Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009 Ný ríkisstjórn FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is E itt af meginverkefnum nýrrar ríkisstjórnar í efnahagsmálum er að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, að því er segir í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna. Óhætt er að segja að þetta muni reynast krefjandi verkefni, svo ekki sé tekið dýpra í árinni. Gert er ráð fyrir 150 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs í ár og alvarleg skuldastaða hins opinbera þýðir að vaxtagjöld margfaldast á milli ára. Í nýjustu útgáfu Peningamála Seðlabankans segir að nauðsynlegt sé til að grípa til aðgerða til að draga úr hallarekstri ríkissjóðs. Opinber fjármál megi ekki við frekari skulda- söfnun. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur einnig tekið í sama streng og sagt að nauðsyn- legt sé að jafna stöðu ríkissjóðs svo vextir uppsafnaðra skulda beri ríkið ekki ofurliði. Markmiðið er, samkvæmt yfirlýs- ingunni, tvíþætt. Annars vegar er stefnt að því að jafnvægi verði komið á rekstur ríkissjóðs fyrir árið 2013. Hins vegar að frumgjöld ríkissjóðs, þ.e. útgjöld án vaxtagjalda, verði ekki hærra hlutfall af landsfram- leiðslu en verið hefur á und- anförnum árum. Verulegur niðurskurður Hvað hlutfall frumútgjalda varðar er rétt að benda á að þar er talað um að hlutfallið næstu fjögur ár verði í heildina svipað fyrri árum. Á árunum 2006-2008 nam þetta hlutfall um 28-29%. Miðað við að gert sé ráð fyrir 11% samdrætti landsframleiðslu í ár þyrftu frum- útgjöld ríkissjóðs að dragast saman um 13%, eða 56,6 milljarða, á árinu til að þetta markmið næðist. Sam- kvæmt fjárlögum er hins vegar gert ráð fyrir því að frumútgjöldin aukist um 7,8% eða 34 milljarða króna. Verða þau því um 38,4% af vergri landsframleiðslu í ár. Miðað við þennan mun á áætl- uðum útgjöldum ríkisins á þessu ári og markmiðið um óbreytt hlutfall frumútgjalda má því ljóst vera að verulega þarf að skera niður í út- gjöldum á árunum 2010-2013. Rímar það við spá Seðlabankans, sem gerir ráð fyrir því að afkoma ríkissjóðs verði bætt um 45 milljarða árið 2010, aðra 40 milljarða árið 2011 og um tæpa 10 milljarða árið 2012. Ljóst má vera að til að brúa þá 150 milljarða króna gjá, sem í ár er milli tekna og gjalda ríkissjóðs, þarf að auka tekjur og draga úr gjöldum. Svipuð skattbyrði Í áætluninni er hins vegar lítið um áþreifanlegar yfirlýsingar um hvernig ná eigi fram þessum mark- miðum. Lesa má þó úr henni að bú- ast megi við auknum hátekju- og/eða neyslusköttum. Hins vegar er gert ráð fyrir því í yfirlýsingunni að skattbyrðin verði svipuð eða minni á tímabilinu en hún hefur verið á síð- ustu árum. Þá má lesa úr henni að reynt verði að draga úr útgjöldum frekar með hagræðingu og aðhaldi en beinum flötum niðurskurði. Ekki er t.d. gert ráð fyrir uppsögnum opinberra starfsmanna. Gert er ráð fyrir því að áætlun í ríkisfjármálum verði lögð fyrir Alþingi innan 100 daga. Mikil þrautaganga framundan Morgunblaðið/Árni Sæberg Tími Steingrímur J. Sigfússon mun keppa við tímann í viðleitni sinni til að koma jafnvægi á ríkisfjármálin.  Markmið nýrrar ríkisstjórnar er að ná jafnvægi í ríkisfjármálin ekki síðar en 2013  Auka á tekjur og draga úr útgjöldum  Hins vegar er gert ráð fyrir svipaðri skattbyrði og verið hefur undanfarin ár Í HNOTSKURN »Í samstarfsyfirlýsingustjórnarflokkanna segir að lykilatriði sé að aukin skattheimta leggist frekar á þá sem betur geti axlað hana. »Þó megi hún ekki dragaúr möguleikum fólks til að vinna sig út úr þeim erf- iðleikum sem framundan eru. »Stefnt er að því að útgjöldatvinnulífs og sveitarfé- laga vegna eftirlits og reglu- gerðarákvæða verði lækkuð. »Reynt verður að násparnaði í velferðarþjón- ustu með samþættingu og að- haldi. Ljóst er að erfitt verk bíður rík- isstjórnarinnar, sem sett hefur sér það markmið að afmá halla- rekstur ríkissjóðs. Búast má því við skattahækkunum, en óvíst er hvar hækkanir ber niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.