Morgunblaðið - 05.07.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.07.2009, Qupperneq 24
24 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009 Hún er fædd 20. júlí 1969. Skóla- ganga hennar hófst í gamla Stýri- mannaskólanum en síðan fór hún í Breiðagerðisskóla og tók gagnfræða- próf frá Réttarholtsskóla. Hún var stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1989, tók BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands 1992 og MSc-próf í vinnusálfræði við Hertfordshire- háskóla á Englandi 1995. Hún vann hjá félagsmálaráðu- neytinu 1996- 2000, var verkefna- stjóri hjá Íslensku vefstofunni 2000- 2001 og var ein af stofnendum Sjá viðmótsprófana ehf. árið 2001 þar sem hún er framkvæmdastjóri, en Sjá er fyrirtæki sem sinnir vefráðgjöf og aðstoðar fyrirtæki við að bæta vef- síður sínar og skilja notendahegðun. Hún hefur verið varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2006 og er meðal annars formaður menning- ar- og ferðamálaráðs. Hún hefur sinnt ýmsum félags- störfum. Hún hefur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins síðan 2007, var formaður FSÖ, foreldra- og styrkt- arfélags Öskjuhlíðarskólans, um tíma, hefur setið í úrskurðarnefnd fé- lagsþjónustu sveitarfélaga síðan 2003 og er formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Sambýlismaður Áslaugar er Hjálmar Edwardsson sjómaður og eiga þau þrjú börn, Jóhönnu Þór- kötlu (f. 1992, dóttir Áslaugar), Hjálmar Friðrik (f. 2001) og Jóa- kim (f. 2003). Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Áslaug María: „Pabbi er sveitastrákur og skáti. Hann var mikið í sveit á yngri árum og á sterkar rætur í sveit- inni. Dvölin á Auðunarstöðum í Vest- ur-Húnavatnssýslu, þar sem afi Soph- us fæddist, mótaði hann mikið og hann þreytist aldrei á að tala um sveitina. Hann er svolítið gamaldags, gömlu gildin eru hans gildi, sveit- arómantíkin í hávegum höfð.“ Ofurskipulagður „Amma Áslaug var mjög mikill skáti og pabbi hefur alltaf verið eins. Hann skipuleggur allt í þaula og vinn- ur ákveðið að settu marki. En þetta skipulag getur gengið út í öfgar. Þeg- ar við fórum saman í útilegur of- urskipulagði hann gjarnan ferðirnar. Hann skrifaði lista og þessir listar voru oftar en ekki hreinir brandarar. Við vorum bara að fara í stutta úti- legu en listarnir bentu til annars. Hann býður okkur oft í mat og þá spyr hann hvort við komum ekki klukkan sjö. „Já, við komum um sjö- leytið,“ svara ég. Skömmu síðar hringir hann aftur og spyr hvort tím- inn standi ekki. Hann vill vera alveg viss um hvenær fólk mætir og hvort ekki allt standist sem um var rætt og ekkert um það bil. En þrátt fyrir með- fædda skipulagsgáfu er alltaf stutt í að léttleikinn og húmorinn taki völd- in.“ Ættfróður stuðbolti „Pabbi er mjög skemmtilegur og líflegur og það er mjög gaman að vera með honum. Hann elskar landið, sög- una og ættfræði og er mjög fróður. Í öllum fjölskylduboðum ber ættfræði á góma og hann finnur alltaf einhverja tengingu við alla, sem eru til umræðu hverju sinni. Hann hefði orðið góður ættfræðingur. Hann hefði líka orðið góður leikari. Hann lék í Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík og hann á mjög auðvelt með að leika aðra, sem kryddar sögurnar óneit- anlega skemmtilega. Þessi skemmti- lega blanda færir líf í ættfræðina sem gæti annars verið helst til þurr. Vel getur verið að fólki finnist hann alvarlegur út á við en það er örugg- lega vegna starfsins. Um leið og hann er kominn heim til sín flæðir sprellið upp úr honum og stríðnin er reyndar aldrei langt undan. Reyndar er Auð- unarstaðafólkið þekkt fyrir að vera hinir mestu stríðnispúkar þannig að hann á ekki langt að sækja það. Pabbi er mikið félagsljón. Hann tekur félagslífið til dæmis fram yfir hluti eins og að mála húsið sitt eða taka til í garðinum. Hann nær mjög vel til fólks og er stuðbolti. Það er gaman að hafa hann í boðum, því hann er hrókur alls fagnaðar, kann skemmtilegar sögur og segir skemmtilega frá. Jafnframt er hann mjög ábyrgur og vill að maður hugsi vel um annað fólk. Það stafar örugg- lega af því að vera elstur fjögurra systkina og ég veit að hann var mjög ábyrgur stóri bróðir. Við tölum mikið um pólitík og þá sem hana stunda. Ættfræðin er aldrei langt undan og oft er það svo að áður en ég veit af er ég komin með 10 bæk- ur í fangið af því mér verður á að nefna einhvern á nafn og spyrja hvort hann kannast við viðkomandi. Ég ætla ekkert að forvitnast um ættina en það verður ekki umflúið og áður en yfir lýkur hef ég fræðst um og skoðað myndir af skyldfólki viðkomandi í all- ar áttir. Okkur systkinunum finnst þetta stundum í hlægilega miklum mæli. Föðurfólkið mitt er mikil skáta- fjölskylda. Skátar gera kröfur til sín, hafa ákveðin gildi í heiðri og taka þau alvarlega. Þessi hugsunarháttur hef- ur alltaf legið í loftinu í kringum pabba. Okkur systrunum var ekki endilega sagt mikið til þó að engin lausung væri í uppeldinu. Samt komu stundir þegar hann vildi nú svona leggja einhverjar línur en ég er ekki viss um að við höfum alltaf látið vel að stjórn. Reyndar held ég að við syst- urnar höfum verið alveg ferlegar. Þegar hann kom heim og byrjaði að segja okkur fyrir verkum gerðum við bara grín að honum. Hann greip það oftast á lofti enda mikill grínari og yf- irleitt endaði þetta allt saman í ein- hverri gleði. Auðvitað voru til und- antekningar og ég hef að sjálfsögðu nokkrum sinnum séð hann eins og þrumuský. Einu sinni málaði Gabríela systir háaloftið með heimatilbúinni málningu sem hún sullaði sjálf saman með hjálp góðs vinar. Þá urðu mikil læti. Vinur okkar þorði held ég ekki að láta sjá sig í margar vikur á eftir. Stjórnmálaáhugi minn er örugg- lega að einhverju leyti frá honum. Samt er ég ekki endilega með sömu áherslur og hann, enda er sveit- arstjórnarpólitíkin að vissu leyti frá- brugðin landspólitíkinni. Mér finnst hann hafa verið góður fjármálaráð- herra og haldið vel á spöðunum. Þeg- ar hann var yngri var hann sennilega þekktur fyrir að halda orðunum „Báknið burt“ á lofti og sömu viðhorf eru enn við lýði enda ekki vanþörf á.“ Vinnan hefur forgang „Pabbi vill að hlutirnir séu í lagi en tekur sjálfan sig ekki of alvarlega. Brosi einhver að hugmyndum hans eða tillögum er hann fljótur að sjá broslegu hliðarnar og gerir þá óspart grín að sjálfum sér. Ef ég á að gagnrýna eitthvað sem hann hefur gert þá fannst mér að hann hefði átt að taka fæðingarorlof þegar litla systir mín fæddist, en þá var hann ráðherra. Fyrir mér hefði það verið góð fyrirmynd að setja barnið og fjölskylduna í forgang. En þetta fannst honum ekki þá, þar sem það væri svo mikið að gera í vinnunni og mikilvæg verkefni biðu. Mér fannst mikilvægt að hann væri með konu sinni og nýfæddri dóttur en hon- um fannst mikilvægara að sinna starf- inu. Þarna endurspeglast kannski þessi gamaldags viðhorf um að maður nýti ekki tímann nægilega vel nema að vera á kafi í einhverjum vinnu- tengdum verkefnum. Reyndar verð ég samt að hrósa honum sérstaklega fyrir að vera duglegur að passa börn- in fyrir mig en það finnst honum ekk- ert mál. Sirrý Siska systir mín sem nú býr í Noregi var aðalbarnapía en í hennar fjarveru hefur pabbi alveg fyllt hennar skarð. Sem stjórnanda heyri ég mjög vel látið af honum. Á tímabili vorum við mikið í Hnífsdal og þá leysti hann stjórnandann í frystihúsinu hjá Jóa- kim móðurafa mínum af. Ég vann líka í frystihúsinu og þá sagði fólk við mig hvað því þætti gaman að fá hann. „Hann kemur og kjaftar við mann, vill vita hvað maður er að gera og svona,“ sagði það. En svona sam- skipti þóttu almennt ekki sjálfsögð hjá stjórnendum og voru það kannski ekki í þá daga. Pabbi hefur einlægan áhuga á að kynna sér það sem er að gerast í kringum hann og það hefur örugglega hjálpað honum í stjórnand- astarfinu. Pabbi er búinn að taka ákvörðun um að hætta að vinna í haust og var tilbúinn til þess síðast liðið haust en vinnan varð öllu öðru yfirsterkari þegar áfram var leitað eftir kröftum hans, þó golfið hafi örugglega kitlað mikið. Hann gerir þær kröfur til ann- arra að þeir standi við sitt og sýnir gott fordæmi með því að takast á við óvænta hluti. Það er ekki til í hans hugsun að ganga frá hálfköruðu verki eða hverfa frá einhverju sem hann telur að sé skylda sín að sinna.“ Keppnismaður „Undanfarin sumur höfum við veitt mikið saman. Hann er góður veiði- maður og hefur kennt mér mikið en systir Sigríðar Dúnu kenndi mér samt fyrstu skrefin. Hann skipulegg- ur veiðiferðina út í æsar, les ána og sendir mig til að skoða veiðistaðina. Hann kann á veðrið, skilur það og náttúruna. Hann á dagbækur frá því hann var krakki. Stórkostlega fyndnar. Hann og frænka Stella á Auðunarstöðum héldu dagbækur og þau skrifuðu samviskusamlega hvernig veðrið var á hverjum degi. Lengi var talið að hann yrði veðurfræðingur, því skyggni ágætt var hans ær og kýr. Þannig er það líka í veiðiferðunum. Við spilum bridds saman við sér- stakar aðstæður, til dæmis á jólum og á ferðalögum. Þá er mikil keppni og stundum held ég að erfitt sé að vera með honum í liði, því hann rífst mikið í makkernum. Ég held reyndar að það sé mikið í ættinni, því amma og afi voru svona. Mér finnst fyndnara að spila á móti honum. Þá hlæ ég meira en myndi örugglega rífast við hann ef við værum í sama liði. Þegar við spilum vill hann að fólk einbeiti sér að spilamennskunni og kvartar ef maður dirfist að tala við einhvern á meðan. Það á að einbeita sér að því sem verið er að gera hverju sinni.“ Skyggni ágætt Morgunblaðið/Ómar Hann er fæddur í Reykjavík 18. október 1943. Hann tók stúdentspróf frá MR 1963 og lögfræðipróf frá HÍ 1972. Hann var stundakennari við Hlíðaskóla 1963-1967, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1972-1978, fram- kvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Hnífsdals í sumar- afleysingum 1978-1986, alþingismaður 1978-1998, iðn- aðarráðherra 1987-1988 og fjár- málaráðherra 1991-1998. For- stjóri Landsvirkjunar frá 1999. Hann var formað- ur Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúd- FRIÐRIK SOPHUSSONÁSLAUG MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR Feðginin Áslaug María og Friðrik Sophusson eru lík í útliti, kaldhæðin og hafa svipuð áhugamál en annars nálgast þau gjarnan hlutina með misjöfnum hætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.