Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.06.2009, Side 24

Morgunblaðið - 04.06.2009, Side 24
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 MORGUNBLAÐIÐ benti í leiðara á dögunum á fyrirmynd að þróun- araðstoð Íslendinga: för átta Íslend- inga til Gaza að gefa þrjátíu gervi- fætur! Átakanlegur hugtakarug- lingur er því miður í þessari forystugrein sem er öllum ljós sem eitthvað þekkja til þróunarmála. Ferðin til Gaza var mannúðarmál, hjálparstarf af sama meiði og fjöl- mörg verkefni sem einstaklingar og fyrirtæki sinna af mikilli gæsku og breyta örugglega lífi þeirra sem í hlut eiga. Slíkir styrkir og framlög streyma stöðugt til fólks sem á um sárt að binda víða um veröld. Val á þeim sem njóta fylgir oft ekki nein- um sérstökum skilgreindum leik- reglum eða hlutlægu mati og eft- irfylgni er oft ábótavant ef hún er þá einhver. Þróunarsamvinna eða þróunar- aðstoð er af öðrum toga, ávallt til lengri tíma og hefur það markmið að breyta högum stórra hópa/þjóða/ héraða á þann hátt að umbætur geti orðið sjálf- bærar til lengri tíma litið. Sjúkra- húsverkefni Þró- unarsam- vinnustofnunar í Monkey Bay í Malaví er að því leyti líkt um- ræddu hjálparstarfi á Gaza að það hjálpar sjúkum, en verkefninu í Malaví er ætlað miklu stærra hlut- verk fyrir fleira fólk til lengri tíma sem hluta af uppbyggingu landsins í heild, en ekki bara fyrir útvalda ein- staklinga. Ímyndið ykkur ef átta sérfræð- ingar færu á kostnað skattgreiðenda til að aðstoða þrjátíu einstaklinga í þróunarríki – væri það þróun- araðstoð til fyrirmyndar? Hvað yrði það stór hluti heildarkostnaðar við að sjá 30 einstaklingum fyrir gervi- limum? Og hvað um sjálfbærni verk- efnisins? Hvað gerist eftir að þessir átta hverfa á braut? Hver sér um þjónustu við þá sem fengu gervilim- ina? Alltof sjaldan skrifa íslenskir leið- arahöfundar – eða fjölmiðlar yfirhöf- uð – um þróunarmál. Því ber auðvit- að að fagna því að þessi mál séu tekin til umfjöllunar en hér hefði betur verið heima setið en af stað farið. Vert er hins vegar að taka undir orð leiðarahöfundar þar sem hann gagnrýnir íslensk stjórvöld fyrir framlög til þróunarmála. „Þrátt fyrir ítrekuð fyrirheit er langt frá því að Íslendingar nái þeim markmiðum sem Sameinuðu þjóðirnar settu um framlög efnuðustu ríkja heims í þró- unaraðstoð og kreppan mun tryggja að bið verður eftir því að Íslendingar geti gengið uppréttir í þeim efnum,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðs- ins. GUNNAR SALVARSSON, útgáfu- og kynningarstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Frá Gunnari Salvarssyni Gunnar Salvarsson Gervifætur til Gaza – þróunar- aðstoð til fyrirmyndar? SÚ VAR tíðin að nýbakaður formað- ur Framsóknarflokksins var þátta- stjórnandi og dagskrárgerðarmaður á sjónvarpinu. Lét Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sér þá um mun fara orðið „helmingaskiptaflokkarnir“. Sátu þá í ríkisstjórn umræddir flokkar, sem einnig eru kenndir við „tví-flokkinn“ og þekktir sem Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokkurinn. Rifjast þetta upp nú þegar sjálfur formaður annars „helminga- skiptaflokkanna“ er fyrsti flutnings- maður í Alþingi að tillögu um Evr- ópusambandið (ESB) og samskipti Íslands við ESB. Þannig er að um- ræddur Sigmundur Davíð Gunn- laugsson telst vera nýkrýndur (og nýbakaður) formaður Framsókn- arflokksins, auk þess að vera splunkunýr á Alþingi fyrir þann Framsóknarflokk, sem hann sjálfur leiðir. Tillaga formannsins um Evr- ópumál og samskipti Íslands við ESB er studd af öllum þingmönn- um – haldið ykk- ur fast! – beggja „helmingaskipta- flokkanna“ á Al- þingi Íslendinga sem nú situr að störfum. Það er því ekki einungis að Sigmundur Davíð Gunn- laugsson sé fyrsti flutningsmaður að tillögunni umræddu, heldur styður heil hersing helmingaskiptamanna og -kvenna þá tillögu sem á að færa Ísland nær aðild að ESB, samkvæmt ályktun á síðasta flokksþingi Fram- sóknarflokksins. Öðru máli gegnir um hinn helmingaskipta-flokkinn, sem Sigmundur Davíð nefndi svo í Kastljósi RÚV. Sjálfstæðisflokk- urinn heyktist á að taka Evrópumál á dagskrá á sínu flokksþingi. Sá helmingaskipta-flokkurinn hefur samkvæmt áreiðanlegum fréttum haldið fast við bann við að ræða Evr- ópumál og samskipti Íslands við ESB. Helmingaskipti að veruleika í samskiptum Íslands og ESB Óhætt er að fullyrða að báðir for- menn „tví-flokksins“, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins, Bjarni Bene- diktsson og Sigmundur Davíð, séu skilgetin afkvæmi helmingaskipta- reglunnar. En hvað sem því líður má telja líklegt, að þær tvær tillögur, sem Össur Skarphéðinsson og téður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafa forystu um í Alþingi, og lúta að nánari samkiptum Íslands við ESB í framtíðinni, njóti brautargengis. Al- ténd er betur af stað farið en heima setið hvað Evrópumál varðar, enda mikilvægt að knýja fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðildarsamn- ing Íslands að ESB. KJARTAN EMIL SIGURÐSSON er stjórnmálafræðingur og starf- andi leiðsögumaður. Opið bréf til Sigmundar Davíðs Frá Kjartani Emil Sigurðssyni Kjartan Emil Sigurðsson SVEITARFÉLAG- IÐ Vogar hefur frá síð- ustu kosningum boðið öllum nemendum Stóru-Vogaskóla upp á hollan og góðan mat í hádeginu, þeim að kostnaðarlausu. Gjald- frjálsar skólamáltíðir þýða lækkun á út- gjöldum heimilisins um rúmlega 30 þúsund á hvert barn á ári og hefur það reynst fjölskyldum vel. Samfélagið í Vogum hefur vaxið mjög hratt undanfarin ár og eru íbúar nú rúmlega 1.200. Flestir foreldrar vinna utan sveitarfélagsins, enda stutt að fara á höfuðborg- arsvæðið um upplýsta og tvöfalda Reykjanesbraut. Í ljósi þessa ein- kennis á samfélaginu og lengdar skóladagsins taldi bæjarstjórn mik- ilvægt að gefa öllum grunn- skólabörnum tækifæri til að borða hollan og góðan mat í skólanum, án tillits til efnahags eða félagslegra að- stæðna. Vel nærðir nemendur eru ró- legri og betur móttækilegir fyrir fræðslunni, og ættu því að vera betur undir það búnir að taka virkan þátt í skólastarfinu en ella. Annað markmið verkefnisins er að draga úr útgjöldum heimilisins, þannig að foreldrar hafi meira svigrúm til að gefa börnum tækifæri til að stunda íþróttir og tómstundir. Sem fyrr segir lækka útgjöld heimilisins um rúmar 30 þúsund krón- ur fyrir hvert barn á heimilinu, sem er ná- lægt árlegum æf- ingagjöldum í flestum íþróttum og tóm- stundum. Í nokkrum sveitarfélögum er boðið upp á svokölluð frí- stundakort, en í Vogum var valin sú leið að fella niður gjald á skólamáltíðir og þar með skapa svigrúm til aukinna frístunda. Ungmennafélagið Þróttur í Vogum ákvað að stíga skrefinu lengra og end- urskipulagði sína starfsemi til að geta veitt afslátt af æfingagjöldum með svokölluðu íþróttakorti Þróttar. Það er því val foreldra hvernig þeir nýta þá fjármuni sem sparast fyrir börn sín. Það er von bæjarstjórnar að for- eldrar nýti sér þetta tækifæri börnum sínum til heilla, en íþróttir og tóm- stundastarf er ein besta forvörn sem fyrirfinnst. Eins og áður segir er sveitarfélagið Vogar eina sveitarfélagið á landinu sem býður öllum nemendum grunn- skóla upp á gjaldfrjálsar skóla- máltíðir. Það er alls ekki sjálfsagt að fella gjaldið niður og mikilvægt að ár- angur sé af verkefninu. Nú er hálfnað þriðja skólaárið sem þessi háttur hef- ur verið hafður á og reynslan verið með ágætum. Nánast öll börn á yngsta stigi og miðstigi nýta sér gjaldfrjálsar skólamáltíðir á hverjum degi. Unglingarnir nýta sér máltíð- irnar í minna mæli, eins og búast mátti við. Vísbendingar eru þó um að ekki hafi allir foreldrar nýtt sér það svigrúm sem gjaldfrjálsar skóla- máltíðir hafa myndað til þess að bjóða börnum sínum upp á meira íþrótta- og tómstundastarf. Ætla má að tilhneig- ing í þá átt muni aukast í nánustu framtíð miðað við framtíðarhorfur í efnahagsmálum. Bæjarstjórn telur að mikilvægt sé að foreldrar hafi þetta val og svigrúm. Þrátt fyrir að tóm- stundir og íþróttastarf gegni veiga- miklu hlutverki í forvarnarstarfi og þroska barna, er enn mikilvægara að öllum börnum sé tryggt heilsu- samlegt fæði í grunnskólanum þeim að kostnaðarlausu. Mikilvægi þess hefur síst minnkað í kjölfar þess efna- hagsáfalls sem dunið hefur á okkur síðan í haust. Sveitarfélagið Vogar er reiðubúið að miðla reynslu sinni til áhugasamra sveitarfélaga. Eftir Róbert Ragnarsson » Vel nærðir nem- endur eru rólegri og betur móttækilegir fyrir fræðslunni... Róbert Ragnarsson Höfundur er bæjarstjóri. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Vogum – meira fyrir áskrifendur Kraftar Norðurlands Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Fólkið og fyrirtækin skoðuð og dregin upp mynd af möguleikum og framtíð þessa landshluta í veglegu sérblaði 25. júní Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir í síma 569-1134/ 692-1010 eða sigridurh@mbl.is Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 22. júní. Viðskiptablað Morgunblaðsins tekur púlsinn á atvinnulífi Norðurlands Meðal efnis verður : • Menntun og rannsóknir • Hönnun, handverk og saga • Matur, drykkur og menning • Landbúnaður, ferðaþjónusta, náttúra og haf • Framleiðsla, nýsköpun og norðlenskt hugvit

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.