Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 42
42 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ALLT Í LAGI... RÉTTU MÉR ÞAÐ! HVAÐA LÍM- BAND? HVAR ER KÖTTURINN ?!? HANN VAR Í GARÐINUM RÉTT ÁÐAN ÉG HEF ÁHYGGJUR AF HONUM. HANN ER ALLTAF AÐ SLÁST HANN ER STERKUR. HANN GETUR SÉÐ UM SIG SJÁLFUR ÞARNA ER HANN HANN ER ALLUR Í SKRÁMUM HANN ER EKKI EINS STERKUR OG ÞÚ HÉLST ÉG VEIT ÞAÐ EKKI. VIÐ SÁUM EKKI HINN KÖTTINN HMM... ÉG HAFÐI RANGT FYRIR MÉR ÞAÐ STENDUR HÉRNA AÐ ÞAÐ SÉ ALLT Í LAGI AÐ GEFA HUNDUM Á MILLI MÁLA... ALLT VERÐUR AUÐVELDARA EF MAÐUR HEFUR FJÖL- MIÐLANA Á SÍNU BANDI HA HA HA! DEYÐU, SNJÓSKRÍMSLI! DEYÐU! USS! USS! USS! USS! USS! USS! ÞÚ ÞJÁIST AF ÞVÍ SEM VIÐ LÆKNARNIR KÖLLUM „ÖRVKENNI“ OG HVAÐ VELDUR ÞVÍ? BOGI HJÁLP, RÚNAR! VIÐ BORÐUÐUM OF MIKIÐ! VIÐ BORÐUÐUM SVO MIKIÐ AÐ VIÐ BREYTT- UMST Í FÍGÚRURNAR Á MORGUNKORNINU BÍÐIÐ AÐEINS... ÉG ÆTLA AÐ KLÁRA HAFRAGRAUTINN MINN ÞÚ ÆTTIR EKKI AÐ NEITA BOÐINU MÍNU, M.J. ÞÚ MÁTT KALLA MIG „FRÚ PARKER“... OG ÉG SAGÐI „NEI“ ÉG VARA ÞIG VIÐ... ÉG ER VANUR AÐ FÁ ÞAÐ SEM ÉG VIL OG ÉG VARA ÞIG VIÐ, KRANDIS... SVONA TALAR MAÐUR EKKI VIÐ DÖMUR HVAÐ VILT ÞÚ?!? SPÁÐ er blíðskaparveðri alla helgina og því munu eflaust margir leggja leið sína í Grasagarðinn í Laugardal, skoða flóru garðsins, fara í Húsdýra- og fjölskyldugarðinn og setjast niður á Kaffi Flóru. Þessi maður sér til þess að Laugadalurinn skarti sínu fegursta með því að slá og snyrta garðinn. Morgunblaðið/Heiddi Sól í Grasagarðinum Lítil saga um lyfjabruðl ÉG þurfti að fá augn- dropa skv. læknisráði fyrir stuttu. Drop- arnir heita Voltaren Ophtha og koma í stakskammtaíláti. Í ílátinu eru fjögur ál- bréf og í hverju ál- bréfi eru fimm skammtar, samtals 20 skammtar. Hver skammtur er innsiglaður þannig, að þegar búið er að opna skammtinn og nota það magn sem er ráð- lagt, þá á að henda því sem eftir er. Samkvæmt leiðbeiningunum á að láta einn dropa í hvort auga og síðan á að henda restinni. Ég taldi dropana í einum skammti og þeir voru þrettán. Í mínu tilviki þurfti ég aðeins að setja í annað augað, sem þýðir að ég henti tólf dropum af þrettán. Lyfið kostaði rétt rúmlega 3000 krónur. Það eru þá rúmlega 90% sem var hent af lyfinu og upphæð- inni. Ég hafði samband við lyfjafræð- ing í Lyfjaveri þar sem lyfið fékkst og spurði hvort þetta þyrfti að vera svona. Skýringin var sú, að engin rotvarnarefni væru í drop- unum, þar sem þeir sem nota lins- ur þola þau ekki. Þess vegna þyrftu þeir að vera í innsigluðum umbúðum. Þá spurði ég hvort droparnir þyrftu að vera svona margir í hverjum skammti, þá var svarið að e.t.v. færi eitthvað til spillis í hvert skipti sem innsiglið er rofið. Hvað sem því líður, þá er verið að láta viðskiptavinina greiða að mestum hluta fyrir eitthvað sem ekki nýtist og fer bara til spillis. Það er afar ósennilegt að þetta sé einsdæmi á lyfjamarkaðnum. Rósa Guðmundsdóttir. Phédre ÉG vil fá að þakka Morgunblaðinu fyrir hið frábæra framtak að gefa áskrifendum blaðsins kost á að sjá heimsýninguna á leikritinu Phédre. Þvílík sýning, þvílíkur leikur og þvílík upplifun. Ég er í skýjunum. Takk fyr- ir mig. Elísabet. Siðferði íslenskra fjölmiðla SÍÐUSTU vikur hef- ur mörgum fundist á vanta varðandi fag- mennsku í vinnslu frétta og fréttatengds efnis. Þetta skiptir miklu máli á okkar tímum. Við þurfum að fá fram umræðu um þessi mál (sjá umfjöll- un um þau í Morgunblaðinu síð- ustu helgi). Hvernig er frétt valin og unnin? Hver er tilgangurinn? Nefnt er dæmi um frétt um Hannes Smárason á Stöð 2, 25. júní sl. Fréttin bætti engu við um sama mál á mánudaginn 22. júní á sömu stöð. Fréttin virtist einungis vera til þess að sverta mannorð Hannesar. Fréttamaður sýndi með orðavali og framkomu allri afar neikvætt viðhorf. Yfirgangur og hneykslun fjölmiðlafólksins skein í gegn. Þetta er sannarlega ekki sú mynd sem faglegur fjölmiðill vill sýna. Kennari. Týnd næla GÖMUL næla tapaðist laugardag- inn 20. júní sl. við útskrift Háskóla Íslands í Laugardalshöll. Nælan er kringlótt, hamraður kantur í kring, með einskonar riddara á hesti í miðjunni, gyllt á litinn en mött. Þetta er ættargripur sem hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir fjöl- skylduna. Upplýsingar í síma 863- 6609 og 864-6979. Kettlingar leita að heimilum GÓÐ heimili óskast fyrir 9 vikna fallega kettlinga, þrjá fressa og eina læðu. Upplýsingar í síma 564- 1331.        Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | 13-14 ára stúlkur koma í heimsókn 29. júní kl. 9.30 og sýna stuttan leikþátt og lesa upp ljóð. Boðið upp á kaffi á eftir. Eftirlaunadeild símamanna | Nokkrir geta bæst við í sumarferð 21.-26. júlí til Austfjarða og Norðausturlands: Þór- bergssetur á Hala, Papey, Kárahnjúkar, Raufarhöfn, Melrakkaslétta, Tjörnes, Hágöngulón á Sprengisandi o.fl. Uppl. hjá Ragnhildi í s. 551-1137, 898-4437 eða Valgarð s. 897-7550. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergi | Ferðalag um Árnesþing verður 29. júní, m.a. Þing- völl, Grafning, Laugarvatn, Bisk- upstungur o.fl. Lagt af stað frá Gerðu- bergi kl. 13. Vegna sumarleyfa starfsfólks fellur starfsemi og þjónusta niður frá miðvikud. 1. júlí og hefst aftur miðvikud. 12. ágúst. Sími 575-7720. Hraunsel | Lokað vegna sumarleyfa frá 6. júlí til 10. ágúst. Dagsferð FEBH verður um Suðurland 22. júlí. Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9- 16. Félagsvist, matur, kaffi, morg- unsamvera, bankaþjónusta, Stef- ánsganga, púttvöllurinn opinn o.fl. Boð- ið upp á námskeið fyrir atvinnulausa í skartgripagerð 29. til 3. júlí. S. 411- 2790. Fótaaðgerðir, s. 897-9801, s. hár- greiðslustofa 568-3139. Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík | Örfá sæti laus í ferð á Snæfellsnes 17. - 18. júlí n.k. Skráning og upplýsingar á Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar ehf. í síma 511-1515.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.