Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Meðal gesta í þætti Egils Helga-sonar, Silfri Egils, í gær var
Ann Pettifor, sem meðal annars átti
upptökin að átaki til að fella niður
skuldir fátækustu ríkja heims. Í við-
talinu ræddi hún hætturnar, sem
fylgdu því að stór hópur fólks gæti
ekki lengur greitt af skuldum sínum.
Málflutningur hennar var á þáleið að í samfélaginu ríkti sátt-
máli um það að almenningur sam-
þykkti að greiða af skuldum sínum
gegn því að fyrir hendi væru að-
stæður til að afla nægilegra tekna til
að borga þær niður og sjá sér far-
borða um leið. Þegar þessar for-
sendur væru ekki lengur fyrir hendi
rofnaði samfélagssáttmálinn og þá
væri voðinn vís.
Eftir að bankarnir hrundu í haustog íslenskt fjármálalíf fór á ann-
an endann hefur hinn íslenski sam-
félagssáttmáli verið í lausu lofti.
Forsendurnar að baki þeim skuld-bindingum, sem almenningur
hafði tekið á sig, hurfu út í veður og
vind. Ástæðan var glannaskapur ör-
fárra manna, sem fóru sínu óheftir
fram þrátt fyrir að ýmis teikn væru
á lofti um að ekki væri allt með
felldu. Almenningur sat hins vegar
uppi með svartapéturinn – blásak-
laus hvað sem líður allri umræðu um
flatskjárvæðingu.
Búsáhaldabyltingin bar vitni þvígapi, sem myndast hafði á milli
almennings og stjórnvalda.
Nú er lokið myndun nýrrar stjórn-ar. Ekki er hægt að segja að þar
með hafi heimilin í landinu fast land
undir fótum, en það verður próf-
steinn hinnar nýju ríkisstjórnar að
endurnýja samfélagssáttmálann.
Potturinn og pannan.
Samfélagssáttmáli í uppnámi
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 rigning Lúxemborg 16 skúrir Algarve 21 léttskýjað
Bolungarvík 6 alskýjað Brussel 22 skýjað Madríd 22 léttskýjað
Akureyri 10 skýjað Dublin 12 léttskýjað Barcelona 19 léttskýjað
Egilsstaðir 10 alskýjað Glasgow 13 léttskýjað Mallorca 24 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað London 17 heiðskírt Róm 26 heiðskírt
Nuuk -4 heiðskírt París 19 skýjað Aþena 24 heiðskírt
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 10 léttskýjað
Ósló 12 skýjað Hamborg 17 léttskýjað Montreal 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað Berlín 18 heiðskírt New York 18 heiðskírt
Stokkhólmur 16 heiðskírt Vín 26 léttskýjað Chicago 16 skýjað
Helsinki 14 léttskýjað Moskva 21 skýjað Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
11. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.34 0,5 7.34 3,5 13.36 0,5 19.54 3,8 4:25 22:24
ÍSAFJÖRÐUR 3.43 0,3 9.24 1,8 15.33 0,3 21.46 2,1 4:08 22:51
SIGLUFJÖRÐUR 5.41 0,1 12.05 1,1 17.47 0,3 23.57 1,3 3:50 22:35
DJÚPIVOGUR 4.36 1,9 10.43 0,4 17.05 2,2 23.24 0,6 3:49 21:59
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Sunnanátt, víða 8-15 m/s,
hvassast vestast. Dálítil væta
sunnan- og vestanlands en
bjartviðri norðanlands. Hiti 8 til
18 stig, hlýjast NA-lands.
Á miðvikudag, fimmtudag,
föstudag og laugardag
Austlægar áttir og dálítil súld
eða þokuloft sunnan- og aust-
anlands, en bjart með köflum
norðan- og vestanlands. Hlýtt í
veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12 Í DAG
Suðlæg átt 13-20 m/s og rign-
ing vestan til en sums staðar
hvassara í vindstrengjum norð-
vestan til. Skýjað og þurrt aust-
anlands. Hiti 8 til 15 stig,
hlýjast norðaustanlands.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti Húsgögn
Mikið úrval af sófum og sófasettum - Verðið kemur á óvart
UNGT par stal þekktu Kjarvals-
verki af Kjarvalsstöðum á laug-
ardag. Öryggisvörður varð þjóf-
anna var og lét lögreglu þegar
vita. Parið var handtekið á heimili
sínu skömmu síðar og voru þau yf-
irheyrð af lögreglu á sunnudag.
Málverkið var endurheimt og er
talið að það sé óskemmt.
Góðkunningjar lögreglu
Parið kom á safnið um tvöleytið
á laugardag en fór út um bakdyr
safnins þremur mínútum síðar
með málverkið, Á Hulduströnd, í
fórum sínum. Öryggisverði fannst
fólkið grunsamlegt og sá að það-
hafði eitthvað meðferðis. Hann fór
því þegar í stað inn í sýningarsal-
inn til að athuga hvort eitthvert
verk vantaði. Þegar hann sá að
svo var kallaði hann þegar á lög-
reglu sem mætti umsvifalaust á
staðinn og fór yfir upptökur úr
myndvélakerfi. Bar hún strax
kennsl á fólkið sem er velþekkt
hjá lögreglunni. Var það hand-
tekið skömmu síðar á heimili sínu
og málverkið endurheimt.
Festingar vantaði
,,Það vildi svo óheppilega til að
sýningin sem málverkið tilheyrir
var opnuð þennan sama dag,“ seg-
ir Hafþór Yngvason safnstjóri.
Ekki var búið að ganga að fullu
frá sýningunni, sum verkanna var
ekki búið að festa og merkingar
vantaði á önnur.
Verk eru venjulega skrúfuð föst
í veggina og segir Hafþór erfitt að
fjarlægja þau. Hann segir að farið
verði vandlega yfir alla verkferla
svo hægt sé að koma í veg fyrir að
atburðurinn endurtaki sig. Ljóst
sé að eitthvað hafi farið úrskeiðis
og ekki hafi verið rétt að sumir
hlutir biðu til mánudags, eins og
ætlunin var.
Rétt viðbrögð
,,Við teljum að vörðurinn hafi
brugðist rétt við, hann kannaði
fyrst hvort verk vantaði og hafði
svo strax samband við lögreglu.
Hann gat gefið greinargóða lýs-
ingu á fólkinu og í hvaða átt það
hefði farið,“ segir Hafþór. Fólkið
fór frá bakdyrum safnsins og
gegnum garðinn. Hafþór segir þá
ákvörðun öryggisvarðarins að tak-
ast ekki á við fólkið heldur láta
málið í hendur lögreglunnar hafa
verið rétta. Þjófarnir hafi haft
dýrmætt verk í fórum sínum og
áhættusamt að lenda mögulega í
ryskingum.
Hafþór segir að Á Hulduströnd
sé svo þekkt verk að óhugsandi
hefði verið að koma því í verð. Við
fyrstu sýn virðist það óskaddað en
það er þó hjá forverði til að ganga
úr skugga um að svo sé.
sigrunerna@mbl.is
Kjarvalsverki stolið
„VIÐ skoðum þetta eftir helgina,“
sagði sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
Ríkharður Másson, spurður í gær
um viðbrögð embættisins við skrök-
sögu um ísbjörn í grennd við Hofsós
á laugardaginn.
Fréttavef Morgunblaðsins bárust
tvær ljósmyndir af hvítabirni, úr far-
síma, og á annarri þeirra var nokkur
fjöldi fólks í grennd við björninn.
Þegar hringt var í símann vísaði eig-
andi hans á félaga sinn, Sigurð Guð-
mundsson, verslunarmann á Akur-
eyri, en þeir voru í hópi fólks í
skemmtiferð um Skagafjörð. Sigurð-
ur sagði blaðamanni að hópurinn
hefði séð hvítabjörn og lýsti aðstæð-
um. Eftir að aftur var hringt í Sigurð
og hann staðfesti fyrri frásögn, var
birt frétt á vefnum. Eftir nokkra
stund kom í ljós að fréttin átti ekki
við rök að styðjast. Þegar haft var
samband við Sigurður aftur viður-
kenndi hann að hafa logið að blaða-
manni og sagði að sér hefði fundist
vanta jákvæðar fréttir.
Sýslumaður skoðar ís-
bjarnarmálið eftir helgi