Morgunblaðið - 27.06.2009, Page 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Vín Mörgum þykir sopinn góður.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BYRÐIN sem ofneysla áfengis legg-
ur á heilbrigðiskerfin mun fara vax-
andi á næstu árum verði ekkert að
gert og milljónir manna deyja ótíma-
bærum dauða af hennar völdum.
Þetta má lesa úr þremur greinum
um áfengisbölið í breska læknatíma-
ritinu Lancet, þar sem skýrsluhöf-
undar rekja aukninguna meðal ann-
ars til vaxandi áfengisneyslu kvenna.
Fjallað er um greinarnar í viðtali
við Sally Casswell, einn greinarhöf-
unda, sem nálgast má á vefsíðu Lan-
cet, en þar kemur fram að skaðleg
áhrif áfengis hafi verið vanmetin.
Tímaritið er að þessu sinni helgað
áfengisneyslu en þar segir að alls
megi rekja eitt af hverjum 25 dauðs-
föllum í heiminum til neyslunnar.
Hlutfallið er hærra í Evrópu. Þar
má rekja tíunda hvert dauðsfall til
neyslunnar en ríflega sjöunda hvert í
Rússlandi, þar sem áfengið á þátt í
öðru hverju ótímabæru dauðsfalli.
Verðhækkun skilar árangri
Þá er fullyrt að sú leið að hækka
áfengisverð og draga úr auglýsing-
um á áfengum drykkjum hafi reynst
árangursrík til að slá á vandann.
Hækkun á meðaldrykk um sem
svarar 100 krónur er þannig talin
stuðla að umtalsverðri fækkun inn-
lagna á sjúkrahús vegna ofneyslu.
Casswell telur lagasetningu um
áfengi skorta og vísar til lagaramm-
ans um tóbak sem fordæmi.
„Ég tel að eitt brýnasta verkefnið
sé að gera áhrif áfengisins sýnilegri,
ekki aðeins á drykkjumanninn held-
ur einnig fólkið í kringum hann,“
segir Casswell, sem telur að um-
fangsmeiri gagnaöflun myndi leiða í
ljós þátt áfengisins í sjúkdómum.
Hún segir stjórnvöld margra ríkja
búa yfir þekkingu til að taka á vand-
anum en þá skorti gjarnan til þess
pólitískan vilja. Áfengisframleið-
endur hafa mikla hagsmuni af því að
tryggja að neyslan sé sem mest.
Casswell segir óraunhæft að ætla
að neysla áfengis muni dragast sam-
an til jafns við reykingar. Málið snú-
ist um að lágmarka þann skaða sem
áfengið valdið neytendum.
Bannvænn gleðigjafi
Tíunda hvert dauðsfall í Evrópu rakið til áfengisneyslu
Ríflega sjöundi hver Rússi deyr af völdum neyslunnar
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
ALLT að 20 manns létu lífið í
sprengingum í Bagdad í gær.
Flestir létust í sprengingu á fjöl-
mennum markaði í borginni en við
þá sprengingu voru vélhjól notuð
en þau eiga auðveldara með að
komast fram hjá hertri löggæslu.
Sprengingarnar í gær eru þær
síðustu í röð sprenginga en yfir
250 manns hafa látið lífið í liðinni
viku.
Viðkvæmur tími framundan
„Þeir eru að notfæra sér þennan
tíma, tíma brottflutnings Banda-
ríkjamanna, til að sanna að íraskar
öryggissveitir séu ekki í stakk bún-
ar til að annast öryggismál lands-
ins,“ hefur New York Times eftir
Ali al-Mosawi, ráðgjafa íraska for-
sætisráðherrans, um áform upp-
reisnarmanna. „Þeir munu auka
árásirnar meðan á brottflutningn-
um stendur, til að fremja eins
marga glæpi og þeir geta,“ sagði
Mosawi. Hann sagði öryggissveit-
irnar hafa stjórn á ástandinu, hvað
sem hryðjuverkamenn tækju sér
fyrir hendur.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
sagði í gær að þrátt fyrir spreng-
ingar liðinna daga færi öryggis-
ástandið í Írak batnandi. Yfirmenn
Bandaríkjahers í Írak væru „áfram
mjög jákvæðir varðandi gang mála
í Írak“. Flestum sprengjunum hef-
ur verið beint gegn sjíta-múslimum
og sagðist Obama vilja sjá meiri
framfarir á pólitíska sviðinu í Írak.
„Ég hef ekki séð eins miklar póli-
tískar framfarir í Írak og ég hefði
viljað, ég hefði viljað sjá viðræður
á milli sunníta, sjíta og kúrda,“
sagði Obama.
Röð árása í Bagdad
Sprengingar hafa orðið tugum að bana aðeins nokkrum
dögum fyrir upphaf brottflutnings Bandaríkjahers frá Írak
Reuters
Daglegt líf Kona kaupir nauðsynjar á fjölsóttum markaðnum í Sadr-hverfi í
Bagdad skömmu eftir að sprenging hafði þar orðið tugum fólks að bana.
» Hernaðaraðgerðum í Írak lýkur í ágúst 2010
» Bandaríkjaher áætlar að yfirgefa landið 2011
» Ofbeldi dvínar þrátt fyrir atburði vikunnar
AP. Teheran. | HÁTTSETTUR íranskur klerkur, Ayatollah
Ahmad Khatami, hvatti til þess í ræðu sem var útvarpað
úr háskólanum í Teheran í gær að hvatamönnum að mót-
mælum yrði refsað „án náðar“ og sagði hann að sumir
þeirra gætu búist við því að verða teknir af lífi. Harð-
línumenn hafa áður farið fram á langa dóma og hengingar.
Óttast er að þeir sem nú bíða eftir réttarhöldum gætu
sætt hörðustu mögulegu refsingum. „Hver sá sem tekur
upp vopn til að berjast gegn fólkinu, á aftöku skilið,“ sagði
Ayatollah Ahmed Khatami.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Mir Hossein Mousavi,
sagðist í gær myndu sækjast eftir opinberu leyfi fyrir
mótmælasamkomum í framtíðinni og bindur það enda á hlutverk hans í mót-
mælum á götum úti sem stuðningsmenn hans hafa staðið fyrir allt frá því að
hann tapaði í forsetakosningum fyrr tveimur vikum. jmv@mbl.is
Fer fram á dauðadóma
Ayatollah Ahmad
Khatami
Á SAMA tíma og hart var lagt að
æðstu stjórnendum breska útvarps-
ins, BBC, að draga saman seglin tví-
nónuðu þeir ekki við að leigja einka-
þotur og gista á lúxushótelum, svo
ekki sé minnst á dýrar gjafir starfs-
manna í millum á kostnað ríkisins.
Óhófið er afhjúpað í gögnum sem
lekið var til fjölmiðla en þar kemur
fram að flestir af 50 hæstsettu
stjórnendum BBC hafa sem svarar
ríflega 40 milljónum króna í árslaun,
miðað við núverandi gengi.
Þrettán þúsund króna blómvönd-
ur, tónhlöður og kampavín eru á
meðal brýnna nauðsynja sem stjórn-
endur BBC sáu ástæðu til að rukka
skattgreiðendur fyrir.
Þrátt fyrir uppljóstrunina neitar
BBC að endurgreiða útgjöldin.
Hneyksli skekur BBC
AÐDÁENDUR Michael Jacksons söfnuðust í gær saman á götum úti allt frá
Sydney til Parísar til að minnast hans, en Jackson lést á fimmtudag, fimm-
tugur að aldri. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að Barack Obama minnt-
ist Jacksons sem „frábærs flytjanda og tónlistargoðs.“ Spurningar hafa
vaknað um óhóflega lyfjaneyslu Jacksons, krufning fór fram á líki hans í gær
en niðurstaðna er ekki að vænta fyrr en eftir nokkrar vikur. jmv@mbl.is
Reuters
Poppkóngur syrgður
AUKAKRÓNUR
153 pylsurá ári
fyrirAukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur fengið þér eina með öllu þrisvar í viku á Bæjarins bestu fyrir Aukakrónurnar
sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
4
2
3
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.