Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur svanbjorg@mbl.is ÞAÐ hefur verið mikil vinna og verð- ur áfram,“ segir Gunnar Aðalbjörns- son, fjármálastjóri fiskvinnslu Sam- herja á Dalvík. „Við höfum aukið mikið landvinnsluna því hún er að gefa meira af sér. Sérstaklega höfum við aukið vinnsluna á ferskum fiski sem við snyrtum og pökkum með hraði og sendum út með flugi.“ Gunnar segir vel hafa gengið að ráða fólk til starfa undanfarið, enda skólarnir búnir. Honum sé hins veg- ar kunnugt um að aðrar fiskvinnslu- stöðvar á Dalvík hafi ekki náð að full- manna þrátt fyrir að hafa auglýst talsvert eftir fólki. Styttri sumarlokun Gunnar segir lítið um að fólk bú- sett annars staðar á landinu hafi sótt um störf. Hins vegar sé alltaf tölu- vert um að útlendingar sæki í störfin. Aðspurður hvort aðstaða sé til að taka á móti utanbæjarfólki sem hefði áhuga á að ráða sig tímabundið til starfa segir hann að gistiheimili með fimmtán herbergjum sem þeir hafi til umráða vera fullt. Það hafi ekki verið nein ástæða til að útvega stærra húsnæði þar sem ásókn utan- bæjarfólks hafi ekki verið slík. Gunn- ar segir að þrátt fyrir gott fiskirí verði frystihúsinu lokað í þrjár vikur í sumar í kringum verslunarmanna- helgi og Fiskidaginn. „Það er hrein- lega okkar reynsla að það er svo mik- ið um að vera á þessum tíma að það er betra að loka. Við ákváðum hve- nær og hve lengi skyldi loka í apríl sl. þannig að það kemur ekki neinum á óvart. Þetta er stutt lokun, í fyrra lokuðum við frystihúsinu í sex vikur." Tekist að fullmanna Þór Vilhjálmsson, starfsmanna- stjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum, segir nóg að gera í Vestmannaeyjum og að búið sé að fullmanna fiskvinnsluna. „Þetta breytist þegar skólakrakkarnir koma til vinnu. Við réðum inn eina fjörutíu krakka.“ Þetta er jákvæð þróun því að í vetur gekk illa að manna þrátt fyrir að talsvert hafi verið auglýst eftir fólki. „Við bjugg- umst svo sem ekki við rífandi við- brögðum en áttum þó von á að ein- hverjir sæktu um en sú varð ekki raunin.“ Hann segir landvinnsluna í Eyjum alltaf hafa verið kröftuga og að þaðan séu engir frystitogarar gerðir út. „Við erum að vinna bolfisk í salt, frystingu og ferskfisk. Svo stendur humarvertíðin sem hæst núna. Þannig að hér er allt í blúss- andi gangi.“ Kröftug landvinnsla Morgunblaðið/RAX Landvinnsla Næg vinna hefur verið við fiskvinnslu á Dalvík og í Vest- mannaeyjum, raunar svo mikil að um tíma vantaði starfsfólk  Gengið vel að manna störfin eftir að skólarnir kláruðust  Aukin landvinnsla þar sem betra verð fæst fyrir hana Traustur valkostur í húsnæðismálum Kanaríflakkarar 2009 Síðasta Kanaríhátíð í Árnesi Gnúpverjahreppi, 3.-5. júlí Harmonikkuball föstudagskvöld, húllumhæ. Hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar, Siggi Hannesar. Söngvari: Þorvaldur Skaptason. Laugardagur: Skoðunarferð um Þjórsárdal kl. 12.00 með leiðsögumanni. Hátíðarhlaðborð að hætti Begga kl. 19.00. Hinn frábæri Árni Johnsen skemmtir matargestum. Leynigestur – Lukkumiðar – Glæsilegir vinningar. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar kl. 23.00. Bókun í síma 861 2645, 894 6167 og 898 5256. Mætum öll í síðustu Kanaríhátíð í Árnesi. Kanaríflakkarar Kvartbuxur frá Str. 36-56 • Margar gerðir Bæjarlind 6 sími 554 7030 Opið í dag 10-16 Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið í dag 10-14 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Kjóladagar 15% afsláttur af öllum kjólum Seljum og merkjum fatnað, húfur og töskur. Vel merkt vara er góð auglýsing Bróderingar og silkiprentun www.batik.is • sími: 557 2200 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is RÍKISENDURSKOÐUN telur ýms- ar hugmyndir um úttekt á framlögum til stjórnmálasamtaka og frambjóð- enda á vegum þeirra sjö ár aftur í tím- ann vafasamar. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Ríkisendurskoðun til Ágústs Geirs Ágústssonar, formanns nefndar for- sætisráðuneytisins um endurskoðun á lögum um fjármál stjórnmálaflokk- anna. Komið til móts við sjónarmiðin „Það er ekkert í minnisblaði Rík- isendurskoðunar sem bendir til þess að ókleift sé að ráðast í úttekt á fjár- málum stjórnmálaflokkanna aftur í tímann. Hins vegar á nefndin enn eft- ir að taka endanlega afstöðu til þeirra atriða sem fram komu á minnis- blaðinu og verður reynt eftir fremsta megni að koma til móts við þau sjón- armið sem þar koma fram,“ segir Ágúst. Ekki í útgjaldaáætlunum Í minnisblaði Ríkisendurskoðunar til Ágústs segir að hugmyndirnar feli í sér verkefni sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í útgjaldaáætlunum hennar. Bent er á að það sé margvíslegum örðugleikum háð að safna áreiðanleg- um og samanburðarhæfum upplýs- ingum um fjárreiður frambjóðenda sjö ár aftur í tímann. „Frambjóðend- ur voru hvorki bókhaldsskyldir né bar þeim að gera sérstaka grein eða skila yfirvöldum eða öðrum uppgjörum um fjárreiður sínar í tengslum við per- sónukjör á því tímabili sem til skoð- unar er,“ segir meðal annars á minn- isblaðinu. Jafnframt að vafasamt sé að þeir hafi gert skilmerkilega grein fyrir óbeinum framlögum eða varð- veitt gögn og upplýsingar um slík framlög með skipulegum hætti. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir alveg ljóst að verði stofnun hans falin úttektin þurfi að breyta lögun- um. „Á grundvelli laganna frá 2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þeirra getum við ekki farið aftur fyrir árið 2007. En verði lögum breytt í framhaldi af tillögum nefndarinnar verðum við að hlíta þeim. En það er ekki nóg að hafa fög- ur fyrirheit í lögum. Fjárframlaga til verkefnanna er þörf,“ segir Sveinn. Hugmynd um úttekt aftur í tímann vafasöm Ríkisendurskoðun telur flókið að skoða fjármál flokkanna Úttekt Ríkisendurskoðun telur erfitt að skoða fjármálin langt aftur í tímann. Í HNOTSKURN »Nefnd á vegum forsæt-isráðuneytisins endur- skoðar lög um fjármál stjórn- málaflokkanna. »Á hún að leiða til lyktahugmyndir forsætisráð- herra um úttekt á fjárreiðum flokka sem áttu fulltrúa á Al- þingi 1999 til 2006. »Ríkisendurskoðun segir,að breyta þurfi lögum til að unnt sé að fara aftur fyrir árið 2007. Morgunblaðið/Ómar ATHYGLI hefur vakið að sam- kvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins hafa meðaltekjur kvenna fyrstu fjóra mánuði ársins hækkað um 8,2% milli ára meðan meðaltekjur karla lækkuðu um 6,2%. Byggt er á tölum í staðgreiðsluskrám. Kristín Sigurðardóttir, for- stöðumaður samskipta- og þróun- arsviðs VR, segir hugsanlegt að kon- ur hafi notið umsaminnar hækkunar frekar en karlar þar sem þær séu frekar á töxtum. „Þó held ég að skýringin sé sú að konur hafi aukið atvinnuþátttökuna,“ segir Kristín. „Fyrirtæki hafa brugðist við ástand- inu með því að lækka hæstu launin og draga úr aukagreiðslum, sem kemur strax niður á körlum. Það er skýringin á að þeir lækka.“ ylfa@mbl.is Konur hækka en karlar lækka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.