Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Mér fannst tilvalið að halda upp á níræð-isafmæli mitt á Íslandi með ferð um landiðfrekar en að halda fjölmenna veislu í Winni-peg og þess vegna kom ég hingað,“ segir Jó- hanna Skaptason Wilson frá Winnipeg í Kanada. Hún tek- ur þó forskot á sæluna því hún verður ekki níræð fyrr en 15. nóvember. Þetta er í 14. sinn sem Jóhanna kemur í heimsókn til Ís- lands, en hún kom hingað fyrst með Frank Wilson, eig- inmanni sínum, 1964. Að þessu sinni er Pamela Kristin Drawbridge, 16 ára barnabarnabarn hennar, með í för og hafa þær verið iðnar við að heimsækja ættingja og vini. „Þegar ég kom fyrst vorum við á leiðinni til meginlands Evrópu og ákváðum að heimsækja vinkonu okkar Gerði Jónasdóttur,“ segir Jóhanna. „Hún féll frá í fyrra en að þessu sinni höfum við meðal annars hitt Auði, systur hennar, sem er 96 ára. Fólkið á Íslandi er eftirminnilegast úr þessum ferðum. Það er ótrúlegt hvað það getur gert.“ Þriggja vikna veisla Jóhanna segir að veislan gæti ekki hafa verið betri. „Þetta var þriggja vikna veisla og nóg að gera á hverjum degi,“ segir hún. Í tengslum við Sól í hádegisstað, dagskrá um ævi og ritverk Elínborgar Lárusdóttur í Miðgarði í Skagafirði 19. júní sl., var haldið niðjamót til minnningar um Elínborgu og mættu Jóhanna og Pamela þangað. „El- ínborg var besta vinkona mömmu,“ segir Jóhanna til skýringar. Þær gistu tvær nætur á Hofsósi, þar sem Pa- mela sigldi út á fjörð til veiða, renndi fyrir fisk og fór á hestbak. Þær fóru til Akureyrar, óku suður Kjöl, fóru að Gullfossi og Geysi og skoðuðu sig um á Snæfellsnesi með hjónunum Sigrúnu Steingrímsdóttur og Baldvin Ein- arssyni en Sigrún kenndi íslensku við Manitobaháskóla í vetur og bjó hjá Jóhönnu. „Það er ótrúleg náttúrufegurð hérna og umhverfið allt öðru vísi en í Winnipeg, miklu hreinna,“ segir Pamela sem hefur meðal annars gengið á Esjuna í ferðinni. „Ég fór samt ekki alveg á toppinn en nógu hátt til að hafa gott útsýni.“ Vegna hátíðarhalda á Hofsósi fyrstu helgina í júní var rætt um að hafa beint leiguflug frá Winnipeg til Íslands. Jóhanna segist hafa verið spennt fyrir hugmyndinni, en þó hún hafi ekki gengið eftir hafi hún ekki hætt við Ís- landsferð. „Þegar Pamela varð 16 ára 6. febrúar síðast lið- inn spurði ég hana hvort hún vildi koma með mér til Ís- lands og ekki stóð á svarinu: „Það yrði gaman,“ svaraði hún. Við urðum hins vegar að bíða þar til hún losnaði úr skólanum.“ Viðhalda hefðinni Konurnar í fjölskyldunni hafa lagt áherslu á að fara með börnin og barnabörnin til Íslands. Jóhanna hefur til dæmis tvisvar heimsótt Ísland með Dyanne, dótturdóttur sinni og móður Pamelu. Jóhanna Guðrún Símonardóttir Skaptason, móðir Jó- hönnu og hálfsystir dr. Valtýs Guðmundssonar, fór með Joanne, dóttur Jóhönnu og ömmu Pamelu, til Íslands 1958. „Merk kona í heimsókn til Íslands“ var fyrirsögn Morgunblaðsins um heimsóknina, en Joanne varð eftir og stundaði nám við húsmæðraskólann á Laugalandi til jóla. Jóhanna Guðrún fæddist á Skógum rétt við Gimli, en for- eldrar hennar voru í fyrsta íslenska hópnum sem settist að á svæðinu 1875. Jóhanna er mikil atorkukona. Skömmu fyrir brottför frá Winnipeg handleggsbrotnaði hún en það breytti engu. „Það stoppar hana ekkert,“ segir Pamela og Jóhanna bætir við að hún sé ekki hætt að ferðast. „Pamela á yngri systur og hún þarf að koma til Íslands.“ Íslandsferð í stað 90 ára afmælisveislu Morgunblaðið/Eggert Vinskapur Jóna Valgerður Höskuldsdóttir sá um Jóhönnu Wilson og Pamelu Kristin Drawbridge sunnan heiða. Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Á grænni grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Hagkaup, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja- víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek Vesturlands, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Ekki gleyma að drekka Birkisafann frá Safinn er vatnslosandi Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Velkomin að skoða www.weleda.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.