Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 24
24 Tengsl
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Hún er fædd 20. júlí 1969. Skóla-
ganga hennar hófst í gamla Stýri-
mannaskólanum en síðan fór hún í
Breiðagerðisskóla og tók gagnfræða-
próf frá Réttarholtsskóla. Hún var
stúdent frá Menntaskólanum við
Sund 1989, tók BA-próf í sálfræði frá
Háskóla Íslands 1992 og MSc-próf í
vinnusálfræði við Hertfordshire-
háskóla á Englandi 1995.
Hún vann hjá félagsmálaráðu-
neytinu 1996- 2000, var verkefna-
stjóri hjá Íslensku vefstofunni 2000-
2001 og var ein af stofnendum Sjá
viðmótsprófana ehf. árið 2001 þar
sem hún er framkvæmdastjóri, en Sjá
er fyrirtæki sem sinnir vefráðgjöf og
aðstoðar fyrirtæki við að bæta vef-
síður sínar og skilja notendahegðun.
Hún hefur verið varaborgarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2006 og
er meðal annars formaður menning-
ar- og ferðamálaráðs.
Hún hefur sinnt ýmsum félags-
störfum. Hún hefur setið í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins síðan 2007, var
formaður FSÖ, foreldra- og styrkt-
arfélags Öskjuhlíðarskólans, um
tíma, hefur setið í úrskurðarnefnd fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga síðan
2003 og er formaður Hvatar, félags
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.
Sambýlismaður Áslaugar er
Hjálmar Edwardsson
sjómaður og eiga
þau þrjú börn,
Jóhönnu Þór-
kötlu (f. 1992,
dóttir Áslaugar),
Hjálmar Friðrik (f.
2001) og Jóa-
kim (f. 2003).
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Áslaug María: „Pabbi er sveitastrákur
og skáti. Hann var mikið í sveit á
yngri árum og á sterkar rætur í sveit-
inni. Dvölin á Auðunarstöðum í Vest-
ur-Húnavatnssýslu, þar sem afi Soph-
us fæddist, mótaði hann mikið og
hann þreytist aldrei á að tala um
sveitina. Hann er svolítið gamaldags,
gömlu gildin eru hans gildi, sveit-
arómantíkin í hávegum höfð.“
Ofurskipulagður
„Amma Áslaug var mjög mikill
skáti og pabbi hefur alltaf verið eins.
Hann skipuleggur allt í þaula og vinn-
ur ákveðið að settu marki. En þetta
skipulag getur gengið út í öfgar. Þeg-
ar við fórum saman í útilegur of-
urskipulagði hann gjarnan ferðirnar.
Hann skrifaði lista og þessir listar
voru oftar en ekki hreinir brandarar.
Við vorum bara að fara í stutta úti-
legu en listarnir bentu til annars.
Hann býður okkur oft í mat og þá
spyr hann hvort við komum ekki
klukkan sjö. „Já, við komum um sjö-
leytið,“ svara ég. Skömmu síðar
hringir hann aftur og spyr hvort tím-
inn standi ekki. Hann vill vera alveg
viss um hvenær fólk mætir og hvort
ekki allt standist sem um var rætt og
ekkert um það bil. En þrátt fyrir með-
fædda skipulagsgáfu er alltaf stutt í
að léttleikinn og húmorinn taki völd-
in.“
Ættfróður stuðbolti
„Pabbi er mjög skemmtilegur og
líflegur og það er mjög gaman að vera
með honum. Hann elskar landið, sög-
una og ættfræði og er mjög fróður. Í
öllum fjölskylduboðum ber ættfræði á
góma og hann finnur alltaf einhverja
tengingu við alla, sem eru til umræðu
hverju sinni. Hann hefði orðið góður
ættfræðingur. Hann hefði líka orðið
góður leikari. Hann lék í Herranótt í
Menntaskólanum í Reykjavík og
hann á mjög auðvelt með að leika
aðra, sem kryddar sögurnar óneit-
anlega skemmtilega. Þessi skemmti-
lega blanda færir líf í ættfræðina sem
gæti annars verið helst til þurr.
Vel getur verið að fólki finnist hann
alvarlegur út á við en það er örugg-
lega vegna starfsins. Um leið og hann
er kominn heim til sín flæðir sprellið
upp úr honum og stríðnin er reyndar
aldrei langt undan. Reyndar er Auð-
unarstaðafólkið þekkt fyrir að vera
hinir mestu stríðnispúkar þannig að
hann á ekki langt að sækja það.
Pabbi er mikið félagsljón. Hann
tekur félagslífið til dæmis fram yfir
hluti eins og að mála húsið sitt eða
taka til í garðinum. Hann nær mjög
vel til fólks og er stuðbolti. Það er
gaman að hafa hann í boðum, því
hann er hrókur alls fagnaðar, kann
skemmtilegar sögur og segir
skemmtilega frá. Jafnframt er hann
mjög ábyrgur og vill að maður hugsi
vel um annað fólk. Það stafar örugg-
lega af því að vera elstur fjögurra
systkina og ég veit að hann var mjög
ábyrgur stóri bróðir.
Við tölum mikið um pólitík og þá
sem hana stunda. Ættfræðin er aldrei
langt undan og oft er það svo að áður
en ég veit af er ég komin með 10 bæk-
ur í fangið af því mér verður á að
nefna einhvern á nafn og spyrja hvort
hann kannast við viðkomandi. Ég
ætla ekkert að forvitnast um ættina
en það verður ekki umflúið og áður en
yfir lýkur hef ég fræðst um og skoðað
myndir af skyldfólki viðkomandi í all-
ar áttir. Okkur systkinunum finnst
þetta stundum í hlægilega miklum
mæli.
Föðurfólkið mitt er mikil skáta-
fjölskylda. Skátar gera kröfur til sín,
hafa ákveðin gildi í heiðri og taka þau
alvarlega. Þessi hugsunarháttur hef-
ur alltaf legið í loftinu í kringum
pabba. Okkur systrunum var ekki
endilega sagt mikið til þó að engin
lausung væri í uppeldinu. Samt komu
stundir þegar hann vildi nú svona
leggja einhverjar línur en ég er ekki
viss um að við höfum alltaf látið vel að
stjórn. Reyndar held ég að við syst-
urnar höfum verið alveg ferlegar.
Þegar hann kom heim og byrjaði að
segja okkur fyrir verkum gerðum við
bara grín að honum. Hann greip það
oftast á lofti enda mikill grínari og yf-
irleitt endaði þetta allt saman í ein-
hverri gleði. Auðvitað voru til und-
antekningar og ég hef að sjálfsögðu
nokkrum sinnum séð hann eins og
þrumuský. Einu sinni málaði Gabríela
systir háaloftið með heimatilbúinni
málningu sem hún sullaði sjálf saman
með hjálp góðs vinar. Þá urðu mikil
læti. Vinur okkar þorði held ég ekki
að láta sjá sig í margar vikur á eftir.
Stjórnmálaáhugi minn er örugg-
lega að einhverju leyti frá honum.
Samt er ég ekki endilega með sömu
áherslur og hann, enda er sveit-
arstjórnarpólitíkin að vissu leyti frá-
brugðin landspólitíkinni. Mér finnst
hann hafa verið góður fjármálaráð-
herra og haldið vel á spöðunum. Þeg-
ar hann var yngri var hann sennilega
þekktur fyrir að halda orðunum
„Báknið burt“ á lofti og sömu viðhorf
eru enn við lýði enda ekki vanþörf á.“
Vinnan hefur forgang
„Pabbi vill að hlutirnir séu í lagi en
tekur sjálfan sig ekki of alvarlega.
Brosi einhver að hugmyndum hans
eða tillögum er hann fljótur að sjá
broslegu hliðarnar og gerir þá óspart
grín að sjálfum sér.
Ef ég á að gagnrýna eitthvað sem
hann hefur gert þá fannst mér að
hann hefði átt að taka fæðingarorlof
þegar litla systir mín fæddist, en þá
var hann ráðherra. Fyrir mér hefði
það verið góð fyrirmynd að setja
barnið og fjölskylduna í forgang. En
þetta fannst honum ekki þá, þar sem
það væri svo mikið að gera í vinnunni
og mikilvæg verkefni biðu. Mér
fannst mikilvægt að hann væri með
konu sinni og nýfæddri dóttur en hon-
um fannst mikilvægara að sinna starf-
inu. Þarna endurspeglast kannski
þessi gamaldags viðhorf um að maður
nýti ekki tímann nægilega vel nema
að vera á kafi í einhverjum vinnu-
tengdum verkefnum. Reyndar verð
ég samt að hrósa honum sérstaklega
fyrir að vera duglegur að passa börn-
in fyrir mig en það finnst honum ekk-
ert mál. Sirrý Siska systir mín sem nú
býr í Noregi var aðalbarnapía en í
hennar fjarveru hefur pabbi alveg
fyllt hennar skarð.
Sem stjórnanda heyri ég mjög vel
látið af honum. Á tímabili vorum við
mikið í Hnífsdal og þá leysti hann
stjórnandann í frystihúsinu hjá Jóa-
kim móðurafa mínum af. Ég vann líka
í frystihúsinu og þá sagði fólk við mig
hvað því þætti gaman að fá hann.
„Hann kemur og kjaftar við mann,
vill vita hvað maður er að gera og
svona,“ sagði það. En svona sam-
skipti þóttu almennt ekki sjálfsögð
hjá stjórnendum og voru það kannski
ekki í þá daga. Pabbi hefur einlægan
áhuga á að kynna sér það sem er að
gerast í kringum hann og það hefur
örugglega hjálpað honum í stjórnand-
astarfinu.
Pabbi er búinn að taka ákvörðun
um að hætta að vinna í haust og var
tilbúinn til þess síðast liðið haust en
vinnan varð öllu öðru yfirsterkari
þegar áfram var leitað eftir kröftum
hans, þó golfið hafi örugglega kitlað
mikið. Hann gerir þær kröfur til ann-
arra að þeir standi við sitt og sýnir
gott fordæmi með því að takast á við
óvænta hluti. Það er ekki til í hans
hugsun að ganga frá hálfköruðu verki
eða hverfa frá einhverju sem hann
telur að sé skylda sín að sinna.“
Keppnismaður
„Undanfarin sumur höfum við veitt
mikið saman. Hann er góður veiði-
maður og hefur kennt mér mikið en
systir Sigríðar Dúnu kenndi mér
samt fyrstu skrefin. Hann skipulegg-
ur veiðiferðina út í æsar, les ána og
sendir mig til að skoða veiðistaðina.
Hann kann á veðrið, skilur það og
náttúruna.
Hann á dagbækur frá því hann var
krakki. Stórkostlega fyndnar. Hann
og frænka Stella á Auðunarstöðum
héldu dagbækur og þau skrifuðu
samviskusamlega hvernig veðrið var
á hverjum degi. Lengi var talið að
hann yrði veðurfræðingur, því
skyggni ágætt var hans ær og kýr.
Þannig er það líka í veiðiferðunum.
Við spilum bridds saman við sér-
stakar aðstæður, til dæmis á jólum og
á ferðalögum. Þá er mikil keppni og
stundum held ég að erfitt sé að vera
með honum í liði, því hann rífst mikið
í makkernum. Ég held reyndar að
það sé mikið í ættinni, því amma og
afi voru svona. Mér finnst fyndnara
að spila á móti honum. Þá hlæ ég
meira en myndi örugglega rífast við
hann ef við værum í sama liði. Þegar
við spilum vill hann að fólk einbeiti
sér að spilamennskunni og kvartar ef
maður dirfist að tala við einhvern á
meðan. Það á að einbeita sér að því
sem verið er að gera hverju sinni.“
Skyggni
ágætt
Morgunblaðið/Ómar
Hann er fæddur í Reykjavík 18. október
1943.
Hann tók stúdentspróf frá MR
1963 og lögfræðipróf frá HÍ
1972.
Hann var stundakennari
við Hlíðaskóla 1963-1967,
framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélags Íslands
1972-1978, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrysti-
húss Hnífsdals í sumar-
afleysingum 1978-1986,
alþingismaður 1978-1998, iðn-
aðarráðherra 1987-1988 og fjár-
málaráðherra 1991-1998. For-
stjóri Landsvirkjunar
frá 1999.
Hann var formað-
ur Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúd-
FRIÐRIK SOPHUSSONÁSLAUG MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR
Feðginin Áslaug María og
Friðrik Sophusson eru lík
í útliti, kaldhæðin og hafa
svipuð áhugamál en annars
nálgast þau gjarnan hlutina
með misjöfnum hætti.