Morgunblaðið - 27.06.2009, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
172. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«MENNING
GETUR ÖFGAROKKIÐ
BÆTT HEILSUNA?
«ALMANNAHEILL
Verðlaun í Cannes
fyrir auglýsingu
Lesbók
Konungur poppsins allur
Michael Jackson, sem líklega má telja frægasta mann samtímasögunnar, var
engin venjuleg goðsögn. Þótt hann hafi ekki þótt marka óvenjulega djúp
spor með tónlist sinni, eru allir á einu máli um að hann mótaði samtíma sinn.
„Hann virðist nota öll þessi element, það er hégóminn, lostinn, það er svo
margt í kringum Michael Jackson sem höfðar beint til undirmeðvitund-
arinnar og við getum ekki að því gert, við erum öll með hvatir
og kenndir og föllum fyrir þessu, hvort sem okkur líkar bet-
ur eða verr,“ segir Guðmundur Oddur Magnússon,
Goddur, prófessor í grafískri hönnun við Listahá-
skóla Íslands.
Í Lesbók í dag er farið yfir feril
Jacksons og lífshlaup frá ýmsum
sjónarhornum: fjallað um tónlistina,
dansinn, tískuna, goðsögnina, erf-
iðleika tengda uppeldi hans og loks
skaddaða sjálfsmynd.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
KANADÍSKA fyrirtækið Magma
Energy kemur að kaupum Geysis
Green Energy (GGE) á 34,7 prósenta
hlut Reykjanesbæjar í HS Orku á
þrettán milljarða króna, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Magma
mun koma að fjármögnun kaupanna
og í kjölfarið kaupa 10,8 prósent hlut í
HS Orku af GGE ef af þeim verður.
Það mun skýrast á næstu vikum.
Erlendu fjárfestarnir gætu síðan
eignast enn stærri hlut í HS Orku,
sem er framleiðslu- og söluhluti þess
sem áður var Hitaveita Suðurnesja,
með hlutafjáraukningu í félaginu.
Félagið mun auk þess hafa áhuga á
hlut Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og
Hafnarfjarðar í orkufyrirtækinu, en
hann nemur um 32 prósentum.
Óbindandi tilboð í hann verða opnuð á
mánudagsmorgun en íslenska ráð-
gjafarfyrirtækið Arctic Finance hefur
verið með þann hlut í sölumeðferð um
nokkurt skeið. Fulltrúar ýmissa er-
lendra orkufyrirtækja eru staddir
hérlendis um þessar mundir vegna
þessa.
Kanadískt félag
kaupir í HS Orku
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
STJÓRNARMENN Lífeyrissjóðs
Kópavogs (LSK) voru upplýstir um
samskipti við Fjármálaeftirlitið á
stjórnarfundum og vissu að bókhald-
ið stæðist ekki skoðun.
Það kemur meðal annars fram í
tölvupóstsamskiptum sem Sigrún
Bragadóttir, framkvæmdastjóri
LSK, átti við stjórnina þegar FME
var send greinargerð 15. janúar. Þar
skrifar hún: „Ég hitti Hjalta endur-
skoðanda hér niðri áðan og sagði
honum frá þessu. Hann er hræddur
um að þeir birtist og heimti að skoða
bókhaldið á þessu ári og þá erum við
í vanda.“
Það kemur fram í greinargerðinni
til FME að landslag hvað varðar
fjárfestingarmöguleika lífeyrissjóða
breyttist mjög eftir bankahrunið í
byrjun október. „Stjórn sjóðsins
taldi því eina örugga og ásættanlega
fjárfestingakostinn vera þann að
lána Kópavogsbæ fjármuni til
skamms tíma í senn á meðan lausa-
fjárþurrðin gengi yfir.“
Öll stjórn LSK hefur verið kærð
til efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra.
„Og þá erum við í vanda“
Af tölvupóstsamskiptum milli framkvæmdastjóra og stjórnarmanna LSK má ráða
að stjórnarmenn vissu að Fjármálaeftirlitið hafði ekki fengið allar upplýsingar
» Stjórn LSK hafði frumkvæði að því að óska eftir
fundi með FME í nóvember 2008
» FME gerði athugasemdir við að lán til Kópavogs
næmu yfir 10% af heildareignum LSK
» Stjórnin taldi sig hafa frest til úrbóta til 31. júlí
Vissu um lánveitingarnar | 6
ÞESSI litli dúnmjúki smyrilsungi var fyrstur „systkinanna“ í hreiðrinu til
að brjóta sér leið út úr skurninni. Dúnninn víkur þó fljótlega fyrir flug-
fjöðrum og snaggaralegu útliti ránfuglsins. Þá mega smáfuglarnir, aðal-
fæða smyrla, fara að vara sig.
VERÐUR BRÁTT ÓGNVALDUR SMÁFUGLA
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
STOÐIR, áður FL Group, töpuðu
7,1 milljarði króna á sölu á hlut sín-
um í Northern Travel Holding
(NTH), móðurfélagi Sterling. Þá
tapaði félagið á upphaflegri sölu á
Sterling til NTH en græddi ekki
fimm milljarða króna í „gervi-hagn-
að“ líkt og almennt hefur verið tal-
ið. Þetta kemur fram á minnisblaði
sem starfsmenn Stoða unnu fyrir
kröfuhafa félagsins í kjölfar þess að
húsleitir voru framkvæmdar hjá
Hannesi Smárasyni vegna Sterling-
viðskiptanna. Morgunblaðið hefur
minnisblaðið, sem er dagsett 5. júní
síðastliðinn, undir höndum. »20
Minnisblað um milljarðatap
FL Group vegna Sterling
„Auðsjáanlega
mun þetta hafa
gríðarleg áhrif á
ráðstöfunar-
tekjur heimil-
anna, s.s. þar sem
meira er tekið af
þeim, og til við-
bótar munu
neysluskattarnir
hækka vísitöluna og þar með skuldir
heimilanna,“ segir Gunnar Egill Eg-
ilsson, lögfræðingur á skatta- og lög-
fræðisviði Deloitte.
Fjármálaráðherra lagði í gær fyr-
ir Alþingi skýrslu um jöfnuð í ríkis-
fjármálum. Þar koma m.a. fram til-
lögur um ýmsar skattahækkanir. »8
Gríðarleg áhrif á ráðstöf-
unartekjur og skuldir
TILRAUNIR eru gerðar með það
að laða þorsk að gildrum með lykt-
arefni. Ef rannsóknin leiðir í ljós að
þorskur flykkist að lyktinni og hag-
kvæmt reynist að fanga hann í
gildrur gæti þessi veiðiaðferð orðið
valkostur í framtíðinni við hefð-
bundnar fiskveiðar í villtri náttúru.
Rannsóknin er gerð í útibúi Haf-
rannsóknastofnunarinnar á Ísa-
firði, í samvinnu við fyrirtæki og
stofnanir. Lyktarefni verður í haust
dælt úr landi í tilraunakví og fylgst
nákvæmlega með viðbrögðum
þorsksins. » 18
Lyktin laðar þorsk í gildrur