Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 Eftir Andra Karl andri@mbl.is TIL ÁLITA koma ýmsar breytingar á virðisaukaskatti frá því sem nú er, samkvæmt nýrri skýrslu sem Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra lagði fyrir Alþingi í gær. Lík- legt er að dregið verði úr mun á lægra og efra þrepi virðisaukaskatts með því að hækka lægra þrepið. Þá segir að unnt sé að hækka áfengis- gjald og tóbaksgjald um 30-40% á næstu árum. Einnig kemur til álita að hækka bensíngjald frekar. Erfitt er að átta sig á beinum áhrifum af þeim aðgerðum sem kynntar eru í skýrslu fjármálaráð- herra enda ekki um eiginlegar ákvarðanir að ræða og tölur á reiki, að sögn Gunnars Egils Egilssonar, lögfræðings á skatta- og lögfræði- sviði Deloitte. Hann segir þó ljóst að hækkanir á virðisaukaskatti og öðr- um neyslusköttum skili sér í hækk- andi vöruverði og þar með hækkandi vísitölu. Það leiði aftur til að lán hækka. Aðhaldsþörfin 179 ma. kr. Í skýrslunni segir m.a.: „Hvort sem er frá skattafræðilegu eða fram- kvæmdalegu sjónarmiði er æskilegt að draga úr mismun á skatt- hlutföllum.“ Í kjölfarið er bent á að helstu annmarkar við hækkun á lægra skattþrepi séu að hún kynni að leiða til verðhækkana á matvörum sem leggjast myndu þungt á tekju- lága. Hins vegar sé álitamál hvort lækkun á lægra þrepinu hafi skilað sér í vöruverði eða ekki. Hækkun á lægra skatthlufallinu úr 7% í 12% „eins og algengt er hjá þjóðum sem hafa tvö skattþrep“ gæti leitt til um sjö milljarða tekju- hækkunar fyri ríkið. Einnig er tekið fram að hækkun upp í 14% myndi gefa af sér um tíu milljarða hækkun tekna. Þá segir að hækkun á almenna hlutfallinu 24,5% um 0,5% gæfi um tvo milljarða aukalega. Ókostirnir séu verðlagsáhrif „en þau eru þó óviss við þær aðstæður sem nú eru.“ Áætlunin sem byggt er á í skýrsl- unni miðar að því að stöðva skulda- söfnun ríkissjóðs og að afgangur verði á rekstri hans á árinu 2013. Auðséð er á þeim tillögum sem þar eru birtar, að það verður íslensku þjóðinni stór biti að kyngja. Til að ná niðurstöðunni þarf að grípa til hækkunar á tekjum og lækkunar ríkisútgjalda. Aðhalds- þörfin nemur 179 milljörðum króna á tímabilinu til 2013. Hækkun tekjuskatts um áramót Stefnt er að því að endurskoðun á tekjuskattskerfi einstaklinga – eða áfangi hennar – öðlist gildi um næstu áramót. Í skýrslunni segir að unnt sé að auka skattlagningu tekna ein- staklinga um rúmlega 2% af vergri landsframleiðslu án þess að fara yfir þau mörk sem áður hafa þekkst og verið talin viðunandi. Tekjur af slíkri hækkun gætu gefið á milli 30-35 milljarða í tekjur. Með því að draga úr misræmi vegna fjármagnstekna og einkahlutafélaga – og fella niður frádráttarliði – gætu allt að fimm milljarðar til viðbótar skapast. Einnig eru viðraðar hugmyndir um skattheimtu á hagnaði og arði. Segir að Ísland skattleggi hagnað af atvinnurekstri miklu vægar en sam- bærileg lönd og að til athugunar sé að hækka skatthlutfallið í átt að því sem gerist í flestum Evrópulöndum. Þá mætti auka tekjur ríkisins af stóriðju og annarri starfsemi er- lendra aðila hér á landi verulega með því að hækka skatthlutfall afdrátt- arskatta til samræmis. Allt á að hækka  Athugað að hækka lægra stig virðisaukaskatts í 12-14%  Unnt að hækka áfengisgjald um 30-40% á næstu árum                       JÓN Ísberg, fyrrver- andi sýslumaður Hún- vetninga og heiðurs- borgari Blönduóss, lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri s.l. mið- vikudag, 85 ára að aldri. Jón Ísberg var fæddur á Möðrufelli í Eyjafirði 24. apríl 1924, sonur Árnínu Hólm- fríðar Ísberg hús- móður og Guðbrands Ísberg sýslumanns. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1946 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1950. Hann varð fulltrúi sýslumanns Húnavatnssýslu á Blönduósi 1951 og var sýslumaður Húnvetninga ár- in 1960 til 1994. Jón Ísberg gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum um ævina fyrir Húnvetninga og íbúa Blönduóss. Hann sat í hreppsnefnd Blönduóss- hrepps í áratugi og var oddviti í 9 ár. Þá sat hann í bygginganefndum vegna heilbrigðisstofnana, félags- heimilis, skóla og bók- hlöðu, svo fátt eitt sé nefnt. Á námsárunum sat hann í stjórn Vöku og var formaður Órat- ors og síðar varð hann formaður Sýslumanna- félags Íslands. Í heimabyggð sinni var hann m.a. formað- ur Skógræktarfélags A-Húnvetninga, Lionsklúbbs Blöndu- óss og Veiðifélags Laxár á Ásum og var skátaforingi og safn- aðarfulltrúi. Þá sat hann í stjórnum fjölmargra fyr- irtækja. Hann var í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og settist á Al- þingi sem varamaður árið 1967. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Þórhildur Guðjónsdóttir fyrrverandi héraðsskjalavörður. Þau eignuðust sex börn: Arngrím héraðsdómara, Eggert Þór framkvæmdastjóra, Guðbrand Magnús, prentara, Guð- jón hagfræðing, Jón Ólaf sagnfræð- ing og Nínu Ósk mannfræðing. Andlát Jón Ísberg sýslumaður Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is STJÓRNARLIÐAR kölluðu eftir samstöðu og ábyrgð stjórnarand- stöðuflokka og þá sér í lagi Sjálf- stæðisflokksins í umræðu um ný- gerðan stöðugleikasáttmála á Alþingi í gær. Þingmenn Sjálfstæð- isflokksins sögðu aðila vinnumarkað- arins hafa sýnt ríkisstjórninni ótrú- legt langlundargeð. Guðbjartur Hannesson, þingmað- ur Samfylkingar, kallaði eftir stuðn- ingi Sjálfstæðisflokksins við stöðug- leikasáttmálann. Ekki væri síður þörf á samstöðu inni á Alþingi en á vinnumarkaðinum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að aðilar vinnumarkaðarins hefðu sýnt ríkis- stjórninni ótrúlegt langlundargeð. Öll stóru málin væru enn óuppgerð. T.a.m. hefði verið kallað eftir lækkun stýrivaxta allt árið. Stöðugleikinn snerist hins vegar um hækkun skatta og að krónan héldist áfram veik. Guðbjartur sagði afstöðu Sjálf- stæðismanna „aumingjalega“ og minnti á að þeir hefðu setið við stjórnartaumana meðan á góðærinu stóð. Hann gagnrýndi það „þegar menn nota öll úrræðin sem við áttum að nota í góðærinu og bjuggu til þensluna, bjuggu til froðuna, bjuggu til allt það sem við erum að glíma við að leiðrétta núna og ætla svo að fría sig ábyrgð þegar þarf að fara að taka á þessu í framhaldinu.“ Bjarni sagðist í svari myndu áskilja sér allan rétt til að hafa sína skoðun á áætlun ríkisstjórnarinnar. „Ég er þeirrar skoðunar að þær miklu skattahækkanir sem nú er verið að boða geti orðið til þess að at- vinnuleysi aukist,“ sagði hann og að aukið tryggingagjald drægi úr getu fyrirtækjanna til að skapa ný störf. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, tók undir þetta og sagði að skattaleiðin myndi ekki leysa þann vanda sem uppi væri. „Menn skatta sig ekki út úr kreppu.“ „Einkabisness“ á sjúkraganginum Þá tók Ragnheiður Elín Árnadótt- ir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, upp málefni heilsutengdrar ferðaþjón- ustu á Suðurnesjum þar sem óskað er eftir að nýta skurðstofur Suður- nesja í þeim tilgangi á þeim tíma þar sem þær standa ónotaðar. Hún gagn- rýndi seinagang Ögmundar Jónas- sonar heilbrigðisráðherra í málinu og lagði áherslu á að á málinu lægi, ekki síst þar sem brýn þörf væri fyrir ný störf á Suðurnesjum, þar sem 1800 manns væru atvinnulausir. Ögmundur sagði að á fundi með Hollvinasamtökum heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja hafi þau varað við því að hleypa „einkabisness“ inn á sjúkraganginn á spítalanum. Hann hafi hins vegar ekki viljað loka nein- um dyrum heldur taka ákvörðun út frá almannahagsmunum. Deilt um ábyrgð og samstöðu inni á Alþingi Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is HALLAREKSTUR ríkissjóðs nem- ur 500 milljónum á hverjum einasta degi vikunnar, sagði Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skatta- nefndar, á Alþingi í gær. Þetta þýddi að á hverju ári þyrfti hvert heimili í landinu að leggja til nálega tvær milljónir til að loka þessu gati. Helgi mælti fyrir meirihlutaáliti efnahags- og skattanefndar á frum- varpi ríkisstjórnarinnar um ráð- stafanir í ríkisfjármálum og sagði að með hinum mikla hallarekstri væru álögur lagðar á kynslóðir framtíðarinnar. Því yrði ekki undan því vikist að bregðast við með að- gerðum sem margar yrðu þung- bærar. Hann bætti því við að hallinn næmi tæpum 200 milljörðum króna árlega. „Heildarútgjöld til rekstrar allra stofnana ríkisins: mennta-, heilbrigðis-, utanríkisþjónustu, fé- lagskerfis og hvað það nú er eru rétt rúmlega 200 milljarðar. Það er eiginlega bara allur ríkisreksturinn sem hér er undir.“ Aðeins 8% með sparnaði hins opinbera Tryggvi Þór Herbertsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, mælti fyr- ir nefndaráliti minnihluta og benti á að aðgerðum nú væri m.a. ætlað að taka á yfir 20 milljarða króna yfirkeyrslu á fjárlögum sem sam- þykkt voru með 153 milljarða króna halla. Ekki væri þá talinn með um 20 milljarða kostnaður vegna verðbóta í tengslum við upp- gjör bankabréfanna svonefndu. Vandinn næmi því samtals 193 milljörðum. Bein áhrif frumvarpsins væru að afkoma ríkissjóðs batnaði um rúm- lega 23 milljarða á þessu ári, þar af næmu skattahækkanir 13,7 millj- örðum og sparnaður um 9,4 millj- örðum. Tryggvi sundurliðaði þetta enn frekar og benti á að 6,2 milljarðar af skattahækkununum myndu lenda á heimilum og 7 milljarðar á atvinnulífinu auk þess sem hertu skattaeftirliti væri ætlað að skila um 500 milljónum króna. Hvað sparnaðarhliðina varðaði væri áætl- að að spara 1,8 milljarða með að- haldi í stjórnsýslu, 3,1 milljarð með tilfærslum, s.s. í sjúkratryggingum, fæðingarorlofi og elli- og örorkulíf- eyri, og 4,4 milljarða í framkvæmd- um. Þannig kæmu aðeins tæp 8% betri afkomu á þessu ári frá sparn- aði í opinberum rekstri. „Það er öll ábyrgðin,“ sagði hann. Hallinn 500 milljónir á dag  Gatið á við allan rekstur ríkissjóðs  Hvert heimili leggi til 2 milljónir á ári Í HNOTSKURN »8% tímabundinn viðbót-arskattur verður lagður á tekjur einstaklings yfir 700 þúsund. »5% tímabundinn viðbót-arskattur verður lagður á fjármagnstekjur umfram 250 þúsund krónur. »Svokallaður „sykur-skattur“, 24,5% í stað 7%, verður lagður á ákveðnar neysluvörur. »Skv. frumvarpinu verðurtryggingagjald hækkað í 2,21% og gjald í ábyrgðarsjóð launa hækkar í 0,2% Morgunblaðið/Ómar Alþingi Það verður ærið verk fyrir þingheim að loka fjárlagagatinu. Ætla má að ekki náist mikill árang- ur við að lækka rekstrarútgjöld rík- isstofnana án þess að félagsleg þjónusta, svo sem í trygginga- málum og heilbrigðismálum, skerðist umtalsvert, dregið verði úr menntunarframboði og starfs- fólki á vegum ríkisins fækki. Ráðuneytum og stofnunum þeirra verður að mestu falið að framfylgja áformum um samdrátt í rekstrargjöldum, en til að auð- velda framkvæmdina hefur rík- isstjórnin sent ráðuneytum og stofnunum tilmæli undir heitinu: „Leiðarljós aðhaldsaðgerða.“ Meðal tilmæla eru að ráða ekki í störf sem losna eða stofna til nýrra starfa nema brýna nauðsyn beri til. Utanaðkomandi ráðgjafa á ekki að ráða í verkefni hjá ráðuneytum eða stofnunum. Endurmeta á öll verkefni og starfsemi stofnana með hliðsjón af því hvort jafn mikilvægt er að ríkið hafi þau með höndum og önn- ur verkefni sem teljast til grunn- þjónustu. Markmiðið er að draga úr eða falla frá verkefnum sem teljast neðar í forgangsröðinni. Þá á að stöðva allar greiðslur, a.m.k. tímabundið, úr sjóðum til afmarkaðra verkefna, sem stofnað hefur verið til, og leggja þá alfarið niður þar sem það telst kleift. Allir samningar sem fela í sér sjálfvirkar hækkanir miðað við vísitölu eða gengi verða ennfremur teknir til endurskoðunar. Leiðarljós ríkisstjórnar í aðhaldsaðgerðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.