Morgunblaðið - 27.06.2009, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
LANG VINSÆLASTA MYNDIN!
38.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
„ÉG HEF EKKI SKEMMT MÉR BETUR Í BÍÓ SÍÐAN
EINHVERN TÍMANN Á SÍÐUSTU ÖLD.“
„ÞÁ ER HANDRITIÐ MEINFYNDIÐ,
UPPFULLT AF GEGGJUÐUM UPPÁKOMUM.“
„FLEST LEGGST Á EITT AÐ HALDA MANNI Í NÁNAST
ÓSTÖÐVANDI HLÁTURSKASTI OG „GÓÐUM FÍLING“,
ALLT FRÁ UPPHAFSMÍNÚTUNUM...“
S.V. - MBL
SÝND MEÐÍSLENSKUTALI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND Í ÁLFABAKKA Á SUNNUDAG
SÝND M
EÐ
ÍSLENSK
U TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
/ AKUREYRI
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 Powersýn. kl.11 10
STÍGV. KÖTTURINN ísl. tal kl. 2 L
HANNAH MONTANA kl. 4 L
THE HANGOVER kl. 6 - 8 - 10 12
/ KEFLAVÍK
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 Powers. kl. 11 10
YEAR ONE kl. 5:50 - 8 7
ADVENTURELAND kl. 10:10 12
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR 3 kl. 2 - 4 ísl. tal L
/ SELFOSSI
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 Pow. kl. 11 10
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR 3 kl. 2 - 4 L
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:50 L
MANAGEMENT kl. 8 - 10:20 10
ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi að
segja að íslensk dægurmúsík er mest-
anpart undir áhrifum frá hinni allt-
umlykjandi eng-
ilsaxnesku dægur-
músík. Um það er
svosem ekkert
frekar að segja,
flestir finna ein-
hvers konar inn-
blástur í þessari eða hinni tegundinni
af tónlist og spreyta sig svo í fram-
haldinu, með misgóðum árangri eins
og gefur að skilja. Hljómsveitin Árs-
tíðir horfir lóðbeint til Woodstock-
tímabilsins og söngvaskálda þeirra er
réðu ríkjum seinnipart sjöunda ára-
tugarins á þessari plötu sem er sam-
nefnd sveitinni. Komi þeir kumpánar
Crosby, Stills & Nash upp í hugann er
það ekkert skrýtið því kassagít-
arfléttur og raddaður söngur eru ær
og kýr þeirra Árstíðapilta.
Þeir sem hafa dálæti á áðurnefnd-
um Crosby og félögum munu rétti-
lega fá á tilfinninguna að þeir hafi
heyrt áður flest sem hér er á borð
borið. Árstíðunum (nöfn sveitar-
meðlima, lagahöfunda o.s.frv. hefðu
gjarna mátt fylgja með á albúminu) er
þó ekki alls varnað. Þeir eru flinkir á
gítarana og söngur þeirra oftast hinn
laglegasti sömuleiðis. En lagasmíð-
arnar rísa mishátt, textarnir eru oft
helst til þunnir í roðinu og þá einkum
þeir sem eru á ensku, og hljómurinn á
plötunni verður óneitanlega svolítið
einhæfur þegar á líður. Lögin kallast
þannig á við myndskreytingarnar í
bæklingnum sem fylgir plötunni, en
það eru mismunandi ljósmyndir af
sama brúnfiðraða fuglshamnum.
Endurtekin tilbrigði við tiltölulega
einfalt stef. Fáeinar svartar fjaðrir
hefðu komið sér vel í bland.
Hrós fá strákarnir fyrir lögin
„Ages“ og „Látum okkur sjá“, alltént
tónsmíðarnar, og eru þeir hér með
brýndir til að bíða raunverulegs inn-
blásturs við textagerðina, því hér eru
hæfileikamenn á ferð sem þurfa bara
að finna fjölina sína, eins og þar
stendur. Það eru ekki margir í brans-
anum hér heima sem spila músík af
þessu tagi um þessar mundir og Árs-
tíðir hafa öll færi til að ná langt með
jafnbetri lögum og kjötmeiri textum.
Ögn meiri frumleiki í hljóðheiminn
væri líka kjörinn og eftir því er hér
með kallað. Áhugasömum er í millitíð-
inni bent á úrvalsefni Crosby, Stills &
Nash (og Young, vitaskuld), ekki síst
plötuna Déjà Vu frá 1970, til að kynn-
ast hæðunum sem tónlist af þessu tagi
getur náð.
Déjà Vu
Árstíðir – Árstíðir
bbmnn
JÓN AGNAR ÓLASON
TÓNLIST
EMMA Bunton
sem gekk undir
nafninu Baby
Spice þegar hún
söng með Krydd-
stúlkunum vegna
þess hversu góð-
leg og væn hún
þótti, fékk æð-
iskast á dög-
unum þegar
henni var mein-
að að reykja á
næturklúbbi í
London. Bunton
mætti ásamt vini sínum í klúbbinn
og var vísað að borði undireins.
Því næst spurði hún hvort það
væri ekki lagi að hún kveikti sér í
vindlingi en var þá sagt að slíkt
væri ekki leyfilegt. Það fannst
henni greinilega ekki fullnægjandi
svar og krafðist að fá að tala við
rekstrarstjórann. Sá svaraði henni
á sömu nótum; reykingar væru
einfaldlega ekki leyfðar á staðn-
um. Mun Emma hafa öskrað á
rekstrarstjórann að það væri
hneyksli hvernig staðurinn kæmi
fram við manneskju eins og hana
og hún léti sko ekki bjóða sér
svona þjónustu. Því næst rauk hún
út af staðnum þjónunum til mik-
illar gleði, eflaust.
Baby Spice
fékk æðiskast
Skapstór Emma
Bunton
SVO virðist sem ákveðnir íbúar í
Bristol á Englandi finni listaverk-
um hins dularfulla vegg-listamanns
Banksy, allt til foráttu. Blárri
málningu var á mánudag skvett yf-
ir vegglistaverkið Mild Mild West
sem sýnir bangsa búa sig undir
átök við lögreglu og í apríl síðast-
liðnum var rauðri málningu skvett
yfir annað verk listamannsins sem
sýnir nakinn mann hanga í glugga-
syllu. Í fyrra tilvikinu hreinsuðu
bæjarstarfsmenn verkið en nú
virðist sem bærinn sjái ekki
ástæðu til að laga Mild Mild West
þrátt fyrir að íbúar bæjarins hafi
árið 2007 valið verkið vinsælasta
götu-listaverk borgarinnar. Ekki
er vitað hvað skemmdarverka-
mönnunum gengur til en talið er
að það tengist með einhverjum
hætti sýningu sem nú stendur yfir
í listasafni bæjarins á verkum
Banksy.
Málningu skvett á Banksy