Morgunblaðið - 27.06.2009, Síða 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
5
7 1
1 4 8 9
2 6
7 9
1 9 3 4
6 8 2
2
7 6 9 5
7 6
8 4 1 7
9 5 3
5
7 6 1
1 8 3
5 2 8
8 6 4 2 9
7
1 8
9 4
4 3
6
2 7 1
7 4 5 2 8
9 6
5 7
2 6 5 4
2 8 7 4 9 3 6 5 1
6 5 1 8 7 2 9 3 4
4 3 9 1 6 5 8 7 2
8 6 2 5 1 7 3 4 9
5 7 4 9 3 8 1 2 6
9 1 3 2 4 6 5 8 7
7 2 6 3 8 1 4 9 5
1 9 8 7 5 4 2 6 3
3 4 5 6 2 9 7 1 8
1 2 9 5 4 3 8 7 6
4 5 7 1 6 8 9 3 2
8 3 6 2 7 9 5 4 1
5 6 3 9 1 7 4 2 8
2 7 8 3 5 4 1 6 9
9 4 1 8 2 6 3 5 7
6 8 5 7 3 1 2 9 4
3 1 4 6 9 2 7 8 5
7 9 2 4 8 5 6 1 3
5 8 2 7 1 3 9 6 4
9 4 3 6 8 5 7 2 1
1 6 7 4 2 9 5 8 3
4 3 8 1 9 7 6 5 2
6 7 9 5 3 2 1 4 8
2 5 1 8 6 4 3 9 7
7 9 6 3 4 8 2 1 5
8 1 5 2 7 6 4 3 9
3 2 4 9 5 1 8 7 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu Sudoki.
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 27. júní,
178. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá,
sem yður elska, hvaða þökk eigið þér
fyrir það? Syndarar elska þá líka,
sem þá elska. (Lk. 6, 32.)
Ábyrgð er hugtak sem hefur veriðá reiki í íslensku samfélagi.
Hvað nákvæmlega felst í því að axla
ábyrgð?
Þetta vafðist mjög fyrir ríkis-
stjórn góðærisins og virðist hafa
smitað út frá sér, til dæmis til Ís-
landspósts, allavega ef marka má
reynslu vinkonu Víkverja.
Vinkonan er að sækja um fram-
haldsnám í erlendum háskóla og síð-
asti liður umsóknarferlisins var að
senda skólanum lokaeinkunnir vor-
misseris úr HÍ. Einkunnirnar sendi
hún því út fyrir landsteinana með
ábyrgðarpósti, því hún vildi vera viss
um að þær kæmust á áfangastað.
Svo leið og beið. Vinkonan fylgdist
með bréfinu á heimasíðu póstsins og
sá að það lagði af stað út úr landinu
en svo var allt stopp. Vika leið og
sendingin virtist ekki haggast.
Vinkonan hafði samband við póst-
inn sem sagði henni að bíða og sjá.
Að lokum fengust þó þau svör að
sennilega hefði nú bréfið bara týnst.
x x x
Ábyrgðarbréfið týndist sem sagtog þá hefði Víkverji haldið að
hinn ábyrgi, Íslandspóstur, tæki
skaðann á sig. Svo var þó ekki, Ís-
landspóstur bauð engar lausnir.
Vinkonu Víkverja var sagt að best
væri fyrir hana að biðja viðtakanda
bréfsins að fara á stúfana og sjá
hvort hann gæti ekki fundið það á
pósthúsinu úti. Engu skipti þótt vin-
konan reyndi að útskýra að viðtak-
andinn væri háskóli, stofnun þar
sem samkeppni er um hvert pláss og
ósennilegt að skólayfirvöld standi í
útréttingum fyrir umsækjendur.
Töfin kemur sér illa fyrir vinkonu
Víkverja, sem þarf að vita sem allra
fyrst hvort skólinn samþykkir um-
sóknina svo hún hafi tíma til að finna
íbúð áður en námið hefst í ágúst.
Pósturinn benti henni á að fyrst
ábyrgðarbréfið týndist þá gæti hún
til dæmis sent hraðpóst, „en þú þarft
auðvitað að borga fyrir það!“
Þannig var nú öll lipurðin hjá Ís-
landspósti. Ábyrgðin sem vinkonan
borgaði sérstakt gjald fyrir reyndist
að því er virðist vera engin. Enda
ekki í tísku hér að axla ábyrgð. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 viðburður, 4
skruddan, 7 álítur, 8 sjó-
ferð, 9 skap, 11 einkenni,
13 grípi, 14 eykst, 15
lögun, 17 borðar, 20
skel, 22 hryssu, 23
hafna, 24 hinar, 25
heimskingi.
Lóðrétt | 1 koma í veg
fyrir, 2 skekkja, 3
groms, 4 fjöl, 5 veslast
upp, 6 næstum, 10 rík, 12
ber, 13 viður, 15 segl, 16
flandrar, 18 landspildu,
19 sefaði, 20 fæðir, 21
umhugað.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þrifnaður, 8 hamar, 9 dulur, 10 kyn, 11 flasa,
13 Arnar, 15 hvarf, 18 stauk, 21 lok, 22 labba, 23 æstur,
24 þrekvirki.
Lóðrétt: 2 rimpa, 3 forka, 4 aldna, 5 uglan, 6 óhóf, 7
grær, 12 sær, 14 rót, 15 hæla, 16 afber, 17 flakk, 18
skæði, 19 aftek, 20 korr.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. f4 g6 2. Rf3 Bg7 3. e4 d5 4. exd5
Dxd5 5. Rc3 Da5 6. Bc4 Rh6 7. De2
Rc6 8. Hb1 Bg4 9. Rd5 Dc5 10. Rxc7+
Kf8 11. Rxa8 Rd4 12. Df1 Rxc2+ 13.
Kd1 Rd4 14. Bd3 Bf6 15. b4 Dd6 16. h3
Bxf3+ 17. gxf3 Kg7 18. Be4 Dd7 19. b5
Hxa8 20. Dd3 Hd8 21. Hb4 Dd6 22.
Hxd4 Bxd4 23. Bxb7 Dxf4 24. He1 Dc7
25. De4 Rf5 26. Bc6 Da5 27. a3 Bf6 28.
Db4 Dc7 29. Bb2 Bxb2 30. Dxb2+ Rd4
31. He4 Dd6 32. a4 e5 33. a5 Rxf3 34.
He2 Rd4 35. He3 Df6 36. Dc3 Hc8 37.
Dc5
Staðan kom upp í opnu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir nokkru í Sardiníu.
Rúmenski stórmeistarinn Mihai Marin
(2564) hafði svart gegn Ulf Dewenter
(2181). 37… Hxc6! og hvítur gafst upp
enda tapar hann drottningunni eftir 38.
bxc6 Df1+ 39. He1 Df3+ 40. Kc1
Rb3+.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tryllt tölvugjöf.
Norður
♠--
♥ÁG10972
♦--
♣ÁKDG542
Vestur Austur
♠ÁK10982 ♠DG43
♥5 ♥D
♦G8762 ♦ÁK94
♣8 ♣10976
Suður
♠765
♥K8643
♦D1053
♣3
Suður spilar 7♥.
Mikil tortryggni ríkti í garð tækn-
innar fyrstu árin sem tölvan sá um
spilagjöfina. „Spilin eru alltof villt,“
sögðu þeir gamalreyndu og höfðu að
hluta til rétt fyrir sér. En skýringin
liggur í handgjöfinni, sem er óeðlilega
flöt – það þarf að stokka lengi til að fá
rétta dreifingu. Hvað um það. Spila-
gjöfin í bandarísku landsliðskeppninni
hefði vakið umtal fyrir 20 árum.
Peter Weichsel var í norður á einu
borðinu. Vestur vakti á 1♠ og Weichsel
sagði 2♠ (hjarta og láglitur). Austur
tók sterkt undir spaðann með 3♥ og
suður „hindraði“ fyrirfram með hoppi í
5♥. Vestur sagði 5♠ og Weichsel lét 6♥
duga. Sem austur doblaði. Weichsel
gat nú ekki stillt sig um að redobla og
austur tók þá út í 6♠. „Sjö hjörtu,“
hvíslaði Weichsel með öndina í háls-
inum og … allir pass.
Guðbjörg Ár-
sælsdóttir fagnar
sjötugsafmæli
sínu á Sjávar-
barnum, Granda-
garði 9, á morg-
un, sunnudaginn
28. júní kl. 12 á
hádegi. Allir vin-
ir og ættingjar
innilega velkomnir. Hefðbundnir
pakkar auðmjúkt afþakkaðir en
ferðabaukur verður á staðnum.
70 ára
Gunnhildur Gígja Ingvadóttir og
Þórunn Glódís Gunnarsdóttir söfn-
uðu dósum og færðu Rauða kross-
inum andvirðið eða 2.000 kr.
Hlutavelta
PÉTUR Pétursson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og
ljósmyndari, segir vera kominn tíma á gamaldags
og gott partí. „Það verður eingöngu spiluð íslensk
tónlist í veislunni,“ segir hann og ætlar ekki einu
sinni að leyfa Michael sjálfum Jackson að hljóma.
„Ég á nánast alla íslenska tónlist sem hefur verið
gefin út frá því ég komst til vits og ára þannig að
úr nógu er að velja.“ Þá ætla tengdasynir Péturs
að skemmta gestum með gítar- og píanóspili. Rús-
ínan í pylsuendanum er að átta ára dóttir hans
ætlar að syngja „Bláu augun þín“ fyrir pabba sinn,
sem einmitt er bláeygur. Hann býst ekki við lof-
ræðum og ræðuhöldum og heldur því blákalt fram að það sé svo sem
ekkert að segja! Pétur segir að síðasta afmæli sem hann hélt upp á
hafi verið fertugsafmælið. „Við héldum það í Sigurjónssafni á Laug-
arnestanga. Það var alveg einstök stemning að vera í veislu innan um
öll listaverkin.“ Pétur segist ekki mikið fyrir gjafir eða hluti yfirleitt.
Efnishyggjan hafi aldrei höfðað til hans þannig að ekki sé dýrt að
gleðja hann „Bestu gjafirnar eru kossar frá konunni minni og börn-
um,“ segir hann. Hann þarf væntanlega ekki að kvíða kossaskorti því
hann á fjögur börn og tvö barnabörn. svanbjorg@mbl.is
Pétur Pétursson fótboltafrömuður fimmtugur
Gott gamaldags partí
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fjölskyldumynstur þitt hefur
tekið miklum breytingum hin síðari ár.
Sýndu nú hug, djörfung og dug – vilji er
allt sem þarf.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu ekki liðna tíð standa í vegi
fyrir framtíð þinni. Sönn hamingja felst
í því að halda áfram á þeirri leið sem þú
hefur valið þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það eru margar leiðir til að
finna rétta svarið; líttu á allar hindranir
sem tækifæri. Nýir vendir sópa bezt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Verið opin fyrir hefðbundnum
og nýjum leiðum til að bæta heilsuna.
Ein góð hugmynd getur af sér fleiri.
Aðdáun þín á börnum og vinum er ein-
læg.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að taka að þér hlutverk
sáttasemjarans. Farðu þér samt hægt
og brjóttu málin til mergjar áður en þú
ákveður nokkuð.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú gætir lent í deilum við for-
eldra þína eða yfirmenn í dag. Tækifæri
í leiklistargeiranum kunna að vera
framundan hjá þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Í dag færðu ótal tækifæri, en fæst
eru þess virði að þú lítir við þeim. Þú
skalt vera sem mest með þeim sem
kunna að meta þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það freistar þín mjög að
reyna eitthvað nýtt svo þú skalt fyrir
alla muni láta það eftir þér. Ef þér finn-
ast aðstæður erfiðar reyndu að þrauka.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú vilt fá einhvers konar
tryggingu fyrir því að einhver samvinna
muni ganga upp. Látið ekki hugfallast
því nú getið þið farið ykkar eigin leiðir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það gerist ekkert í fjármálum
þínum, nema þú takir þér tak og komir
skikki á hlutina. Vilji til samvinnu og að
ná raunsæju samkomulagi hentar þér
vel um þessar mundir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Breytingar liggja í loftinu og
aldrei þessu vant ert þú þeim mjög
mótfallinn. Ekki einblína á það sem
gengur illa, heldur það sem gengur vel
og byggðu á því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ný manneskja fær þig til þess að
ljóma af skapandi orku. Sýndu því öðr-
um það sama og taktu þátt í þeirra
hamingju.
Stjörnuspá
27. júní 1920
Barn beið bana þegar það
varð fyrir flugvél í Vatnsmýr-
inni í Reykjavík. Þetta var
fyrsta slys af völdum flugvélar
á Íslandi.
27. júní 1951
Skógrækt hófst í Elliðaár-
hólmanum á vegum Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Fyrsta daginn voru þrjú þús-
und plöntur gróðursettar.
27. júní 2006
Mengunarslys varð í sund-
lauginni á Eskifirði þegar
edikssýru var hellt fyrir mis-
tök á klórtank. Um þrjátíu
manns voru fluttir á sjúkra-
hús. „Klórgas ógnaði lífi
fólks,“ sagði Fréttablaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is