Morgunblaðið - 27.06.2009, Qupperneq 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Vinasveitirnar Jeff Who? og
Ske troða upp á Grand Rokk í kvöld
en líklega er um að ræða einu og
síðustu tónleika Ske á árinu ef frá
er talinn útgáfukokteill sem sveitin
hélt á dögunum í tilefni af útgáfu
plötunnar Love for you all. Heyrst
hefur að sveitirnar hafi að undan-
förnu æft lag eftir eina áhrifamestu
rokksveit sögunnar sem flutt verð-
ur í kvöld.
Vinahljómsveitir taka
lag saman á Grandinu
Fólk
SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN Láttu ekki vín
breyta þér í svín var valin besta almanna-
heillaherferðin og hlaut viðurkenningu í Can-
nes í gær. Auglýsingastofan ENNEMM tók á
móti viðurkenningunni úr hendi borgarstjór-
ans í Cannes.
Eins og fram kemur í tilkynningu frá
ENNEMM var auglýsingin valin sú besta af
400 almannaheilla-herferðum frá 35 löndum
af gestum sem komu og skoðuðu svonefnda
act.responsible-sýningu sem sett var upp í
Cannes af ACT Responsible-samtökunum.
Gestir sýningarinnar hafa nú í átta ár greitt
atkvæði um uppáhalds auglýsingaherferðir
sínar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sjónvarps-
auglýsingin Láttu ekki vín breyta þér í svín
vekur athygli utan landsteinana því hún var í
lok síðasta árs tilnefnd ásamt fjórum öðrum
auglýsingum til verðlauna í flokknum Public
Health & Safety á evrópsku auglýsingahátíð-
inni Eurobest í Stokkhólmi.
Markmið ACT Responsible, sem eru samtök
sem starfa án hagnaðarsjónarmiða, er að
sameina, byggja upp og hvetja til ábyrgra
samskipta um uppbyggingu og þróun í átt til
aukinnar sanngirni og félagslegrar ábyrgðar.
ACT sýnir hvernig auglýsingagerðarmenn frá
öllum heimsálfum geta notað sköpunarkraft-
inn – sem er þeirra meginstyrkur – til þess að
gegna mikilvægu hlutverki í glímunni við
þýðingarmikil verkefni samtímans.
Íslensk auglýsing hlýtur viðurkenningu í Cannes
Svínslegt Úr auglýsingunni sem hlaut við-
urkenninguna í Cannes í gær.
Hún var um margt áhugaverð
greinin sem Sölvi Tryggvason,
fyrrverandi sjónvarpsmaður, ritaði
í helgarblað DV og fjallaði um
veisluhöld útrásarvíkinganna á
þeim tíma þegar góðærið stóð sem
hæst. Fyrir hafði það vakið sér-
staka athygli – og hlátur – hversu
slæman tónlistarsmekk fjármála-
mógúlarnir reyndust hafa og ein-
hverjir höfðu á orði að skýr fyr-
irboði hefði verið í vali þeirra á
skemmtikröftum um það sem
seinna kom á daginn. Úr sér gengn-
ar poppstjörnur voru iðulega
fengnar til að skemmta þotuliðinu
og til stóð jafnvel að láta George
Michael syngja eitt leiðinlegasta
jólalag sem samið hefur verið frá
upphafi. Og það í áramótapartíi.
Djís …
Af átrúnaðargoðunum
þekkjum við þá
Hljómsveitin Sigur Rós verður á
meðal þeirra sem heiðra kvæða-
manninn Steindór Andersen á
Þjóðlagahátíð á Siglufirði sem hefst
2. júlí. Þar mun sveitin flytja
Hrafnagaldur Óðins ásamt Stein-
dóri og Páli á Húsafelli.
Sigur Rós á Þjóð-
lagahátíð
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„HANN kom mér fyrir sjónir sem afar kurteis
og almennilegur maður,“ sagði Anna Mjöll
Ólafsdóttir, í samtali við Morgunblaðið í gær,
en hún hitti Michael Jackson um miðjan síð-
asta áratug.
Tildrög fundar þeirra voru þau að vinur
Önnu Mjallar bauð henni að koma með sér til
helgarheimsóknar á búgarð Michael Jackson.
„Við komum fyrst að stóru hliði, sem bar nú
ekki með sér hvað væri að sjá þar fyrir innan.
Þegar við svo nálguðumst búgarðinn fór tónlist
að óma víðsvegar að og á einum kafla heyrðum
við 5. sinfóníu Beethovens hljóma. Vinstra
megin við aðalbygginguna var tívolí í fullum
gangi og hinum megin sundlaug. En það
skrýtna var að þarna var enginn á ferli á þess-
um fallega stað,“ segir Anna Mjöll.
Um búgarðinn á golfbíl
Jackson sjálfan hitti hún svo ekki fyrr en
daginn eftir komuna til Hvergilands (Never-
land), en svo nefndist búgarðurinn.
„Þá var öllum boðið í bíó en ég hef sjaldan
eirð í mér til að sitja yfir heilum bíómyndum
svo ég ákvað að fara í göngutúr og skoða
þennan magnaða stað. Ég kíkti inn í spila-
tækjasal þar sem nokkrir krakkar voru að
leika sér og sá þá að Michael var að fylgjast
með í gegnum glugga. Ég ákvað að vera ekk-
ert að trufla hann og hélt áfram göngu minni
en fann þá fljótlega að einhver gekk á eftir
mér. Það var þá hann í félagsskap ungs
frænda síns. Hann bauðst til að sýna mér um
og við keyrðum um búgarðinn á golfbíl og
hann sýndi mér meðal annars slöngur, lama-
dýr og önnur gæludýr sem hann hélt þarna,“
segir Anna Mjöll.
„Hann var alveg ótrúlega viðkunnanlegur og
það kom mér á óvart hversu mikil nálægð
skapaðist í samskiptum við hann,“ segir Anna
Mjöll en bætir við að hún hafi upplifað mikla
sorg í kringum Jackson, og hafi haft á tilfinn-
ingunni að hann hafi verið alveg óskaplega ein-
mana.
„Mér fannst hann vera einn í heiminum
þrátt fyrir að hann væri með allt þetta dót í
kringum sig.“
Líkt og fleiri hefur Anna Mjöll fylgst með
fregnum af Jackson í gegnum tíðina.
„Hann er auðvitað fæddur inn í heim sem
ekkert okkar þekkir. Ég trúði aldrei þessum
ásökunum sem hann var sýknaður af. Hann
var í raun alla tíð eins og lítill strákur, held
ég.“
Fólk grætur út á götu í L.A.
Anna Mjöll er búsett í Los Angeles og segir
íbúa þar hugsa um fátt annað. „Það eru allir að
tala um þetta og þetta er í öllum fréttum. Mað-
ur sér fólk grátandi á götum úti og fólk er al-
mennt mjög sorgmætt yfir þessu,“ segir hún.
„Mér finnst þetta alveg hræðilegt, heimurinn
er fátækari án hans.“
Heimurinn er fátækari
Anna Mjöll Ólafsdóttir heimsótti Michael Jackson í Neverland
Hún segir fólk gráta á götum úti í Los Angeles þar sem um fátt annað sé rætt
Í Neverland Anna Mjöll og Michael Jackson á ævintýralegum búgarði þess síðarnefnda.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÞETTA er auðvitað bara ótrúlega
sorglegt. Ég var mikill aðdáandi
hans,“ segir tónlistarmaðurinn Pét-
ur Ben og tilefnið er að sjálfsögðu
andlát Michaels Jacksons.
Pétur hefur undanfarin ár spilað
eigin ábreiðu af lagi Jacksons,
„Billie Jean“, reglulega á tón-
leikum.
„Upphaflega langaði mig að taka
fyrir þá listamenn sem hafa haft
hvað mest áhrif á mig í gegnum
tíðina, en auk „Billie Jean“ tók ég
lag eftir Doors,“ segir Pétur, en
ábreiðurnar hafa enn ekki komið út
á plötu. Hann segist ekki viss um
að eftirspurnin eftir laginu eigi eft-
ir að aukast nú að Jackson látnum.
„Ég sá bara á You-Tube í gær að
eftirspurnin eftir honum hefur auð-
vitað aukist gríðarlega síðan þetta
gerðist, en hvort fólk vill heyra
ábreiður af lögunum hans í meira
mæli veit ég ekki.“
Pétur segir Jackson hafa haft
mikil áhrif á sig sem tónlistarmann
sem og á tónlistarsöguna alla.
„Já, ég hlustaði mikið á hann
sem krakki og ég held að áhrifa
hans gæti leynt og ljóst í tónlist
minni,“ segir hann. „Thriller-platan
og viðbrögðin við henni eiga sér
svo varla fordæmi. Og Jackson
sjálfur var engum líkur, ekki bara
sem tónlistarmaður heldur ekki
síður sem skemmtikraftur og dans-
ari. Hann hafði svo rosalegan
sviðskraft,“ segir Pétur. „Þeir
Quincy Jones komu fram með
þennan nýja og ferska stíl á þess-
um tíma og svo kemur þessi líka
svakalegi ferill í kjölfarið. Það er
kannski ekki skrýtið að þetta hafi
farið svona, hann lifði mjög trag-
ísku lífi.“
Áhrifa Jacksons gætir víða
Morgunblaðið/Golli
Pétur Ben „Ég var mikill aðdáandi Michael Jackson.“
Pétur Ben spilar gjarnan ábreiðu af „Billie Jean“ á tón-
leikum Segir Jackson hafa haft mikil áhrif á tónlist sína
Ítarlega umfjöllun er að finna um Michael
Jackson í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Þar er
farið yfir fjölbreyttan feril Jacksons auk þess
sem leitað verður álits ýmissa einstaklinga um
fyrirbærið Michael Jackson og arfleifð hans.
„Maðurinn er náttúrulega gargandi talent á
einhvern hátt...Svo kemur öll ímyndin, íkonin
og gerviveröldin sem ég hef á tilfinningunni að
hafi drepið hann á endanum,“ segir Guð-
mundur Oddur Magnússon, prófessor, þar
meðal annars.
Allt um Jackson