Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 ✝ Ragnheiður MaríaRagnarsdóttir fæddist á Sauðárkróki 28. júní 1921. Hún lést á deild III á Heilbrigð- isstofnun Skagfirð- inga á Sauðárkróki, þriðjudaginn 16. júní sl. Foreldrar hennar voru Gísli Ragnar Magnússon, síðast bóndi á Bergsstöðum í Skagafirði, f. 30. maí 1896, d. 2. des. 1974 og Sigurlína Jóhanna Sigurðardóttir, f. 25. okt. 1902, d. 31. des. 1993. Systkini Maríu eru Magnús, f. 1922, d. 1923, Sigurður Magnús, f. 1931, d. 1984, Klara Elísabet (Edda), f. 1931, d. 1990, og Árný Sigurlína, f. 1933. Hinn 31. desember 1965 giftist María Ola Aadnegard, lögregluþjóni á Sauðárkróki, f. í Hallingdal í Nor- egi 5. júní 1910, d. á Sauðárkróki 4. feb. 1981. Foreldrar hans voru Ola Aadnegard, f. 8. jan. 1887, d. 3. feb. 1963 og Gurid Aadnegard, f. 4. mars 1881, d. 31. mars 1954, og bjuggu þau í Hallingdal í Noregi. Ola og María eignuðust 12 börn og eru af- komendur þeirra komnir vel á ann- að hundrað. Börn þeirra eru: 1) Ola, f. 1939, fyrri kona hans Ingibjörg Signý Frímannsdóttir, d. 1988. Þau eiga 3 börn, 8 barnabörn og 2 barna- barnabörn. Seinni kona Ola er Stína eru Martha Håheim, f. 1932, d. 1993 og Gurid Johanne Gilen, f. 1934. María ólst upp hjá foreldrum sín- um fram að fermingaraldri og lauk hefðbundnu barnaskólanámi. Eftir fermingu lá leið hennar að Reyni- stað í Skagafirði sem hún síðan leit á sem sitt annað heimili enda naut hún þar góðs atlætis þeirra heið- urshjóna, Sigrúnar Pálmadóttur og Jóns Sigurðssonar. Árið 1937 kom Ola sem refahirðir að Reynistað og felldu þau María hugi saman. Þau hófu sambúð sína á Reynistað 1938 og fluttu síðan út á Sauðárkrók 1941. Tveimur árum síðar festu þau kaup á íbúð að Skógargötu 3 á Sauð- árkróki. Árið 1951 flutti fjölskyldan að Skógargötu 1 í stærra húsnæði og bjuggu þau þar allan sinn búskap. Um 1960 fór María að vinna utan heimilis og var úti á vinnumark- aðnum þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Jafnhliða sinnti María sínu stóra heimili sem jafnan var mannmargt og gestkvæmt. María var ein af stofnendum Sjálfstæð- iskvennafélags Sauðárkróks og einnig var hún virk í Verkakvenna- félaginu Öldunni. Hin seinni ár starfaði hún í Félagi eldri borgara og fór í margar skemmtiferðir með þeim sem og orlofsferðir húsmæðra. María hafði mjög gaman af hann- yrðum og liggja ófáir hlutir eftir hana. Árið 2001 veiktist María og dvaldi eftir það á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga á Sauðárkróki. Útför Maríu fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 27. júní, og hefst athöfnin kl. 11. Gísladóttir. 2) Magnús Ragnar, f. 1942, kvæntur Kristínu Ínu Pálsdóttur, þau eiga 2 börn, 4 barnabörn og 2 barnabarnabörn. 3) Sigrún, f. 1944, gift Andrési Viðari Ágústssyni, þau eiga 7 börn, 12 barnabörn og 2 barnabarnabörn. 4) Kristinn, f. 1948, kvæntur Ásu Björk Snorradóttur, þau eiga 2 börn og 4 barnabörn. 5) Sig- urður, f. 1949, kvæntur Sigríði Pét- ursdóttur, þau eiga 4 börn og 5 barnabörn. 6) Knútur, f. 1951, kvæntur Brynju Kristjánsdóttur, þau eiga 4 börn og 11 barnabörn. 7) Jóhann, f. 1952, kvæntur Evu Sveinsdóttur, þau eiga 3 börn og 1 barnabarn. 8) Baldur, f. 1954, kvæntur Sigríði Jónsdóttur, þau eiga 3 syni og 3 barnabörn. 9) Guð- ríður, f. 1955, gift Magnúsi J. Hin- rikssyni, þau eiga 3 börn og 3 barna- börn. 10) Ingibjörg, f. 1956, gift Trausta Kristjánssyni, þau eiga 4 syni og 3 barnabörn. 11) Stefán, f. 1958, kvæntur Ingibjörgu Ólafs- dóttur, þau eiga 2 börn og 2 barna- börn. 12) Hilmar Haukur, f. 1961, kvæntur Hallfríði Guðleifsdóttur, þau eiga 2 dætur. Dætur Ola af fyrra hjónabandi Elsku Mæja er dáin en hún var tengdamóðir mín. Ég var ung þegar ég byrjaði að venja komur mína til þeirra Mæju og Óla á Skógargötuna. Mæja var mikið fyrir að baka og bak- aði margar góðar kökur sem hún vildi að ég og fleiri sem komum til hennar smökkuðum á. Einnig kenndi hún mér að baka alls konar kökur og gera fleira góðgæti. Svo var það eitt haustið að Stebbi ákveður að fara tvö ár til Reykjavík- ur í skóla. Þá spurði hún mig hvort við kæmum örugglega ekki aftur norður og var það alltaf meiningin að flytja aftur norður. En svo liðu árin og við erum ekki enn flutt norður. En Mæja fagnaði ævinlega komu okkar innilega, hún breiddi út faðminn á móti okkur af þeirri einstöku hlýju og umhyggju sem henni var svo sjálf- sögð og eðlislæg. Á Skógargötu 1 var alltaf laugar- dagskaffi fyrir börn og barnabörn en þegar Mæja var orðin ein, Óli dáinn og börnin flutt að heiman var laug- ardagskaffið orðið að því sem við köllum „brunch“ í dag, hún var með stórveislur á hverjum laugardegi fyr- ir börn, barnabörn og vini. En þá hafði hún steikt brauð með alls konar meðlæti sem þótti herramanns-mat- ur, kökur o.fl. Og var hún aldrei ánægð nema sem flestir gætu komið og oft hringdi hún og spurði okkur hvort við kæmum ekki norður að fá okkur steikt brauð því hún væri búin að steikja svo mikið brauð. Mæja var líka mikil hannyrðakona þar sem hún saumaði út myndir, púða og ég tala nú ekki um peysur og sokka sem hún prjónaði og gaf mér og fjölskyldu minni. Elsku Mæja mín, þakka þér fyrir allar stundirnar sem við vorum sam- an á kvöldin þar sem þú sagðir mér frá lífi þínu, hvernig lífsbaráttan hafði verið hjá ykkur Óla. Og verð ég að segja að mér finnst Krókurinn vera hálf tómlegur án þín. Far þú í guðs friði. Kveðja Ingibjörg Ólafsdóttir. Orðið „mamma“ er eitt merkingar- fyllsta orð tungumálsins og mikið notað. Flestar konur eru mömmur og auk þess tengdamömmur, dýrmætar og áhrifamiklar. María Ragnarsdótt- ir var þeim flestum fremri. Hún fékk ekki fálkaorðu, en hefði sannarlega átt hana skilið! Hún var ekki hátekju- kona í samfélaginu, en þó svo rík. Hún var 12 barna mamma og 13 barna tengdamamma. Svo var hún að auki amma, langamma og langa- langamma. Hún var ekki útskrifuð úr húsmæðraskóla, en samt frábær mat- reiðslukona og bakari og saumaði og prjónaði á barnahópinn sinn. Hún var ekki lærð í uppeldis- og sálarfræði, en hafði þó einstakt lag á að koma börn- um sínum til manns, aga þau, styðja og leiðbeina með kærleika, glettni og skilningi. María Ragnarsdóttir var einstök mamma, vinur og sálufélagi stóra hópsins síns. Ég hitti Maríu fyrst í júní 1988, þegar elsta tengdadóttir hennar var látin. Sjálf var hún orðin ekkja 7 ár- um áður og vissi því af reynslunni að maka- og foreldramissir er erfiður. Hún kom til að vera hjá syni sínum og börnum hans og barnabörnum til að hlúa að þeim með nærveru og heim- ilishjálp! Allt varð svo miklu auðveld- ara þegar mamma og amma var kom- in. Í framhaldi af þessum kynnum okkar Maríu varð það síðan hlutskipti mitt og lán að verða 13. tengdabarn hennar. Þrátt fyrir langa og fjöl- breytta skólagöngu mína, átti ég eftir að læra margt af tengdamömmu. Hún hafði meðfædda hæfileika á flestum sviðum og einnig þá mikil- vægu náðargjöf að hlúa mátulega mikið að sínum og blanda sér mátu- lega mikið í einkamálin. Með þessari lægni var hún alltaf sá trúnaðarvinur sem við þurftum á að halda. Hún var sterk, bæði andlega og líkamlega. Eftir að hafa alið 12 börn og harkað af sér í erfiðum sjúkdómum, átti hún enn orku til að gerast fiskverkakona og halda áfram að taka á móti stóra, sístækkandi hópnum sínum í mat og kaffi, gistingu og vináttusamfélag. Árum saman var opið hús hjá henni á laugardagsmorgnum þar sem hún bauð upp á nýsteikt brauð sitt og alls konar meðlæti. Skyndilega bilaði heilsan fyrir átta og hálfu ári, svo dauðinn kom sem líkn og lausn eftir langan biðtíma. Starfsfólkið á Sjúkrahúsinu á Sauð- árkróki á skilið virðingu og þakklæti fyrir mikla umhyggju og þolinmæði í störfum sínum. Lífið er fjölbreytt og litskrúðugt af því að við erum ólíkir einstaklingar. Í samfylgd okkar erum við sífellt að gefa og þiggja. María kunni svo vel þetta mikilvæga samspil. Greind hennar og hæfileikar komu fram í lát- lausu og hógværu lífi, eins og það birtist dýrmætast. Oft hafa einstak- lingarnir í lífi mínu minnt mig á blóm- vendi. Atburðir, hæfileikar, lífskraft- ur, störf, framkoma, orð… allt raðast saman í mislitan blómvönd einstak- lingsins. Og innan um alla fögru blómvendina sker vöndur Maríu sig úr! Minning hennar mun lifa með okkur og gera okkur að betri og þakklátari mönnum. Guð geymi Maríu og styrki og gleðji allan hópinn hennar. Stína Gísladóttir. Elsku amma, þá er komið að kveðjustund. Minningarnar eru svo margar og svo dýrmætar. Við getum talað um alla laugardagana sem stór- fjölskyldan hittist, þá var alltaf mikið spjallað á meðan við borðuðum hið fræga ömmubrauð. Ég man hvað Tinna Rut ljómaði alltaf þegar við komum keyrandi að Skógargötu 1, þá vissi hún að amma tæki fagnandi á móti henni og svo fengi hún eitthvað gott að borða. Þannig eru minning- arnar, alltaf var svo gott að koma til ömmu og afa. Þetta upplifði ég sem barn og svo fengu börnin mín að kynnast því síðar. Ef einhvern vantaði sokka þá var bara að fá að kíkja í skúffuna hjá ömmu og ef svo ólíklega vildi til að réttu stærðina vantaði þá var hún tilbúin daginn eftir. Ég man þegar ég bað þig að kenna mér að prjóna sokka. Ég mætti til þín með garn og prjóna eitt kvöldið, fitjaði upp og prjónaði snúninginn. Það var svo ákveðið að ég kæmi aftur næsta kvöld og þá átti ég að læra að prjóna hæl- inn. Ég mætti næsta kvöld en þá voru sokkarnir tilbúnir. Þú kenndir mér svo margt. Oft hugsa ég til þín þegar ég er eitthvað að gera í eldhúsinu eða í handavinnu: hvað ætli ömmu Mæju finnist um þetta? Elsku amma, þakka þér fyrir allt. Það eru forréttindi að fá að kynnast konu eins og þér. Kristrún, Sigurbjörn, Tinna Rut, Alex Már og Bogi. Í lífinu ferðast þær saman gleðin og sorgin. Þegar náinn ástvinur deyr fyllist hugurinn af gleðilegum minn- ingum sem valda manni sorg, en á endanum verður gleðin aftur sterkari en sorgin. Ég er svo lánsöm að vera eitt af barnabörnum hennar Maríu Ragn- arsdóttur eða ömmu Mæju eins og við köllum hana. Amma Mæja eignaðist pabba minn og ellefu önnur börn, hún var kona með stórt hjarta, mjúkan og hlýjan faðm, hjá henni átti maður allt- af öruggt skjól. Einnig áttu margir skjól hjá henni sem minna máttu sín í samfélaginu. Amma Mæja var mikil handa- vinnukona sem saumaði, heklaði og prjónaði. Einnig bakaði hún góðar kökur og steikti brauð sem var mjög gott. Og ef hún var ekki að sinna handavinnu eða heimilisstörfum sat hún stundum við eldhúsborðið, lagði kapal og drakk kaffi úr glasi. Amma vann í fiskinum í mörg ár og ferðaðist með fiskirútunni í og úr vinnu. Þegar ég var lítil og var gestkomandi hjá þeim ömmu og afa beið ég oft við eld- húsgluggann og fylgdist með þegar fiskirútan stoppaði á Aðalgötunni, þá hentist ég af stað til að fara á móti ömmu og rölta með henni heim. Það var eitthvað svo sérstakt við það að rölta með ömmu og ekki breyttist sú tilfinning þótt ég yrði eldri. Eftir að amma veiktist og flutti á dvalardeild- ina rölti ég með henni um gangana þegar ég kom að heimsækja hana þangað, en þær gönguferðir voru að vísu öðruvísi en samt sérstakar á sinn hátt. Amma var með hænur í kofa í Klaufinni og það var alltaf svo spenn- andi að fá að fara með henni í hænsnakofann, sækja eggin og gefa hænunum matarafganga og fleira fóður. Amma var natin við hænurnar og heilsaði þeim þegar við komum og kvaddi þær þegar við fórum. Fyrir mér var amma einstök kona sem var alltaf til staðar og tilbúin að hlusta og gefa ráð. Eftir að mamma dó leitaði ég mikið til ömmu með alla hluti, eins hringdi hún oft í mig bara til að at- huga hvernig ég hefði það og heyra í mér hljóðið eins og hún orðaði það. Amma Mæja var hreinskilin og sagði sína meiningu, hún hafði breitt bros og glotti stundum út í annað og hló þegar mikið var skrafað við eldhús- borðið. Minningin um Ömmu Mæju verður ljós í lífi okkar sem þekktum hana. Ingibjörg María Aadnegard. María Ragnarsdóttir frá ömmubörnum Er leiðir skilja og lýkur göngu þinni á lífsins vegi, hugsum við um þig þá minningarnar elsku amma Maja munum við og geymum hvert um sig. Það er svo margt sem upp kemur í hugann af ömmubrauði og kökum vel var veitt og það sem mátti ei annarsstaðar gera var alltaf leyft að Skógargötu 1. Nú dvelur þú í Drottins faðmi hlýjum og dagsverkinu lokið er um sinn við þökkum fyrir ævi þína amma og englar himins lýsi veginn þinn. (Gurra.) HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR H. INDRIÐASON, áður Snorrabraut 40, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þriðjudaginn 9. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA LÁRUSDÓTTIR húsfreyja og hannyrðakona á Hlíðarenda við Akureyri, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt fimmtudagsins 25. júní. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 2. júlí kl. 13.30. Baldur Halldórsson, Ingvar Baldursson, Jónína Valdimarsdóttir, Ólafur Lárus Baldursson, Jóhanna Lára Árnadóttir, Baldur Örn Baldursson, María Arnfinnsdóttir, Halldór Guðmundur Baldursson, Anna Katrín Þórsdóttir, Sigurður Hólmgeir Baldursson, Hildur Magnúsdóttir, Ingunn Kristín Baldursdóttir, Helgi Pálsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir.                          ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR BERGMANN PÁLSSON byggingameistari, Hábæ 36, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 21. júní, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 29. júní kl. 13.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Valborg Sigurbergsdóttir, Páll Bergmann Reynisson, Guðrún Eiðsdóttir, Grétar Reynisson, Lilja Ruth Michelsen, Sóley Reynisdóttir, Sigurður Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.