsetningu
verka og á myndfletinum sjálfum
þar sem mér sýnist Davíð Örn og
Sigrún Huld hafa sameinað krafta
sína.
Samvinna af þessum toga, þar
sem verk listamanna líkt og renna
saman í eina heild hefur verið of-
arlega á baugi í myndlistinni síð-
astliðin ár. Í þessu tilfelli er sam-
vinnan innan ákveðins ramma, en
gengur ekkert síður ágætlega upp.
Titill sýningarinnar vekur spurn-
ingar og er um leið áminning;
þetta eru óvenjuleg pör, í sam-
félagi sem byggist á öruggri að-
greiningu; karla og kvenna, full-
orðinna og barna, sjúkra og
heilbrigðra, fátækra og ríkra, fatl-
aðra og ófatlaðra og svo mætti
áfram telja. En hér gerist það ber-
sýnilega að öll fyrirfram ákveðin
aðgreining verður að engu og
listamennirnir sameinast á grund-
velli verka sinna, í áhuga sínum á
teikningunni, litum, formum eða
möguleikum efniviðar síns. Nið-
urstaðan er falleg sýning þar sem
listaverkin vinna saman og hug-
myndaflugið blæs byr í seglin, á
endanum spyr maður sig að því
hvað sé óvenjulegt við þetta par.
Listasalur Mosfellsbæjar
Lennon og Baktus, samsýning,
List án landamæra
bbbmn
Til 24. maí. Opið mán.-fös. 12-19, lau.
12-15, lokað á sunnudögum. Aðgangur
ókeypis.
RAGNA
SIGURÐARDÓTTIR
MYNDLIST
Farsæl samvinna
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111