Morgunblaðið - 27.06.2009, Síða 20
20 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
TAP Stoða, áður FL Group, á sölu
hlutar síns í Northern Travel Hold-
ing (NTH) og uppgjöri á seljenda-
láni í tengslum við þá sölu í septem-
ber 2008 nam 7,1 milljarði króna.
Stoðir/FL Group höfðu keypt
hlutafé í NTH fyrir fjóra milljarða
króna og lánað aðra fjórtán til ann-
arra kaupenda þegar FL Group
seldi danska flugfélagið Sterling til
NTH á 20 milljarða króna hinn 27.
desember 2006.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í minnisblaði sem starfsmenn
Stoða/FL Group unnu fyrir kröfu-
hafa félagsins í kjölfar húsleitar
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra á heimilum Hannes Smára-
sonar, fyrrum forstjóra félagsins,
vegna viðskipta þess með Sterling.
Minnisblaðið, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, er dagsett 5.
júní síðastliðinn og rekur aðkomu
Stoða/FL Group að Sterling frá
upphafi. Það byggist á upplýsingum
úr bókhaldi félagsins, öðrum gögn-
um sem aðgengileg eru núverandi
starfsmönnum þess og fundargerð-
um stjórnar.
Millifærslan staðfest
Rannsókn efnahagsbrotadeildar-
innar snýr meðal annars að því
hvort FL Group hafi millifært fé
sem notað var til þess að „lána“
eignarhaldsfélaginu Fons, í eigu
Pálma Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar, þegar það keypti
Sterling vorið 2005 á um fjóra millj-
arða króna.
Í minnisblaðinu kemur fram að
46,5 milljónir dala hafi verið milli-
færðar af bankareikningi félagsins
á Íslandi inn á bankareikning þess
hjá Kaupþingi í Lúxemborg hinn
22. apríl 2005. Hinn 30. júní 2005
voru síðan fjármunirnir millifærðir
aftur til baka ásamt vöxtum, alls
46,74 milljónir dala. Kaupþing stað-
festi að féð hefði verið aðgengilegt
félaginu allan þennan tíma.
Rannsókn ákæruvaldsins snýr
einnig að kaupum og sölu á Sterl-
ing. Í minnisblaðinu kemur fram að
Stoðir/FL Group hafi keypt Sterl-
ing fyrir 14,6 milljarða króna af
Fons hinn 24. október 2005. Um
10,7 milljarðar voru greiddir með
reiðufé og 3,9 milljarðar með
hlutafé í Stoðum/FL Group. Kaup-
verðið var ákvarðað samkvæmt
mati á eignum Sterling og framtíð-
arspá um EBITDA-hagnað, sem er
hagnaður fyrir skatta, afskriftir og
fjármagnsgjöld. PriceWaterHouse-
Cooper í Danmörku, Bech-Bruun
og lögmannstofan Logos voru feng-
in til að vinna áreiðanleikakannanir.
Allir stjórnarmenn félagsins sam-
þykktu kaupin hinn 21. október
2005.
Enginn „gervi-hagnaður“
Sterling var síðan selt aftur hinn
27. desember 2006 til nýstofnaðs fé-
lags, Northern Travel Holding
(NTH), á 20 milljarða króna. Það
var í eigu Stoða/FL Group (34,8%),
Fons (43,2%) og Sunds (22%), sem
hafði sölutryggingu á sínum hlut.
Sund greiddi 2,7 milljarða fyrir
hann en seldi hann innan við ári
síðar til Baugs á sömu upphæð auk
vaxta.
Í minnisblaðinu kemur fram að
greitt hafi verið fyrir kaup NTH á
Sterling með sex milljörðum króna
í reiðufé og 14 milljarða króna
hluthafaláni. Í staðinn keyptu Stoð-
ir/FL Group um þriðjungshlut í
NTH. Ef miðað er við bókfært virði
Sterling í bókum Stoða/FL Group í
lok september 2006 nam tap félags-
ins vegna sölunnar á Sterling 371
milljón króna. Í minnisblaðinu segir
orðrétt að það sé „í andstöðu við þá
almennu skoðun að viðskiptin hafi
skapað „gervi-hagnað“ upp á 5
milljarða fyrir FL Group“. Þetta er
meðal annars útskýrt í minnis-
blaðinu með gengissveiflum, niður-
færslu á hluthafaláninu og lækkun
á bókfærðu virði Sterling í bókum
félagsins vegna taprekstrar flug-
félagsins.
NTH var að lokum selt til Fons í
september 2008 og Sterling með.
Fons átti eftir það NTH að fullu.
Hluthafalánið, sem upphaflega var
14 milljarðar, var gert upp í þess-
um viðskiptum. Í minnisblaðinu
kemur fram að tap Stoða/FL Gro-
up, bæði vegna seljendalánsins og
fjögurra milljarða króna hlutarins
sem félagið keypti í NTH, hafi
numið 1,3 milljörðum á árinu 2006,
tveimur milljörðum árið 2007 og 3,8
milljörðum árið 2008. Samtals gerir
það 7,1 milljarð. Alls fengust
greiddir 10,9 milljarðar til baka í
formi reiðufjár og eigna.
Milljarðatap Stoða vegna Sterling
Minnisblað um Sterling-viðskipti Stoða/FL Group unnið fyrir kröfuhafa eftir húsleit hjá Hannesi
Millifærslan til Lúxemborgar staðfest Stoðir/FL Group töpuðu 7,1 milljarði króna á sölu NTH
● HLUTABRÉF deCODE genetics, móð-
urfélags Íslenskrar erfðagreiningar,
verða aftur skráð á aðallista Nasdaq-
hlutabréfamarkaðarins í New York
næstkomandi mánudag.
Hlutabréf deCODE voru sett á athug-
unarlista Nasdaq í októbermánuði
síðastliðnum. Ástæðan var sú að mark-
aðsvirði félagsins hafði þá verið í tíu
viðskiptadaga undir 50 milljónum
Bandaríkjadollara, sem er lágmark fyrir
skráningu á aðallista Nasdaq. Í febr-
úarmánuði síðastliðnum voru bréf fé-
lagsins svo flutt yfir á svonefndan Capi-
tal Market-lista Nasdaq, þar sem ekki
hafði ræst úr með markaðsvirðið.
gretar@mbl.is
Hlutabréf deCODE aftur
á aðallista Nasdaq
● NÝJA Kaupþing ábyrgist greiðslu
fyrirtækisins Lur Berri Iceland ehf. til
hluthafa Alfesca fyrir framselda hluti
vegna yfirtökutilboðs fyrirtæksins,
sem dagsett er í fyrradag. Frá þessu er
greint í tilkynningu frá bankanum í
gær.
Sagt var frá væntanlegu yfirtöku-
tilboði Lur Berri í lok maí síðastliðins.
Þá hafði fyrirtækið keypt tæplega 3%
hlut í Alfesca. Stærstu hluthafar Al-
fesca auk Lur Berri, þ.e. Kjalar Invest,
Alta Food Holding, Kaupthing Singer &
Friedlander og tilteknir stjórnendur Al-
fesca, höfðu þá gert með sér samning
um stjórn og rekstur Alfesca.
Lur Berri Iceland er íslenskt einka-
hlutafélag í eigu franska félagsins Lur
Berri Holding. Segir í tilkynningunni
að með yfirtökutilboði sé verðið 4,5
krónur fyrir hvern hlut í Alfesca.
gretar@mbl.is
Nýja Kaupþing ábyrgist
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÍSLENSK afþreying, sem hét áður
365 hf. og þar á undan Dagsbrún
hf., er gjaldþrota. Í nóvember sl.
var fjölmiðlahluti félagsins seldur
til Rauðsólar ehf., sem er í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Rauð-
sól heitir í dag Sýn ehf. og á m.a
Stöð 2, Fréttablaðið og Bylgjuna.
Eftir söluna á fjölmiðlahlutanum
voru Sena og EFG ehf. eftir í Ís-
lenskri afþreyingu. Öll hlutabréf í
Senu voru seld til Garðarshólma í
mars sl., en Sena rekur verslanir
Skífunnar og kvikmyndahúsin
Smárabíó, Háskólabíó, Regnbog-
ann og Borgarbíó Akureyri. Garð-
arshólmi er í eigu Jóns Diðriks
Jónssonar og Magnúsar Bjarnason-
ar. EFG, sem er móðurfélag Saga
Film og annarra félaga í auglýs-
ingaframleiðslu, er einnig farið út
úr Íslenskri afþreyingu því stjórn-
endur þess hafa tekið það yfir. „Í
rauninni var eignarhlutur Íslenskr-
ar afþreyingar í EFG ráðstafað á
málamyndaverði til stjórnenda fé-
lagsins vegna þeirrar stöðu að eig-
infjárvirði félagsins var orðið ekki
neitt,“ segir Ari Edwald, stjórnar-
formaður Íslenskrar afþreyingar.
Móteigandi stjórnendanna er
þrotabú Straums fjárfestingar-
banka. „Skuldir EFG við Íslands-
banka eru hins vegar umfram verð-
mæti þess. [...] Í rauninni voru
stjórnendurnir að taka að sér úr-
vinnslu á málefnum félagsins gagn-
vart kröfuhöfum,“ segir Ari.
Stöðu Íslenskrar afþreyingar í
dag má í reynd að hluta til rekja til
ákvarðanatöku í fjárfestingum úr
tíð Dagsbrúnar.
„Umsvif Dagsbrúnar í fjárfest-
ingum voru mikil. Þegar mest var á
seinni hluta 2006, fyrir uppskiptin í
365 og Teymi, var rekstur á vegum
félagsins um 75 milljarðar á árs-
grundvelli. Það er því ljóst að um-
svif 365 miðla voru ekki nema 12%
af starfsemi félagsins á þeim tíma,“
segir Ari.
Íslensk afþreying er eignalaust í
dag, en fjárhæð skulda félagsins
fékkst ekki uppgefin í gær.
Íslensk afþreying er gjaldþrota
Félagið er eignalaust með öllu
Ræturnar liggja í Dagsbrún
Morgunblaðið/Ómar
Stjóri Ari Edwald tók við fleyinu
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
frestaði því í gær til þriðjudags að
úrskurða um lögbann á stjórnarsetu
Matthíasar Björnssonar í Byr spari-
sjóði.
Málið er sprottið af því að fjórtán
stofnfjáreigendur kröfðust lögbanns
á stjórnarsetu Matthíasar þar sem
þeir telja að hann sitji í krafti meiri-
hluta sem var ekki löglega kjörinn,
en þeirra á meðal eru Helgi Vil-
hjálmsson, oft kenndur við Góu og
Þórður Magnússon.
Sá sem krefst lögbannsins þarf að
leggja fram tryggingu vegna mögu-
legs fjárhagslegs tjóns þess sem lög-
bannið beinist gegn ef héraðsdómur
úrskurðar lögbannið ekki gilt.
Tryggingunni er ætlað að ganga upp
í mögulegt tjón ef í ljós kemur að
stjórnin situr í krafti löglega kjörins
meirihluta. Lögmenn Matthíasar
kröfðust í gærmorgun 10 milljarða
króna tryggingar vegna málsins.
Laun fyrir stjórnarsetu í sparisjóðn-
um eru á annað hundrað þúsund
krónur á mánuði. thorbjorn@mbl.is
Vildu 10 milljarða og
lögbannsúrskurði frestað
Morgunblaðið/Kristinn
Átök um Byr Frá aðalfundi Byrs hinn 13. maí síðastliðinn. Fjórtán stofnfjár-
eigendur í sparisjóðnum telja meirihluta stjórnar ekki löglega kjörinn.
Stofnfjáreigendur
í Byr bíða átekta
ALISTAIR Dar-
ling, fjármála-
ráðherra Bret-
lands, mun í
haust leggja til
breytingar á lög-
um um breska
fjármálaeftir-
litið.
Segir í frétt
TimesOnline að
eftirlitið muni fá auknar heimildir
til að grípa inn í starfsemi fjár-
málafyrirtækja frá því sem nú er.
Ætlunin er að fjármálaeftirlitið
verði betur í stakk búið til að
stuðla að stöðugleika á fjár-
málamarkaði en hingað til.
Í breskum fjölmiðlum hafa
heyrst raddir í þá veruna að hinar
fyrirhuguðu breytingar á lögum
um fjármálaeftirlitið muni hugs-
anlega skapa spennu á milli eft-
irlitsins og Englandsbanka, seðla-
banka Bretlands. Hefur
TimesOnline eftir fulltrúum fjár-
málaráðuneytisins að slíkar
áhyggjur séu algjörlega óþarfar.
gretar@mbl.is
Breska fjár-
málaeftirlitið
mun eflast
Fær væntanlega
aukin úrræði í haust
Alistair Darling
!"#
$"%
&#'(
%
$"%
$"
! "
&()
&)
!%"(
$%"#
#$%&
'
(&(
(& *
!%")
!%"#
))
*'#
$%"(
$")
● SJÁLFKJÖRIÐ verður í stjórn Eim-
skipafélagsins á aðalfundi 30. júní.
Gunnar M. Bjorg, flugvélakaupandi frá
Liechtenstein, gengur úr stjórninni og
inn kemur Pétur Guðmundarson lög-
fræðingur. Að öðru leyti verður stjórnin
óbreytt. Aðrir stjórnarmenn tóku sæti
þegar Björgólfur Guðmundsson var að-
aleigandi félagsins. Grettir, félag hans
um eignina, er í gjaldþrotaskiptum.
Sindri Sindrason verður áfram stjórn-
arformaður, aðrir eru: Friðrik Jóhann-
esson, Orri Hauksson og Tómas Ottó
Hansson. helgivifill@mbl.is
Björgólfsmenn í stjórn