Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 ✝ Arnfríður Guð-jónsdóttir fæddist í Byggðarholti á Fá- skrúðsfirði 1. nóv- ember 1932. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaupstað 20. júní 2009. For- eldrar Arnfríðar voru hjónin Guðjón Bjarnason, f. á Ána- stöðum í Breiðdal 15. mars 1892, d. 25. apr- íl 1979 og Ólafía Björg Jónsdóttir, f. í Egilsstaðakoti í Flóa 2. desember 1892, d. 25. júní 1964. Arnfríður var þriðja yngst fjórtán systkina. Arnfríður giftist 1. nóvember 1967 Geir Helgasyni, f. á Fáskrúðs- firði 20. ágúst 1933, og bjuggu þau í Silfurtúni á Fáskrúðsfirði allan sinn búskap. Dætur Arnfríðar eru: 1) Eygló Aðalsteinsdóttir, f. 1953, gift Þórarni Óðinssyni, dætur þeirra eru Anna Marín, Margrét Jóna og Brynja Dröfn. 2) Jóna Björg Jónsdóttir, f. 1957, gift Haf- þóri Eide Hanssyni, börn þeirra eru Davíð Hrannar, Arnfríður og Búðahrepps árin 1974-78. Hún var í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 1974-76, fyrsta konan þá í stjórn. Í Framsóknarfélagi Fá- skrúðsfjarðar frá 1970, ýmist í stjórn sem formaður eða ritari. Í stjórn Kjördæmissambands fram- sóknarmanna á Austurlandi í eitt kjörtímabil og í varastjórn annað. Stofnfélagi í Leikfélagi Fáskrúðs- fjarðar og starfaði í því í 10 ár. Í stjórn Félags kvenna um öldr- unarmál á Fáskrúðsfirði frá stofn- un þess 1983 og meðan félagið starfaði. Var kjörin í byggingar- nefnd Dvalarheimilisins Uppsala á Fáskrúðsfirði og í stjórn þess frá upphafi og formaður stjórnar þess til dánardags. Hún var formaður skólanefndar Grunnskóla Fá- skrúðsfjarðar 1978-82. Einnig for- maður stjórnar Heilsugæslustöðv- arinnar sl. tvö kjörtímabil og í ýmsum nefndarstörfum á vegum Búðahrepps svo sem barnavernd- arnefnd, kjörnefnd o.fl. Þá starfaði hún um árabil í Slysavarnadeild- inni Hafdísi og kenndi handavinnu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 1964-72 og aftur 1980-83. Hún var síðar afgreiðslumaður hjá Kaup- félagi Fáskrúðsfjarðar. Útför Arnfríðar fer fram frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju í dag, 27. júní, og hefst athöfnin kl. 14. Hafþór Eide. Börn Arnfríðar og Geirs eru: 3) Arna, f. 1960, gift Guðna Elíssyni, dætur þeirra eru Ant- onía og Lovísa Fann- ey. 4) Sigrún Júlía, f. 1967, gift Hjörvari Moritz Sigurjónssyni, börn þeirra eru Daní- el Geir Moritz og Bríet Ósk Moritz. 5) Grétar Helgi, f. 1973, unnusta Ausra Lau- kyte. 6) Dýrleif Geirs- dóttir, f. 1974, unn- usti Árni Rúnar Árnason, sonur Dýrleifar er Jóhann Helgi Jó- hannsson. Barnabarnabörn Arn- fríðar eru fimm. Eftir að hafa lokið námi í Barna- og unglingaskóla Fáskrúðsfjarðar fór Arnfríður í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Hún fór þaðan til Hafnarfjarðar og vann í 10 ár hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga. Þaðan lá leiðin aftur heim til Fáskrúðs- fjarðar og fór hún þá fljótlega að starfa að félags- og sveitarstjórn- armálum, var kjörin varamaður í hreppsnefnd 1966-70 og oddviti Í minningu móður okkar settumst við systkinin sex saman og skrifuð- um nokkrar línur þó um hana ætti betur við að skrifa langa bók. Við erum í dag þakklát mömmu fyrir það sem hún kenndi okkur í uppvextinum þó kennslustundirnar hafi ekki ávallt verið áreynslulausar, enda var kennarinn kröfuharður bæði við okkur og ekki síst við sjálf- an sig. Heimilið var oft fjölmennt og lit- ríkt, glatta þurfti yfir hvert horn ekki síst í útenda hússins hjá hrepp- stjóranum, lögreglunni og oddvitan- um, embættum þeirra hjóna. Emb- ættin höfðu á þeim tíma engin afdrep önnur í bænum og því voru barnaherbergin notuð þegar þörf var á, hvort sem um var að ræða fangelsi eða kjörfundarklefa. Mamma hafði mikinn metnað fyrir því að við værum vel til höfð. Hann- yrðahæfileikar hennar gerðu það að verkum að eftir því var tekið hversu fín við vorum, flíkurnar gáfu rándýr- um tískufatnaði ekkert eftir, smekk- vísin og frágangurinn var slíkur. Fram á síðasta dag féll henni ekki verk úr hendi. Ef ekki var verið að sinna heimilisstörfum eða puða í fal- legum garðinum tók hún til við prjónaskapinn og framleiddi flíkur á börn og fullorðna sem prýða nú fólk víða um heim. Mamma var fljót að bjóða fram aðstoð sína og taka þátt af alhug í því sem við systkinin höfðum fyrir stafni eftir að við yfirgáfum hreiðrið. Ef við vildum hittast og gera okkur glaðan dag í faðmi fjölskyldunnar kom hún með eitthvað gott í gogginn og var hrókur alls fagnaðar með hnyttnum tilsvörum og skemmtilegri sýn á hlutina. Hennar sýn á málefnin skipti okkur ávallt miklu máli. Hvort sem um var að ræða smávægilega hluti, eins og hversu margar tertur þyrfti í veisluna, eða stóru málefnin í lífi okkar, var ávallt gott að leita til hennar um ráðleggingar. Ráðsnilld mömmu náði langt út fyrir veggi heimilisins því hún var mikill félagsmálafrömuður. Þing- menn jafnt og sveitarstjórnarmenn virtu sjónarmið hennar og þurftu að hlusta þegar hún tók til máls enda talaði hún tæpitungulaust hvort sem áheyrandi var kóngur eða prestur. Ótímabært fráfall mömmu er okk- ur mikið áfall. Við kveðjum hana með sorg og miklum söknuði. Við er- um þakklát fyrir hvernig mamma kom okkur til manns, var ávallt til staðar fyrir okkur, tengdabörnin, börnin okkar og barnabörn. Eygló, Jóna Björg, Arna, Sigrún Júlía, Grétar Helgi og Dýrleif. Elsku Adda amma. Orð fá því ekki lýst hversu mikið við söknum þín. Fregnir af alvarlegum veikindum þínum voru mjög sárar. Hugur okk- ar var hjá þér og öll óskuðum við þess að geta verið hjá þér og geta stutt þig í gegnum þessa erfiðu bar- áttu. Þrátt fyrir bænir okkar og von fórstu frá okkur allt of snemma og skildir eftir stórt skarð í lífi okkar. Þú varst okkur ekki bara amma heldur líka góður vinur og félagi sem við gátum alltaf reitt okkur á. Við gátum alltaf stólað á þinn stuðning þegar við réðumst í einhver verkefni þó það kostaði eitt símtal eða tvö. Orð eins og dugleg, afkastamikil og umhyggjusöm eru okkur ofarlega í huga þegar við hugsum um ömmu í Silfó, hvort sem það tengdist bakk- elsi á borðum, garni á prjónum eða nammið í skápnum sem var alltaf á boðstólum þegar við komum til þín. Umhyggja þín átti sér engin tak- mörk, þú sýndir hana ekki aðeins gagnvart barnabörnunum þínum heldur líka gagnvart nýjum fjöl- skyldumeðlimum. Þú tókst þeim opnum örmum og gerðir þau að þín- um. Þinn húmor er sérkapítuli í okkar huga og orðheppnari manneskju munum við varla kynnast. Brandar- arnir komu oft á færibandi, hvort sem þeir sneru að þér eða öðrum og voru ófá skiptin sem við grenjuðum úr hlátri yfir þeim. Símaskráin virð- ist þunn miðað við þá bók sem mætti fylla með fyndnum frásögnum þín- um. Elsku amma, við erum þér ákaf- lega þakklát fyrir allt sem þú hefur gefið okkur og kennt. Þú varst, ert og verður okkar stoð og stytta, okk- ar einnar konu her. Við munum halda áfram að vera samheldin fjöl- skylda og passa upp á hvert annað, foreldra okkar og afa. Þín barnabörn, Davíð Hrannar, Antonía, Lovísa, Anna Marín, Arn- fríður, Margrét Jóna, Daníel Geir, Brynja Dröfn, Hafþór Eide, Alexander, Bríet Ósk og Jóhann Helgi. Um Arnfríði er örugglega margt hægt að segja og þótt kynni mín af henni hafi ekki verið mikil þá voru þau þó nógu mikil til að skynja að hér væri hörkudugleg kona á ferð. Ekki höfum við hjónin farið oft aust- ur á Fáskrúðsfjörð en þegar það hef- ur gerst þá höfum við alltaf fengið höfðinglegar móttökur frá henni og hennar fjölskyldu. Aldrei var tekið annað í mál en að gista og byrjaði Arnfríður strax að skipuleggja. Gista hjá Eygló eða Jónu, morgun- matur hér, hádegismatur þar og kvöldmatur á enn einum stað. Svona hafa móttökurnar alltaf verið fyrir austan og ég held að flestir hafi svip- aða sögu að segja um það. Mikill samgangur var alltaf á milli fjölskyldna Arnfríðar og Unnar, tengdamóður minnar á meðan hún lifði. Ég kynntist fjölskyldu Arnfríð- ar mest við skipulagningu á ættar- mótum og kaffiboði og þá helst Jónu Björg og Grétari. Arnfríður lét sig ekki vanta á þessi ættarmót, ekkert frekar en hennar börn. Hún var mik- il félagsvera eins og sjá má á því hvar hún hefur stigið niður í sínu lífshlaupi. Um síðustu helgi var ættarmót í fjölskyldu Ólafíu Bjargar Jónsdótt- ur, móður Arnfríðar, og þangað stefndi Arnfríður með stóran fjöl- skylduhóp og ég veit að hún var farin að hlakka til þessa móts. En þá gengu ósköpin yfir. Daginn fyrir ættarmótið kom fyrsta reiðarslagið þegar fréttist af veikindum hennar. Síðan kom tilkynning um andlát hennar á laugardeginum. Mann setti hljóðan; hvað skal gera? En Arnfríð- ur hefði aldrei tekið í mál að ætt- armótinu yrði aflýst hennar vegna, svo það var keyrt áfram en hugurinn var oft fyrir austan. Mér voru það gífurleg vonbrigði að hún skyldi ekki fá að upplifa þetta ættarmót en svona er víst lífið. Enginn veit hve- nær kallið kemur. Dæmi um dugnað hennar er að hún var að til síðasta dags. Eitt af lokaverkum Arnfríðar var að hún fékk það hlutverk, vegna ættarmóts- ins, að taka saman grein um fallna fjölskyldumeðlimi sem minnast átti í helgistund á ættarmótinu. Hún vann þetta verk ásamt Eygló dóttur sinni og síðan reyndist það mitt hlutskipti að bæta henni á listann. Hennar verður sárt saknað því mikill missir er í þessari duglegu konu. En hún átti góða að og nú er það hlutverk barna hennar að halda uppi nafni hennar um ókomna tíð. Ég vil votta Geir, börnum hans og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Ingvi Ingvason. Síðastliðinn laugardag fékk ég þau tíðindi að góð vinkona mín, hún Adda, væri öll. Með Arnfríði Guð- jónsdóttur er gengin merk kona sem lagði á sinni tíð mikið til samfélags- ins. Ég kynntist Arnfríði þegar ég var kjörinn þingmaður Norðaustur- kjördæmis árið 2003. Síðan þá höf- um við fylgst að og á ég Öddu margt að þakka enda stóð hún þétt við bak mér í mínum störfum – sem var ómetanlegt fyrir ungan þingmann. Adda var Fáskrúðsfirðingur í húð og hár og bar hagsmuni síns byggð- arlags fyrir brjósti og var félags- málamanneskja sem munaði um. Nægir að nefna að hún var um skeið oddviti byggðarlagsins og stjórnar- formaður dvalarheimilisins Uppsala um árabil. Kynni mín af Öddu voru ánægju- leg. Hún hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og mörg sím- tölin áttum við þar sem farið var yfir stöðu þjóðmála. Arnfríður fylgdi Framsóknarflokknum að málum og um áratugaskeið vann hún flokknum ómetanlegt gagn. Þrátt fyrir ein- dreginn stuðning við málstaðinn þá voru fáir eins gagnrýnir á stefnu og störf kjörinna þingmanna flokksins eins og Arnfríður – sem er vel enda er slíkt ómetanlegt í starfi stjórn- málaflokks. Arnfríði hitti ég í síðasta sinn þann 25. apríl sl., á kjördag á Fá- skrúðsfirði. Þar var boðið upp á stór- myndarlegt kosningakaffi sem endranær og mætti Arnfríður með tertu að mér sýndist. Að venju var hún glæsileg. Hún tók mig afsíðis og gaf mér mynd sem hún bað mig um að hengja upp á vegg hjá mér – svo ég gæti séð fyrir hverju ég ætti að berjast í mínum störfum. Myndin var af Íslandi og landgrunninu um- hverfis það. Mér er þessi stund eft- irminnileg vegna þess að myndin var Öddu greinilega kær. Ekki er hægt að enda þessa grein án þess að minnast þess hversu stolt hún var af barnabarni sínu, honum Hafþóri Eide, en hann skipaði 9. sæti á lista okkar framsóknarmanna í kjördæminu fyrir þessar kosning- ar. Það mátti hún líka svo sannar- lega vera enda er þar á ferðinni ung- ur og efnilegur stjórnmálamaður sem hefur munninn fyrir neðan nefið – rétt eins og Arnfríður Guðjóns- dóttir hafði. Fjölskyldu Arnfríðar sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Minn- ingin um Arnfríði Guðjónsdóttur mun lifa í hugskoti mínu um ókomna tíð. Birkir Jón Jónsson. Arnfríður Guðjónsdóttir Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar míns, bróður, mágs, frænda og vinar, ÁSBJARNAR IBSSONAR, Meðalholti 13, Reykjavík, sem lést mánudaginn 1. júní. Sif Bjarnadóttir, Hilmir Þór Ibsson, Kristín Líf Karlsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur og bróðir, SIG. ÓMAR AÐALBJÖRNSSON, Kelduhvammi 13, Hafnarfirði, sem lést um borð í Kleifabergi ÓF fimmtudaginn 18. júní, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 30. júní kl. 15.00. Valgerður G. Gunnarsdóttir, Guðlín Jóna Ómarsdóttir, Sævar Bjarki Einarsson, Fanney Anna Ómarsdóttir, Arnar Már Jónsson, Aðalbjörn Sigurlaugsson, Ásdís Skarphéðinsdóttir, Anna og David Tebbets, Jóna Guðný Arthúrsdóttir, Ómar Örn, Jóel Ernir, Arnar Búi, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, fósturföður, afa og langafa, JÓNS STEFÁNSSONAR, Hólavegi 26, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við Flugumýrarfólkinu og starfsfólki á deild 1 Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Petra Gísladóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Einar Stefánsson, Ingimar Jónsson, Guðrún Kjartansdóttir, Gísli H. Einarsson, Kolbrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR J. GUNNARSSON, lést fimmtudaginn 18. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Arnheiður Anna Ólafsdóttir, Jón Páll Baldvinsson, Hafþór Ólafsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Bjargey Ólafsdóttir, Guðlaug Erla Jónsdóttir, Ólafur Baldvin Jónsson, Þór Símon Hafþórsson, Bjarki Páll Hafþórsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.