Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 ✝ Kjartan HólmSigmundsson fæddist í Hælavík á Hornströndum 22. desember 1927. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Ísafirði 11. júní 2009. Foreldrar Kjartans voru Sig- mundur Ragúel Guðnason, f. 13. des- ember 1893, d. 6.okt. 1973 og Bjargey Pét- ursdóttir, f. í Hæla- vík 5. júní 1902, d. 30. sept. 1987.Systk- ini Kjartans eru Pétur Sigmunds- son f. 1. sept. 1921, d. 23. sept.1992, Guðný Hjálmfríður Sig- mundsdóttir, f. 16.sept. 1922, d. 23. sept. 2004, Petólína Sigmunds- dóttir, f. 16. sept. 1922 , d. 10. okt. 2006, Jón Þorkell Sigmundsson, f. 11. jan. 1925, Guðfinna Ásta Sig- mundsdóttir, d. 9. nóv. 1979, Ingi- björg Unnur Sigmundsdóttir, f. 20. Hallgrímur Kjartansson, f. 6. mars 1959, hans kona er Birna Lár- usdóttir, f. 14. mars 1966, þeirra börn eru: 1) Hekla, f. 22. janúar 1999, 2) Hilmir f. 02.02.2002, 3) Hugi f. 02.02.2002 og 4) Heiður f. 08.08.2006. b) Kristín Kjart- ansdóttir, f. 02.08.1962. Hennar dóttir er Rakel Erla Sævarsdóttir, f. 3. apríl 1988. c) Davíð Björn Kjartansson f. 18. janúar 1964. Hans kona er Sigrún Jóna Hin- riksdóttir, f. 2. janúar 1965. Þeirra börn eru: 1) María Bjargey Dav- íðsdóttir, f. 8. október 1987. Henn- ar maður er Birkir Jónas Ein- arsson, f. 6. júlí 1977. Barn þeirra er Svala Katrín Birkisdóttir, f. 25. desember 2007. 2) Ástrós Davíðs- dóttir, f. 19. júlí 1996. 3) Gabríel Hólm Davíðsson, f. 26. sepember 1998. d) Bergrós Kjartansdóttir, f. 3. mars 1968. Hennar maður er Jón Rósmann Mýrdal, f. 12. ágúst 1960. Þeirra börn eru: 1) Bjarmi Alexander Rósmannsson, f. 29. maí 1992, 2) Blær Víkingur Rós- mannsson, f. 11. janúar 2001 og 3) Brimar Jónatan Rósmannsson, f. 19. maí 2007. Útför Kjartans fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju laugardaginn 27. júní nk. kl. 14.00. maí 1933, Trausti Sigmundsson, f. 24. nóv. 1937, d. 9. ágúst 1989. Eftirlifandi eig- inkona Kjartans er María Hallgríms- dóttir, f. 2. júlí 1938. Fyrir hjónaband átti Kjartan einn son með Elínu Aðalheiði Þor- steinsdóttur, f. 1931, Bjarna Sigmar Kjart- ansson, f. 5. mars 1949, hans börn eru: a) Anna Helga Bjarnadóttir, f. 16.08.1968. Henn- ar börn eru Júlíana Ósk Andersen, f. 21. desember 1994 og Helga Guðrún Andersen, f. 26. sept- ember 1999. b) Ásbjörn Bjarnason, f. 26.apríl 1977. c) Kristín Ýr Bjarnadóttir, f. 1.febrúar 1984 og d) Jónas Elí Bjarnason, f. 28. júlí 1981. Með eiginkonu sinni átti Kjartan fjögur börn. Þau eru: a) Þegar ég fékk fréttir af andláti þínu, kæri frændi, þá leitaði hug- urinn strax til barnæskunnar því þannig man ég þig best. Mig langar að rifja upp þessi minningabrot og deila þeim með öðrum. Ég minnist þess að þegar þú komst að heimsækja mömmu og ég var að leik fyrir utan húsið þá flýtti ég mér inn til að missa ekki af þér, því ég vissi að annaðhvort myndir þú segja spennandi sögur úr bjarg- inu eða gamansögur úr lífinu, (pínulítið ýktar að sjálfsögðu til að magna áhrifin), fara með vísur eða spjalla um eitthvert bókmennta- verk sem þér var hugleikið. Þetta voru eðalstundir og fullar af gleði og innihaldi fyrir barnssálina. Það var líka mjög sérstakt samband á milli ykkar mömmu, þið náðuð vel saman. Mér fannst mamma alltaf fyllast af fjöri og dillandi húmor þegar þú varst nálægur og lengi eftir að þú varst farinn. Þau voru líka ófá skiptin sem við komum í heimsókn til þín og Lóu og ég lék mér við eldri börn ykkar, Lalla og Kristínu. Á vorin brást það ekki að þú færir í bjargið að ná í svartfuglsegg og allir biðu spenntir með hugann hjá þér og við börnin skynjuðum á tali eldra fólksins hvað þetta var mikil hættuför. Allir biðu spenntir eftir að fá þig heim og að vita hvernig hefði geng- ið. Áður en við vissum af þá fylltist allt af eggjum, bæði nýjum og stropuðum, sem allir gátu borðað að vild. Oft fékkstu okkur börnin til að hjálpa til við að skyggna og flokka eggin og þá varstu strangur en á mildan hátt sem börn skilja. Mér fannst þú oft dálítið dular- fullur og þá sérstaklega þegar þú varst djúpt hugsi eða annars hugar. Kannski varstu að yrkja eða bara að huga að næstu ferð á Horn- strandir. Sumir sögðu að hugur þinn væri alltaf þar. Þar steigstu þín fyrstu spor í stórum systkina- hóp og lærðir að kljást við nátt- úruöflin, síga í bjarg og nýta gjafir náttúrunnar. Ég var mjög heppin sem unglingur að fá að fara með þér og fleirum norður á Strandir og þvílík breyting á einum manni. Það var eins og þú skiptir um ham. Ekkert var framandi, þú þekktir allt, virtist kominn heim og lékst á als oddi. Þú fórst með okkur upp í bjarg, inn í vík að skjóta sel, syntir í sjónum og manaðir okkur til að gera það líka. Þú kenndir okkur að njóta náttúrunnar, kæri frændi, og bestu þakkir fyrir það. Nú þegar þú ert horfinn á braut þá standa eftir dýrmætar minning- ar sem munu lifa og þannig lifir þú áfram í okkur. Að lokum ætla ég að fá lánað eitt erindi úr ljóðinu „Kvaddur“ eftir Jakobínu Sigurð- ardóttur. Veit ég að vel mun hlúa vestfirska moldin góða barni við brjóstið sitt. Síðar með sól og döggvum sumargróðurinn breiða lifandi á leiðið þitt. Elsku Lóa, ég sendi þér og fjöl- skyldu þinni innilegar samúðar- kveðjur, Laufey Ósk Arnórsdóttir og dætur. Upp undir hvelfing Helgafells/ hlýlegum geislum stafar;/frænda sem þangað fór í kvöld/fagna hans liðnir afar. Þetta fórum við Kjartan Sigmundsson með úr Áföngum Jóns Helgasonar á síðasta fundi okkar föstudaginn fimmta júní. Við fengum kames út af fyrir okkur á Ísafjarðarspítala og áttum góða stund. Eiginlega stóð ekki til, að Kjartan færi að deyja akkúrat núna á ofanverðri eggtíð, en við vissum að þetta var orðið fjandi tæpt. And- inn var óbugaður, en hylkið orðið ansi lasið, svo notað sér orðalag séra Baldurs í Vatnsfirði, sem ein- att talar um líkamann sem hylki með sínum norðlenska framburði. Hylkið. Og einhvern veginn var það svo að líf og dauði varð okkur drjúgt umtalsefni á þessu síðdegi. Kjartan Sigmundsson sagðist aldrei hafa óttast dauðann, hann hefði óttast lífið. Þar kom til atburður sem varð í Hælavík, þegar hann var drengur. Þrúgandi þögn ríkti um það sem gerðist, óhapp sem spannst af græskulausum leik ungs drengs. Enginn yrti á hann og hann mátti byrgja harminn með sjálfum sér alla ævi. Forðaðist margmenni, fannst hann ekki geta farið á skóla, allir hlytu að sjá í gegnum hann, lesa hann út. Þetta verður að hafa í huga, þegar lífshlaup Kjartans Sig- mundssonar er skoðað. Einhver hefði farið auðvelda leið, en þrjósk- an sem lágvöxnum manni í blóðið er borin knúði hann áfram og til hólm- göngu við bjargrisana nyrðra þar til bannaði líf og heilsa. Og ekkert var slegið af fyrr en í fulla hnefana. Kjartan Sigmundsson varð aldrei gamall maður, hann breytti ekki lífsháttum sínum, þótt árin færðust yfir. Snuddaði í smíðastofu sinni, hengdi upp spyrður í hjallinum við Hnífsdalsveginn og fór á bryggjuna að gá að aflabrögðum. Sat og krafs- aði niður minningar frá liðinni tíð eins og hann orðaði það sjálfur. „Hef svolítið verið að krafsa.“ Það kom til um áramótin, að setja á blað eitthvað í lengra lagi um lífshlaup Kjartans Sigmunds- sonar. Og það tókst svona áður en yfir lauk. En víkin Hælavík lætur ekki að sér hæða. Mætti ætla að hún hafi verið þrotlaus brunnur andlegs at- gjörvis þess fólks sem þar rann upp, fyrir utan hvers konar hag- leik, sem því var gefinn með ár- hringum kynslóðanna. Og saga Kjartans Sigmundssonar verður ekki sögð nema margir komi við sögu, menn og vættir, mórar og skottur, svo og dýr óarga sem hvítabirnir. Situr nú að teiti sveitin öll, saman við langeld skrafar. Og hvort mundi nú hlegið í Bjargi, þegar sagðar verða sögur af sól- ríkum dögum og sæknum bjarg- mönnum. Ég votta Lóu og öllum afkom- endum samúð okkar Hansínu. Finnbogi Hermannsson Fallinn er frá kær frændi og ná- inn vinur til margra ára, Kjartan Sigmundsson, eftir hetjulega bar- áttu við „manninn með ljáinn“. Því ætla ég að minnast hans með nokkrum orðum. Við vorum systkinasynir og var samband foreldra okkar mjög mik- ið, þó vík væri á milli vina þangað til þau fluttu til Ísafjarðar. Sér- staklega eru minisstæðar heim- sóknir um jól og áramót og á öðrum hátíðardögum á Grænagarði og Skógarbraut. Leiðir okkar Kjartans lágu ekki saman nema að litlu leyti fyrr en eftir að hann og Lóa fóru að búa á Ísafirði. Þó er ljóslifandi í huga mínum þegar frændfólk okkar frá Hælavík kom vor og haust að Brautarholti og síðan Grænagarði með egg og fleira góðgæti að norð- an. Þetta var framandi fólk sem maður leit upp til, hlakkaði til að hitta og var hreykinn af. Ég ætla ekki að setja á blað lofræðu eða hól um frænda því það væri fjarri huga hans. Það væri hægt að skrifa þykka bók um samskipti hans við sjó og land og hafði hann ávallt betur þó stundum hafi verið teflt á tæpasta vað og oft var hann einn á báti. Ég minnist sérstaklega allra heimsókna á Seljalandsveginn og samræðna þar, þá var tíminn oft fljótur að líða og skoðanir ekki allt- af samhljóða, en ávallt var komist að niðurstöðu sem báðir gátu sætt sig við. Ferðirnar sem við fórum á „Kögrinum“ að Horni og Jökul- fjörðum eru einnig ógleymanlegar, alltaf var kastað færi eða neti í sjó og þar var frændi kóngur í ríki sínu en ég hlustandi og nemandi sem reyndi að festa sem flest í minni. Frændi átti við veikindi að stríða á síðustu árum ævinnar og tók hann þeim af sama æðruleysi og öðru í lífinu og bar þau ekki á torg þótt maðurinn með ljáinn hafi oft höggið nærri. Ég kveð frænda með söknuði og hryggð í huga, en jafnframt með þakklæti og þökk fyrir allar sam- verustundirnar. Ég óska honum góðrar ferðar á nýjar veiðilendur og veit að hann fær góða heimkomu hjá þeim sem öllu ræður. Að lokum vottum við Valgerður Lóu og fjölskyldu hennar hugheila samúð og vonum að Guð veiti þeim styrk við minningu þeirra um góð- an dreng. Gunnar Pétursson. Kjartan Hólm Sigmundsson ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR, Úthlíð, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnuninni Vestmannaeyjum mánudaginn 22. júní. Útför hennar fer fram frá Landakirkju Vestmanna- eyjum þriðjudaginn 30. júní kl. 13.00. Sigþóra Björgvinsdóttir, Bragi Júlíusson, Jóna Björgvinsdóttir, Leifur Ársæll Leifsson, Björgvin Björgvinsson, Valgerður Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Blessaður bróðir minn, PÁLL FRAMARR EINARSSON frá Ósi, lést í Svíþjóð miðvikudaginn 6. maí. Jarðarförin fór fram í kyrrþey. Borghildur Einarsdóttir. ✝ Frændi minn, GUÐMUNDUR ÁGÚST SVEINSSON, Laugarbraut 25, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 30. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba- meinsfélagið eða Sjúkrahús Akraness. Fyrir hönd annarra vandamanna, Kristjana Ragnarsdóttir. ✝ Hjartkær móðir mín, LÝDÍA BERGMANN ÞÓRHALLSDÓTTIR, Ásvallagötu 42, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 29. júní kl. 11.00. Magnús Bergmann Ásgeirsson. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og frændi, HJÖRTUR D. HANSSON, lést fimmtudaginn 18. júní. Jarðarförin verður gerð frá Bústaðakirkju föstudaginn 3. júlí kl. 11.00. Fanný Lára Hjartardóttir, Ólafur Ragnarsson, Unnar Steinn Hjartarson, Victor Breki, Hreiðar Á. Gíslason, Helgi H. Hansson og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir mín, dóttir, systir og mágkona, HLÉDÍS GUNNARSDÓTTIR, Snægili 9, Akureyri, varð bráðkvödd á heimili sínu þriðjudaginn 23. júní. Jarðarförin fer fram frá Garðskirkju í Kelduhverfi fimmtudaginn 2. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elvar Pálsson, Kristveig Árnadóttir, Ómar Gunnarsson, Hrafnhildur Stella Sigurðardóttir, Árni Grétar Gunnarsson, Margrét Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.