Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 37
Minningar 37
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, hefst með biblíufræðslu
fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 10.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 11. Eric Guð-
mundsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum |
Samkoma í Reykjanesbæ í dag, laug-
ardag, kl. 11. Farið verður yfir bibl-
íulexíuna.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma
á Selfossi í dag, laugardag kl. 10, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna. Guðsþjónusta kl. 10.45. Jóhann
Þorvaldsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag,
hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11.
Björgvin Snorrason prédikar. Biblíu-
fræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna
kl. 11.50. Einnig er á biblíufræðslu á
ensku.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er sr. Guðmundur Guð-
mundsson, félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja, organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari
og prédikar, organisti er Krizstina K.
Szklenár, kirkjukórinn leiðir almennan
safnaðarsöng. Kaffi á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sameiginleg kvöld-
guðsþjónusta Garða- og Bessa-
staðasóknar kl. 20 í Garðakirkju. Sr.
Friðrik J. Hjartar þjónar, félagar úr Kór
Vídalínskirkju leiða sönginn, organisti
Jóhann Baldvinsson.
BORGARPRESTAKALL | Messa í Borg-
arneskirkju kl. 14. Messa í Borgarkirkju
kl. 16 og guðsþjónusta á Dvalarheimili
aldraðra kl. 15.15. Prestur Þorbjörn
Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breið-
holtskirkju syngur, organisti Julian Edw-
ard Isaacs. Kaffi í safnaðarheimili á eft-
ir. Síðasta messa fyrir lokun vegna
viðgerða. Næsta messa verður sunnu-
daginn 10 ágúst. Kyrrðarstund á miðvi-
kud. kl. 12.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Renata Ivan og kirkjukór Bústaða-
kirkju syngur, prestur er sr. Pálmi Matt-
híasson. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Sameiginlegt helgi-
hald á vegum þjóðkirkjusafnaðanna í
Kópvogi. Messa kl. 11 í Kópavogskirkju.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson þjónar.
Messa kl. 11 í Lindakirkju. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Sjá digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar, Dómkórinn
syngur, organisti er Marteinn Frið-
riksson. Hádegisbænir á miðvikudögum
og kvöldkirkjan á fimmtudögum.
FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma
kl. 16.30. Bryndís Svavarsdóttir prédik-
ar, lofgjörð og fyrirbænir fyrir þá sem
vilja. Ekki formlegt barnastarf en að-
staða fyrir fullorðna með börn. Kaffi og
samvera á eftir og verslun kirkjunnar
opin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingar- og
skírnarmessa kl. 14. Hjörtur Magni Jó-
hannsson prédikar og þjónar fyrir altari,
tónlistina leiða tónlistastjórarnir Anna
Sigga og Carl Möller ásamt kór Fríkirkj-
unnar sem flytur tónlist.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg kvöld-
guðsþjónusta Garða- og Bessa-
staðasóknar kl. 20. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar, félagar úr Kór Vídalínskirkju
leiða söng, organisti er Jóhann Bald-
vinsson. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl.
19.30, Jónshúsi 19.35 og Hleinum kl.
19.45 og til baka á eftir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi Þór Árna-
syni. Fermd verða tvö börn. Kór Graf-
arvogskirkju syngur, organisti Hákon
Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga og samskot til Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga. Messuhópur
þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur,
organisti er Árni Arinbjarnarson, prestur
er sr. Ólafur Jóhannsson. Kaffi á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja,
organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Sögustund fyrir börnin. Ensk messa kl.
14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar,
organisti Lára B. Eggertsdóttir, forsöngv-
ari Jónína Kristinsdóttir. Tónleikar „Al-
þjóðlegs orgelsumars“ kl. 17. Björn
Steinar Sólbergsson leikur. Opnun
myndlistarsýningar að loknum tón-
leikum. Páll Thayer sýnir vídeólist.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur sr. Kjartan Jónsson, org-
anisti Bjartur Logi Guðmundsson og
Barbörukór Hafnafjarðar syngur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Douglas Brotchie, prestur sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sameiginlegt
helgihald á vegum þjóðkirkjusafnaðanna
í Kópavogi. Messa kl. 11 í Kópavogs-
kirkju. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson þjónar.
Messa kl. 11 í Lindakirkju. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Sjá heimasíðu kirkn-
anna.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hafa Áslaug K.
Haugland og Svanhvít Hallgrímsdóttir.
Ræðumaður er Hörður Sigmundsson.
Bæn þriðjudag kl. 20.
HÓLADÓMKIRKJA | Barokkhátíð á Hól-
um 26.-28. júní. Barokkmessa á sunnu-
dag kl. 11. Prestur sr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson vígslubiskup, kórinn Hym-
nodia, organisti og tónlistarstjóri Eyþór
Ingi Jónsson. Tónleikar kl. 14. Þátttak-
endur á fyrstu barokkhátíð Barokk-
smiðju Hólastiftis flytja afraksturinn af
starfi helgarinnar. Aðgangur er ókeypis.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20. Lofgjörð og fyrirbænir, Friðrik
Schram prédikar. Sjá kristskirkjan.is.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11
og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl.
11 og 19.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30.
Laugardaga er messa á ensku kl.
18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
19.15 verður með gömlu sniði undir yf-
irskriftinni Keflavíkurkirkja 1915. Gunn-
ar Kr. Sigurðsson leiðir sönginn en m.a.
verður sungið úr Fjárlögunum. Arnór Vil-
bergsson verður við hljóðfærið, prestur
er sr. Skúli S. Ólafsson. Á eftir verður
boðið upp gamaldags kruðerí.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 11.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson prédikar og
þjónar fyrir altari, organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Boðið upp á kaffi á eftir.
LAUGARNESKIRKJA | Fyrirbænamessa
kl. 20. Fólki gefst kostur á að skrá
bænarefni sín á blað í anddyri kirkj-
unnar fyrir messuna sem prestur ber
síðan fram við altarið. Prestur er sr.
Hildur Eir Bolladóttir og meðhjálpari Sig-
urbjörn Þorkelsson. Kór kirkjunnar leiðir
almennan safnaðarsöng við undirleik
Gunnars Gunnarssonar organista. Kaffi
og te í safnaðarheimilinu á eftir.
MOSFELLSKIRKJA | Göngumessa á
Mosfell kl. 11. Messan byrjar og endar í
Mosfellskirkju og verður gengið á Mos-
fell undir leiðsögn Sigurðar Skarphéð-
inssonar sem býr í Sigtúni. Sr. Ragn-
heiður Jónsdóttir sóknarprestur leiðir
göngumessuna og Jónas Þórir organisti
spilar við upphaf og endi. Meðhjálpari
er Arndís Linn.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr
kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, org-
anisti Steingrímur Þórhallsson, sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Messuþjónar aðstoða. Kaffi og
samfélag á Torginu á eftir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Árleg gúll-
asguðsþjónusta verður haldin kl. 11. Sr.
Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari,
kór Óháða safnaðarins syngur undir
stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur. Með-
hjálpari er Ragnar Kristjánsson og í
móttökunni verður Valur Sigurbergsson.
Félagar úr kórnum sjá um eldamennsk-
una undir handleiðslu kokksins Sig-
urjóns Ívarssonar. Gúllassúpan verður
seld á vægu verði. Sjá ohadisofnud-
urinn.is.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl.
17. ,,Ávöxtur andans er gleði.“ Ræðu-
maður Agnes Tarassenko. Lofgjörð og
fyrirbæn.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Óskar Hafsteinn Óskarsson þjónar, fé-
lagar úr Kirkjukór Selfosskirkju leiða
söng og organisti er Jörg Sondermann.
Veitingar í safnaðarheimili á eftir. Morg-
unsöngur þriðjudaga til föstudaga kl.
10.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta í Skóg-
arbæ kl. 16. Sr. Ólafur Jóhann Borg-
þórsson prédikar, félagar úr Kór Selja-
kirkju leiða söng. Kvöldguðsþjónusta í
Seljakirkju kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari, kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór kirkj-
unnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Friðriks Vignis Stefánssonar organista,
prestur er Arna Grétarsdóttir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup annast prestsþjónustuna, org-
anisti Glúmur Gylfason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Barn borið til skírnar. Prestur sr.
Birgir Thomsen, organisti Ester Ólafs-
dóttir, almennur safnaðarsöngur.
STRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Org-
anisti Hannes Baldursson, kór Þorláks-
kirkju og prestur er Baldur Kristjánsson.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma
fimmtudaginn 2. júlí kl. 20. Rob Smillie
frá Christian Outreach Center í Bretlandi
prédikar. Lofgjörð og fyrirbænaþjónusta.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, organisti Guðmundur
Vilhjálmsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Langholtskirkja.
Orð dagsins:
Hinn týndi sauður.
(Lúk. 15)
Tengdamóðir mín,
Sólborg Hulda Þórð-
ardóttir, er látin.
Hinn 28. júní næst-
komandi hefði hún
orðið 95 ára gömul og
hún lifði einhverjar mestu sam-
félagsbreytingar sem orðið hafa á
Íslandi. Að sögn hennar var lýð-
veldisstofnun 1944 henni einna
minnisstæðasti atburðurinn, en
hún var þar einn af þátttakendum
á Þingvöllum.
Sólborg stofnaði heimili í Ólafs-
vík með Adólfi Ásbjörnssyni, þau
bjuggu í Ásbjörnshúsi sem þá var
kallað, en það hús er nú horfið.
Þau eignuðust tvær dætur árin
1936 og 1937 en misstu þær báðar
í frumbernsku, en Þórður Mar-
teinn sonur þeirra fæddist árið
1938 og Adólf 1942 en hann var
skírður yfir kistu föður síns. Sól-
borg eignaðist dóttur eftir að til
Reykjavíkur kom, litla stúlkan
eignaðist góða og elskulega fóstur-
foreldra og fékk gott uppeldi en
Sólborg fylgdist vel með uppvexti
hennar.
Að hætti sinnar kynslóðar ræddi
Sólborg ekki sorgina. Hún var ein
af þeim sterku konum sem Ísland
hefur átt, hún tókst á við erfiðleika
og sorgir og gafst ekki upp. Eftir
fráfall Adólfs flutti hún með synina
Sólborg Hulda
Þórðardóttir
✝ Sólborg HuldaÞórðardóttir
fæddist á Hellissandi
28. júní 1914. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni 11. júní síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá Há-
teigskirkju 24. júní.
til Reykjavíkur, hún
annaðist sjálf uppeldi
Þórðar en Adólf ólst
upp hjá föðurforeldr-
um sínum og frænku
sinni Ragnheiði Ás-
björgu. Fljótlega fór
hún að vinna á
saumastofum og varð
það hennar atvinna
þar til hún var 73
ára. Af fádæma
dugnaði eignaðist
hún íbúð í Stigahlíð
18 og bjó þar frá
árinu 1959 til ársins
2007. Aldrei sáum við hana stoltari
en þegar hún fékk afhent afsal fyr-
ir íbúð sinni skuldlausri eftir 40
ára greiðslur. Hún sá um sig sjálf
að mestu leyti þar til fyrir tveimur
árum að hún flutti í Lönguhlíð 3,
hún naut frábærrar umönnunar á
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni síð-
ustu mánuði.
Sólborg var há og glæsileg kona
og íslenski búningurinn fór henni
einkar vel, hún klæddist oft peysu-
fötum eða upphlut á tyllidögum
hér áður fyrr en hún átti báðar
gerðirnar. Ég geymi dýrmæta
mynd í minningunni af Sólborgu
og móður hennar Maríu í brúkaupi
okkar Adólfs, Sólborg í upphlut og
María á peysufötum og báðar afar
glæsilegar. Einnig er mynd af Sól-
borgu og systur hennar Laufeyju
mér ógleymanleg þar sem þær
stóðu tilhafðar og glæsilega klædd-
ar, háar og teinréttar, komnar vel
á níræðisaldur og biðu eftir bílnum
sem keyrði þær á mannamót.
Nærvera og kynni mín af Sól-
borgu kenndi mér margt, þar á
meðal hvernig hægt er að sýna
æðruleysi og gleði þrátt fyrir áföll
sem sérhver maður verður fyrir á
lífsleiðinni.
Hún tengdi mig einnig rótum
mínum með sögum af Steinunni
langömmu frá Höskuldsstöðum á
Sandi og Jónasi afa mínum en hún
þekkti þau bæði.
Þrátt fyrir hin mörgu og þungu
áföll sem Sólborg varð fyrir var
hún á ákveðinn hátt sólskinsbarn.
Hún fagnaði lífinu, var ávallt glöð
og jákvæð og kvartaði aldrei, hún
var hæversk og vildi ekki valda
öðrum óþægindum og fyrirhöfn, en
hún gat samt sem áður verið föst
fyrir og dul um eigin hagi. Hún var
mikil félagsvera, hafði mikla
kímnigáfu og ákaflega góða nær-
veru. Hún var mikil ættmóðir og
ákaflega stolt af barnabörnum sín-
um og öllum niðjunum og reyndist
þeim öllum ákaflega vel. Börnum
okkar Adólfs tók hún opnum örm-
um þegar þau hófu nám í Reykja-
vík og hún fóstraði þau fyrstu árin.
Það var öllum ánægjulegur tími og
kynslóðabili var ekki fyrir að fara.
Ég kveð Sólborgu Huldu
tengdamóður mína með virðingu
og þökk.
Monika Magnúsdóttir.
Fátt er dýrmætara en að eiga
góða samferðamenn í lífinu og í
Sólborgu frænku minni fann ég
einn slíkan. Hún var yngri systir
móður minnar og frá því ég man
fyrst eftir mér hefur Bogga „søst“
skipað mikilvægan sess í lífi mínu.
Ungur drengur var ég svo heppinn
að fá að fara með henni í heilan
mánuð vestur á Hellissand. Þar
sýndi hún mér æskustöðvar sínar,
kenndi mér nöfn á fjöllum og klett-
um, sagði frá huldufólki og um-
skiptingum og fór með mig í heim-
sóknir til ættingja sem ég hafði
aldrei áður hitt.
Bogga frænka vann við fatasaum
lengst af starfsævinnar og árum
saman naut ég þeirrar kunnáttu
hennar. Óteljandi eru þær buxur
sem hún sneið og saumaði á mig,
barn og ungling, og ekki vafðist
sniðið fyrir henni, hvort sem þær
áttu að vera víðar, beinar eða með
sjóliðasniði, allt eftir því hvar
straumar tískunnar lágu hverju
sinni. Hún frænka mín varð ung
ekkja og þurfti að hafa fyrir lífinu
eins og alþýðukonur fyrri tíma.
Um árabil glímdi hún við erfiðan
sjúkdóm, en sigraðist á honum og
æðraðist aldrei. Hún var verka-
kona og bar höfuðið hátt, því hún
var stéttvís og sér meðvituð um
það mikilvæga hlutverk sem hún
gegndi í lífinu. Brauðstritið var
hart og snerist um það að eiga í sig
og á og sjá fyrir sínum, en
skemmtanir lét hún bíða betri
tíma. Og þeir tímar runnu upp
seint og um síðir, því þegar hún
stóð upp frá saumavélinni sjötug
að aldri, hófst nýr kafli í lífi henn-
ar – hún tók að stunda selskapslíf.
Félagsmiðstöðin í Bólstaðarhlíð
varð hennar staður, þangað sótti
hún afþreyingu og skemmtan svo
lengi sem heilsan leyfði.
Á leið okkar í gegnum lífið söfn-
um við minningaperlum. Bogga
frænka er ein af þessum dýrmætu
perlum sem ég þakka fyrir og mun
varðveita. Ég færi Þórði, Adólf,
Kolbrúnu og fjölskyldum þeirra
mínar innilegustu samúðarkveðjur
á skilnaðarstund.
Jón Sævar Baldvinsson.
Hjartkær frænka mín, Bogga
eins og hún var kölluð, var einstök
kona, kvenskörungur, hefur lifað
tímana tvenna og kvartaði aldrei.
Ósköp var farsælt að fá að fara
þegar veikindin voru farin að segja
til sín, enda var aldurinn orðinn
hár. Bogga var systir pabba míns
sem lést fyrir mörgum árum, en
samband við mömmu mína og fjöl-
skyldu mína var alltaf gott og töl-
uðu þær oft mikið saman í síma,
enda báðar komnar á hjúkrunar-
heimili. Ég hafði það fyrir sið að
bjóða þeim saman í kaffi á heimili
mínu til að þær gætu hist og rifjað
upp gamlar minningar. Það var
alltaf svo gott á milli þeirra. En á
æskuárum mínum, í öllum afmæl-
um og veislum, var mikil reisn yfir
henni með þykku síðu flétturnar
og í upphlut.
Bogga var ekkja til margra ára
þegar ég kynntist henni og var ein
að vinna fyrir heimilinu, vann við
saumaskap til margra ára. Eftir að
hún hætti að vinna tóku hannyrð-
irnar við, allir dúkarnir og mynd-
irnar, síðan prjónaði hún á barna-
börnin, okkur frændsystkinin og
langömmubörnin, dúkarnir prýða
enn mitt heimili. Bogga var rík að
kærleik og með gott hjarta, hún
hringdi oft í mig og spurði mig um
fjölskyldu mína. Hún þekkti alla
með nafni, ótrúlegt hvað hún var
minnug. Hún var einstaklega ljúf
og góð við manninn minn, hann
Væja, og börnin mín. Þegar ég
kom til hennar í heimsókn síðustu
mánuðina fór henni hrakandi, hún
þekkti mig samt alltaf og spurði
hvernig mamma hefði það en sagði
svo við mig: „Þú ert yndisleg að
koma að heimsækja mig.“ Ég
spurði hvort hún væri ekki þreytt.
En hún svaraði: „Þetta er bara
leti.“ Ég sagði við Boggu frænku
fyrir stuttu að við ættum báðar
bráðum afmæli, hún jánkaði því en
ekki hef ég hana hjá mér nema í
huganum og það er góð minning.
Þegar ég kom í heimsókn til
mömmu og sagði henni að þú værir
mikið veik setti hún mynd af ykkur
báðum á náttborðið sitt og er hún
þar enn. Bogga var svo góð kona.
Elsku Bogga frænka mín, þakka
þér fyrir að vera svona góð við mig
og fjölskyldu mína. Ég votta öllum
aðstandendum mína dýpstu samúð.
Þín frænka
Svanhildur Árnadóttir (Svana).