Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009 16 17 AGAIN kl. 6 I LOVE YOU MAN kl. 8 THE UNBORN kl. 10:40 MONSTERS VS ALIENS m. ísl. tali kl. 6 STAR TREX XI kl. 6 - 8D - 9 - 10:40D DIGITAL STAR TREX X kl. 5:30 - 8 - 10:40 LÚXUS VIP X MEN ORIGINS: WOLVERING kl. 5:40 - 8 - 10:20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6D L DIGITAL OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:40 / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI Frá Höfundi Lost og Fringe, J.J.Abrams, kemur STÓRMYND sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir! 100/100 The Hollywood Reporter 100/100 Variety 100/100 “In the pop high it delivers, this is the greatest prequel ever made.” Boston Globe HHHH Empire HHHH “Gleymdu nafninu. Ef þú fílar hraðskreiðan og dúndurspennandi sumar- hasar með frábærum tæknibrellum og flottum leikurum þá er Star Trek mynd fyrir þig!” Tommi - kvikmyndir.is (AF 4) “...VÖNDUÐ KVIKMYND.” “...ÞÁ ER GRUNNT Í HÚMORINN Í VIÐTÖLUM.” “ÞAÐ ER ÞVÍ ÓHÆTT AÐ MÆLA MEÐ SÖGU ALFREÐS OG LOFTLEIÐA.” MARÍA MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR, KVIKMYNDIR.COM MAÐURINN SEM BAUÐ RISUNUM BYRGINN OG SIGRAÐI SÝND Í ÁLFABAKKA ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL ....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ! HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT BARA UNGUR EINU SINNI?SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK 14 10 16 L 12 L 16 L 10 L L L STAR TREK XI kl. 8D - 10:30D DIGITAL ALFREÐ E. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 5:30D - 8D - 10:30D DIGITAL NEW IN TOWN kl. 6 - 8 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6D DIGITAL LET THE RIGHT ONE IN (Gagnrýnandinn) kl. 10:10 SÝND Í KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI Verður þetta ekki bara vín og fagrarkonur?“ spurði einn kolleginn þegarég sagði honum að ég væri að fara á kvikmyndahátíðina í Cannes fyrir Moggann. Ég jánkaði vitaskuld, en þótt ég fúlsi seint við áðurnefndu þá verð ég að viðurkenna að aðal- ástæða fararinnar er engu að síður bíómynd- irnar. Hátt í hundrað myndir sem langflestar eru sýndar í fyrsta skipti í heiminum í Cannes, margar stórmerkilegar bíómyndir sem óvíst er að ameríkaníseruð bíóhúsin hér heima sjái sér fært að sýna nokkru sinni – en líka aðrar sem virðast vera hreinræktaðar Hollywood- myndir í besta skilningi þess orðs, draumar frá draumaverksmiðjunni. Að því sögðu úti- loka ég samt ekki að ég gæti misst af eins og einni mynd ef Penelope Cruz vill endilega panta aðra rósavínsflösku.    Cruz leikur einmitt í Brotnum faðmlögum(Los abrazos rotos) Pedros Almodóvars, einnar af tuttugu myndum sem keppa um Gullpálmann, aðalverðlaun hátíðarinnar. Almodóvar er einn fjögurra fyrri sigurvegara þar, Ang Lee mætir með Taking Woodstock og Íslandsvinirnir Quentin Tarantino og Lars von Trier mæta sömuleiðis. Von Trier sýnir okkur Anti-Christ, biblíuskotna hryllings- mynd sem skartar aðeins tveimur leikurum, báðum góðum, þeim Willem Defoe og Char- lotte Gainsbourg. Tarantino er með spagettí- stríðsmyndina Inglorious Basterds og getur vart talist sérstaklega líklegur sigurvegari. Hann var nefnilega nærri því búinn að ráða Isabelle Huppert í myndina en hætti svo við, út af stjörnustælum segir sagan en Huppert sjálf sagðist hreinlega ekki hafa verið nógu spennt fyrir hlutverkinu. Nú er hún hins veg- ar formaður dómnefndarinnar í Cannes.    Þekktir leikstjórar á borð við hina ástr-ölsku Jane Campion, heimamanninn Gaspar Noé og Bretana Ken Loach og Andreu Arnold keppa einnig um pálmann gyllta og raunar hafa allir leikstjórarnir tekið þátt áð- ur. Það þykir sumum sýna fram á styrk keppninnar í ár en aðrir segja þetta bera merki um skort á ævintýragirni og dirfsku. Sannleikann finnum við væntanlega í bíósaln- um. Það nafn sem kom mér þó mest á óvart í að- alkeppninni var franski leikstjórinn Alain Resnais, einfaldlega af því ég reiknaði með að hann væri dauður eða í það minnsta kominn á eftirlaun, enda fimmtíu ár síðan hann keppti um Gullpálmann með einhverri ljóðrænustu og fallegustu bíómynd sem ég hef séð, Hiros- hima mon amour. En sá gamli er enn að þótt hann eigi tæpan mánuð í 87. afmælisdaginn og í Cannes fáum við að sjá ástarsöguna Villi- grös (Les herbes folles), sem ku gerast í há- loftunum þar sem lögmál þyngdaraflsins og ástarinnar rekast hvort á annað.    En þótt flestar helstu myndirnar séu í að-alkeppninni þá eru vissulega einhverjar kanónur fyrir utan hana. Francis Ford Cop- pola með Tetro, Alejandro Amenabar með Agora, Michel Gondry með Þyrninn í hjartanu (L’epine dans le coeur), Sam Raimi með mið- nætursýningu á Drag Me to Hell og Terry Gilliam með síðustu mynd Heaths heitins Led- gers, The Imaginarium of Doctor Parnassus. Opnunarmyndin Up kemur frá Pixar og fjallar um þybbinn skátadreng sem heimsækir gaml- ingja nokkurn í þann mund sem hús þess gamla fer á flug, bókstaflega. Pixar-menn hafa lýst þeim gamla sem blöndu af Spencer Tracy og Walter Matthau, sem eru vissulega gleðitíðindi enda hef ég beðið eftir nýrri Spen- cer Tracy mynd frá því áður en ég fæddist.    En draumurinn er samt alltaf að uppgötvaeitthvað splunkunýtt, leikstjóra sem ekk- ert okkar þekkir ennþá, stórleikara framtíð- arinnar eða jafnvel áður óþekkt kvikmynda- form. Ég læt ykkur vita hvernig gengur í reglulegum Cannes-pistlum hér í blaðinu en þetta verður að duga í bili, ég þarf að fara að pakka jakkafötunum. asgeirhi@mbl.is Senjorítur og rósavín » Opnunarmyndin Up kemurfrá Pixar og fjallar um þybbinn skátadreng sem heim- sækir gamlingja nokkurn í þann mund sem hús þess gamla fer á flug, bókstaflega. Reuters Cannes nr. 62 Gilles Jacob, forseti 62. Cannes kvikmyndahátíðarinnar, og Thierry Fremaux, fulltrúi, fyrir framan veggspjald hátíðarinnar í ár. Cannes stendur frá 13.- 24. maí. FRÁ CANNES Ásgeir H Ingólfsson Bright Star e. Jane Campion Spring Fever e. Lou Ye Antichrist e. Lars von Trier Enter the Void e. Gaspar Noé Andlit (Visages) e. Tsai Ming-liang Villigrös (Les herbes folles) e. Alain Resnais Í upphafi (À l’origine) e. Xavier Giannoli Spámaðurinn (Un prophète) e. Jacques Audiard Hvíti borðinn (Das weiße Band) e. Michael Haneke Vengeance e. Johnnie To The Time That Remains e. Elia Suleiman Vincere e. Marco Bellocchio Kinatay e. Brillante Mendoza Þorsti (Bakjwi) e. Park Chan-wook Brotin faðmlög (Los abrazos rotos) e. Pedro Almodovar Map of the Sounds of Tokyo e. Isabel Coixet Fish Tank, e. Andrea Arnold Looking for Eric e. Ken Loach Inglourious Basterds e. Quentin Tarantino Taking Woodstock e. Ang Lee Myndir í aðalkeppninni: Cruz Leikur í Brotnum faðmlögum, einnar af tuttugu myndum sem keppa um Gullpálmann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.