Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 45
Auðlesið efni 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
TF-SIF, ný eftirlits- og björgunar-flugvél Land-helgis-gæslunnar, lenti á Reykjavíkur-flugvelli síðast-liðinn miðviku-dag. Þyrlur
Gæslunnar, TF-LÍF og TF-GNÁ, fylgdu vélinni síðasta spölinn. Flug-vélin er búin mjög fullkomnum búnaði til eftirlits- og
björgunar-starfa og Land-helgis-gæslan segir að með komu nýju flug-vélarinnar aukist mjög tæki-færi til leitar á sjó og landi, auk
þess sem nýir möguleikar opnist á sviði almanna-varna. „Þessi vél skiptir sköpum fyrir okkur. Þetta er eins og að skipta úr ritvél
yfir í tölvu – slíkur er munurinn,“ segir Georg Kr. Lárusson, for-stjóri Land-helgis-gæslunnar.
Ný eftirlits- og björgunar-flugvél
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókmennta-sjóður út-hlutaði sex ný-ræktar-verkefnum
styrkjum síðast-liðinn fimmtu-dag. Styrkjunum er ætlað
að styðja við út-gáfu á nýjum íslenskum skáld-verkum
sem hafa tak-markaða eða litla tekju-von en hafa
ótví-rætt menningar-legt gildi, og er þetta í annað sinn
sem styrkjunum er út-hlutað, en þeir nema 200 þúsund
krónum hver. Þorgerður Agla Magnúsdóttir,
fram-kvæmda-stjóri Bók-mennta-sjóðs, segir að í fyrra
hafi níu sótt um styrki en 27 í ár. „Styrkirnir eru hugsaðir
sem útgáfu-styrkir, því margir gefa sjálfir út sín fyrstu verk
eða hjá höfunda-forlögum eins og Nykri og Nýhil, en
höfundarnir geta líka farið með peninginn í rass-vasanum
í stærri forlögin.“
Styrki hlutu: Svuntu-strengur, smá-sögur eftir Sigurlín
Bjarneyju Gísladóttur; Tón-list hamingjunnar,
ör-sagna-safn eftir Völu Þórsdóttur; Loðmar, barna-bók
eftir Emblu Vigfúsdóttur og Auði Ösp Guðmundsdóttur;
Tími hnyttninnar er liðinn, ljóð, prósar og teikningar eftir
Berg Ebba Benediktsson; ónefnd ljóða-bók eftir Gunnar
Má Gunnarsson og Myndir úr skil-vindunni, ljóðabók eftir
Arngrím Vídalín.
Sex bækur hljóta ný-ræktar-styrk
Morgunblaðið/Eggert
Farþega-þota hrapaði í Indlands-haf
við Kómor-eyjar á þriðju-dag. Fjórtán
ára stúlku var bjargað úr sjónum en
hún er sú eina af 153 far-þegum
vélarinnar sem fundist hafa á lífi.
Flug-vélin var af tegundinni Air-bus
310 og í eigu Flug-félags Jemens.
Frönsk yfir-völd segja vélina, sem
var orðin 19 ára gömul, hafa verið
undir eftir-liti og að hún hafi verið í
banni í franskri loft-helgi.
Þetta er í annað skipti sem Airbus-
farþega-vél hrapar í sjóinn en
farþega-vél frá Air France hrapaði í
Atlants-hafið í byrjun júní.
Flug-slys við
Kómor-eyjar
Peninga-stefnu-nefnd
Seðla-banka Íslands hefur
ákveðið að halda stýrivöxtum
bankans óbreyttum í 12%.
Þetta er í takt við væntingar
en Greining Íslands-banka,
hag-fræði-deild
Lands-bankans og IFS
Greining spáðu óbreyttum
vöxtum. Aðrir vextir eru einnig
óbreyttir. Vextir á
viðskipta-reikningum í
Seðla-bankanum eru áfram
9,5%.
Væntingar um lækkun
stýri-vaxta Seðla-bankans
hafa verið miklar að
undan-förnu, ekki hvað síst
af hálfu aðila vinnu-
markaðarins, jafnt
tals-manna atvinnu-rekenda
sem verka-lýðs-
hreyfingarinnar. Frá síðasta
vaxta-ákvörðunar-degi, í
byrjun júní-mánaðar, hefur
gengi krónunnar hins vegar
lækkað nokkuð.
Stýri-vextir
áfram 12%
Eftir fram-hlaup Breiða-
merkur-jökuls, þar sem allt
að 600-700 metrar hafa
brotnað úr honum á köflum,
er Jökulsár-lón orðið dýpsta
vatn Íslands. Einar B.
Einarsson, eigandi ferða-
þjónustunnar Jökulsár-lóns,
komst ný-verið lengra inn að
jöklinum en áður og
dýptar-mældi við hinn nýja
jaðar. Reyndust vera 284
metrar niður á botn.
Hingað til hefur Öskju-vatn
talist dýpst, 217 metrar.
Samkvæmt upp-lýsingum frá
Veður-stofunni hafa
mælingar á jöklinum áður
gefið til kynna að hann nái
svona djúpt en eftir
fram-hlaup er vatnið dýpra en
áður.
Jökulsár-lón dýpst
Morgunblaðið/RAX
leik-tíð en hefur verið betri í
ár. Brott-hvarf Willums mun
ekki vera að kröfu
leik-manna. Tíma-setningin
vekur furðu því Valsmenn
tókust á við Íslandsmeistara
FH síðast-liðinn fimmtudag.
Þorgrímur Þráinsson hefur
verið aðstoðar-þjálfari
Willums á þessari leik-tíð og
segist ekki vera í við-ræðum
við Val um að taka starfið að
sér. ,,Ég er bara að leysa af
þar til nýr maður kemur. Ég
hefði byrjað að þjálfa fyrir 20
árum hefði ég haft metnað í
það. Ég er ekki á þeirri leið,“
sagði Þorgrímur í sam-tali við
Morgunblaðið en hann gerði
samning út leik-tíðina sem
aðstoðar-þjálfari og segist
tilbúinn til þess að víkja sem
aðstoðar-þjálfari, ef næsti
þjálfari vill það.
Willum hættur hjá Val
Valur og
Willum Þór
Þórsson,
þjálfari
meistara-
flokks karla í
knatt-spyrnu
hafa ákveðið
að slíta sam-starfinu eins og
það var orðað í til-kynningu
frá félaginu, síðastliðinn
miðvikudag. 18. september í
fyrra fram-lengdi Willum
samninginn við Val um þrjú ár
og átti þá ár eftir af samningi
sínum. Willum var því með
samning út leiktíðina 2012.
Sam-kvæmt heimildum
Morgun-blaðsins virðist ekki
hafa verið mikill aðdragandi
að þessari niður-stöðu.
Andinn í leik-manna-hópi Vals
mun ekki hafa verið
sérstak-lega góður á síðustu
Lítil flug-vél brot-lenti
skammt frá Selá í Vopna-firði
síð-degis á fimmtu-dag. Tveir
menn voru í vélinni, annar
þeirra lést í slysinu. Hinn er
mikið slasaður og liggur
þungt haldinn á
gjör-gæslu-deild Land-spítala
Háskóla-sjúkra-húss í
Foss-vogi. Er hann talinn í
lífs-hættu og er haldið
sofandi í öndunar-vél.
Vélin var ný-lögð af stað
frá Vopna-firði og gerði
flug-áætlun ráð fyrir lendingu
á Tungu-bakka-flug-velli í
Mosfells-bæ. Fljót-lega eftir
að flug-vélin fór í loftið
bárust upp-lýsingar frá
Neyðar-línu að hún hefði
brot-lent. Til-drög slyssins
voru þau að vélin flaug á
rafmagns-vír.
Flug-slys í
Vopna-firði