Morgunblaðið - 04.06.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.06.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 AÐ LÆRA að veiða sér til matar er fyrirferðar- mikill þáttur í uppeldi tjaldsins líkt og annarra fugla. Þegar litlu krílin skríða úr eggi ætlast þau til að fá aðstoð en fljótlega dregur mamman sig í hlé eftir kennslustund í ormatínslu. Eftirlætis fæða tjaldsins er þó kræklingur og annar skel- fiskur enda hefur hann gott verkfæri til að éta slíkt, sterklegan og hvassan gogg sem hann not- ar til að ná fiskinum úr skelinni. En stundum verða ormar að duga. Feitir og pattaralegir ána- maðkar eru enda seðjandi í litla ungamaga. sunna@mbl.is Morgunblaðið/Ómar „SVONA FERÐU AÐ, ELSKAN“ FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is MATVÖRUVERÐ hefur hækkað um fjórðung til þriðjung undanfarið ár, skv. verðmælingum ASÍ á vöru- körfu lágverðsverslana frá apríl í fyrra. Dregið hefur saman með lág- verðs- og þjónustuverslunum að undanförnu. ASÍ birti í gær samanburð á verð- könnun sem gerð var í síðustu viku í lágverðsverslunum við verðkönnun frá í febrúar. Þar kom m.a. fram að verð á ungnautahakki hafði hækkað um allt að 67% á þessu tímabili. Hins vegar lækkuðu vörur á borð við ávexti, grænmeti og fisk. Ester Sveinbjarnardóttir, verk- efnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, seg- ir ekki einfalt að draga ályktanir af þessari þróun. „Markaðurinn er svo- lítið kvikur. Það geta t.d. hafa verið tilboð á ungnautahakkinu þegar fyrri könnunin var gerð. Á hinn bóg- inn eru árstíðarvörur, eins og ávext- ir og grænmeti, ódýrari á sumrin og fiskurinn er greinilega að lækka því við vorum með verðkönnun á fiski í vetur sem sýndi það sama og nú.“ Ýmsar ástæður geti verið fyrir þeirri þróun. Bæði hafi fiskverð er- lendis lækkað auk þess sem sam- keppni hafi aukist í fisksölu innan- lands. Sama fákeppnin og áður En þótt einstaka vörutegundir lækki í verði segir Ester mat- vælaverð hafa hækkað verulega síð- astliðið ár. „Þegar við lítum á vöru- körfumælingarnar okkar sést að í einhverjum tilfellum hefur verð lækkað lítilsháttar frá því í janúar. Aftur á móti hefur það hækkað gríð- arlega frá því í maí í fyrra.“ Þetta á ekki síst við um lágverðsverslanir þar sem vöruverð hefur hækkað um 20%-31% á þessu tímabili. Verð í þjónustuverslunum hafi hækkað minna. Innt eftir því hvort samkeppni hafi aukist eða minnkað undanfarið segir Ester lítinn verðmun á mörg- um vörum milli verslana. „Þetta ber mikil merki fákeppnismarkaðar og það er alveg sama mynstur og áður.“ Fyrir utan verðsveiflur í kjöti, fiski, grænmeti og ávöxtum segir Ester nokkrar hækkanir hafa orðið á öðrum vöruflokkum. „Þetta á t.d. við um ýmiss konar pakkavöru og hreinlætisvörur, þ.e. innfluttar vörur. Eins hefur orðið nokkur hækkun á gosi og drykkjarvörum.“ Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs- stjóri hjá Neytendastofu, segir gríð- arlega fjölgun ábendinga um verð- hækkanir síðastliðið ár. „Þar getur tvennt komið til. Annars vegar að verð hefur hækkað meira en áður og hins vegar að fólk er orðið meðvit- aðra en áður. Það hefur klárlega áhrif að fólk fylgist nú betur með því hvað hlutirnir kosta.“ Matarverðið leitar upp  Árstíðabundnar vörur lækka milli mánaða  Dregur saman með lágverðs- og þjónustuverslunum  Neytendur mun meðvitaðri um matvöruverð en áður Þótt einstaka vörutegundir hafi lækkað að undanförnu var heild- arhækkun matvöruverðs stór- felld á síðasta ári. Óhagstæð gengisþróun er helsta orsök þess að maturinn er dýrari en áður. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir óhag- stæða gengisþróun meginorsök hækkana á matvöruverði und- anfarið ár. „Mér sýnist fljótt á litið að þær fari meira og minna beint út í verðlagið þannig að þær koma sem högg á neytendur.“ Hann segir mismikla hækkun vörutegunda m.a. mega skýra með mismunandi þróun ólíkra gjaldmiðla. „Mér sýnist fljótt á lit- ið að þetta fari eftir því í hvaða gjaldmiðli verið er að flytja inn vöruna eða, ef um er að ræða inn- lendan framleiðanda, í hvaða gjaldmiðli hann flytur inn hráefnið sem vegur mest í viðkomandi vöru.“ Jóhannes bætir því við að al- menningur megi vart við frekari hækkunum, ofan á annað sem hann hafi þurft að taka á sig. „Það skiptir því verulegu máli fyrir al- menning að gengi krónunnar fari að styrkjast frá því sem nú er.“ Mikilvægt að gengið fari að styrkjast ÞÓRHALLA Björnsdóttir, einn af forvígismönnum þess að fá Dalai Lama í heimsókn til Íslands, er afar ánægð með hvernig til tókst. „Við erum mjög ánægð með þessa heim- sókn og það sem er meira um vert, hann var mjög ánægður með hana líka,“ sagði hún. Dalai Lama fór af landi brott í gær til Amsterdam. Töluvert hefur verið fjallað um að hvorki forseti, forsætisráðherra né utanríkisráðherra hittu Dalai Lama meðan á dvöl hans hér á landi stóð. Fram kom að forsetinn var á smáþjóðaleikunum á Kýpur og ut- anríkisráðherra á Möltu. Aðspurð sagði Þórhalla að sendifulltrú Dalai Lama hefði tilkynnt ráðherrunum tveimur að Dalai Lama væri vænt- anlegur og ef þeir óskuðu yrði allt gert til að koma á fundi milli þeirra. Forsetaembættið hefði sömuleiðis vitað af komu hans, líkt og aðrir. Þórhalla var spurð hvort henni þætti slæmt að ekki tókust fundir með þeim. „Að sjálfsögðu sem mik- ill Tíbetsvinur, þá hefði mér þótt það mjög yndislegt ef það hefði ver- ið. En þú veist hvernig það er þegar maður býður gestum að þá er öllum heimilt að koma eða koma ekki.“ Þórhalla hefur upplýsingar um að um 1.200 manns hafi komið á samtrúarlega bænasamkomu í Hallgrímskirkju með þátttöku Dalai Lama og um 2.700 hafi komið í Laugardalshöll. Þá hlýddi mikill fjöldi á hann í Háskóla Íslands. Mjög ánægð með heimsókn Dalai Lama Þekkjast Dalai Lama og Þórhalla Björnsdóttir í bænum McCleod Ganj. JÓHANNA Sigurðardóttir for- sætisráðherra hefur skipað Ragn- hildi Arnljótsdóttur ráðuneyt- isstjóra í forsætisráðuneytinu frá 1. júní til fimm ára. Bolli Þór Bolla- son, sem var ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu, hefur verið skip- aður ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá sama tíma. Ragnhildur gegndi embætti ráðuneytisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá árinu 2004 og var sett ráðuneyt- isstjóri í forsætisráðuneytinu frá 1. febrúar sl. þegar Jóhanna tók við embætti. Á sama tíma fékk Bolli Þór tímabundið leyfi frá störfum og einnig Baldur Guðlaugsson, ráðu- neytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Ragnhildur fæddist á Húsavík 20. júní árið 1961. Hún útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1991. Hún starfaði áður í nefnda- deild Alþingis og í heilbrigðisráðu- neytinu og var fulltrúi tveggja ráðuneyta í sendiráði Íslands í Brussel. Bolli Þór fæddist í Reykjavík árið 1947. Hann lauk námi í þjóð- hagfræði við háskólana í Manchest- er og Kaupmannahöfn. Hann var hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun frá árinu 1975, skipaður skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneytinu árið 1987 og ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu árið 2004. Ragnhildur og Bolli skipta um stóla Ragnhildur Arnljótsdóttir Bolli Þór Bollason Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „VIÐ höfum stundum verið gagnrýnd fyrir að leggja ekki nógu mikla áherslu á tækni- og iðnmenntun en hér er kominn frábærlega skýr valkostur fyr- ir þá sem vilja sérhæfa sig fyrr inn í verknámið,“ segir Kjart- an Magnússon, formaður menntaráðs Reykjavíkur. Í gær var félaginu Nýja skólakerfið ehf. veitt leyfi til stofnunar nýs einkarekins tæknigrunn- skóla. Yfirlýst markmið með stofnun skólans er m.a. að efla hjá nemendum verklega og tæknilega hugsun ásamt frumkvöðlahugsun. Leitast verður við að leggja áherslu á iðn- og tæknigreinar á tíu starfssviðum en nemendur munu ljúka grunneiningum í bóknámsgreinum. „Þessi skóli verður með skýra sérstöðu af skól- um í Reykjavík þar sem þeir verða með allt aðrar áherslur. En þótt nemendur sem velja þennan skóla vilji samt fara á bóknámsbraut í framhalds- skóla þá er það ekkert útilokað, þeir brenna engar brýr að baki sér,“ segir Kjartan. Í náminu verður sóst eftir að veita nemendum undirstöðumenntun sem verði grunnur að framhaldssnámi. Gert er ráð fyrir 40 nemendum í árgangi og verður byrjað með 8. bekk fyrsta árið og síðan bætt við einum árgangi árlega upp í 10. bekk. Verið að leita að heppilegu húsnæði Að sögn Kjartans er nú unnið að því að finna húsnæði fyrir skólann, en ekki er gert ráð fyrir að reisa nýtt. Reiknað er með því að starfsemi skól- ans geti hafist sem fyrst, hugsanlega strax í haust að sögn Kjartans. „Ég held að þetta sé mjög gott skref, þetta er gott og metnaðarfullt þróunarverkefni sem borg- aryfirvöld eiga að ýta undir. Það var mikil um- ræða í menntaráði um þetta og allir fulltrúar voru á því að hugmyndin væri mjög góð.“ Forsvarsmenn Nýju menntastefnunnar eru Hallur Jónsson og Grétar Marínósson. Tæknigrunnskóli stofnaður  Nýr einkarekinn grunnskóli í bígerð í Reykjavík með tækni- og iðnmenntun  Gæti hafið starfsemi strax í haust ef undirbúningur gengur vel Í HNOTSKURN »Nýi tæknigrunnskólinn mun einungisstarfa á unglingastigi fyrir 8.-10. bekk. »Verklegur hluti námsins fer fram íframhaldsskólum sem bjóða verk- og tæknigreinar og í fyrirtækjum á viðkom- andi starfssviðum. Kjartan Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.