Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÞAÐ hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni að alaskalúpínan hefur hægt og rólega verið að breiða úr sér í borg- arlandinu. Fjólubláar lúpínubreiðurnar gleðja marga en þær eru einnig mörg- um til ama. „Ég held að flestum þyki lúpínan fal- leg en það sem fólk hefur sett fyrir sig er að hún sé of útbreidd og á svæðum þar sem hún ætti ekki að vera,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar. Þórólfur segir að lúpínunni hafi verið plantað til landbóta fyrir mörgum árum á heiðunum fyrir ofan borgina. Þarna var gróðurþekjan léleg eftir uppblástur og nauðbeit búpenings. Aftur á móti fer lúpínan ekki inn á fullgróið land. Segja má að plantan malli áfram, að sögn Þór- ólfs. Hún hendir frá sér fræjunum, 1-2 metra, og síðan eru fræplönturnar 3-4 ár að verða blómstrandi og verða að fræberandi plöntum. Langoftast víkur lúpínan fyrir öðrum gróðri þegar hann hefur náð sér á strik. Þetta ferli getur tekið áratugi og að sögn Þórólfs eru menn farnir að sjá lúpínuna hörfa þar sem henni var fyrst sáð, t.d. í Heiðmörk. Þórólfur segir að lúpínan sé orðin svo útbreidd í borgarlandinu að það yrði gríðarlegt verkefni að hefta útbreiðslu hennar. Borgin hafi ekki bolmagn í slíkt verkefni. Áhrifaríkast væri að slá lúp- ínuna í jaðrinum og hefta þannig fram- rásina. Það hefur verið gert á nokkrum stöðum, t.d. í Laugarási, sem er nátt- úruvætti, og við Rauðhóla. Að rífa lúp- ínubreiðurnar upp með rótum væri al- gerlega óraunhæft verkefni, að sögn Þórólfs. Á sumum stöðum í borgarlandinu hef- ur lúpínan gerst ágeng við gróna garða, þótt hún fari ekki inn í þá. „Við höfum sagt fólki að það sé okkur að meinalausu þótt það slái lúpínuna,“ segir Þórólfur. Morgunblaðið/Heiddi Blómabreiður Alaskalúpín hefur breitt úr sér víða í borgarlandinu, bæði í byggð og á heiðum fyrir ofan borgina. Myndin er tekin í Árbæjarhverfinu. Lúpínan lifir góðu lífi  Lúpínan breiðir úr sér í borgarlandinu með hraða snigilsins  Óvinnandi verk að hefta útbreiðsluna  Er byrjuð að hörfa þar sem henni var fyrst sáð Á ÁRUNUM 2000 til 2005 lá við að nem- endafjöldi við Háskólann á Akureyri þre- faldaðist. Á sama tíma drógust hlut- fallslegar fjár- veitingar sam- an, en á árunum 2003 og 2004 voru þær þriðjungi lægri á hvern nemenda en árið 2000, að því er segir í tilkynn- ingu frá skólanum vegna úttektar Ríkisendurskoðunar á fjárhag rík- isstofnana. Þetta varð til þess að upp safn- aðist halli sem nemur rúmum 330 milljónum króna. Hagræðing árin 2005 og 2006 varð til þess að und- anfarin tvö ár var rekstur HA innan marka fjárlaga. Í fyrra greiddi skól- inn 200 milljónir af hinum uppsafn- aða rekstrarhalla. Þrátt fyrir fyrir- hugaðan niðurskurð er reiknað með að rekstur skólans muni skila af- gangi í ár. skulias@mbl.is HA skili rekstraraf- gangi í ár Hefur greitt niður 200 milljóna rekstrarhalla Nemendafjöldi HA þrefaldaðist KATRÍN Jakobs- dóttir mennta- málaráðherra hef- ur samþykkt framfærslulán Lánasjóðs ís- lenskra náms- manna, LÍN, sem hækka ekkert. Einhleypur námsmaður í leiguhúsnæði mun fá 100.600 krónur að meðaltali án tekjuskerðingar. Námsmaður í sam- búð með eitt barn á framfæri fær að meðaltali 125 þúsund krónur á mán- uði en einstætt foreldri með eitt barn á framfæri fær að meðaltali 145 þúsund krónur á mánuði án tekju- skerðingar. Námsmenn hafa lýst yf- ir óánægju með óbreytt fram- færslulán. Ráðherra hefur sagt tilfærslu milli sjóða til skoðunar. ingibjorg@mbl.is Óbreytt úthlutun samþykkt Katrín Jakobsdóttir Alaskalúpínan er 30 til 90 sentimetra há fjölær jurt af ertublómaætt. Hún ber blá eða fjólublá blóm. Hún hefur lengi verið notuð í landgræðslu á Íslandi en er upp- runalega frá Alaska. Alaskalúpína skilur eftir sig mjög næringarríkan jarðveg og getur stundum hörfað undan öðrum teg- undum, t.d. eftir 30 ár. Á 18. öld komu lúpínur fyrst til Evrópu og árið 1795 var hún fyrst notuð sem garðplanta í Englandi. Elstu heimildir um lúpínu á Íslandi eru frá 1885 þar sem hún var notuð við plöntutilraunir hjá Georg Schierbeck, landlækni í Reykjavík. Náði hún engri útbreiðslu í það skiptið. Þá eru til heimildir um ræktun hennar í garð- yrkjustöð í Reykjavík árið 1911 og sem fyrr náði hún ekki að skapa sér vinsældir. Árið 1945 safnaði Hákon Bjarnason, þáverandi skóg- ræktarstjóri, fræjum af alaskalúpinu við College-fjörð á vesturströnd Alaska og flutti til Íslands. Sá Hákon að þar væri komin tilvalin landgræðslutegund. Var hún prófuð á ólíkum svæðum og við ólík skilyrði áður en hún var tekin upp sem ein af aðaltegundum Landgræðslunnar. Heimildir um lúpínu á Íslandi 1885 ÞRÖSTUR Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Cosamajo, ráðgjafar- fyrirtækis í Hong Kong, gerir at- hugasemd við yfirlýsingu skilanefnd- ar Glitnis, sem nefndin sendi frá sér í gær. Morgunblaðið hefur undir höndum tölvupósta, útfærða valkosti, sem Cosomajo bendir bankanum á, að hægt sé að nota til þess að fá aukin verðmæti fyrir fasteignina Turn IV í One Central Residences í Macau. Tölvusamskiptin eru frá því í byrjun maímánaðar. Yfirlýsing Cosomajo er svohljóð- andi: „Í framhaldi af athugasemd skila- nefndar Glitnis þann 25. júní þar sem skilanefnd tekur fram að undirritað- ur, Cosamajo ráðgjafafyrirtækið og/ eða samstarfsaðilar mínir hafi ekki lagt fram erindi eða gögn til skila- nefndar varðandi One Central Resi- dences, vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Mikilvægt er að það komi fram að hvorki undirritaður, samstarfsmað- ur minn, Óli Anton Bieltvedt, né nokkur frá Cosamajo hafa sent er- indi eða gögn beint á skilanefnd Glitnis. Enda hafa engar yfirlýsingar í þá veru verið gefnar af okkar hálfu. Hafi frásögn mín í Morgunblaðinu þann 25. júní, valdið misskilningi þar um, harma ég það. Tillögur okkar frá Cosamajo voru sendar til þeirra starfsmanna Ís- landsbanka, sem okkur hafði verið tjáð að sæju fyrir bankans hönd um mál tengd fasteigninni One Central Residences i Macau. Ég er reiðubúinn að afhenda skila- nefnd Glitnis þær tillögur sem áður höfðu verið sendar til Íslandsbanka ef þess er óskað. Cosamajo hafði þær upplýsingar undir höndum að Turn IV í One Central Residences væri skráður undir hlutafélagið Dragensberg In- vestment Ltd sem er eignarhalds- félag skráð á British Virgin Islands (Jómfrúreyjum) en ekki hjá Fjár- festingarfélaginu SJ Fasteignir eins og skilanefnd nefnir í athugasemd sinni. Þær upplýsingar sem ég kom á framfæri í viðtali við Morgunblaðið varðandi núverandi markaðsverð á öðrum íbúðum í One Central Resi- dences eru réttar. Hægt er að fá það staðfest með því að skoða söluverð á öðrum íbúðum í One Central Resi- dences. Einnig vil ég nefna að mat Goldman Sachs á þessari eign er í kringum 4.500 til 5.000 HK$ fyrir ferfetið. Það mat kom fram á Dow Jones Newswire þann 23. júní sl. í framhaldi af fréttaflutningi varðandi kaupslitin á milli Sjóvár og Shun Tak Holdings og HK Land. Sökum þess að töluverður verð- munur virðist vera á þeim verðum sem eignin var endurseld á til Shun Tak og HK Landing og markaðs- verði, þótti mér eðlilegt að veita Morgunblaðinu viðtal um þetta mál. Ég vonast til þess að þær upplýsing- ar sem þar komu fram leiði til þess að auka megi gegnsæi á söluferli verð- mætra eigna ásamt því að bæta sölu- ferli þar sem það er hægt á öðrum verðmætum eignum í framtíðinni. Virðingarfyllst, Þröstur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Cosamajo“. Býðst til þess að afhenda skilanefnd Glitnis gögnin Framkvæmdastjóri Cosomajo segir að Turn IV í Macau hafi verið skráður í Dragensberg Investments á Jómfrúreyjum Turnarnir Macau var fyrsta og síðasta nýlenda Evrópumanna í Kína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.