Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 19
Fréttir 19INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÁÐUR en Íslandsbanki og Lands- bankinn leystu til sín hlutabréf í Icelandair Group á genginu 4,5 í maí síðastliðnum hafði erlendur fjárfestir samband við eigendur Icelandair og lýsti yfir áhuga á að kaupa ráðandi hlut í félaginu. Var gengið 20-25 nefnt í því sambandi, að sögn Gunnlaugs Sigmunds- sonar, stjórnarformanns Ice- landair Group. Hinn 18. maí síðastliðinn leysti Íslandsbanki til sín 42 prósent hlutaffjár í félaginu, en gengið 4,5 var síðasta skráða viðskiptagengi með bréf Icelandair. Fyrir átti bankinn 5 prósent hlut. Megnið af fyrrgreindum 42% hlut var áður í eigu fjárfesting- arfélaganna Máttar og Nausts. Benedikt og Einar Sveinssynir eru stærstu eigendur Nausts og áttu einnig stóran hlut í Mætti. Stærsti hluthafi Máttar var hins vegar Milestone. Viku síðar leysti síðan skila- nefnd Landsbankans til sín 23,84 prósent hlut Langflugs, sem er í eigu Finns Ingólfssonar og Giftar eignarhaldsfélags. Þjóðhollir íhaldsmenn „Það var mjög einfalt. Menn- irnir sem eiga þessi bréf eru þjóð- hollir hægfara íhaldsmenn sem vildu frekar tapa peningum sjálfir en að vera þeir sem seldu Ice- landair úr landi. Það var ekkert fjárhagslegt vit í því,“ segir Gunn- laugur þegar hann er spurður hvers vegna stjórnin hafi ekki selt félagið til útlendinga úr því áhugi var fyrir því að kaupa á þessu verði. Íslandsbanki var upplýstur um áhuga erlendra aðila á Icelandair áður en bankinn leysti til sín bréf- in. Aðspurður hvort ekki hefði verið æskilegt af hálfu bankans að sýna tilslakanir ef fyrir lá vilji um kaup á mun hærra gengi segir Gunnlaugur að stjórn Icelandair hafi ekki getað sýnt nein skrifleg gögn um kauptilboð. Hann segist samt almennt ekki skilja þessa að- gerð bankans. Íslandsbanki hafði unnið með eigendum Máttar og Nausts mán- uðum saman áður en hann leysti bréfin til sín. „Þrátt fyrir að bank- inn hafi unnið að úrlausnum mála með eigendum félagins sá bankinn sig að lokum knúinn til þess að yf- irtaka eignarhlut þeirra í Ice- landair,“ segir Már Másson, upp- lýsingafulltrúi Íslandsbanka. Alltof hátt verð Haraldur Yngvi Pétursson, sér- fræðingur hjá IFS greiningu, seg- ir 20-25 fyrir hlutabréf í Ice- landair mjög hátt verð. „Ég veit ekki hvað þessi tiltekni aðili var að spá,“ segir Haraldur. „Skuldir fé- lagsins eru alltof háar og töldum við óljóst hversu mikils virði hluta- féð væri.“ Hann segir að í raun hafi komið á óvart að Íslandsbanki hafi innleyst bréfin á genginu 4,5. „Að okkar mati hefði ekki komið á óvart ef hlutabréfin hefðu verið metin lægra,“ segir hann. Selt eins fljótt og hægt er Það er ætlun Íslandsbanka að selja eignarhlut sinn í Icelandair í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og unnt er, að sögn Más Mássonar. Bankinn hefur, eins og Kaupþing og Landsbankinn, stofn- að sérstakt eignaumsýslufélag til að hámarka virði eigna sem bank- inn tekur yfir vegna erfiðleika skuldara „Þjóðhollir íhaldsmenn“ vildu ekki selja Icelandair Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Skuldir félagsins eru „allt of háar“ og virði hlutafjár óljóst. Í HNOTSKURN »Erlendur fjárfestir lýstiyfir áhuga á Icelandair áð- ur en bankarnir leystu félagið til sín. »Það er ætlun Íslandsbankaað selja eignarhlut sinn í Icelandair í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og unnt er. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is FYRIRHUGUÐ kaup Geysis Green Energy (GGE) á 34,7 prósent hlut Reykjanesbæjar í HS Orku verða fjármögnuð með erlendu fjármagni. Eftir þau viðskipti mun GGE eiga um 66 prósent í HS Orku. Samningar við fyrirtæki, sem starfar á sviði end- urnýjanlegrar orku, um að koma að kaupunum eru mjög langt komnir og málið verður kynnt opinberlega á allra næstu dögum. Heimildir Morg- unblaðsins herma að um sé að ræða kanadíska fyrirtækið Magma Energy, en fulltrúar þess eru á land- inu um þessar mundir. GGE mun síð- an selja Magma 10,8 prósent af hlut sínum í HS Orku. Magma er líka talið hafa áhuga á að eignast hlut Orkuveitu Reykjavík- ur (OR) og Hafnarfjarðar í HS Orku, en þeir aðilar eiga samtals um 32 pró- senta hlut. Umsjón með sölu á þeim hlut hefur verið hjá íslenska ráðgjaf- arfyrirtækinu Arctica Finance. Bæði innlendir og erlendir aðilar hafa sýnt áhuga á að bjóða í hlutinn og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins stendur til að opna óbindandi tilboð í hann á mánudaginn kemur. Erlendu fjárfestarnir gætu síðan eignast enn stærri hlut í HS Orku, sem er fram- leiðslu- og söluhluti þess sem áður var Hitaveita Suðurnesja. Það myndi væntanlega gerast með hlutafjár- aukningu. Ef áætlunin gengur eftir verða orkuver, sölukerfi og þekking starfsmanna HS Orku vera að lang- mestu leyti í eigu einkaaðila. Kostar 13 milljarða króna Samkvæmt drögum að sam- komlagi sem kynnt voru á bæj- arráðsfundi Reykjanesbæjar á fimmtudag mun GGE kaupa hlut bæjarins í HS-Orku fyrir 13 milljarða króna. Stefnt er að því að klára málið á næstu vikum. Tæpir þrír milljarðar króna verða greiddir í reiðufé, sex milljarðar með skuldabréfi sem greiðist á sjö árum auk þess sem Reykjanesbær fær hlut GGE í HS Veitum, en hann er metin á rúma fjóra milljarða króna. GGE greiðir m.a. fyrir með söluandvirði 10,8 pró- sent hlutarins sem félagið ætlar að selja til erlendu fjárfestanna. Vegna yfirstandandi efnahags- þrenginga var ljóst að ekki væri hægt að nálgast fjármagn til viðlíka fjárfestinga innanlands. Því hefur GGE leitað markvisst að erlendum fjárfestum undanfarna mánuði. Morgunblaðið sagði til dæmis frá því í byrjun maí að erlendir fjárfestar hefðu áhuga á að kaupa hlut í GGE. Um er að ræða sömu fjárfesta og stefna að því að eignast hlut í HS Orku nú. Fulltrúar þeirra hafa komið hingað nokkrum sinnum til að kynna sér aðstæður á vegum Capacent Gla- cier-ráðgjafar, sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði orkumála. Fjallið Þorbjörn er undir Í samkomulaginu sem var kynnt á fimmtudag kemur einnig fram að Reykjanesbær muni kaupa auðlindir og landssvæði HS Orku á 840 millj- ónir króna. Á móti muni bærinn fá auðlindagjald sem gæti numið um 55 til 65 milljónum króna á ári. Því munu auðlindir sem áður tilheyrðu hitaveitunni áfram vera í opinberri eigu. Þegar sambærileg tillaga var lögð fram í stjórn HS Orku í desember sköpuðust hins vegar deilur um hana. Aðrir eigendur, sérstaklega sveit- arfélögin Grindavík og Vogar, gátu illa sætt sig við að Reykjanesbær eignaðist allt landssvæði hitaveit- unnar. Sérstaklega kom það illa við Grindvíkinga, enda liggur það lands- svæði alveg upp að bænum. Innan þess er meðal annars fjallið Þor- bjarnarfell, oftast nefnt Þorbjörn, sem er eitt frægasta kennileiti Grindavíkur. Heimildir Morg- unblaðsins herma að þessi mál hafi enn ekki verið leyst og að þar sé uppi pattstaða. Árni Sigfússon, bæj- arstjóri Reykjanesbæjar, segist þó opinn fyrir því að hin sveitarfélögin á Suðurnesjum komi að eignarhaldi á því landi sem um ræðir, sem sé fyrst og fremst löndin undir Svartsengis- og Reykjanesvirkjun. Hann segir það líka vera eftirsóknarvert ef sveit- arfélögin á svæðinu komi aftur að eignarhaldi í HS-veitum, en þau seldu þorrann af sínum hluta til GGE og Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á sínum tíma. Kanadamenn að kaupa í HS Orku Stærsti eigandi Geysis Green Energy (GGE) er Atorka, með 41 prósent eignarhlut, en Atorka er sem stendur í greiðslustöðvun. Heimildir Morgunblaðsins herma að samkvæmt endurskipulagning- aráætlun muni kröfuhafar þess eignast það félag að fullu. Stærstu kröfuhafarnir eru skilanefndir Glitnis og Landsbankans. Hinn að- aleigandi GGE er Glacier Renew- able Energy Fund (GREF), sjóður í umsjón Íslandsbanka. Bankinn á sjálfur 47 prósent hlut í GREF en Stoðir, sem áður hétu FL Group, eiga 37,5 prósent hlut. Stoðir luku nýverið við nauðasamninga við kröfuhafa sína sem fela í sér að þeir muni eignast félagið að fullu. Stærsti kröfuhafi þess félags er skilanefnd Glitnis. Landsbankinn á einnig hlut í GREF. Íslandsbanki á auk þess handveð í öllum eign- arhlut GGE í HS Veitum og HS Orku. Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvö félög 1. desember 2008. HS Veitur, sem sjá um orkudreif- ingu og HS Orku, sér um sölu og framleiðslu. Flókið eignarhald Geysis Green Energy  Geysir Green Energy ætlar að selja Magma Energy frá Kanada 10,8 prósent hlut í HS Orku  Magma líka með áhuga á 32 prósenta hlut OR og Hafnarfjarðar  Tilboð í þann hlut opnuð á mánudag AUKAKRÓNUR 92 golfboltará ári fyrirAukakrónur A-kortin Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig Þú getur keypt þér 92 Callaway golfbolta á ári hjá Hole in One fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is * M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is. * E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 4 2 0 N B I h f. (L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -2 0 8 0 .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.