Morgunblaðið - 27.06.2009, Qupperneq 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Á SEINUSTU dög-
um hafa fjölmiðlar
skyndilega fengið
áhuga á eldgömlu máli
um viðskipti Kópa-
vogsbæjar við dóttur
bæjarstjórans. Við-
skipti sem oft hafa ver-
ið til umræðu í stjórn
bæjarins og snúast
ekki um upphæðir sem
hafa mikil áhrif á fjár-
hag Kópavogs. Þau
varpa miklu frekar ljósi á gjörólíka
stefnu sjálfstæðis- og framsókn-
armanna annars vegar og Samfylk-
ingar hins vegar þegar kemur að op-
inberri stjórnsýslu. Enda hafa
sjálfstæðis- og framsóknarmenn
aldrei séð neitt athugavert við að fyr-
irtæki bæjarstjórans eða fyrirtæki
dóttur bæjarstjórans ættu í við-
skiptum við bæinn án þess að um út-
boð væri að ræða.
Meðferð sjálfstæðis- og framsókn-
armanna á landi í eigu bæjarins
skiptir þó miklu meira máli fyrir fjár-
hag bæjarins, en á seinustu árum
hafa þeir úthlutað lóðum langt undir
markaðsverði til handvalinna verk-
taka. Úthlutun lóða til einstaklinga
hefur einnig að miklu leyti verið til
aðila sem selt hafa lóðirnar fljótlega
og hirt mismuninn. T.d. seldu 75%
þeirra sem fengu lóð í Salahverfi
hana fljótlega aftur.
Meðferð Lundar og Glaðheima var
í takt við annað. Þær landspildur voru
í eigu bæjarins og voru Glaðheimar
t.d. metnir á u.þ.b. 8.000 milljónir.
Einn verktaki fékk
Lund án endurgjalds en
bærinn keypti hesthús í
Glaðheimum á 3.500
milljónir í stað mats-
verðs upp á 500 millj-
ónir. Þeir peningar fóru
að mestu leyti til annars
verktaka en fjölskyldur
oddvita Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokksins
fengu einhvern aur líka.
Til að ná í gegn skipu-
lagsbreytingum í Glað-
heimum var svo vatn til
Garðabæjar niðurgreitt um 600 millj-
ónir. Líklega hefur þessi umsýsla
kostað Kópavog á bilinu 5.000 til
7.000 milljónir, eða tæpa milljón á
hverja fjölskyldu í bænum.
Þannig er það ljóst af verkum sjálf-
stæðis- og framsóknarmanna í Kópa-
vogi að hagnaður af landi bæjarins
eigi ekki heima í bæjarsjóði. Hann sé
betur kominn í höndum handvalinna
verktaka og einstaklinga sem kjósa
að braska með lóðir. Sú afstaða ætti
að auðvelda Kópavogsbúum valið í
næstu kosningum.
Eftir Guðmund Örn
Jónsson
Guðmundur Örn
Jónsson
» Þannig er það ljóst af
verkum sjálfstæðis-
og framsóknarmanna í
Kópavogi að hagnaður
af landi bæjarins eigi
ekki heima í bæjarsjóði
Höfundur er fulltrúi Samfylking-
arinnar í skipulagsnefnd Kópavogs.
Fjármál
Kópavogsbæjar
UNDIRRITAÐIR
vilja koma á framfæri
tveim stuttum at-
hugasemdum vegna
opinberrar umræðu
um byggingu Tónlist-
arhúss og ráðstefnu-
miðstöðvar.
Vegna ummæla frá
Kjartani Magnússyni
borgarfulltrúa í Kast-
ljósi RÚV miðvikudag-
inn 24. júní, þykir rétt að taka fram
eftirfarandi.
Villandi ummæli
Þegar ráðist er í fjárfestingu sem
fjármögnuð er með lánum er afar
villandi að ræða um kostnað verk-
efnisins sem heildargreiðslur af-
borgana og vaxta á öllum lánstím-
anum. Kostnaður við að ljúka við
Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð er
að mati Austurhafnar 13,4 milljarðar
króna sem fjármagnaður verður
með lánum til 35 ára. Að ræða um
kostnað verkefnisins sem 30 millj-
arða er villandi. Dæmi má nefna til
skýringar: Hugsum okkur að maður
kaupi íbúð á 20 m.kr. og fái andvirðið
allt að láni á kjörum Íbúðalánasjóðs.
Þá myndi hann á 40 árum greiða 43
m.kr. Enginn myndi tala um það
sem verð íbúðarinnar, þó vissulega
sé hann búinn að skuldbinda sig til
greiðslu þeirrar upphæðar.
Misskilningur
Í grein sem Kári Stefánsson ritaði
í Morgunblaðið kemur fram mis-
skilningur. Hann er fólginn í því að
Kári telur að auðvelt – og þá vænt-
anlega ódýrt – sé að stöðva fram-
kvæmdir og bíða betri tíma með að
ljúka verkinu, en Kári tekur fram að
hann hafi hlakkað til að þetta hús
yrði reist. Þegar ákvarðanir voru
teknar í vetur um að halda verkinu
áfram var talið að aukakostnaður við
að stöðva verkið og ljúka því að
nokkrum árum liðnum yrði 6 millj-
arðar kr. Með öðrum orðum, það
myndi kosta 19 milljarða að ljúka við
verkið á þann hátt í stað þess að
gera það á næstu tveim árum. Það er
vegna kostnaðar við að taka niður og
reisa að nýju vinnubúðir og vinnuað-
stöðu, gera samninga við undirverk-
taka sem hafa bindandi samninga og
greiðslutryggingar í íslenskum
bönkum, bæta aðalverktaka auka-
kostnað hans og greiða og geyma
efni sem hefur verið pantað sem og
verja verkið skemmdum á biðtím-
anum. Síðasti liðurinn er ekki aðal-
atriði, unnt er að loka húsinu til
bráðabirgða en halda þarf við stálþili
og þéttingum svo sjór flæði ekki í
grunninn og í húsið.
Um Tónlistarhús
og ráðstefnumiðstöð
Eftir Stefán Her-
mannsson og Stefán
P. Eggertsson
»Kostnaður við að
ljúka við Tónlistar-
hús og ráðstefnumiðstöð
er að mati Austurhafnar
13,4 milljarðar króna
sem fjármagnaður er
með lánum til 35 ára.
Stefán
Hermannsson
Stefán Hermannsson er fram-
kvæmdastjóri Austurhafnar-TR.
Stefán P. Eggertsson er stjórn-
arformaður Austurhafnar-TR.
Stefán P.
Eggertsson
VIÐ hjónin höfðum
ákveðið að fara til út-
landa og með okkur í
samfloti voru vinir okk-
ar myndlistarfólk.
Vegna anna var ekki
farið í bankann og náð í
gjaldeyri fyrr en um
kaffileytið á föstudeg-
inum en flugið var á
laugardeginum. Þegar í
bankann var komið segi
ég við gjaldkerann í Glitni „Ég ætla að
fá gjaldeyri.“ Hún segir „ reiknings-
númer“, ég segi henni reikningsnúm-
erið mitt sem er þriggja stafa tala,
hálfgerður ættardýrgripur úr Versl-
unarbankanum í Bankastræti. Gjald-
kerinn flettir tölunni upp og segir: „Þú
getur ekki fengið gjaldeyri, þetta er
ekki launareikningur.“
Nú voru góð ráð dýr, átti ég að fara
að eyða tíma mínum í útskýringar á
því að ég væri myndlistarmaður og
hefði ekki föst laun í þeim skilningi
sem lagður er í hugtakið. Annar kost-
ur í stöðunni væri að reyna að útskýra
fyrir henni að úthlutunarnefnd Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna
væri mér ekki hliðholl. Nei, ég ákvað
að sleppa því og hringja beint í kon-
una mína því ég er „vel giftur“. Konan
mín á nefnilega launareikning og
þetta reddaðist hjá okkur en vinir
okkar, myndlistarfólkið, komust ekki
til útlanda vegna þess að þau áttu ekki
launareikning.
Fríið var frábært í alla staði og
komum við litla fjölskyldan til dæmis í
fyrsta skipti til Sevilla sem er falleg
borg með áhugaverðum arkitektúr og
ótrúlegri gotneskri kirkju, svo eitt-
hvað sé nefnt. Á ferðalögum er oft
gott að kíkja á netið og sjá fréttir og í
eitt skiptið sá ég að fatahönnuður
hafði verið valinn borgarlistamaður
Reykjavíkur. Gott hugsaði ég, þetta
er starfsstétt sem hefur áhrif á um-
hverfið og mótar líf margra. Ég var
ánægður, glaður og fullur góðvildar í
garð þeirrar persónu sem fékk til-
nefninguna.
Þegar ég kom heim var ég nátt-
úrulega búinn að gleyma öllu varðandi
borgarlistamanns-valið en heyrði þó
að einhver kurr og blaðaskrif hefðu
átt sér stað. Ég hugsaði ekki meir um
málið fyrr en ég sá grein í Frétta-
blaðinu dagsettu 24. júní 2009. Það fór
um mig ónotaleg tilfinning þegar ég
las grein þeirra Ágústs
Guðmundssonar for-
seta BÍL og Áslaugar
Thorlacius formanns
Sambands íslenskra
myndlistarmanna.
Allt yfirbragð grein-
arinnar var eitthvað svo
klisjukennt og mál-
flutningur þeirra svo
smeðjulega kurteis að
helst minnti á bænir
böðuls að loknum
vinnudegi. Það er ein-
hver „Nýju fötin keisarans“-bragur á
þessari grein hjá þessu ágæta fólki.
Síðast þegar ég heyrði í formanni
SÍM var í haust þar sem hún hékk ut-
an á Alþingishúsinu í mótmæla-
stellingu eins og trúboði nýrra tíma
og talaði andstutt og reið. Sennilega
hefur hún farið beint á skrifstofu
Sambands íslenskra myndlistar-
manna eftir mótmælin og lagt loka-
hönd á umsókn til Fjárlaganefndar
Alþingis að upphæð 8.000.000 – átta
milljónir.
Þrátt fyrir að Samband íslenskra
myndlistarmanna sæki um átta millj-
ónir til Fjárlaganefndar Alþingis í
nafni aðildarfélaga sinna njóta ein-
staklingar í aðildarfélögum sem
mynda SÍM engrar fyrirgreiðslu frá
Sambandi íslenskra myndlistar-
manna. Þannig er nú hagsmunagæsl-
an á þeim bæ og gaman væri að fara í
saumana á því seinna, en núna er það
engu síður fróðlegt að sjá hvernig
hagsmunagæsla er notuð eins og
skreyting á miður heppnaða rjóma-
tertu.
Greinin í Fréttablaðinu er dásam-
leg. Þar segir: „Samtök listamanna
hljóta að standa vörð um hagsmuni
sína rétt eins og önnur stéttarfélög.“
Síðan kemur yfirklór þar sem reynt
er að réttlæta hina listrænu fag-
hrokagrímu með upptalningum á af-
rekum þeirra sem rutt hafa veginn.
Hvílík hálfvelgja. Síðan segir: „Og
þeir sem saka okkur um óbilgirni
ættu ekki að gleyma því að Bandalag-
ið samþykkti fyrir sitt leyti nú í vetur
að sérstakur sjóður verði stofnaður
fyrir hönnuði í lögum um starfslaun
listamanna.“
Úps, þarna kom eitt helsta vanda-
málið upp. Engar breytingar hefur
mátt gera á starfslaunum listamanna
þó svo að langflestir sjái að kerfið er
ónýtt. Formenn þeirra hagsmuna-
samtaka sem hafa aðgang að starfs-
launum listamanna hanga þar eins og
hundar á roði vegna aðgengis að op-
inberu fjármagni til úthlutunar.
Það hefur ekki farið fram hjá nein-
um að úthlutanir úr þessum sjóðum
hafa verið óboðlegar vegna spilltra
úthlutana. Þar hefur allt logað stafn-
anna á milli um árabil vegna úthlut-
ana sem gengu eins og kapall upp til
stjórnar sambandsins og reyndar allt
þar í kring. Rétt er að geta þess að
Samband íslenskra myndlistarmanna
úthlutaði í 2009 um 86 milljónum, svo
sannarlega er þörf á nýjum við-
horfum.
Lögin hjá Sambandi íslenskra
myndlistarmanna tryggðu hér í eina
tíð endurnýjun í forystu en því var
breytt eftir að núverandi formaður
settist þar að. Þannig að formaðurinn
situr nú sennilega lengur en forsetinn
í Venesúela sem breytti lögum síns
lands nýlega á sambærilegan hátt.
Listamenn og hönnuðir ættu að
fagna þessu hugrakka skrefi sem for-
ystumenn og konur hjá Reykjavík-
urborg hafa tekið með því að velja
fatahönnuð sem borgarlistamann
Reykjavíkur 2009. Til hamingju
Reykjavík.
Ný viðhorf
Eftir Pjetur
Stefánsson
» ... og málflutningur
þeirra svo smeðju-
lega kurteis að helst
minnti á bænir böðuls
að loknum vinnudegi.
Pjetur Stefánsson
Höfundur er
mynd- og tónlistarmaður.
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Salou
frá kr. 79.990 – með hálfu fæði
Heimsferðir bjóða ótrúleg tilboð á ferðum til sumarleyfisperlunnar Salou,
sunnan Barcelona, 3. júlí í viku. Í boði eru stökktu tilboð, með hálfu fæði, þar
sem þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Salou er einn allra fallegasti bær Costa Dorada strandarinnar, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura,
stærsti og glæsilegasti skemmtigarður
Spánar. Stórkostlegar strendur, fjöl-
breytt aðstaða, úrval veitingastaða og
litríkt næturlíf. Gríptu þetta einstaka
tækifæri og smelltu þér í sumarfrí
með Heimsferðum og njóttu lífsins á
þessum einstaka sumarleyfisstað á
hreint ótrúlegum kjörum.
Ath. aukavika er ekki í boði.
Verð frá kr. 79.990
– með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í herbergi/stúdíó/íbúð í
viku með hálfu fæði. Verð m.v. 2 full-
orðna og 1 barn kr. 84.990. Verð m.v.
gistingu í tvíbýli í viku með hálfu fæði
kr. 89.990. Stökktu tilboð 3. júlí.
Ath. aukavika ekki í boði.
3. júlí
Stökktu til
Allra síðustu sætin!