Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 33
Það er ótrúleg seigla í StarTrek-smiðjunni, sem hófstarfsemina með sjónvarps-þáttaröð árið 1966. Röskum
40 árum, fjölda sjónvarpsþátta og tíu
myndum síðar, kemur glænýtt upp-
haf með glænýjum Kirk (Pine), kapt-
eini á geimskipinu Enterprise, jafnt
sem öðrum áhafnarmeðlimum, hinum
hálf-mennska Spock Quinton), og
öðrum persónum sem sjónvarps- og
bíógestir þekkja frá fyrri tíð.
Sjálfsagt verður myndinni fagnað
lengst og mest af svokölluðum
„Trekkurum“, harðkjarna aðdáend-
um Star Trek ævintýrsins, en þeir
skipta milljónum í öllum heims-
hornum. Þeir sem aðrir fá talsvert
fyrir sinn snúð á hinu nýja upphafi.
Enterprise er sem fyrr skipað mis-
litum hóp vísinda- og stríðsmanna
sem vinna saman undir merkjum
Sambandsins (ekki SÍS, vel að
merkja). Þeir standa í eilífri baráttu
við erkifjendurna, Rómúlana, undir
stjórn hins hatursfulla Neros (Bana).
Fylgst er með uppvexti Kirks og
Spacks, hvernig leiðir þeirra liggja
saman og hinn hálf-vúlkanski Spock
og sá ódæli Kirk verða smám saman
vinir og vopnabræður sem bjarga sól-
kerfinu.
Þeir hressa upp á áhöfnina, lækn-
irinn „Bones“ McCoy (Urban) og
Rússinn barnungi, Chekov (Yelchin)
auk Sulu, Clegg og allra hinna. Boð-
skapur myndarinnar er sem fyrr að
sameinaðir stöndum vér í eilífri bar-
áttu við illskuna, sem í Star Trek,
kemur að mestu utan úr óravíddum
algeimsins.
Fátt er um frumlega drætti í fram-
vindu og persónugerð en þess ber að
geta að hún er vel lukkuð, kraftmikil,
hröð og í höndum leikara sem eru vel
til þess fallnir að fást við goðsagna-
kennda forvera sína. Engu að síður
eru það leiktjöldin og tæknivinnan
sem fær mann til að grípa allnokkur
andköf, svo frábærlega er útlit og
brellur af hendi leyst í myndinni.
saebjorn@heimsnet.is
Star Trek „Fátt er um frumlega drætti í framvindu og persónugerð en þess
ber að geta að hún er vel lukkuð, kraftmikil, hröð og í höndum leikara sem
eru vel til þess fallnir að fást við goðsagnakennda forvera sína.“
Trekkarar á
tímamótum
Sambíóin, Laugarásbíó
Star Trek
bbbmn
Leikstjóri: J. J. Abram. Aðalleikarar:
John Cho (Sulu), Ben Cross (Sarek),
Bruce Greenwood (Pike), Simon Pegg
(Scotty), Chris Pine (Kirk), Zachary
Quinto (Spock), Winona Ryder (Amanda
Grayson), Zoë Saldana (Uhura), Karl Ur-
ban (Bones), Anton Yelchin (Chekov),
Eric Bana (Nero) and Leonard Nimoy
(Spock Prime). 125 mín. Bandaríkin.
2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
STAR TREK XI kl.8 - 10:30
NEW IN TOWN kl. 8
ALFREÐ E. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 10
/ AKUREYRI
STAR TREK XI kl. 8 - 10:20
ALFREÐ G. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 8
CRANK2 : HIGH VOLTAGE kl. 10:20
/ KEFLAVÍK
17 AGAIN kl. 8
ALFREÐ E. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 8
OBSERVE AND REPORT kl. 10:20
STATE OF PLAY kl. 10:20
/ SELFOSSI
HÚN ELSKAÐI ALLT
SEM MIAMI HAFÐI
UPPÁ AÐ BJÓÐA
EN TIL ÞESS AÐ FÁ
STÖÐUHÆKKUNINA SEM HANA
HEFUR ALLTAF DREYMT UM
VERÐUR HÚN AÐ FLYTJA Í
MESTA KRUMMASKUÐ ÍHEIMI!
SÝND MEÐÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
VINSÆL
ASTA MY
NDIN
Í HEIMIN
UM Í DA
G!
“FUNNY AS HELL…”
PETER TRAVERS / ROLLING STONE
SÝND Í KRINGLUNNI
MAGNAÐUR
SPENNUTRYLLIR FRÁ
FRAMLEIÐANDANUM
MICHEAL BAY
SÝND Í ÁLFABAKKA
“MONSTERS VS ALIENS HEFUR ÞETTA ÞVÍ
ALLT. SKEMMTILEGA SÖGU, FLOTT ÚTLIT,
GÓÐAN HÚMOR OG FERLEGA FLOTT
LEIKARAGENGI Í SVO MIKLU STUÐI AÐ
ÞETTA GAT EKKI KLIKKAÐ.”
- Þ.Þ., DVSÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
L
L
10
L
10
16
12
L
L
16
Um það má lengi deila hver er
besta Star Trek myndin af þeim
11 sem komnar eru á markaðinn.
Undirritaður er þó ekki í minnsta
vafa um að það sé Star Trek:
Wrath of Khan (eða Star Trek
II.). Þá liðinn sé röskur aldar-
fjórðungur síðan hún var sýnd
eru átökin á milli Enterprise-
áhafnarinnar (sem þá var undir
stjórn gamla, góða Williams
Shatners og Leonards Nimoy),
og illmennisins Khan, ein þau
bestu. Enda Ricardo Montalban
eitt minnisstæðasta illmenni
seríunnar. Star Trek IV: The Vo-
yage Home (1984), er heldur
ekki langt undan. Úrvalsmyndir
báðar tvær.
HVER ER SÚ BESTA?
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„HELGIN er búin að vera vinna,
vinna og vinna,“ segir Jónatan Garð-
arsson fararstjóri íslenska Evró-
visjónhópsins þegar blaðamaður
slær á þráðinn til hans í Moskvu í
gær. „Í gærkvöldi [laugardag] fór-
um við í partý sem gríski flytjandinn
hélt í Euroklúbbnum. Þar fluttu
margir keppendur lagið sitt og m.a.
Jóhanna sem var næstsíðust á svið, á
undan Grikkjanum,“ segir Jónatan
og bætir við að flutningur Jóhönnu
hafi lukkast mjög vel. „Þau sungu
eftir undirspili af diski á meðan hinir
voru með svokallað „Sing On“ og
hermdu eftir sjálfum sér. Ég hef
fengið mjög góð viðbrögð við því að
Jóhanna hafi sungið í alvörunni.“
Mikið havarí átti sér stað í keppn-
ishöllinni á laugardaginn þegar sjálf-
ur Pútín, forsætisráðherra Rúss-
lands, leit þar inn. „Maður fann að
það var eitthvað einkennilegt í gangi
og svo kom hann. Það var mjög erfitt
að sjá hann og hvað þá mynda, Pútín
er ekki mjög hávaxinn og það voru
örugglega um 20-30 tröllvaxnir ör-
yggisverðir í kringum hann sem
hrintu fólki frá. Evróvisjón er stórt
mál hér og ríkisstjórnin setur mik-
inn pening í keppnina.“
Opnunarveisla í gærkvöldi
Í gær var Jónatan með öðru sjón-
varpsfólki við vinnu í keppnishöllinni
en um kvöldið var opnunarhátíð
Evróvisjónkeppninnar og var Jón-
atan að búa sig undir hana um leið
og hann spjallaði við blaðamann.
„Jóhanna var í viðtölum í dag og
síðan var söngæfing kl. 16 en nú eru
allir að gera sig klára fyrir opnunar-
veisluna sem borgarstjórn Moskvu
og ríkisstjórn Rússlands halda í
Euroklúbbnum í kvöld.
Á morgun [í dag ] byrjar dagurinn
á fundum hjá okkur sjónvarpsfólk-
inu og svo þurfum við að vera komin
í höllina um hádegi en fyrsta bún-
ingarennsli er kl. 14. Síðan er annað
eins rennsli um kvöldið þegar dóm-
nefndir horfa á.
Á eftir fer Jóhanna í Euroklúbb-
inn og syngur „The Winner Takes It
All“ með Abba. Í ár eru 35 ár síðan
Abba vann keppnina og það er hálf-
gerð afmælisveisla í klúbbnum ann-
að kvöld þar sem Jóhönnu var boðið
að syngja Abba-lag.“
Að sögn Jónatans er Jóhanna að
fá góða athygli og samkvæmt óform-
legri könnun sem á sér stað í höllinni
er henni spáð öðru sæti upp úr sín-
um riðli. Bosníu-Hersegóvínu er
spáð sigri.
Fríður flokkur Erna Hrönn, Jóhanna Guðrún og Hera Björk í teiti hópsins í
íslenska sendiráðinu í Rússlandi á föstudagskvöldið.
Pútín kíkti í
keppnishöllina
Evróvisjónhópurinn fór í grískt partý Íslenska laginu
spáð öðru sæti í sínum riðli á eftir Bosníu-Hersegóvínu
Stórlax Pútín heimsækir Evró-
visjónhöllina í fylgd lífvarða.
Innlifun Jóhanna Guðrún syngur í gríska partýinu á laugardaginn.
Ljósmynd/Jónatan Garðarsson