Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Þau voru sérkennileg, að ekki sémeira sagt, ummælin sem höfð
voru eftir Ágústi Sigurðssyni rekt-
or Landbúnaðarháskóla Íslands hér
í Morgunblaðinu í gær, þar sem
rætt var um uppsafnaðan rekstr-
arhalla Landbúnaðarháskólans.
LBHÍ fór 30,8%fram úr fjár-
heimildum á
árinu 2008, 8,6%
á árinu 2007 og
7% á árinu 2006.
Ágúst segir aðþetta hafi
ekki komið sér neitt á óvart. Þetta
hafi verið vitað.
Orðrétt segir Ágúst: „Maður býrekki til háskóla bara með því að
setja upp skilti, maður þarf að
byggja upp og það kostar fé.“
Allt er þetta rétt hjá Ágústi, svolangt sem það nær. En það
vantar hins vegar inn í sýn hans á
rekstur þeirrar stofnunar sem hann
er í forsvari fyrir, að til hennar er
úthlutað ákveðnu fjármagni á fjár-
lögum.
Það er sá stakkur sem Ágúst ogaðrir forstöðumenn ríkisfyr-
irtækja og stofnana verða sníða
vöxtinn að. Vöxturinn getur ein-
faldlega ekki verið umfram fjár-
lagastakkinn sem Alþingi skapar
með samþykktum fjárlaga.
Það er bæði skiljanlegt og eðlilegtað menn sem eru að byggja upp
stofnanir, háskóla, fyrirtæki, vilji
gera það á metnaðarfullan hátt,
hratt og vel. En það er jafn sjálfsagt
og eðlilegt að menn gleymi því ekki,
þegar um opinberan rekstur er að
ræða, að bráðnauðsynlegt er að
halda sig innan fjárlagaheimilda.
Oft var þörf, en nú er nauðsyn!
Ágúst Sigurðsson
Sérkennileg ummæli rektors
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 14 léttskýjað Lúxemborg 26 léttskýjað Algarve 23 léttskýjað
Bolungarvík 5 rigning Brussel 22 skýjað Madríd 26 léttskýjað
Akureyri 11 alskýjað Dublin 17 skýjað Barcelona 25 léttskýjað
Egilsstaðir 13 heiðskírt Glasgow 20 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað London 23 léttskýjað Róm 26 léttskýjað
Nuuk 4 skúrir París 24 skýjað Aþena 27 léttskýjað
Þórshöfn 18 heiðskírt Amsterdam 24 léttskýjað Winnipeg 25 skýjað
Ósló 26 heiðskírt Hamborg 20 skýjað Montreal 24 alskýjað
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað Berlín 20 skýjað New York 24 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt Vín 20 skúrir Chicago 29 léttskýjað
Helsinki 25 heiðskírt Moskva 19 alskýjað Orlando 27 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
27. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.12 2,7 6.17 1,7 12.58 2,9 19.40 1,7 3:00 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1.59 1,4 7.51 1,0 14.33 1,6 21.15 1,0 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 4.42 1,0 10.24 0,8 17.04 1,2 23.46 0,6 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2.54 0,8 9.36 1,6 16.18 1,1 22.00 1,4 2:15 23:46
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Hæg austlæg átt eða hafgola,
skýjað með köflum og sums
staðar dálítil súld við ströndina.
Hætt við síðdegisskúrum. Hiti
15 til 20 stig inn til landsins en
svalara við sjóinn.
Á mánudag
Hæg austlæg átt. Rigning eða
súld vestantil á landinu en
þokuloft með austurströndinni
en bjartviðri inn til landsins.
Hiti 15 til 20 stig inn til landsins
en 8 til 12 við sjóinn.
Á þriðjudag, miðvikudag
og fimmtudag
Austlæg átt og fremur hlýtt,
einkum norðaustanlands. Rign-
ing öðru hverju S- og V-lands,
annars úrkomulítið.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg austlæg átt eða hafgola.
Skýjað með köflum eða létt-
skýjað en víða þokuloft með
austurströndinni. Hiti 10 til 22
stig, hlýjast inn til landsins.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ÚRSKURÐUR er fallinn í fimm
kærum sem lagðar voru fram
vegna framkvæmdaleyfis sem
Garðabær hafði samþykkt vegna
nýs og umdeilds Álftanesvegar.
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingamála hafnaði kærunum
og því stendur leyfið óbreytt.
Hins vegar er óvíst hvenær
framkvæmdir hefjast við veginn,
því hann kann að lenda undir nið-
urskurðarhnífnum.
Það var niðurstaða úrskurð-
arnefndarinnar að mat á um-
hverfisáhrifum vegarins og
ákvörðun í aðalskipulagi um legu
hans hefði sætt lögmætisathugun
og staðfestingu ráðherra, sem
æðsta handhafa stjórnsýsluvalds.
Úrskurðarnefndin væri bundin af
þeim niðurstöðum sem fyrir
liggja í þessum efnum og koma
þær því ekki til endurskoðunar í
málinu.
Ekki lægi annað fyrir en að
fyrirhuguð lagning nýs Álftanes-
vegar samkvæmt hinu kærða
framkvæmdaleyfi væri í samræmi
við gildandi aðalskipulag Garða-
bæjar og staðfestan úrskurð
Skipulagsstofnunar um mat á um-
hverfisáhrifum vegarins, eftir því
sem við á.
„Hið kærða framkvæmdaleyfi
var auglýst lögum samkvæmt og
verður ekki séð að annmarkar
hafi verið á málsmeðferð þess er
leitt gætu til ógildingar þess og
verður kröfu kæranda þar að lút-
andi því hafnað,“ segir í úrskurði
nefndarinnar.
Hópur fólks hefur barist gegn
vegalagningunni, m.a. á þeim for-
sendum að merkar náttúruminjar
og fornleifar í Gálgahrauni muni
glatast.
Vegarstæðið Hópur fólks kynnti
sér landið sem fer undir veginn.
Morgunblaðið/Golli
Grænt ljós gefið á
nýjan Álftanesveg
Kæra var ekki
tekin til greina
TEKJUR lækka og útgjöld
aukast og skilja samtals eftir
1,7 milljarða gat í fjárhag
Reykjavíkurborgar á þessu ári
og 2,7 milljarða á næsta ári.
Þetta er fullyrt í fréttatilkynn-
ingu frá Degi B. Eggertssyni,
borgarfulltrúa Samfylkingar-
innar.
Vísar hann þar til útreikn-
inga fjármálaskrifstofu og
borgarhagfræðings á grund-
velli þjóðhagsspár, sem unnir voru að beiðni Sam-
fylkingarinnar og VG í borgarstjórn.
„Ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjár-
hagsáætlunum Reykjavíkurborgar. Hratt mun því
ganga á handbært fé og eigið fé borgarinnar verði
ekkert að gert. Ofan á þetta tæplega 5 milljarða
gat bætast áhrif af niðurskurði ríkissjóðs og
hækkunum tryggingargjalds. Ætla má að áhrifin
á fjárhag Reykjavíkurborgar verði til útgjalda-
auka yfir hálfan milljarð vegna þessa,“ segir Dag-
ur.
Hann segir borgarstjóra stinga höfðinu í sand-
inn. Borgarstjóri og meirihlutinn hafi hingað til
neitað að horfast í augu við brýn verkefni sem af
þessu leiði.
Segja 4-5 milljarða gat hjá borginni
Í HNOTSKURN
»Fulltrúar minnihlutans segja að ein-stakir málaflokkar hafi ekki enn fengið
raunhæfa útgjaldaramma fyrir árið 2010 til
að hefja undirbúning að aðhaldi og ákvörð-
unum
»Þeir fullyrða að ólíkt meginþorra sveit-arfélaga standi ekki til að endurskoða
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir
yfirstandandi ár.
Dagur B. Eggerts-
son