Morgunblaðið - 11.05.2009, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
16
17 AGAIN kl. 6
I LOVE YOU MAN kl. 8
THE UNBORN kl. 10:40
MONSTERS VS ALIENS m. ísl. tali kl. 6
STAR TREX XI kl. 6 - 8D - 9 - 10:40D DIGITAL
STAR TREX X kl. 5:30 - 8 - 10:40 LÚXUS VIP
X MEN ORIGINS: WOLVERING kl. 5:40 - 8 - 10:20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6D L DIGITAL
OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:40
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
Frá Höfundi Lost og
Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND
sem gagnrýnendur
halda vart
vatni yfir!
100/100
The Hollywood Reporter
100/100
Variety
100/100
“In the pop high it delivers, this is the greatest prequel ever made.”
Boston Globe
HHHH
Empire
HHHH
“Gleymdu nafninu. Ef þú fílar hraðskreiðan og dúndurspennandi sumar-
hasar með frábærum tæknibrellum og flottum leikurum þá er
Star Trek mynd fyrir þig!” Tommi - kvikmyndir.is
(AF 4)
“...VÖNDUÐ KVIKMYND.”
“...ÞÁ ER GRUNNT Í HÚMORINN
Í VIÐTÖLUM.”
“ÞAÐ ER ÞVÍ ÓHÆTT AÐ MÆLA MEÐ
SÖGU ALFREÐS OG LOFTLEIÐA.”
MARÍA MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR, KVIKMYNDIR.COM
MAÐURINN SEM BAUÐ RISUNUM BYRGINN OG SIGRAÐI
SÝND Í ÁLFABAKKA
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA
KNOCKED UP OG
FORGETTING SARAH MARSHALL
....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ?
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
2 VIKUR Í RÖÐ!
HVER SEGIR AÐ ÞÚ
SÉRT BARA UNGUR
EINU SINNI?SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
14
10
16
L
12
L
16
L
10
L
L
L
STAR TREK XI kl. 8D - 10:30D DIGITAL
ALFREÐ E. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 5:30D - 8D - 10:30D DIGITAL
NEW IN TOWN kl. 6 - 8
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6D DIGITAL
LET THE RIGHT ONE IN (Gagnrýnandinn) kl. 10:10
SÝND Í KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Verður þetta ekki bara vín og fagrarkonur?“ spurði einn kolleginn þegarég sagði honum að ég væri að fara á
kvikmyndahátíðina í Cannes fyrir Moggann.
Ég jánkaði vitaskuld, en þótt ég fúlsi seint við
áðurnefndu þá verð ég að viðurkenna að aðal-
ástæða fararinnar er engu að síður bíómynd-
irnar. Hátt í hundrað myndir sem langflestar
eru sýndar í fyrsta skipti í heiminum í Cannes,
margar stórmerkilegar bíómyndir sem óvíst
er að ameríkaníseruð bíóhúsin hér heima sjái
sér fært að sýna nokkru sinni – en líka aðrar
sem virðast vera hreinræktaðar Hollywood-
myndir í besta skilningi þess orðs, draumar
frá draumaverksmiðjunni. Að því sögðu úti-
loka ég samt ekki að ég gæti misst af eins og
einni mynd ef Penelope Cruz vill endilega
panta aðra rósavínsflösku.
Cruz leikur einmitt í Brotnum faðmlögum(Los abrazos rotos) Pedros Almodóvars,
einnar af tuttugu myndum sem keppa um
Gullpálmann, aðalverðlaun hátíðarinnar.
Almodóvar er einn fjögurra fyrri sigurvegara
þar, Ang Lee mætir með Taking Woodstock
og Íslandsvinirnir Quentin Tarantino og Lars
von Trier mæta sömuleiðis. Von Trier sýnir
okkur Anti-Christ, biblíuskotna hryllings-
mynd sem skartar aðeins tveimur leikurum,
báðum góðum, þeim Willem Defoe og Char-
lotte Gainsbourg. Tarantino er með spagettí-
stríðsmyndina Inglorious Basterds og getur
vart talist sérstaklega líklegur sigurvegari.
Hann var nefnilega nærri því búinn að ráða
Isabelle Huppert í myndina en hætti svo við,
út af stjörnustælum segir sagan en Huppert
sjálf sagðist hreinlega ekki hafa verið nógu
spennt fyrir hlutverkinu. Nú er hún hins veg-
ar formaður dómnefndarinnar í Cannes.
Þekktir leikstjórar á borð við hina ástr-ölsku Jane Campion, heimamanninn
Gaspar Noé og Bretana Ken Loach og Andreu
Arnold keppa einnig um pálmann gyllta og
raunar hafa allir leikstjórarnir tekið þátt áð-
ur. Það þykir sumum sýna fram á styrk
keppninnar í ár en aðrir segja þetta bera
merki um skort á ævintýragirni og dirfsku.
Sannleikann finnum við væntanlega í bíósaln-
um.
Það nafn sem kom mér þó mest á óvart í að-
alkeppninni var franski leikstjórinn Alain
Resnais, einfaldlega af því ég reiknaði með að
hann væri dauður eða í það minnsta kominn á
eftirlaun, enda fimmtíu ár síðan hann keppti
um Gullpálmann með einhverri ljóðrænustu
og fallegustu bíómynd sem ég hef séð, Hiros-
hima mon amour. En sá gamli er enn að þótt
hann eigi tæpan mánuð í 87. afmælisdaginn
og í Cannes fáum við að sjá ástarsöguna Villi-
grös (Les herbes folles), sem ku gerast í há-
loftunum þar sem lögmál þyngdaraflsins og
ástarinnar rekast hvort á annað.
En þótt flestar helstu myndirnar séu í að-alkeppninni þá eru vissulega einhverjar
kanónur fyrir utan hana. Francis Ford Cop-
pola með Tetro, Alejandro Amenabar með
Agora, Michel Gondry með Þyrninn í hjartanu
(L’epine dans le coeur), Sam Raimi með mið-
nætursýningu á Drag Me to Hell og Terry
Gilliam með síðustu mynd Heaths heitins Led-
gers, The Imaginarium of Doctor Parnassus.
Opnunarmyndin Up kemur frá Pixar og fjallar
um þybbinn skátadreng sem heimsækir gaml-
ingja nokkurn í þann mund sem hús þess
gamla fer á flug, bókstaflega. Pixar-menn
hafa lýst þeim gamla sem blöndu af Spencer
Tracy og Walter Matthau, sem eru vissulega
gleðitíðindi enda hef ég beðið eftir nýrri Spen-
cer Tracy mynd frá því áður en ég fæddist.
En draumurinn er samt alltaf að uppgötvaeitthvað splunkunýtt, leikstjóra sem ekk-
ert okkar þekkir ennþá, stórleikara framtíð-
arinnar eða jafnvel áður óþekkt kvikmynda-
form. Ég læt ykkur vita hvernig gengur í
reglulegum Cannes-pistlum hér í blaðinu en
þetta verður að duga í bili, ég þarf að fara að
pakka jakkafötunum.
asgeirhi@mbl.is
Senjorítur og rósavín
» Opnunarmyndin Up kemurfrá Pixar og fjallar um
þybbinn skátadreng sem heim-
sækir gamlingja nokkurn í
þann mund sem hús þess
gamla fer á flug, bókstaflega.
Reuters
Cannes nr. 62 Gilles Jacob, forseti 62. Cannes kvikmyndahátíðarinnar, og Thierry Fremaux,
fulltrúi, fyrir framan veggspjald hátíðarinnar í ár. Cannes stendur frá 13.- 24. maí.
FRÁ CANNES
Ásgeir H Ingólfsson
Bright Star e. Jane Campion
Spring Fever e. Lou Ye
Antichrist e. Lars von Trier
Enter the Void e. Gaspar Noé
Andlit (Visages) e. Tsai Ming-liang
Villigrös (Les herbes folles) e. Alain
Resnais
Í upphafi (À l’origine) e. Xavier Giannoli
Spámaðurinn (Un prophète) e. Jacques
Audiard
Hvíti borðinn (Das weiße Band) e. Michael
Haneke
Vengeance e. Johnnie To
The Time That Remains e. Elia Suleiman
Vincere e. Marco Bellocchio
Kinatay e. Brillante Mendoza
Þorsti (Bakjwi) e. Park Chan-wook
Brotin faðmlög (Los abrazos rotos) e.
Pedro Almodovar
Map of the Sounds of Tokyo e. Isabel
Coixet
Fish Tank, e. Andrea Arnold
Looking for Eric e. Ken Loach
Inglourious Basterds e. Quentin Tarantino
Taking Woodstock e. Ang Lee
Myndir í aðalkeppninni:
Cruz Leikur í Brotnum faðmlögum, einnar af tuttugu myndum sem keppa um Gullpálmann.