Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
fyrst og fremst ódýr!
ÓDÝR MAGNKAUP
kr.
kg998
Ýsurúllur o
stafylltar
3 tegundir
Ný ríkisstjórn
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FORYSTUMÖNNUM stjórnarandstöðuflokk-
anna á Alþingi, einkum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, finnst lítið til nýs stjórn-
arsáttmála koma. Formaður þinghóps Borg-
arhreyfingarinnar telur aðgerðir fyrir heimilin í
landinu ekki nógu róttækar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, nefndi fyrst Evrópusam-
bandsmálið: „Þetta er helsta deiluefnið, flokk-
arnir hafa margítrekað að þeir muni leysa það
sín í milli en svo kemur í ljós að þeir ætla að
treysta því að stjórnarandstaðan leysi það.
Þetta hlýtur að vera einsdæmi.“
Formanni Framsóknarflokksins líst heldur
ekki vel á aðgerðir varðandi stöðu atvinnulífsins
og heimilanna: Engar nýjar lausnir, heldur eigi
að útskýra þær sem þegar eru komnar fram.
„Ég held ekki að vandamálið sé að fólk þekki
ekki það sem þegar er í boði heldur að það dugi
ekki til.“
Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæð-
isflokksins, kom ekki margt á óvart í sáttmál-
anum en hann saknar þess að ekki séu gefnar
skýrari vísbendingar um það með hvaða hætti
eigi að taka á ríkisfjármálum. Allt sé mjög al-
mennt orðað. Og í Evrópusambandsmálinu sé
engin niðurstaða. Í ljós eigi eftir að koma hvern-
ig þingsályktunartillaga um það mál muni líta út
„en fyrir mér er enn óljóst hvernig Vinstri
grænir ætla að taka á málinu. Það virðist taktík
þessarar ríkisstjórnar að treysta á stjórnarand-
stöðuna; það er merkileg aðferðafræði,“ sagði
Bjarni Benediktsson.
Birgitta Jónsdóttir, formaður þinghóps Borg-
arahreyfingarinnar, telur fyrirhugaðar aðgerðir
fyrir heimilin í landinu ekki nógu róttækar; þær
virðist plástur á svöðusár. Mikilvægt sé að allir
vinni saman að málefnum sem samstaða sé um.
„Það er rosalega mikilvægt að þjóðin finni ein-
hverja von og hana finnur enginn í argaþrasi.“
Þetta hlýtur að
vera einsdæmi
Merkileg aðferð að treysta á stjórnarandstöðuna
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur
Davíð
Birgitta
Jónsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vantaði einn dag í 100 Fyrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur starfaði í 99 daga; hún tók við
1. febrúar og fór frá völdum í gær. Myndin er tekin á ríkisráðsfundinum á Bessastöðum í gær.
„ÉG sótti emb-
ættið ekki fast,
ég hef frekar
viljað vera
nefndarformað-
ur og vinna í
málum. Hins
vegar er kynja-
kvóti hjá okkur
og þegar menn
stilla upp þá þarf
að gæta jafn-
ræðis. Þetta tvennt ræður þessu
bara og ég er alls ekki ósáttur við
að stíga niður af forsetastóli. Nú er
að sjá hvaða önnur verkefni bíða
mín,“ segir Guðbjartur Hannesson,
fráfarandi forseti Alþingis.
Guðbjartur segir að sér lítist vel
á stjórnarsamstarfið og stjórn-
arsáttmálann og segist stíga sáttur
úr stóli forseta Alþingis.
„Ég var mjög ánægður með
þennan tíma. Það var út af fyrir sig
mjög spennandi verkefni að vera
með minnihlutastjórn og mjög sér-
stakur tími, sem og allar vinnuleið-
ir í þinginu. Menn gátu ekki komið
málum í gegn með einhverjum
stjórnvaldsákvörðunum, það þurfti
að semja um öll mál og að því leyt-
inu var þetta mjög spennandi. Mér
þótti þetta aldrei erfitt en þetta var
ekki alltaf skemmtilegt.“
Stígur sátt-
ur niður af
forsetastóli
Guðbjartur
Hannesson
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
tilkynntu á blaðamannafundinum í gær þau
áform sem ríkisstjórnin hefur uppi og hyggst
ljúka á næstu dögum. Listinn tekur til margra
málaflokka, t.a.m. er varða ríkisfjármál og
bankamál en einnig mál sem varða hag heim-
ila og fyrirtækja.
Forsendur fjárlaga 2010 og áætlun í ríkisfjár-
málum til millilangs tíma afgreidd í ríkisstjórn.
Skýrsla vegna áætlunar í ríkisfjármálum 2009
og áætlunar til millilangs tíma lögð fram á Al-
þingi.
Ákvörðun um eigendastefnu og eignarhald
bankanna tekin í ríkisstjórn.
Endurmat á aðgerðaáætlun vegna skulda-
vanda heimilanna.
Átak í kynningu og efldri þjónustu vegna
greiðsluvandaúrræða fyrir heimili í skulda-
vanda.
Þingsályktunartillaga vegna umsóknar Ís-
lands um ESB lögð fram á Alþingi.
Endurskoðun hafin á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu.
Frumvarp um handfæraveiðar smábáta yfir
sumartímann lagt fram á Alþingi.
Lokið skal mikilvægum samningum til lausnar
vegna erlendra eigenda krónubréfa.
Lokavinna við samninga um erlendar kröfur
Icesave.
Lokavinna við samninga um erlend lán við
vinaþjóðir.
Ná samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins
um stöðugleikasáttmála.
Frumvarp lagt fram á Alþingi um aðgerðir
gegn skattundanskotum.
Fyrsta úttekt AGS vegna efnahagsáætlunar-
innar afgreidd í stjórn AGS.
Ákvörðun tekin um framtíðareignarhald nýju
bankanna og mögulegt erlent eignarhald.
Samkomulag milli nýju bankanna og kröfu-
hafa erlendu bankanna afgreitt.
Dregið úr gjaldeyrishöftum.
Frumvarp um persónukjör lagt fram á Al-
þingi.
Frumvarp lagt fram á Alþingi um ráðgefandi
stjórnlagaþing sem kosið verði til samhliða
sveitarstjórnarkosningum 2010.
Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur lagt
fram á Alþingi.
Endurskoðun á reglum um fjármál stjórn-
málaflokka hafin.
Endurskoðun hafin á upplýsingalögum í því
augnamiði að auka aðgengi almennings og
fjölmiðla að upplýsingum stjórnarráðsins.
Frumvarp um eignaumsýslufélag lagt fram á
Alþingi.
Frumvarp um breytingu á lögum um spari-
sjóði lagt fram á Alþingi.
Gripið til viðeigandi aðgerða til að lækka
hæstu laun hjá ríkinu og félögum á þess veg-
um með það að leiðarljósi að enginn verði
með – hærri laun en forsætisráðherra.
Frumvarp um breytingar á stjórnarráði Ís-
lands lagt fram á Alþingi.
Frumvarp lagt fram á Alþingi um að breyta
lögum um LÍN þannig að ekki verði lengur
krafist ábyrgðarmanna.
Nýjar reglur um nefndarþóknun, risnu og
ferðakostnað samþykktar af ríkisstjórn.
Ný yfirstjórn ráðin í Seðlabanka Íslands.
Lokið við efnahagsreikninga nýju bankanna
og þeir endurfjármagnaðir.
Lokið við endurfjármögnun og -skipulagningu
sparisjóða sem óskað hafa eftir stofnfjár-
framlagi frá ríkinu.
Samráðsvettvangur ríkisstjórnar, sveitarfé-
laga, landbúnaðarins og aðila vinnumarkaðar-
ins settur á fót.
Byrjað verði að móta atvinnustefnu í sam-
vinnu við aðila vinnumarkaðarins og háskóla-
samfélagsins.
Meðal markmiða sé að Ísland verði meðal 10
samkeppnishæfustu landa heims árið 2020.
Viðræður hafnar við lífeyrissjóði og innlenda
fjárfesta um að að koma að eflingu atvinnulífs
með hinu opinbera.
Tillögur að nýju almannatryggingakerfi lagð-
ar fyrir ríkisstjórn.
Nýjar útlánareglur afgreiddar hjá LÍN.
Hafin vinna við mótun heildstæðrar orku-
stefnu.
Stefnan miði m.a. að því að endurnýjanlegir
orkugjafar leysi innflutta orku af hólmi.
Sett á fót tekjustofnanefnd sem hafi það
hlutverk að vinna tillögu um breikkun og
styrkingu tekjustofna sveitafélaga.
Náttúruverndaráætlun til ársins 2013 lögð
fram á Alþingi.
Ráðgefandi hópur útgerðarmanna og sjó-
manna um veiðiráðgjöf og nýtingu sjáv-
arauðlinda og ástands lífríkis sjávar skipaður.
Vinna hafin við mótun sóknaráætlana fyrir
alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífs-
gæða til framtíðar.
Vinna hafin við mótun menningarstefnu til
framtíðar í samráði við listamenn.
Efld úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköp-
unarmiðstöðvar til að bregðast við atvinnu-
leysi.
Frumvarp um bætt umhverfi sprota- og ný-
sköpunarfyrirtækja lagt fram á Alþingi.
Átak til að fjölga sumarstörfum og nýjum at-
vinnutækifærum fyrir ungt fólk.
Sparnaðarátak í ríkiskerfinu með þátttöku
starfsmanna, stjórnenda og notenda þjónust-
unnar sett í gang.
Vinna hafin við gerð yfirlits um stöðu og þró-
un lykilstærða í samfélags- og efnahags-
málum þjóðarinnar og framtíðarvalkosti.
Stöður bankastjóra ríkisbankanna auglýstar
lausar til umsóknar.
100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar