Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 Guðný G. Ólafsdóttir ✝ Guðný GróaÓlafsdóttir (Lóa) fæddist á Efri- Brúnavöllum á Skeið- um hinn 7. febrúar 1921. Hún lést á Landspítalanum 7. maí síðastliðinn. Útför Lóu fór fram frá Bústaðakirkju 14. maí sl. Meira: mbl.is/minningar Árni Ragnar Árnason ✝ Árni RagnarÁrnason fæddist í Vestmannaeyjum 7. september 1972. Hann lést af slysför- um 21. maí síðastlið- inn. Útför Árna fór fram frá Neskirkju 2. júní sl. Meira: mbl.is/minningar Snorri Páll var á margan hátt einstakur maður, bæði sem lækn- ir og ekki síður sem manneskja. Í blóma lífsins veiktist hann af mænuveiki og lamaðist að hluta og bar þess merki alla tíð. Hann lét þó ekki bugast en hélt áfram námi sínu í læknisfræði og síðar fram- haldsnámi í hjartasjúkdómum við hinar virtustu menntastofnanir bæði austan hafs og vestan. Óhætt er að segja að hann hafi verið meðal best menntuðu lækna í sinni sérgrein á sjötta og sjöunda áratug síðustu ald- ar. Ég kynntist Snorra á námsárum mínum í læknadeild og sem kandidat á lyflækningadeild Landspítalans 1954-1965. Ég minnist þess hversu mikla þekkingu Snorri hafði í sínu fagi, sem hann var óspar að miðla okkur kandidötum og öðru sam- starfsfólki á deildinni sem varð til ✝ Snorri PállSnorrason læknir fæddist á Rauðavík á Árskógsströnd 22. maí 1919. Hann lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 16. maí síðastliðinn. Snorri var jarðsunginn frá Dómkirkjunni 26. maí síðastliðinn. þess að ég ákvað að leggja stund á fram- haldsnám í hjartasjúk- dómum. Ég minnist þó ekki síður framkomu Snorra við sjúklinga sína, sem hann um- gekkst af stakri nær- gætni og virðingu og gaf sér ætíð góðan tíma til að hlusta á kvartanir, en sú hlið læknislistarinnar hef- ur vafalítið mótast af hans eigin reynslu í baráttu hans við alvarlegan sjúkdóm. Frá árinu 1971 var ég samstarfs- maður Snorra á hjartadeild Land- spítalans allt þar til hann lét af störf- um 1989. Hann var yfirlæknir deildarinnar en á þessum árum varð mjög hröð þróun í meðferð hjarta- sjúkdóma á Íslandi og hjartadeild Landspítalans þar í fararbroddi og rekstur hennar og starfsemi til fyr- irmyndar á öllum sviðum. Ég minnist Snorra Páls á þessu tímabili fyrir það hversu vel hann fylgdist með öllum nýjungum og vísindarannsóknum og hve mikinn áhuga og ánægju hann hafði af starfi sínu. Hann lagði mikla rækt við kennslu læknastúdenta á deildinni og fór með þá á sérstakan „kennslustofugang“. Þeir eru margir yngri læknar í dag sem minnast með þakklæti þessara kennslustunda. Ég hitti Snorra Pál síðast nú í vet- ur á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum þar sem hann dvaldi síðustu æviár sín ásamt eiginkonu sinni Kar- ólínu Jónsdóttur hjúkrunarkonu sem var hans stoð og stytta alla tíð. Hann var þá kominn í rafknúinn hjólastól og fór allra sinna ferða á stólnum inn- anhúss. Þótt líkaminn hefði hrörnað var hugurinn óbreyttur. Við ræddum lengi saman um framfarir og nýjung- ar í lækningum hjartasjúkdóma og sá áhugi á þekkingu og framförum sem einkennt höfðu Snorra Pál í sínu lífs- starfi hann var sá sami og verið hafði alla tíð. Ég kveð Snorra Pál með þakklæti og virðingu í huga og við Ingibjörg vottum eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og barnabörnum samúð okk- ar. Magnús Karl Pétursson. Við kveðjum nú Snorra Pál Snorrason eftir langa samfylgd og góða vináttu, en upphaf hennar var að hann og Erling voru samstúdentar frá MA 1940. Snorri Páll hefði orðið níræður þ. 22. maí sl. og er það mjög hár aldur miðað við þá erfiðu sjúk- dóma sem hann þurfti að ganga í gegnum um ævina; hann, sem hafði það ævistarf að lækna og líkna öðr- um. Við þekktum til þess, að með sinni góðu nærveru og einlægni myndaði hann traust samband við sjúklinga sína, sem eflaust hefur flýtt fyrir góðum árangri meðferðar. Fyrsta áfallið, sem hann varð fyrir, var lömunarveikin, sem hann fékk, þá læknanemi á Vífilsstöðum, en afleið- ingar hennar settu mark sitt á hann upp frá því og heftu hreyfigetu hans. Áfram var samt haldið til að afla sér sem bestrar menntunar, en sérgrein hans var hjartalækningar, og fór hann tvívegis til námsdvalar í Boston auk annars. En hann fór ekki einn, þau Karólína voru þá þegar gift og var hún á allan hátt hans hjálparhella, meðan henni entist heilsa til. Hún er hjúkrunarkona og vann m.a. lengi með Snorra á lækningastofu hans. Síðustu árin hefur Alzheimers-sjúk- dómurinn sótt fast að Karólínu, en á Droplaugarstöðum fær hún þá bestu ummönnun, sem hugsast getur. Hug- ur okkar og samúð er nú hjá henni að þurfa að sjá á bak Snorra sínum. Snorri Páll ólst upp á Breiðaból- stað, A.-Skaft., en þar var faðir hans héraðslæknir þá, og var hann alla tíð bundinn Síðunni sterkum böndum og fór þangað helst á hverju sumri. Við hjónin fórum þangað með Snorra og Karó sumarið 1958. Var gaman að ferðast þar með þeim og finna hvað Snorra Páli var vel fagnað af vinum hans þar. Kæru Kristín, Snorri Páll og fjöl- skyldur ykkar, við sendum innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Bless- uð sé minning Snorra Páls. Jóhanna og Erling Edwald. Snorri Páll Snorrason ✝ Guðrún Sveins-dóttir fæddist á Hryggstekk í Skrið- dal 18.10. 1928. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Víði- hlíð í Grindavík 27.5. 2009. Foreldrar hennar voru Sveinn Guðbrandsson, f. í Suður-Múlasýslu 3.9. 1896, d. 15.9. 1981 og Steinunn Gunn- laugsdóttir, f. í Suð- ur-Múlasýslu 11.11. 1895, d. 28.10. 1993. Systur Guðrúnar eru Oddný, f. 20.7. 1920, Guðlaug, f. 11.8. 1924, Ásdís, f. 10.8. 1932, og Hjördís, f. 3.11. 1935. Guðrún giftist 18.1. 1964, Gísla Hirti Gíslasyni frá Eskifirði, f. 18. júlí 1918, d. 30. okt. 1975. Þau eignuðust þrjá syni, þeir eru: 1) Heimir Lárus, f. 25.1. 1958, kvæntur Kristbjörgu Gunnbjörns- dóttir, f. 12.3. 1961. Foreldrar Kristbjargar voru Gunnbjörn Sveinbjörnsson, f. 19.8. 1953 og Ragnheiður G. Þorsteinsdóttir, f. 22.1. 1955. Synir Nonna og Gígju eru Daníel Kári, f. 30.1. 2002 og Kormákur Nói, f. 1.4. 2004. 3) Steinar Gísli, f. 7.3. 1970. Sonur hans er Hjörtur Sölvi, f. 6.9. 1999. Barnsmóðir Maríanna Sig- tryggsdóttir, f. 29.6. 1976. Þau slitu samvistum. Fyrir á Marí- anna soninn Hreiðar Inga, f. 15.5. 1992. Guðrún ólst upp á Hryggstekk í Skriðdal við bústörf á býli for- eldra sinna og við skógrækt í Hallormstaðarskógi á sumrin. Hún lauk landsprófi frá Eiðaskóla 1949. Var kennari við Helgastað- arskóla við Eskifjörð í 1 ár. Guð- rún fluttist suður og vann í Hreðavatnsskála í Borgarfirði og á Þórskaffi í Reykjavík þar til að hún flutti til Keflavíkur árið 1952 þá á 24. aldursári, þar sem hún vann við þjónustu og versl- unarstörf. Lengst af starfaði hún í versluninni Navy Exchange hjá varnarliðinu. Útför Guðrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 4. júní, kl. 13. Meira: mbl.is/minningar Jónsson, f. 13.3. 1931, d. 2.11. 2005 og Guðbjörg María Sigfúsdóttir, f. 5.6. 1929, d. 13.1. 2004. Dætur Heimis og Kristbjargar eru Steinunn Eva, f. 4.3. 1991, og Anna Guð- rún, f. 3.11. 1992. Fyrir átti Kristbjörg a) Sverri Ómar Inga- son, f. 11.8. 1979, í sambúð með Sigrúnu Ástu Marinósdóttir, f. 3.4. 1981. Börn þeirra eru Kristófer Hörður, f. 12.2. 2004 og Signý Emelía, f. 7.7. 2006. b) Þórdísi Rúnarsdóttur, f. 12.11. 1983, í sambúð með Eyþóri Haukssyni, f. 28.2. 1964, sonur þeirra er Haukur Freyr, f. 19.7. 2008. Fyrir átti Eyþór dæturnar Steinunni Ósk, f. 7.8. 1991 og El- ínu Margréti, f. 26.8. 1993. 2) Jón Björgvin, f. 24.11. 1965, kvæntur Gígju Grétarsdóttir, f. 26.5. 1975. Foreldrar hennar eru Grétar Óli Þú gafst mér líf, þú gafst mér góða æsku. Þú gafst mér fallegt og gott heimili, þú gafst mér ást og umhyggju. Þú hjúkraðir mér þegar ég var veikur. Þú hafðir visku og deildir henni með mér. Þú styrktist þegar pabbi dó, þá með okkur bræðurna þrjá unga. Þú treystir mér til að vaka yfir bræðrum mínum þegar þú varst í vinnu. Þér fannst frábært að fá tengda- dætur þínar í heimsókn með barna- börnin. Vildir allt fyrir þau gera. Þú varst örlát, fróð og það var gaman að hlusta á sögur frá æsku þinni og uppvaxtarárum. Þú elskaðir gróður og varst mjög fróð um hann. Þú vildir alltaf gefa okkur afleggjara, blóm og/eða tré til að taka með heim. Þú varst ákveðin og hlustaðir ekki á þá sem sögðu að það þýddi ekki að koma hinu og þessu til „það lifir ekkert á Suð- urnesjum“. Þú fékkst verðlauna- skjal frá heimabæ þínum fyrir fjöl- breytileika vegna þess að þér tókst að koma öllu til í garðinum þínum. Ég vil að þú vitir að ég mun gera mitt besta til að passa upp á garð- inn þinn. Það er allt í blóma í dag. Það er hellingur af minningum sem koma upp í huga mér þegar ég hugsa til baka. Ferðin okkar til Kaliforníu til systur þinnar þegar þú varst sjötug. Ferðin okkar í sumarbústað til Egilsstaða 1991 þar sem 4 ættliðir náðust á myndband, amma, þú, ég og Steinunn Eva. Þegar þú plataðir mig til að borða rúgbrauðið þegar ég var 7 eða 8 ára gamall. Nú ert þú komin í faðm Guðs og örugglega búin að finna pabba, afa og ömmu. Elsku mamma. Ég kveð í bili, við sjáumst síðar. Þakka þér fyrir allt. Þinn sonur, Heimir. Nú er tími vorsins og nýtt líf að hefjast. Vorið sem er tími birtu og blóma var uppáhaldsárstíð tengda- móður minnar. Guðrún byrjaði að rækta garðinn sinn við Hringbraut- ina í Keflavík þegar allir töldu að ekki væri hægt að rækta neitt á Suðurnesjum vegna vinda og sjó- seltu, hún hló bara að því. Í garð- inum sínum undi hún sér vel við að sýsla við blóm, tré og runna. Þó að vor og sumar hafi verið hennar uppáhaldstími var hún svo sem að huga að ræktun plantna allan ársins hring. Hún tíndi fræ og hreinsaði og þurrkaði, setti fræin í potta og jóg- úrtdósir sem hún var með í öllum gluggum á heimili sínu og fylgdist vel með þegar sprotar fóru að gægj- ast upp. En best fannst henni ef hún gat miðlað visku sinni og þekk- ingu á gróðri og því sem hún rækt- aði til vina og vandamanna og blóm frá henni prýða marga fallega garða landsmanna. Ef enginn hafði þörf fyrir plönturnar hennar í garðinum sínum, þá tók hún sér flag í fóstur eins og við Fitjar í Njarðvík þar sem hún gróðursetti plöntur sem hún hafði ræktað sjálf með sínum grænu fingrum. Guðrún var staðföst kona, hafði skoðanir á þjóðarsálinni, lét sér annt um allt og alla. Líf hennar var ekki dans á rósum. Ekkja 1975 með þrjá syni, stundum vinnandi á þremur stöðum í einu til að fæða og klæða sig og strákana sína. Hún var bóngóð, vildi allt fyrir alla gera. Alltaf að, gróðursetja, taka upp, setja niður, slá grasið, klippa, sækj- andi mold, sand og lífrænan áburð um allar trissur á bílnum sínum, saumaði út og skar út í við á sínum yngri árum og eftir hana liggur fal- legt handverk. Á síðkvöldum las hún bækur um blóm og garðrækt og spennusögur eftir Agöthu Chris- tie. Ein af bestu samverustundum okkar var þegar við fórum í garða- skoðanir hjá Garðyrkjufélagi Ís- lands, tvær kellur að skoða fegurstu garðana, enduðum svo á kaffihúsi og fórum yfir hvaða plöntur voru áhugaverðar. Hún mundi öll nöfn á latínu og íslensku. Ræddum hvaða plöntur hana vantaði, sem voru svo sem engar, hún var með svo margar tegundir í garðinum sínum að henni voru veitt verðlaunin „fjölbreytt plöntuval“ í vali garðs ársins í Reykjanesbæ 1992. Það er með söknuði í huga sem ég kveð tengdamóður mína en með gleði í hjarta yfir að hún skuli vera komin í garð guðs. Kristbjörg. Elsku Guðrún amma. Við munum ávallt sakna þín og góðmennsku þinnar, elsku amma. Við munum sakna þess að hjóla heim til þín í góðu veðri og hlaupa sem litlar stelpur í garðinum þínum og klifra í trjánum. Að hlaupa í kringum stóra tréð í garðinum þín- um og hanga í snúrustaurunum, fara svo inn og fá bestu kleinur sem við höfum smakkað og allt það góð- gæti sem við gátum ímyndað okkur. Þú leyfðir okkur aldrei að fara án þess að borða eitthvað eða hafa eitt- hvað með okkur heim. Svo liðu árin og heimsóknum fækkaði en þegar við komum var alltaf eins og við værum orðnar litlar stelpur aftur, horfðum á sjónvarpið og borðuðum kökur og góðgæti og þú varst alltaf jafn ljúf við okkur. Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein, né blómstígar gullskrýddir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngu til himinsins helgu borgar. En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk, og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk. Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef, að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. (Staðf. Hjálmar Jónsson.) Hvíldu í friði, amma, við munum aldrei gleyma þér. Steinunn Eva og Anna Guðrún. Guðrún Sveinsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og frændi, ÞÓRÐUR VIÐAR VIÐARSSON, Breiðvangi 57, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 28. maí. Útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. júní kl. 15.00. Sigurlína Ellertsdóttir, Viðar, Elísa Hildur og Arnar, Viðar Þórðarson, Erla Gestsdóttir, Birgir Viðarsson og fjölskylda, Guðrún Ruth Viðarsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA GUNNARSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Bröttuhlíð 22, Hveragerði, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 6. júní kl. 11.00. Róbert Viðar Hafsteinsson, Hilmar Þór Hafsteinsson, Sigríður Aðalbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.