Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAÐ VAR í kjölfar bankahrunsins og þeirrar
umræðu sem skapaðist um Evrópusambandið
á haustmánuðum sem Auðunn Arnórsson
stjórnmálafræðingur og blaðamaður ákvað að
dusta rykið af nokkurra ára gamalli hugmynd
að bók um stækkun sambandsins til austurs.
„Þarna sá ég tækifæri til að breyta bókinni í
eins konar leiðarvísi að því hvernig aðildar-
viðræður við Evrópusambandið fara fram. Það
var þetta sem kannski helst vantaði aðgengi-
legar upplýsingar um fyrir íslenska lesendur,“
segir Auðunn um bók sína Inni eða úti?
Aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem
kemur út í dag.
Auðunn segir aðildarferlið skýrt.
„Ég tók mér það fyrir hendur að máta Ís-
land inn í aðildarferlið sem liggur mjög skýrt
fyrir því mörg ríki hafa samið sig inn í sam-
bandið á síðustu árum. Þessu ferli er skipt í 35
samningskafla eftir innihaldi, þ.e.a.s. lagasafni
ESB er skipt í 34 kafla, sá 35. er kaflinn „önn-
ur mál“ sem er haldið opnum fram til loka við-
ræðna til að hnýta lausa enda.
Ég fer yfir það hver staða Íslands væri í að-
ildarviðræðum í hverjum þessara 35 kafla. Ég
skipti umfjölluninni í þrennt. Í fyrsta lagi vík
ég að um það bil 20 auðveldum köflum sem eru
nú að öllu leyti uppfylltir með EES-samn-
ingnum og öðru Evrópusamstarfi Íslands.
Í öðru lagi eru nokkrir samningskaflar sem
ég kalla miðlungserfiða sem eru þá að litlu
leyti innleiddir í lög á Íslandi nú þegar, en þar
sem ágreiningsefnin eru lítil svo það ætti að
vera vandkvæðalítið að ljúka þeim köflum.
Svo eru síðustu kaflarnir sem eru erfiðir en
mjög fáir. Í því liggur nú reyndar eitt helsta
tækifæri Íslendinga í þessum viðræðum sem
lítur út fyrir að verði farið út í, að það eru fá at-
riði sem við getum lagt alla áherslu á að fá sem
besta niðurstöðu í. Ef aðildarviðræðurnar
hefjast að hausti þá væri hægt að ljúka þessum
svokölluðu auðveldu og miðlungserfiðu köflum
á innan við þremur mánuðum. Svo tæki við
hálft ár eða svo í erfiðu köflunum. Þannig að
það væri hægt að ljúka þessum samningum
efnislega á innan við ári. Hraðinn veltur að
sjálfsögðu á pólitískum vilja beggja megin.“
Meira: mbl.is/esb
Eins konar leiðarvísir að aðildarviðræðum við ESB
Morgunblaðið/RAX
Kynning Bók Arnórs verður rædd á málþingi
í stofu 1010 í Odda við HÍ í hádeginu í dag.
VARNARMÁLARÁÐHERRA Finn-
lands er ekki hrifinn af hug-
myndum um að Norðurlönd taki yf-
ir loftvarnir á Íslandi.
Varnarmálaráðherrar Norð-
urlanda hittast á morgun og mið-
vikudag til að ræða nánari sam-
vinnu ríkjanna á sviði varnarmála
og munu loftvarnir Íslands vera þar
til umræðu.
Varnarmálaráðherra Finnlands,
Jyri Häkämies, segir í samtali við
finnska blaðið Turun Sanomat
tvennt valda því að Finnar vilji síð-
ur taka þátt í verkefninu. Í fyrsta
lagi muni það verða kostnaðarsamt
og finnski flugherinn hafi nýlega
gengið í gegnum umtalsverða fjár-
hagslega hagræðingu. Ekki sé
hægt að senda flugvélar til annarra
ríkja án þess að það komi niður á
rekstri flugflotans.
Þá segir hann að þar sem Ísland
sé NATO-ríki sé erfitt fyrir Finna
að koma að landvörnum þar. Finn-
ar séu ekki meðlimir í Atlantshafs-
bandalaginu.
Fleira verður rætt á fundi ráð-
herranna en málefni Íslands. Stefnt
er að frekari samvinnu Norður-
landanna á sviðum eins og þjálfun
og innkaupum á hergögnum.
bjarni@mbl.is
Finnar ófúsir
til þátttöku
ÞRÁINN Freyr Vigfússon mat-
reiðslumaður var í 2. sæti í keppn-
inni Matreiðslumeistari Norð-
urlanda 2009 sem haldin var á
sýningunni Ferðalög og frístundir
sem stóð yfir í Laugardalshöll um
helgina. Í 1. sæti varð hinn norski
Alexander Berg og í því þriðja All-
an Poulsen frá Danmörku.
Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá
veitingastaðnum VOX var valinn
matreiðslumeistari ársins. Í 2. sæti
varð Þórarinn Eggertsson hjá Or-
ange og í 3. sæti Rúnar Þór Larsen
hjá veitingastaðnum Bryggargatan
í Svíþjóð. Einnig var valinn vín-
þjónn ársins en titilinn hlaut Alba
E. Hough, vínþjónn á Vox.
Þá fór fram matreiðslukeppnin
Íslenskt eldhús þar sem mat-
reiðslumenn frá Vestfjörðum, Aust-
urlandi, Norðurlandi, höfuðborg-
arsvæðinu, Suðurlandi og
Suðurnesjum öttu kappi. Skilyrði
var að hver keppandi notaði hrá-
efni sem tengdist hans landshluta
en markmiðið var að kynna það
besta sem hver landshluti hefði upp
á að bjóða í mat. Sigurvegari var
Ólafur Ágústsson af Austurlandi.
Næstbestur á
Norðurlöndum
Sælir Þráinn Freyr Vigfússon,
hægra megin, lenti í 2. sæti.