Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Kaupi bækur
Kaupi bækur og bókasöfn.
Eionnig eldri erlendar bækur
Upplýsingar í síma 898 9475,
Þorvaldur.
Garðar
Garðsláttur og beðhreinsun í
sumar. Garðsláttur og beðhreinsanir
fyrir húsfélög og einstaklinga. Við
kíkjum á garðinn hjá þér og gefum
þér tilboð. ENGI ehf. Sími: 857 3506.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 29.900. Hljómborð frá kr.
17.900. Trommusett kr. 49.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsgögn
Húsnæði óskast
Reglusamt par óskar eftir
einbýlishúsi
Reglusamt par óskar eftir rúmgóðu
einbýli til leigu á sanngjörnu verði.
Rekum netverslun frá heimili okkar.
Æskileg staðsetning er 101-108.
Langtímaleiga. Nánari uppl. í síma
840 5221 eða hedinng@simnet.is
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Byrjendanámskeið í tennis
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið.
Upplýsingar í síma 564 4030 og á
tennishollin.is
Tómstundir
ÆVINTÝRI Í BORGARFIRÐI
www.sumarbudir.is
s:551-9160
SUMARBÚÐIR MEÐ SÉRSTÖÐU!
Til sölu
Stolnar fartölvur til sölu.
Eins og nýjar. Frábært verð.
Uppl í síma 696-3938
Matador heilsársdekk útsala
165R13 kr. 3.900
155/70R13 kr. 5500
165/65R14 kr. 7900
185/65R14 kr. 8900
195/65R15 kr. 9900
215/55R16 kr. 16900
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi
s. 544 4333.
Verslun
Freemans-listinn
Maítilboð!! Gjöf fylgir öllum
pöntunum í maímánuði. Ath. listinn
er frír út þennan mánuð.
S. 565-3900 eða www.freemans.is
Þægilegasti verslunarmátinn.
Óska eftir
Frímerki - Mynt - Seðlar:
Uppboðsaðili kaupir frímerki, umslög,
mynt, seðla, póstkort, minnispeninga,
orður, gömul skjöl og margt fleira.
Staðgreiðsla strax. Opið daglega
mán.-fim. 10:30-15:00 á
Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, sími
694 5871 og 561 5871.
Bókhald
Bókhald - Framtöl
Framtals- og bókhaldsþjónusta -
VSK uppgjör, stofnun EHF. erfðarfjár-
skýrslur o.fl. Sanngjarnt verð.
Uppl. í s. 517-3977.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
er komin móða eða raki á milli
glerja. móðuhreinsun ÓÞ.
sími 897-9809.
Lagnahönnun / HVS Designer
(HVAC) Almenn lagnahönnun, lagna-
þjónusta ásamt stillingum hita- og
loftræsikerfa, bilanaleit /greining
o.fl. Vönduð og reynslurík vinnu-
brögð. Upplýs. í síma 893 7124.
Byggingar
Hönnun nýbygginga eða endur-
bóta húsnæðis. Tek að mér hönn-
unarverkefni, stór og smá. 100% en-
durgreiðsla virðisaukaskatts af þjón-
ustunni samkvæmt nýjum lögum.
Helgi Hallgrímsson, arkitekt FAÍ,
sími 697 8548.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt
Sérlega vandaðir og þægilegir
bandaskór úr leðri og skinnfóðraðir í
úrvali. Stærðir: 36 - 40
Litir: hvítt, beige, brúnt, rautt og
svart. Verð: 8.975.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Nýjar skolplagnir!
Endurnýjum lagnir með nýrri tækni!
Enginn uppgröftur, lágmarks truflanir,
auknir rennslis eiginleikar. Fullkomin
röramyndavél.
Ástandskoðum lagnakerfi.
A-Ö lagnir ehf.
Uppl. í síma 564-2100.
Reiðhjól
Rafmagnsreiðhjól
Rafmagnsreiðhjól, verð 98.900,-
engin tryggingariðgjöld/bensín-
kostnaður. Allt að 25 km/klst. án
þess að stíga hjólið, ca. 20 km á
hleðslunni. www.el-bike.is
Bílar
Toyota Avensis árg.'03 ek. 132
þús., nýsk., sjsk. 5 d. toppbíll, bílalán
650 þús., afborgun 32 þús. Skipti
möguleg. Verð 930 þús. S. 892 7852
eða bergfinnur@internet.is
Hyundai santa fe. Tilboð 1.490,
áður 2.490. Santa fe 8/2005 ek. 69
þús. km, 5 gíra, 4x4, fallegur bíll. Ný
skoðaður. Möguleiki á 100% láni.
Ekkert áhvílandi. Sími 691 4441.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj.
Firðinum (undir verslunarm.)
Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, mössun, teflon,
bryngljái, djúphreinsun.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla .
8921451/5574975.Visa/Euro
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
✝ Jón Jóhann Har-aldsson fæddist á
Akureyri 21. apríl
1929. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 3. maí sl.
Foreldrar hans voru
Helga Magnúsdóttir,
f. 21. ágúst 1903, d. 1.
mars 1997, og Har-
aldur Ingvar Jóns-
son, f. 21. janúar
1904, d. 13. október
1969. Bræður Jóns
eru Úlfar, f. 27. nóv-
ember 1935, kvæntur
Margréti Ríkarðsdóttur, þau eiga
þrjú börn, og Svavar, f. 2. febrúar
1946, kvæntur Sigríði Jónsdóttur,
þau eiga fjögur börn.
Jón kvæntist 26. október 1963
Eddu Dagbjartsdóttur, f. 7. júlí
1942. Foreldrar hennar voru Guð-
arameistara á Akureyri, sem var
móðurbróðir hans. Hann sótti Iðn-
skólann í Reykjavík og var á samn-
ingi hjá Stefáni Jakobssyni múr-
arameistara. Hann tók sveinspróf í
Reykjavík 1949 og fékk meist-
araréttindi 1953. Hann stundaði
sjó frá 1950 til 1961 sem háseti á
togurum á vetrum þegar lítið var
að gera í múrverki. Síðustu 10
starfsárin vann hann hjá Sjóvá-
Almennum í tjónadeild.
Áhugamál Jóns voru helst sund
sem hann æfði með Sundfélaginu
Ægi á sínum yngri árum, skíði,
kórsöngur og trompetleikur. Hann
lék með Lúðrasveit Akureyrar, síð-
an Svaninum og var einn af stofn-
endum Lúðrasveitar verkalýðsins
1953. Árið 1990 fékk hann golf-
bakteríuna og stundaði golfið af
lífi og sál. Hann var einn af stofn-
endum og fyrsti gjaldkeri Golf-
klúbbsins Odds. Jón gekk í Odd-
fellowregluna og vígðist í stúku nr.
11, Þorgeir, hinn 10. febrúar 1983.
Það taldi hann vera eitt af því
besta sem hann gerði um ævina.
Útför Jóns fer fram frá Bústaða-
kirkju í dag, 11. maí, kl. 15.
rún Andrésdóttir, f.
12. mars 1902, d. 14.
febrúar 1980, og
Dagbjartur Sigurðs-
son, f. 9. nóvember
1890, d. 1. júní 1975.
Börn Jóns og Eddu
eru: 1) Hrannar, f. 7.
júlí 1963, kvæntur
Kristínu Þórð-
ardóttir, f. 21. desem-
ber 1966. Börn þeirra
eru Jón Þór, f. 3. jan-
úar 1987, og Kolbrún
Sif, f. 2. október
1991. 2) Helga, f. 22.
september 1964, gift Sigurjóni
Jónssyni, f. 6. júlí 1965. Börn
þeirra eru Jón Otti, f. 10. febrúar
2000, og Axel Óli, f. 17. janúar
2003.
Jón lærði múrverk fyrst hjá
Guðmundi Magnússyni múr-
Í dag er til grafar borinn vinur
okkar og Oddfellowbróðir, Jón Jó-
hann Haraldsson, múrarameistari,
nýlega orðinn áttræður. Andlát hans
kom ekki svo mjög á óvart því að
hann hafði um nokkuð langt skeið átt
við veikindi að etja sem hann bar
eins og hetja og var ekki tilbúinn að
láta buga sig eða breyta lífsstíl sín-
um um of. Hann naut útivistar og fé-
lagsskapar við að leika golf með
Eddu, konu sinni, og vinum sínum,
eins lengi og hann megnaði það, þótt
hann væri stundum þjáður. Hann
hlakkaði til vorsins og að sveifla kylf-
um sínum.
En enginn má sköpum renna og
enn annar illvígur sjúkdómur bar
hann ofurliði á tiltölulega skömmum
tíma. Í dag er hann með söknuði
kvaddur hinstu kveðju.
Jón var múrarameistari að mennt
og starfi og vann við þá iðn alla ævi.
Hann var listafagmaður, vandaður
og mjög eftirsóttur starfsmaður.
Hann var annálað snyrtimenni,
hvort sem var í starfi eða öðru mann-
legu samneyti. Jón var myndarlegur
á velli og bar sig alltaf vel; hann hafði
sterkan, karlmannlegan málróm,
sem ekki veitti af, því að hann lá ekki
á skoðunum sínum, heldur lét þær í
ljósi, þegar honum fannst tilefni til.
Jón var réttsýnn og heiðarlegur
maður sem ekki talaði illa um með-
bræður sínar eða systur og þoldi
ekki óréttlæti. Hann var glaðlyndur
og þægilegur í umgengni, og hlát-
urinn var aldrei langt undan.
Jón var sannur heiðursmaður í
fyllstu merkingu íslenskrar tungu.
Jón gekk í Oddfellowstúkuna Þor-
geir nr.11 árið 1983 og starfaði þar
alla tíð af miklum áhuga og fórnfýsi.
Hann gegndi fjölmörgum embætt-
um og skyldustörfum í stúku sinni
allt til dauðadags og reyndist hug-
sjónum Oddfellowreglunnar mikill
og góður liðsmaður. Hann hlaut ýmis
heiðursmerki Reglunnar fyrir langa
og dygga þjónustu. Í þeim fé-
lagsskap er ekki skyldumæting, en í
stúkunni okkar, Þorgeiri, er reynt að
halda í heiðri þá reglu að fimmtudag-
ar séu Þorgeirsdagar, en þá eru
fundir stúkunnar haldnir. Þessari
reglu fylgdi Jón manna best og
mætti jafnan til fundar, nema mjög
veigamiklar ástæður kæmu í veg
fyrir það.
Veturinn sem nú er nýliðinn var
oft svo af honum dregið að hann
treysti sér ekki til að mæta. Við
stúkubræður hans söknuðum hans,
væri hann fjarverandi, svo mikinn
svip setti hann á stúkufundina með
góðri nærveru sinni.
Jón stundaði golfíþróttina í fjölda
ára, vegna þeirrar ánægju og holl-
ustu sem hún veitti honum. Hann var
í raun afburða golfmaður og um ára-
skeið sá besti í stúkunni okkar, þótt
margir gerðu harða atlögu að þeirri
vegsemd.
Jón átti drjúgan þátt í gerð eins
glæsilegasta golfvallar landsins –
Urriðavallar Oddfellowreglunnar –
og var afar stoltur af því mannvirki.
Það er erfitt að hugsa sér Jón
horfinn af sjónarsviðinu og eiga þess
ekki von að taka með honum hring á
golfvellinum í sumar eða hitta hann
glaðan og reifan þegar fundir hefjast
í Oddfellow í haust.
Fyrir hönd Oddfellowbræðra í
stúkunni Þorgeiri og eiginkvenna
þökkum við, sem þessar línur rita,
fyrir langa og ánægjulega samfylgd
góðs félaga og vinar, Jóns J. Har-
aldssonar. Minningin um hann mun
lifa lengi með okkur.
Eiginkonu Jóns, okkar kæru vin-
konu Eddu, börnum þeirra, Helgu
og Hrannari og fjölskyldum þeirra
vottum við innilegustu samúð.
Fyrir hönd stúkunnar nr. 11 Þor-
geirs,
Ingvi Þorsteinsson
og Einar Egilson.
Jón Jóhann
Haraldsson