Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„FORSVARSMENN sveitarfélaga
hafa vitað af erfiðri stöðu þeirra
lengi og brugðist við vandanum með
margvíslegum hagræðingar-
aðgerðum, og kallað eftir frekari að-
gerðum, þ.á m. lagabreytingum. Ég
get því ekki tekið undir þau orð for-
sætisráðherra [Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, innsk. blm.] að staða sveit-
arfélaga komi á óvart,“ segir
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ. Haft var
eftir Jóhönnu í Morgunblaðinu í gær
að erfiðleikar hjá ríki og sveit-
arfélögum væru meiri en gert hefði
verið ráð fyrir og við því þyrfti að
bregðast.
Fjárhagsstaða sveitarfélaga, eftir
hrun bankakerfisins og krónunnar í
október í fyrra, hefur á und-
anförnum dögum verið að skýrast.
Mesta tapið vegna OR
Stærstu sveitarfélög landsins,
Reykjavíkurborg, Kópavogur og
Hafnarfjörður, hafa nýlega tilkynnt
stöðuna í árslok. Samtals nemur tap
þeirra þriggja rúmlega 85 millj-
örðum. Munar þar mest um 71,5
milljarða tap borgarinnar. Kópa-
vogsbær tapaði 9,6 milljörðum en
Hafnarfjarðarbær 4,2 milljörðum.
Að sögn Halldórs er heild-
armyndin af stöðu sveitarfélaga enn
ekki komin fram þar sem nokkur
sveitarfélög eiga enn eftir að skila
endanlegum ársreikningum. Ljóst
sé þó að tap þeirra á síðasta ári er
vel á annað hundrað milljarða. Mun-
ar þar mest um gengisfall íslensku
krónunnar og áhrif af því á dótt-
urfélög, þar helst orkuveitur og
hafnarsjóði. Eins og greint hefur
verið frá í Morgunblaðinu er Orku-
veita Reykjavíkur það fyrirtæki sem
hefur farið verst út úr falli krón-
unnar. Skuldir fyrirtækisins jukust
um 110 milljarða í fyrra, þar sem
þær eru að stærstum hluta í erlendri
mynt. Aðeins um 20 prósent tekna
fyrirtækisins eru hins vegar í er-
lendri mynt og því hefur skulda-
aukningin komið illa við fyrirtækið.
Halldór segir sveitarfélög glíma
við mikinn vanda en því megi samt
ekki gleyma að sjóðsstreymi þeirra
hafi dugað vel til þess að ná endum
saman. „Sveitarstjórnir um allt land
hafa verið duglegar að bregðast við
þeim vandamálum sem fylgt hafa
miklum fjármagnskostnaði. Þau
hafa ráðið við ástandið og ég sé ekki
fyrir mér að það komi upp neitt
neyðarástand, þótt vissulega sé
staðan slæm,“ segir Halldór.
Erlent lánsfé
Sveitarfélögin Norðurþing,
Fljótsdalshérað, Akureyrarbær,
Reykjanesbær og Fjarðabyggð töp-
uðu samtals tæplega sautján millj-
örðum króna í fyrra. Þar af nam tap
Reykjanesbæjar um átta milljörðum
og Akureyrarbæjar um fimm millj-
örðum.
Í tilfellum allra þessara sveitarfé-
laga skipti hækkun á skuldum dótt-
urfyrirtækja, þar helst orkuveitna,
miklu máli. Framkvæmdir á und-
anförnum árum hafa verið fjár-
magnaðar að miklu leyti með er-
lendu lánsfé. Til að mynda jukust
lántökur sveitarfélaga um meira en
fjórðung, sem hlutfall af landsfram-
leiðslu, á árunum 2005 til 2007.
Krónufall skilar tapi
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir stöðu sveitarfélaga ekki
óvænta Sligandi skuldir í erlendri mynt hafa skilað sér í miklu tapi á síðasta ári
Sveitarfélög Lán í erlendri mynt, sem sveitarfélög tóku á miklum framkvæmdatímum, eru íþyngjandi fyrir sveitarfélög samhliða gengisfalli krónunnar.
Stærstu sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu töpuðu sam-
tals um 85 milljörðum í fyrra.
Gengisfall krónunnar meg-
inástæða tapsins.
Morgunblaðið/Samsett mynd
!
! "
"
" „STJÓRN, eig-
endur og starfs-
fólk lofar því að
engum efnum er
bætt í fiskinn
okkar,“ segir
Guðmundur
Smári Guð-
mundsson, fram-
kvæmdastjóri
fiskvinnslufyr-
irtækisins Guð-
mundar Runólfssonar hf. á Grund-
arfirði. Hann segir að allar afurðir
þeirra séu hreinar og fríar af við-
bættum efnum og hafi alltaf verið.
Honum finnst sem of margir noti
íblöndunarefni á innlenda mark-
aðnum, til að drýgja bæði kjöt og
fisk um u.þ.b. 7 til ríflega 30%:
„Sem faðir myndi ég ekki vilja gefa
börnunum mínum slíkar afurðir,“
segir hann en viðurkennir þó að
forsvarsmenn fyrirtækisins hafi
hræðst að það tapaði hugsanlega
tekjum af því að feta ekki þá braut.
Þeir hafi svo komist að gagnstæðri
niðurstöðu.
Fyrirtækið ætlar ekki í gegnum
vottunarferli heldur hefur hannað
merki sem lofar hreinleikann. Upp-
lýsingar um stefnuna verða einnig
settar á síðu þess á fjórum tungu-
málum. Guðmundur stendur í sam-
keppni við aðra fiskframleiðendur
og segir að þar sem íslenskur fiskur
sé ekki lengur seldur um eina sölu-
miðstöð geri það þeim kleift að
framleiða eigin vöru eftir sannfær-
ingu sinni. gag@mbl.is
Nei takk, ekki
íblöndunarefni
í fiskinn minn
Guðmundur Smári
Guðmundsson
ÁRNI Páll Árna-
son félagsmála-
ráðherra hefur
ráðið Önnu Sig-
rúnu Baldurs-
dóttur sem að-
stoðarmann sinn.
Anna Sigrún hef-
ur starfað á
Landspítalanum
við fjármála-
ráðgjöf frá árinu
2007. Áður starfaði hún við eigin
rekstur á sviði heilbrigðisþjónustu,
meðal annars öldrunarþjónustu.
Anna Sigrún bjó í Stokkhólmi um
nokkurra ára skeið og starfaði
einnig þar við heilbrigðisþjónustu,
jafnt í einkarekstri og hjá ríkis-
stofnunum. Hún lauk hjúkrunar-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands árið
1995 og MBA-prófi frá Háskólanum
í Reykjavík árið 2007.
Ráðin til aðstoðar
Árna Páli ráðherra
Anna Sigrún
Baldursdóttir
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÞRÝST er á Umhverfisstofnun (UST) og Svan-
dísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra í máli
ORF Líftækni, sem sótt hefur um leyfi til úti-
ræktunar á erfðabreyttu byggi í sumar. Neyt-
endasamtökin, Matvæla- og veitingafélag Ís-
lands, Vottunarstofan Tún, Náttúrulækninga-
félag Íslands, Landvernd og samtökin Slow
Food berjast gegn leyfinu og hvetja til undir-
skrifta og bréfasendinga á netinu. Þá eru átök
um málið innan háskólasamfélagsins. Þar virð-
ist hið gagnstæða vera upp á teningnum, þar
sem þunginn virðist frekar vera í því að mæla
með leyfisveitingunni til ORF Líftækni.
Háskólamenn takast á um málið
Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti verk-
fræði- og náttúruvísindasviðs HÍ, reið á vaðið
og skrifaði ráðherra og UST opið bréf á dög-
unum og lagðist gegn leyfisveitingunni. Gagn-
rýndi hún undirbúning ákvörðunarinnar þar
harðlega, m.a. stuttan kynningartíma, tak-
markað aðgengi að gögnum, öryggi á tilrauna-
reitum, úrelta löggjöf og margt fleira. „Vist-
kerfi sem fer úr böndunum er ekki unnt að
snúa til baka. Slík krísa yrði verri en banka-
hrunið 2008,“ skrifaði hún meðal annars. Nátt-
úran ætti að njóta vafans. Bréfinu svöruðu
Ólafur S. Andrésson prófessor og Zophonías
Jónssond dósent, við líf- og umhverfisvís-
indadeild, og Eiríkur Steingrímsson, prófessor
við læknadeild. Segja þeir að margar rang-
færslur og alvarlegur misskilningur um líf- og
erfðafræðileg efni séu í bréfi Kristínar Völu.
Svara þeir þar mörgum atriðum sem hún viðr-
ar við ráðherrann og UST. Kristín svaraði
bréfi þremenninganna og sagði það að mestu
útúrsnúninga.
Þá talaði Áslaug Helgadóttir, forseti auð-
lindadeildar Landbúnaðarháskóla Íslands,
máli ORF í innsendri grein í Morgunblaðinu í
gær. Einnig skrifaði Sigurður Guðmundsson,
fyrrverandi landlæknir, bréf, þar sem hann
lýsti eindregnum stuðningi við umsóknina.
„… ekki [er] unnt að finna þeirri hættu stað
sem ýmsir vilja vera láta að af [erfðatækni]
stafi. Slíkar fullyrðingar virðast því miður oftar
byggjast á vangaveltum og jafnvel trúarlegri
nálgun fremur en vísindum,“ sagði Sigurður.
Bréfin má lesa í heild sinni á mbl.is
Þrýstingur á Umhverfisstofnun
Útiræktun erfðabreytts byggs á sér andstæðinga, en þeir eru sagðir misskilja, rangfæra og nálgast
málin trúarlega Forseti fræðasviðs við HÍ segir gagnrýni prófessora og dósents á sig útúrsnúninga
Morgunblaðið/Jim Smart
Bygg Próteinin er að finna í korninu sjálfu,
deilt er um áhrif þeirra á umhverfi og dýr.
Í HNOTSKURN
»ORF Líftækni er með ræktunarstöð ígróðurhúsum í Grindavík og hefur á
undanförnum árum gert tilraunir með
útiræktun. Fyrirtækið hlaut Nýsköp-
unarverðlaunin 2008.
»Rannsóknir sem gerðar hafa veriðvið LbhÍ benda til að erfðabreytta
byggið víxlfrjóvgist ekki og þrífist illa
utan ræktunarreita.
Mikið hefur verið kallað eftir nýsköpun í
atvinnurekstri, hátæknistörfum og þekk-
ingariðnaði. Hart er þó barist gegn einu
slíku fyrirtæki, sem hyggst rækta erfða-
breytt bygg til lyfjagerðar og iðnaðarnota.
Mjög er deilt um áhrif ræktunarinnar.