Morgunblaðið - 26.06.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
AÐGERÐIR gegn svartri atvinnu-
starfsemi og bótasvikum verða stór-
hertar á næstunni. Í því skyni hafa
Ríkisskattstjóri og Vinnumálastofn-
un sett á laggirnar sérstakt teymi,
sem mun fara í vinnustaðaheimsókn-
ir og kanna stöðuna. Er gert ráð fyr-
ir að þetta teymi hefji störf eftir
helgina. Þá verður fljótlega hleypt af
stokkunum auglýsingaherferð gegn
slíkum svikum.
Með stórauknu atvinnuleysi hafa
bótasvik aukist og hafa nokkur mál
verið upplýst, þar sem fólk á at-
vinnuleysisbótum hefur verið staðið
að því að vera í fullri vinnu. Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, segir algengt að þetta fólk
hafi ekki gefið laun sín upp til skatts
og þannig einnig verið að brjóta lög
um skattskil.
Gissur segir að það hafi hamlað
eftirlitsstarfi Vinnumálastofnunar,
að hún hafi haft takmarkaðar heim-
ildir til að fara inn í fyrirtæki til að
afla upplýsinga. Ríkisskattstjóri hef-
ur mun rýmri heimildir og því var
brugðið á það ráð að sameina krafta
þessara tveggja stofnana.
Í teyminu verða tveir starfsmenn
Ríkisskattstjóra og aðrir tveir frá
Vinnumálastofnun. Teymið mun
vinna með tvenns konar hætti. Ann-
ars vegar verða vinnustaðir valdir af
handahófi og hins vegar verður farið
eftir ábendingum, sem berast nafn-
laust inn á heimasíðu Vinnumála-
stofnunar. Gissur segir að margar
slíkar ábendingar berist dag hvern
og hafa sumar þeirra leitt til þess að
fólk hefur verið staðið að verki og
það svipt bótunum.
Í lögum um atvinnuleysistrygg-
ingar er heimild til að krefja brota-
menn um endurgreiðslur á bótunum
með 15% álagi. Að sögn Gissurar er
allur gangur á því hvort brotamenn-
irnir eru borgunarmenn fyrir þeirri
upphæð, sem þeir hafa svikið út í
formi atvinnuleysisbóta.
Er nú til skoðunar, í samráði við
innheimtumann ríkissjóðs, að
skuldajafna út á aðrar bætur sem
ríkið er að greiða þessu fólki, svo
sem barnabætur og vaxtabætur. Er
unnið að því í samráði við viðkom-
andi ráðuneyti að útvega innheimtu-
manni ríkissjóðs, sem er sýslumað-
urinn á Blönduósi, slíkar heimildir.
Harðar tekið á svikum
Ríkisskattstjóri og Vinnumálastofnun setja á laggirnar teymi sem fer í vinnu-
staðaheimsóknir Vinnumálastofnun fær margar nafnlausar ábendingar um svik
» Bótasvik stóraukist með auknu atvinnuleysi
» Mál upplýst eftir ábendingar almennings
» Í skoðun að taka aðrar bætur af fólki
» Auglýsingaherferð hleypt af stokkunum
KRAKKARNIR sem í gær tóku þátt í fyrsta degi Ís-
landsmóts barna, unglinga og ungmenna í hestaíþrótt-
um á Varmárbökkum gefa þeim fullorðnu ekkert eftir
þegar komið er inn á keppnisvöllinn og fara á kostum á
gæðingunum sem eru hver öðrum glæsilegri. Þessi
ungi knapi fór mikinn í fjórgangskeppni.
UNGIR KNAPAR REYNA SIG
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BYRJAÐ er að setja upp glerhjúp
Ólafs Elíassonar sem umlykja mun
tónlistar- og ráðstefnuhúsið í
Reykjavík. Um þrjátíu kínverskir
verkamenn eru þegar komnir hing-
að til lands en von er á fleiri á
næstu mánuðum.
Vinna við glerhjúpinn hófst
reyndar fyrir nokkru eða öllu held-
ur vinna við undirstöður hans. Setja
þurfti upp stálprófíla sem bera
glerveggina. Þessi dægrin er hins
vegar farið að glitta í fyrsta glerið.
Verkið tekur langan tíma og ekki
er áætlað að því ljúki fyrr en seint
á næsta ári. Efnið er því sent hing-
að til lands í smáum skömmtum, og
verkamönnum smáfjölgar á meðan
verkinu vindur fram.
Íslenskir verktakar koma ekki
nærri gleruppsetningunni og er ein-
ing meðal þeirra sem sjá um bygg-
ingu tónlistarhússins að framleið-
andi glersins sjái alfarið um hana.
Er það fyrst og fremst vegna
ábyrgðar en einnig eru miklar
tæknikröfur gerðar, engu má muna
að allt passi enda verkið gríðar-
umfangsmikið.
Kínverjarnir eru hér á vegum Ís-
lenskra aðalverktaka. Þeir dveljast
í húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ
og er þeim ekið á milli kvölds og
morgna.
Uppsetning á glerhjúpi
tónlistarhússins er hafin
Glervirki Tónlistar- og ráðstefnu-
húsið verður glæsilegt fullklárað.
Glerið og verkamenn flutt til landsins í smáum skömmtum
N1 ÁKVAÐ í gær að lækka verð á
bensíni um þrjár krónur. Uppgefin
ástæða er sú að heimsmarkaðsverð
á bensíni hafi lækkað síðustu daga.
Í kjölfar lækkunarinnar lækkuðu
önnur olíufélög um sömu krónu-
tölu.
Eftir lækkanir gærdagsins er al-
gengt verð í sjálfsafgreiðslu 176,80
krónur. Ódýrasta verðið má þó
finna hjá Orkunni, 173,20 krónur.
Bensínverð lækkaði
um þrjár krónur
Það vakti mikla athygli á dög-
unum þegar Vinnumálastofn-
unin afhjúpaði 15 járnabind-
ingamenn frá Litháen sem
voru í fullri vinnu í grunni
tónlistarhússins við Reykja-
víkurhöfn jafnframt því að
vera á fullum atvinnuleysis-
bótum.
Mennirnir störfuðu hjá er-
lendu fyrirtæki, sem var und-
irverktaki við verkið.
Nú hefur náðst sátt í mál-
inu sem felst í því að verktak-
inn hefur fallist á að greiða til
baka upphæð sem nemur 2,7
milljónum króna.
Gissur segir að verktakinn
og launþegarnir hafi borið fyr-
ir sig misskilning þegar tekn-
ar voru af þeim skýrslur. Hann
segir að verktakinn hafi tekið
að sér að greiða upphæðina,
þótt strangt til tekið hafi
launþegarnir verið brotamenn
í málinu en ekki verktakinn.
Greiddi til baka
RANNSÓKNARNEFND Alþingis
hefur komist að þeirri niðurstöðu,
að Sigríður Benediktsdóttir, einn
nefndarmannanna, hafi ekki gert
sig vanhæfa með því að tjá sig um
orsakir íslenska bankahrunsins í
viðtali við skólablað Yale-háskóla í
Bandaríkjunum.
Þetta er niðurstaða hinna
tveggja nefndarmannanna, þeirra
Páls Hreinssonar og Tryggva
Gunnarssonar. Þeir segja, að þó
hluti ummælanna feli í sér hug-
lægt mat séu þau almenns eðlis.
Ekki sé skírskotað til nafn-
greindra einstaklinga eða til-
greindra stofnana eða einka-
fyrirtækja. Þegar litið sé til þessa,
efnis erindis Jónasar og það virt
hversu almenn ummæli Sigríðar
séu, verði ekki talið að hún hafi
gert sig vanhæfa til að fara með
afmarkaða þætti í rannsókn nefnd-
arinnar.
Sigríður gerði sig
ekki vanhæfa
GAMLA Hótel Akureyri hefur
tekið á sig nýja og skemmtilega
mynd eftir að gluggar hússins
voru skreyttir með gömlum mynd-
um frá Akureyri. Tilgangurinn er
að bæta ásýnd hússins og fegra
götumyndina. Á gluggunum má
meðal annars sjá Sundlaug Akur-
eyrar um miðjan fjórða áratug 20.
aldar og Ráðhústorgið upp úr
1940. Aðrar framkvæmdir við hús-
ið eru í biðstöðu vegna efnahags-
aðstæðna.
Skreytt með
myndum