Morgunblaðið - 27.06.2009, Side 45
Gripið um djásnið Jackson var nú engin karl-
remba en kom þó punggripinu í tísku.
HVER var Michael Jackson? Jú, tónlist-
armaður og dansari, hæfileikaríkur og goð-
sögn í lifanda lífi, bjó í Hvergilandi og virtist
heldur vilja umgangast börn en fullorðna. Sög-
urnar af Jackson eru flestar lyginni líkastar,
sumar sannar en aðrar ekki. Blaðamaður tíndi
nokkrar til.
1. Jackson og FílamaðurinnSagan segir að kóngurinn hafi keypt
beinagrind Fílamannsins svonefnda, Josephs
Merrick, sem David Lynch gerði kvikmynd
um. Þessi stórskemmtilega saga um Jackson
var á kreiki á 9. og 10. áratugnum. Jackson
sagði þetta bölvaða vitleysu, hann hefði ekkert
við beinin að gera.
2. Jackson og geimstöðinJackson var spurður að því fyrir sjö ár-
um hvort það væri rétt að hann hefði hug á því
að fara til tunglsins. Hann svaraði því til að
orðrómurinn væri ekki alveg úr lausu lofti
gripinn. Í kjölfarið fór sú saga á kreik að hann
ætlaði að reisa geimstöð á tunglinu. Hún hefur
ekki risið enn svo vitað sé.
3. Hárið brennurÁrið 1984 kviknaði í hárinu á Jackson
þegar hann var við tökur á Pepsi-auglýsingu.
Neistar úr flugeldum ollu hárbrunanum og var
Jackson fluttur á sjúkrahús. Hann sagði aðdá-
endum sínum að hafa ekki áhyggjur þar sem
hann lá á börunum á leið í sjúkrabílinn.
4. Arabakonan JacksonJackson hefur nokkrum sinnum brugðið
sér í dulargervi til að fá að vera í friði. Fyrir
þremur árum skellti hann sér í búrku og þótt-
ist vera kona, til að geta skroppið á útimarkað í
Barein. Þessi brella hefði kannski virkað ef
hann hefði ekki verið með þrjú börn í eft-
irdragi, öll vestræn í útliti.
5. Vélmennið JacksonPopparinn átti sér þann draum að risa-
vaxin, vélknúin útgáfa af honum stæði skammt
frá Las Vegas. Vélmennið átti að dansa við lag-
ið „Thriller“ og skjóta leysigeislum úr augum
sér. Það hefði nú verið gaman að sjá það...
6. SúrefniskassinnSagan af því að Jackson hafi sofið í súr-
efniskassa á 9. áratugnum er flestum kunn en
ekki víst að hún sé sönn. Jafnan eru ungbörn
höfð í slíkum kössum og þar sem Jackson var
æskudýrkandi mikill er sannarlega ekki
ómögulegt að sagan sé sönn.
7. Gúmmíbirni og sílófón, takkJackson mun hafa beðið um skál af
gúmmíbjarnahlaupi og sílófón þegar hann
dvaldi á hóteli í London fyrir tveimur árum.
Spurning hvort það hafi verið hluti af herberg-
isþjónustunni.
8. Neyddur í hreðjatakEinhver þekktasta danshreyfing hans er
hreðjatakið, þ.e. að grípa leiftursnöggt um
hreðjar sér og jafnvel rísa upp á tærnar um
leið. „Tónlistin neyðir mig til þess!“ svaraði
Jackson, þegar hann var spurður að því af
hverju hann gerði þetta.
9. Díana var ekki dónaleg!Jackson ákvað að sleppa því að syngja
lagið „Dirty Diana“ á tónleikum í London, í
virðingarskyni við Díönu prinsessu. Og talandi
um dónaskap þá mun popparinn hafa skamm-
ast sín gríðarlega fyrir hönd LaToyu systur
sinnar þegar hún lét birta af sér nekt-
armyndir. Sagan segir að fyrir vikið hafi Jack-
son orðið gríðarlega viðkvæmur fyrir orðinu
„brjóst“ og alls ekki viljað heyra það.
10. Dularfulla danssporiðSú saga hefur flogið fjöllum hærra að
Jackson hafi ætlað að frumsýna glænýtt og
stórkostlegt dansspor á fyrstu tónleikum sín-
um af 50 í 02-höllinni í London. Nýja sporið
var víst í ætt við tunglgönguna frægu en aðdá-
endur Jacksons fá víst aldrei að sjá það.
helgisnaer@mbl.is
Ótrúlegar sögur
Skilin milli sannleiks og lygi eru óljós þegar kemur að sögum um popp-
konunginn og sérvitringinn Michael Jackson Við rifjum upp 10 sögur
Súrefniskassinn Öfgakennd æskudýrkun?
Jackson í búrku Eina leiðin fyrir Jackson til þess að fara í verslunarferð óáreittur.
Fílamaðurinn Ekki í
skáp Jacksons.
Gúmmibirnir Fyrir
börnin kannski?
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Við borgum ekki „...svo hryllilega fyndið“ SA;TMM
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 27/6 kl. 19:00 Fös 3/7 kl. 19:00 Lau 11/7 kl. 19:00
Fim 2/7 kl. 20:00 Ö
Fös 3/7 kl. 20:00 Ö
Fim 9/7 kl. 20:00
Fös 10/7 kl. 20:00
Fim 16/7 kl. 20:00
Fös 17/7 kl. 20:00
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Lau 26/9 kl. 14:00 Ö
Viðbrögð
stjarnanna...
’Ég hef ekki getaðhætt að gráta yfirþessum sorglegu frétt-um. Heimurinn hefurmisst einn af sínum
gullmolum, en tónlist
hans mun lifa að eilífu.“
MADONNA
’Ég get ekki hætt aðgráta. Þessi hörm-ung er yfirþyrmandi. Égá erfitt með að ímyndamér þetta. Hjarta mitt
brennur. Ég bið fyrir
börnum hans og fjöl-
skyldu.“
DIANA ROSS
’Ég er enn að halda ívonina um að þettasé ekki satt. Michael varí góðu formi þar semhann var að æfa fyrir
tónleikaröð sína. Hann
var varkár á mataræði
og síðast þegar ég
heyrði frá honum var
hann við hestaheilsu.
Þess vegna eru þessar
fréttir mikið áfall.“
URI GELLER, VINUR
’Við höfum misstgleði okkar. Hann hefur misst kvöl sína.Hann var undir stöðugu áreiti frá pressunniog allt sem hann vildi var að vera stórkost-legasti skemmtikraftur heims... sem hann
var.“
SÉRA JESSE JACKSON
’Guðdómleikinn leiddi sálir okkar samanog leyfði okkur að gera það sem viðgerðum á níunda áratugnum. Enn í dag er sútónlist spiluð í öllum heimshornum. Ástæð-an er sú að hann hafði þetta allt – hæfileika,
dyggð og fagmennsku. Ég hef misst litla
bróður minn og hluti sálar minnar fór með
honum.“
QUINCY JONES, UPPTÖKUSTJÓRI
’Ég er sorgmædd og ringluð tilfinninga-lega. Hjarta mitt er brostið fyrir höndbarna hans, sem ég veit að skiptu hann öllu,og fjölskyldu. Þetta er svo mikill missir ámörgum sviðum að ég finn ekki réttu orðin.“
LISA MARIE PRESLEY, FYRRUM EIGINKONA
’Það verður aldrei annar Michael Jack-son. Fyrstu tónleikarnir sem ég sá vorumeð honum. Það var í Madison Square Gar-den þegar ég var átta ára. Ég væri ekki aðgera það sem ég geri í dag ef ekki væri fyrir
hann. Hann færði mér gleði sem barn og
sýndi mér veginn. Hann var tónlist. Punktur.“
LENNY KRAVITZ
Lisa Marie Presley
Quincy Jones
Madonna
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 4/7 kl. 16:00
Sun 12/7 kl. 16:00
Lau 18/7 kl. 16:00
Sun 26/7 kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
BANDIÐ BAK VIÐ EYRAÐ (HVÍTISALUR)
Fim 23/7 tónleikar kl. 21:00
BANDARÍSKA leikkonan Cameron
Diaz hlakkar víst mikið til að mæta
Tom Cruise aftur á hvíta tjaldinu
en síðast þegar þau léku saman var
það í kvikmynd Camerons Crowe,
Vanilla Sky. Nýja myndin mun
heita Wichita og fjallar um leyni-
lögreglumann sem kynnist ungri
konu sem hefur afskaplega dap-
urlega reynslu af stefnumótum. „Ef
ég hefði eitthvað á móti því að leika
á móti Tom, myndi ég ekki gera það. Ég er mjög,
mjög spennt. Þetta verður hasarmynd og ég get ekki
beðið eftir því að leika á móti hon-
um.“ Diaz og Cruise hafa haldið
kunningsskap í mörg ár. Það þótti
m.a. til marks um góða vináttu
þeirra þegar leikkonan var heiðruð
með gangstéttarstjörnu í Holly-
wood á dögunum. Þar voru Cruise
og Holmes á meðal nánustu vina
sem fögnuðu með henni. „Það var
svo gaman að hafa þau þar. Þau
eru frábær. Öll fjölskyldan mín
var þarna og vinir mínir og ég tel þau bæði í þeim
hópi.“
Leikur á móti Cruise
Tom Cruise Cameron Diaz
LEIKARINN hógværi, Johnny Depp, lítur ekki á
sig sem stórstjörnu á erfitt með að skilja hvað fólk
á við þegar hann er sagður vera frægur. „Ég lít
ekki á sjálfan mig sem stjörnu. Það er alltof skrít-
ið. Ef ég ætti að velja á milli þess að vera sýning-
argripur og að sitja í myrkvuðu herbergi allan
daginn, myndi ég velja herbergið.“ Leikarinn sem
er 46 ára gamall og án efa einn þekktasti leikari
heims segir að hann hafi aldrei nokkurn tímann
sóst eftir frægð og það sé tilviljun ein að honum
hafi vegnað jafn vel og raun ber vitni. „Ég hef
aldrei verið mjög metnaðargjarn. Allt sem hefur
gerst í mínu lífi, gerðist vegna þess að það átti að
gerast.“ Þó viðurkennir Depp að honum sé í mun
að gera börnin sín tvö stolt af sér.
Hógvær úr hófi fram
Heppinn? Johnny Depp