Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.06.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.06.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is HÆGST hefur á uppgreiðslum lána hjá Íbúðalánasjóði það sem af er ári. Í janúar námu uppgreiðslurnar tæpum 952 milljónum króna en nú í maí voru þær tæplega 550 milljónum króna lægri eða 404 milljónir. Þetta er sam- kvæmt tölum sem Íbúðalánasjóður vann fyrir lesendur Morgunblaðsins. Samkvæmt upplýsingum sjóðsins er erfitt að útskýra af hverju færri kjósa að greiða upp eða inn á lánin sín nú en í byrjun árs. Viðskiptavinir hans gefi ekki ástæðurnar upp. Sveinn Agnarsson, fræðimaður við Hagfræðistofnun, segir alltaf gott að skulda lítið á krepputímum og ákjós- anlegt að minnka áhættuna af hærra og síbreytilegu verðlagi sem hafi áhrif á verðtryggð lán. „Hafi vaxtalækkan- ir leitt til þess að fólk fái lága ávöxtun ætti það virkilega að velta því fyrir sér hvort það geti ekki bætt stöðu sína með því að nota sparifé sitt í að borga inn á lán.“ Hann segir ekki endilega ákjósan- legt að leggja peningana inn á verð- tryggðan reikning nú. „Þó það sé í sjálfu sér heppilegt að binda fé og láta vaxtatekjurnar ganga gegn vaxta- gjöldum af íbúðalánum getur það verði óheppilegt vegna bindiskyld- unnar. Ekki er hægt að bregðast við ef eitthvað kemur upp á.“ Sveinn bendir á að ábyggilega hafi margir létt sína skuldabyrði snemma í kreppunni. Það staðfestist í grafinu hér til hliðar, því kippur kom í upp- greiðslu lána hjá Íbúðalánasjóði í október og nóvember. Í febrúar voru uppgreiðslurnar tæpar 652 milljónir króna, rúmar 814 milljónir í mars og tæpar 714 milljónir króna í apríl. Uppgreiðslur lána námu tæpum 17,7 milljörðum króna á síðasta ári á móti 21,6 milljörðum á árinu 2007. Æ færri greiða upp íbúðalánin Uppgreiðslur hjá Íbúðalánasjóði 404 milljónir króna í maí en 952 milljónir í janúar                     Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is NÝJAR upplýsingar Seðlabankans sýna svart á hvítu að skuldavandi heimilanna er ekki eins skelfilegur og látið er í veðri vaka. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við utandagskrár- umræður á Alþingi í gær um stöðu heimilanna. Umræðan fór fram að ósk Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, formanns Framsóknarflokks- ins. Jóhanna vísaði í nýjar og ítarlegar upplýsingar um stöðu heimilanna. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þegar fengið virðast þessar nýju upplýsingar staðfesta að skuldavandi heimilanna sé ekki eins víðtækur og ýmsir halda fram. Töl- urnar sýna að ¾ heimila með fast- eignaveðlán eða um 74% verja innan við 30% ráðstöfunartekna sinna til að standa undir fasteignalánum sín- um og um 80% heimila verja innan við 20% af ráðstöfunartekjum sínum í bílalán. Langstærstur hluti heimila landsins býr því við viðráðanlega greiðslubyrði vegna fasteigna- og bílalána, skv. nýjum niðurstöðum Seðlabankans. Um er að ræða um 60% af húsnæðisskuldum lands- manna. Helmingur þeirra heimila sem greiða yfir 30% af ráðstöf- unartekjum sínum í afborganir af fasteignaveðlánum er einnig í við- kvæmri eiginfjárstöðu og um 60% þeirra eru með minna en 250 þúsund í ráðstöfunartekjur á mánuði. 12% heimila greiða hins vegar yfir 50% af ráðstöfunartekjum sínum í fast- eignaveðlán og er helmingur þeirra, um 6%, eða um fimm þúsund heimili einnig með viðkvæma eiginfjárstöðu í húsnæði,“ sagði Jóhanna. Þá kom fram hjá henni að í fyrra bárust sýslumanni 559 beiðnir um nauðungarsölur fasteigna í hverjum mánuði að meðaltali. Á fyrstu fjór- um mánuðum þessa árs er fjöldinn 547 beiðnir að meðaltali á mánuði. Fasteignir seldar á uppboðum voru að meðaltali 62 á mánuði í fyrra en voru 61 á mánuði á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Sjöföldun alvarlegra vanskila Sigmundur dró upp svartari mynd. Vísaði í nýjar upplýsingar Fjármálaeftirlitsins sem sýndu að sjöföldun hefði orðið á alvarlegum vanskilum einstaklinga sem hafa varað í þrjá mánuði eða lengur, ef miðað er við sama tíma í fyrra. Frá því að bankarnir hrundu hafa þessi alvarlegu vanskil tvöfaldast. Ástandið er enn svartara meðal fyr- irtækja. Þar hefur orðið 24-földun á alvarlegum vanskilum fyrirtækja hjá bönkunum frá í fyrra. Frá hruninu er um fimm- til sexföldun alvarlegra vanskila að ræða. Nýjar upplýsingar frá Creditinfo sýna að 18.733 einstaklingar eru á van- skilaskrá. Morgunblaðið/Eggert Miklar umræður Þingmenn ræddu skuldavanda heimilanna í gær. Í dag fer fram umræða um stöðu háskólanna. Ekki eins skelfileg  Greiðslur fasteignaveðlána yfir 50% af ráðstöfunartekjum 12% heimila  Afborganirnar eru undir 30% hjá 74% heimila Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÉG óttast að það verði hrikalegar uppsagnir framundan ef svo heldur fram sem horfir,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ. Vinnuhópar ASÍ héldu áfram störfum í gær en ekki hefur verið fundað með Samtökum atvinnulífs- ins síðan á föstudag þar sem beðið er m.a. tíðinda um vaxtastefnu Seðla- bankans. Að sögn Gylfa var í gær fyrst og fremst unnið að því að fá yfirlit yfir framkvæmdastöðu Landsvirkjunar, hitaveitnanna, Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna. „Við erum að reyna að átta okkur á því hvert er umfang fram- kvæmdastigs og hverjir möguleikar eru á því að stokka upp, ýta mann- aflsfrekum framkvæmdum framar og seinka fjármagnsfrekum. En það verður að viðurkennast að staðan er ákaflega dapurleg, það er nánast al- kul á þeim vettvangi og ber allt að sama brunni því aðgerðir eru í stoppi vegna þessarar vaxtastefnu.“ 5% vextir sem allra fyrst Gylfi segist ekki vilja nefna ákveðna vaxtatölu sem þá einu ásættanlegu en segir fyrst og fremst nauðsynlegt að vaxtastefnunni í heild sé breytt. „Ég held að grein- argerð Seðlabankans skipti ekki síð- ur máli en ákvörðunin sjálf. Á hvaða vegferð erum við? Ef hún felur ekki í sér að innan fárra mánaða verði vextir komnir niður í 5% þá eru það mikil vonbrigði.“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, talaði á svipuðum nótum eftir fundahöld gærdagsins. Ákvörðunar Seðlabankans væri beð- ið fyrir áframhald umræðna, en það- an hefðu undanfarið komið ein- kennileg og misvísandi skilaboð varðandi vextina og því erfitt að segja á hverju væri von. „Óttast hrika- legar uppsagnir framundan“ Breytt vaxtastefna nauðsynlegt skref Morgunblaðið/Golli Stopp Framkvæmdir eru í frosti vegna vaxtastefnu, segir Gylfi. Í HNOTSKURN »Vaxtaákvörðun peninga-stefnunefndar Seðlabanka Íslands verður tilkynnt í dag. »SA segja nauðsynlegt aðvaxtastigið verði lækkað niður fyrir tveggja stafa tölu. Orðrétt frá Alþingi ’Ég tel að það verði ekki hjá þvíkomist að grípa til sértækra að-gerða vegna þeirra sem eiga í veruleg-um vanda. RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR ’Töfralausnirnar og yfirboðin ogpopúlisminn hjálpar ekki nokkr-um manni nokkurn skapaðan hlutheldur raunhæfar aðgerðir, sem eru ísamræmi við getu þjóðarbúsins. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ’Í stað hjálpar búa þessi heimili viðsértækar, flóknar og jafnvel lít-illækkandi aðgerðir af hálfu stjórn-arinnar. Teygjulán, bómullargjaldþrotog þvíumlíkt. Þau búa við handstýrða vísitölu og þau búa við handstýrða ok- urvexti og þau búa við þá vitneskju að alþýðu Íslands verður falið að greiða ekki bara sínar skuldir upp í topp, heldur líka skuldir verstu óreiðumanna sem Íslandssagan kann frá að greina. ÞRÁINN BERTELSSON ’Ég legg því til að hæstvirtur for-sætisráðherra skipi nefnd meðfulltrúum allra hagsmunaaðila til aðfara yfir og ná samkomulagi um leiðirtil þess að leiðrétta óréttlætið sem skapast hefur af völdum verðtrygging- arinnar. Slík samráðsnefnd er for- senda þess að hér náist þjóðarsátt um endurreisnina. LILJA MÓSESDÓTTIR SÍBROTAMAÐUR á sextugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í tíu mánaða fangelsi í gær. Hann var ákærður fyrir húsbrot og þjófnaðartilraun, en hann braust inn í hús í Hveragerði í júní á síð- asta ári og hafði safnað saman skartgripum þegar komið var að honum. Kona kom að manninum við verkið, en hann reyndi þá að varna henni inngöngu í herbergið. Hún spurði hann hvað hann væri að gera þarna inni, en hann sagðist þá vera að leita að síma til að hringja í leigubíl. Maðurinn á að baki langan brota- feril, allt frá árinu 1969. Hann hefur þrjátíu og níu sinnum verið dæmdur fyrir þjófnað og tvisvar fyrir hús- brot. Þá hefur hann oft fengið dóma fyrir önnur hegningarlagabrot. Tíu mánuðir fyrir húsbrot í Hveragerði LANDSVIRKJUN hefur boðað 7,5% hækkun á raforkuverði sínu til almenningsveitna frá og með 1. júlí næstkomandi, að því er fram kemur á vef Orkuveitu Reykjavíkur. Í kjölfarið mun gjaldskrá Orku- veitunnar einnig hækka og er sú skýring gefin að kaup á raforku frá Landsvirkjun séu umtalsverður hluti af innkaupum OR fyrir almenn- an markað og leiði því til kostnaðar- hækkunar. Áhrifin nema 5,05% en hækkun OR er 2,5%. Með dreifing- arkostnaði, flutningsgjaldi og virðis- aukaskatti fer kílóvattstundin úr 9,15 kr. í 9,38 kr. sem er 2,5% hækk- un. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er um samningsbundna hækkun að ræða. Hækkunin sé talsvert undir því sem heimilt væri í raun vegna verðlagsbreytinga. una@mbl.is Orkuverð hækkar hjá Landsvirkjun og OR Rafmagn Verðið hækkar 1. júlí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.