Morgunblaðið - 27.06.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
STJÓRNARMÖNNUM í Lífeyr-
issjóði Kópavogs var kunnugt um
hverjar lánveitingar sjóðsins voru til
Kópavogsbæjar, en yfirliti um það var
dreift á hverjum stjórnarfundi, að því
er fram kemur í fundargerðum LSK.
Jafnframt var stjórnarmönnum
kunnugt um að farið væri út fyrir
lagaheimildir í lánveitingum til Kópa-
vogsbæjar og voru þeir upplýstir um
samskipti við Fjármálaeftirlitið nán-
ast á hverjum fundi frá því ákveðið
var að boða til fundar með FME á
stjórnarfundi 14. nóvember í fyrra.
Hrædd við að þeir birtist óvænt
Flosi Eiríksson, stjórnarmaður
LSK og bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar, gagnrýndi í yfirlýsingu 21.
júní að gögn hefðu verið „matreidd“
sérstaklega fyrir stjórn sjóðsins en
aðrar upplýsingar síðan verið kynnt-
ar í lögbundnum skýrslum til FME.
Ómar Stefánsson, einnig stjórn-
armaður og oddviti Framsóknar í
bæjarstjórn, hefur tekið undir þá
gagnrýni.
Af tölvupóstsamskiptum milli allra
stjórnarmanna LSK og Sigrúnar
Bragadóttur, framkvæmdastjóra
LSK, má hinsvegar ráða að þeir hafi
verið meðvitaðir um að ekki væru all-
ar upplýsingar upp gefnar til Fjár-
málaeftirlitsins. Þegar FME óskaði
eftir greinargerð 15. janúar 2009,
„eigi síðar en í lok dags“, um hvort
fjárfestingar sjóðsins samræmdust
lögum og hvort búið væri að ganga
frá endurgreiðslu á láni sem sjóð-
urinn veitti Kópavogsbæ, þá sendi
Sigrún tölvupóst á stjórnarmenn með
orðunum:
„Þessir blessuðu eftirlitsmenn láta
mig bara ekki í friði. Við hefðum bet-
ur sleppt því að heimsækja þá og upp-
lýsa um stöðu mála.“
Ómar Stefánsson og Flosi Eiríks-
son, stjórnarmaður og bæjarfulltrúi
Samfylkingar, svöruðu innan klukku-
tíma og vildu mótmæla tímafrestinum
sem FME hafði gefið. Flosi lagði til
að Sigrún gerði drög að svari, „sendi
á stjórnarmenn til yfirlestrar og síðan
sendi hún það fyrir okkar hönd“.
Sigrún sendi síðan drög að grein-
argerð rúmum klukkutíma síðar og í
tölvupóstinn skrifaði hún stuttar
„vangaveltur“ í fjórum liðum, þar
sem stóð við fjórða tölulið: „Ég er
pínulítið hrædd við að þeir birtist
óvænt og heimti að skoða bókhaldið.
Það er allt rétt sem kemur fram í
bréfinu nema að þann 6. janúar lán-
uðum við bænum aftur 330 milljónir.
Heildarskuld bæjarins er því 580
milljónir.“ Þess má geta að skv. árs-
skýrslu sjóðsins 2008 var hrein eign
hans rúmir 2,4 milljarðar króna.
Líst vel á...
Umrætt lán, sem hljóðaði upp á
330 milljónir, var greitt upp rétt fyrir
síðustu áramót og veitt aftur 6. jan-
úar. Það kom því ekki fram í yfirliti til
Fjármálaeftirlitsins. Það var liður í
gagnrýni Flosa og Ómars, að:
„Afborganir og útborganir á lán-
um til bæjarins virðast hafa verið
tímasettar sérstaklega til að villa um
fyrir eða blekkja FME, án vitneskju
almennra stjórnarmanna.“
Af fundargerðum frá stjórnar-
fundum má hinsvegar ráða að þeir
voru upplýstir um það á hverjum
stjórnarfundi hvenær afborganir og
útborganir á lánum til bæjarins fóru
fram. Sá háttur var jafnan hafður á
að lánin voru veitt til mánaðar í senn,
eins og fram kemur í greinargerð
sem stjórn LSK sendi Fjármálaeftir-
litinu 15. janúar. Flosi Eiríksson kom
að því að semja þá greinargerð og
sendi í tölvupósti: „Mér líst vel á
þetta í meginatriðum, krassaði að-
eins í...“
Vandræði að fá féð laust
Þegar lánveitingar til Kópavogs-
bæjar fóru yfir 10% hámark af heild-
areignum sjóðsins var það vegna
„verðbólgu og áfallinna vaxta auk
eignarýrnunar LSK í tengslum við
bankahrunið“, að því er fram kemur í
sameiginlegri yfirlýsingu stjórnar
frá 19. júní sl. En þá hafði stjórn og
framkvæmdastjóra LSK verið vikið
frá og umsjónarmaður skipaður með
sjóðnum af FME og fjármálaráðu-
neytinu.
Það kemur fram í sömu yfirlýsingu
að verðtryggða skuldabréfið hafi ver-
ið undir lögbundnu 10% hámarki af
heildareignum LSK þegar það var
útgefið og að uppreiknað verð bréfs-
ins hafi numið 10,57% af heildar-
eignum sjóðsins. „Vegna góðrar
ávöxtunar sjóðsins það sem af er
árinu, er hlutfallið nú þegar orðið
lægra og innan lögboðinna marka.“ Í
fundargerðum kemur fram að vextir
af lánum til Kópavogsbæjar námu
16-20% og gaf það hærri ávöxtun en
aðrar leiðir sem farnar voru.
Í fundargerð stjórnar frá 10. októ-
ber stendur: „Stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna Kópavogs samþykkir að
heimila forstöðumanni að lána Kópa-
vogsbæ allt að 1 milljarð ísl. kr. Um
nánara fyrirkomulag og kjör verði
samið sérstaklega, en þau skulu taka
mið af markaðsaðstæðum. Stjórn
sjóðsins skal vera upplýst um ein-
stakar aðgerðir.“
Og ákvörðunin er skýrð í
sameiginlegri yfirlýsingu stjórnar 19.
júní: „Í efnahagsumrótinu í byrjun
árs tók stjórn LSK yfirvegaða og
upplýsta ákvörðun um, að besta leið-
in til að verja hagsmuni sjóðfélaga
væri að ávaxta laust fé sjóðsins til
skamms tíma hjá Kópavogsbæ, þótt
það væri ekki í fullu samræmi við
heimildir, enda ber Kópavogsbær
fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum
sjóðsins umfram eignir.“
Þetta er í samræmi við grein-
argerð sem stjórn LSK sendi til
Fjármálaeftirlitsins 15. janúar, þar
sem skýrð er sú ákvörðun að lána
Kópavogsbæ, en þar segir meðal
annars: „Á þessum tíma var framboð
ríkisbréfa mjög lítið enda hríðféll
ávöxtunarkrafa þeirra og ekki ásætt-
anlegt að fjárfesta á yfirverði. Nán-
ast ekkert framboð hefur verið á
sveitarfélagabréfum í mörg ár. Inn-
lán til minni fjármálastofnana voru
ekki ákjósanleg, þrátt fyrir háa vexti,
sökum óvissu um afdrif þeirra í fram-
haldinu. Lífeyrissjóður Kópavogs-
bæjar hefur verið með innlán, bundin
til skamms tíma, hjá minni sparisjóð-
um og hefur lent í vandræðum að fá
féð laust þrátt fyrir að komið væri
fram yfir gjalddaga. Ekki er loku fyr-
ir það skotið að erfitt reynist fyrir
ríkissjóð að ábyrgjast innlán að fullu
þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lút-
andi.“
Stjórnin taldi því „eina örugga og
ásættanlega fjárfestingakostinn vera
þann að lána Kópavogsbæ fjármuni
til skamms tíma í senn á meðan
lausafjárþurrðin gengi yfir.“
Vissu um lánveitingarnar
Morgunblaðið/Eggert
Kvaddur Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri var kvaddur með virktum af samstarfsmönnum í gær og hér sést hann
með nokkrum þeirra. Í Morgunblaðinu á morgun birtist ítarlegt viðtal við Gunnar.
Besta leiðin til að verja hagsmuni sjóðfélaga Stjórnarmenn vissu um dagsetningar á afborgunum
og útborgunum á lánum „Pínulítið hrædd við að þeir birtist óvænt og heimti að skoða bókhaldið“
Í yfirlýsingu sem Sigrún Braga-
dóttir hefur sent frá sér vegna
málsins kemur fram að öll stjórn
LSK hafi verið kærð til efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglustjóra,
en engin kæra hafi verið gefin
út.
„Einnig vill undirrituð árétta
það að lánveitingar sjóðsins til
Kópavogsbæjar voru veittar til
varnar eignum sjóðsins, þegar
fjármunir brunnu upp í íslensku
efnahagskerfi og eingöngu með
hagsmuni sjóðfélaga að leið-
arljósi. Þessar lánveitingar voru
veittar með fullri vitund allra
stjórnarmanna sjóðsins, í sam-
ráði við þá og engu leynt. Und-
irrituð undrast því mjög að ein-
staka stjórnarmenn hafi reynt að
afvegaleiða staðreyndir málsins í
pólitískum tilgangi.“
Spurðir hvort þeir hygðust
sitja áfram eftir að Gunnar Birg-
isson hætti sem bæjarstjóri og
fór í leyfi sem bæjarfulltrúi sagði
Ómar Stefánsson málið í eðlileg-
um farvegi og Flosi að hann sæi
ekki ástæðu til að segja af sér
„af því að Gunnar Birgisson
[hafi] beitt mig blekkingum.“
Gunnar hefur hinsvegar lýst
því yfir að enginn glæpur hafi
verið framinn og hann hafnar yf-
irlýsingum Flosa Eiríkssonar og
Ómars Stefánssonar um að hann
hafi vísvitandi lagt rangar upp-
lýsingar fyrir Fjármálaeftirlitið.
Fjármunir að brenna upp
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
FRÍSTUNDAVEIÐAR eru vaxandi þáttur í ferðaþjón-
ustunni og nú hefur Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra
undirritað reglugerð um slíkar veiðar. Eru þær ýmsum
takmörkunum háðar ef viðkomandi ferðaþjónustufyr-
irtæki kaupir ekki sérstakan kvóta til veiðanna. Dæmi
um slíkt er m.a. að finna á Vestfjörðum en þangað hafa
útlendingar sótt í stórum stíl í sjóstangaveiði. Fyrirtækin
þar hafa keypt kvóta til veiðanna.
Aðilum sem reka ferðaþjónustu og hyggjast nýta við
þann rekstur báta til frístundaveiða er skylt að sækja um
leyfi til Fiskistofu fyrir hvern bát sem fyrirhugað er að
nota í því skyni. Skilyrði útgáfu leyfis er að sá sem rekur
bátinn hafi leyfi Ferðamálastofu.
Samkvæmt reglugerðinni eru frístundaveiðar án kvóta
einungis heimilar með sjóstöng og handfærum án sjálf-
virknibúnaðar. Leyft er að veiða 7 fiska af kvótabundn-
um fisktegundum á hvert handfæri eða sjóstöng dag
hvern og reiknast sá afli ekki til aflamarks viðkomandi
báts. Ekki er heimilt að hafa um borð í báti fleiri en 7
sjóstangir og/eða færarúllur samtímis. Þetta þýðir að
mest er hægt að veiða 49 fiska í hverri veiðiferð.
Sé frístundaveiði stunduð á báti með kvóta skal leyfið
takmarkast af aflamarki eða krókaaflamarki viðkomandi
báts.
Allur afli þessara báta skal veginn í samræmi við gild-
andi reglur um vigtun og skráningu sjávarafla. Heimilt
er að selja og fénýta á annan hátt þann afla sem fæst við
þessar veiðar.
Mega veiða sjö fiska
Frístundaveiðar eru vaxandi þáttur í ferðaþjónustunni
Kvótalausar veiðar eru framvegis háðar takmörkunum
Morgunblaðið/RAX
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið
með sköttum til Alicante. Sértiboð 1.,
8., 15. og 22. júlí. Aðeins örfá sæti.
Allra síðustu sætin!
Alicante
í júlí
frá kr. 19.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í
sólina við Alicante í júlí á hreint ótrúlegu
verði. Gríptu tækifærið og tryggðu þér
flugsæti á frábærum kjörum.