Morgunblaðið - 19.07.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
ÚTSÖLULOK
Í DAG
19. JÚLÍ
Nýtt kortatímabil
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
GATNAMÓT Hringbrautar og
Njarðargötu hafa frá síðustu breyt-
ingu verið meðal hættulegustu
gatnamóta höfuðborgarsvæðsins.
Það eru einkum aftanákeyrslur og
árekstrar við vinstribeygju sem
valda tjónum og slysum. Til stend-
ur að auka öryggi vegfarenda með
því að setja sérstök ljós fyrir
vinstribeygju af Njarðargötu.
Það kemur fram í skýrslu Einars
Guðmundssonar, forstöðumanns
Forvarnahússins, um umferðarslys
á síðasta ári, að gatnamót Hring-
brautar og Njarðargötu eru dæmi
um breytingu sem ekki hefur skil-
að bættu umferðaröryggi. Um 50
þúsund bílar aka þarna um á sólar-
hring. Umferðarhraðinn er nokkuð
mikill, sérstaklega á umferð til
vesturs eftir Hringbraut. Um leið
og komið er undan brúnni yfir
Snorrabraut og Bústaðaveg víkkar
Hringbrautin og ökumenn stíga
þéttar á bensínið. Umferðarhraðinn
hefur aukist við þá breytingu. Þeg-
ar svo komið er að gatnamótunum
við Njarðargötu, vestan við bensín-
stöð N1, verða aftanákeyrslur þeg-
ar gult og rautt ljós birtist. Það er
mat Forvarnahússins að hraðinn
orsaki stóran hluta tjóna og slysa á
þessum gatnamótum.
Götuvitum breytt
Áformaðar eru lagfæringar á
götuvitunum á Hringbraut og
Njarðargötu, samkvæmt áætlun
Reykjavíkurborgar og Vegagerð-
arinnar um úrbætur á þjóðvegum í
Reykjavík. Í yfirliti samgöngusviðs
borgarinnar kemur fram að 73 um-
ferðaróhöpp urðu á þessum gatna-
mótum á tveggja og hálfs árs tíma-
bili á árunum 2005 til 2007, þar af
13 þar sem slys urðu á fólki.
Stefán Finnsson, yfirverkfræð-
ingur á samgönguskrifstofu
Reykjavíkurborgar, segir að í fyr-
irhuguðum breytingum verði sett
fjögurra fasa umferðarljós í stað
þriggja. Það þýðir að sérstök ljós
verða fyrir vinstribeygju af Njarð-
argötu inn á Hringbraut. Þeir sem
taka vinstribeygju inn á Hring-
brautina þurfa þá ekki lengur að
sæta lagi til að komast leiðar sinn-
ar vegna umferðar á móti. Vonast
er til að þetta auki öryggi vegfar-
enda.
Stefán segir fyrirhugað að setja
upp hraðamyndavélar austan við
brýrnar á Hringbraut við Snorra-
braut til að reyna að hægja á um-
ferðinni í hlykknum sem þar kem-
ur á götuna. Hraðakstur hefur
valdið alvarlegum slysum þar.
Spurður um ráð til að draga úr
hraðanum vestar á Hringbraut til
að minnka aftanákeyrslur við
Njarðargötu segir Stefán að eina
raunhæfa úrræðið sé að auka eft-
irlit, hvort sem það verði gert með
myndavélum eða af lögreglu. Hann
segir að ekki sé fyrirhugað að setja
hraðamyndavélar upp við þetta
svæði.
Morgunblaðið/Júlíus
Hættuleg gatnamót Mörg umferðaróhöpp hafa orðið á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu. Nýverið var bíl
ekið suður Njarðargötu inn í hlið sjúkrabíls sem var í forgangsakstri vestur Hringbraut, á leið í útkall.
Slysahætta úr öllum áttum
Ökuhraðinn á Hringbraut veldur mörgum aftanákeyrslum við Njarðargötu Beygjuljós í bígerð
fyrir vinstribeygju af Njarðargötu til að auka öryggi Fimmtíu þúsund bílar aka þarna um á dag
Í HNOTSKURN
»31 umferðaróhapp varð ágatnamótunum við Njarð-
argötu árin 2005-2007, þar af
8 minniháttar slys á fólki.
»Aftanákeyrslur voru 30 ásama tíma, þar af tvö slys.
»Yfir 80% kostnaðarins viðtjón á þessum gatnamótum
urðu vegna aftanákeyrslu og
vinstribeygju.
LAUGAVEGSHLAUPIÐ hófst
klukkan níu í gærmorgun við skála
Ferðafélags Íslands í Landmanna-
laugum í góðu hlaupaveðri. 322
hlauparar voru ræstir í lítilsháttar
golu og hlýju veðri undir hálfskýj-
uðum himni.
Metþátttaka var í ár en í fyrra
luku 215 hlaupinu. Hafði þátttakan
þá aldrei verið meiri. skulias@mbl.is
322 ræstir á Laugavegi
Ljósmynd/Margrét Hauksdóttir
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
RAGNA Árna-
dóttir dóms-
málaráðherra
lagði á föstudag
fyrir ríkisstjórn
frumvarp til
breytinga á lög-
um um dómstóla.
Frumvarpið fel-
ur í sér breytt
fyrirkomulag
héraðsdómstóla
þannig að aðeins verði einn héraðs-
dómur fyrir allt landið í stað átta
með landfræðilega afmörkuð um-
dæmi.
Dómstóllinn mun hafa starfs-
stöðvar víða um landið og er gert
ráð fyrir að dómarar geti starfað
hvar sem er á landinu burtséð frá
því hvar þeir hafi skrifstofu. Með
þessu verður hægt að beina kröft-
um dómara þangað sem þeirra er
helst þörf hverju sinni. Þetta ku
vera mikilvægt til að mæta því
aukna álagi á ákveðna héraðsdóm-
stóla sem kemur til með að fylgja
málum vegna efnahagshrunsins.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að dómstólaráð fái auknar skyldur
og hafi á hendi yfirstjórn allrar
stjórnsýslu, fjármála og málefna
starfsmanna við dómstólana, ann-
arra en dómara. Hafa þessi störf
hingað til verið á könnu hvers hér-
aðsdóms fyrir sig.
Með þessu mun vera unnt draga
úr kostnaði við dómstigið. Þá er
gert ráð fyrir að ráðið ákveði
starfsstöðvar héraðsdóms, hvar
dómarar starfa og skipti landinu í
lögsagnarumdæmi.Ragna Árnadóttir
Héraðsdómar sameinaðir
BERGUR Elías Ágústsson,
stjórnarformaður orkufyrirtæk-
isins Þeistareykja ehf. og sveit-
arstjóri Norðurþings, segir það
koma vel til greina að Orkuveita
Húsavíkur nýti sér forkaupsrétt á
hlut Norðurorku í Þeistareykjum.
Norðurorka hefur lýst vilja til að
selja þriðjungshlut sinn í félaginu
en jafnstóra hluti eiga Orkuveita
Húsavíkur og Landsvirkjun. For-
stjóri Geysis Green, Ásgeir Mar-
geirsson, útilokar heldur ekki að
félagið sýni hlut Norðurorku áhuga
en það mál sé þó ekki framarlega í
forgangsröðinni. | 20
OH íhugar að kaupa
hlut Norðurorku
VALUR Boga-
son, útibússtjóri
Hafrannsókna-
stofnunar í Vest-
mannaeyjum,
segir ljóst að
staða sandsíla á
Faxaflóa sé svip-
uð og í fyrra og
uppistaðan sé
tveggja ára síli.
Einnig hafi sést mikið af seiðum
frá í vor. „Aftur á móti sker
Breiðafjörðurinn sig úr, við höfum
ekki séð minna af sandsíli en í ár,“
segir Valur, sem var að ljúka á
föstudag síðari hluta rannsóknar á
sandsíli frá Ingólfshöfða til
Breiðafjarðar. Könnuð var staða
síla á Faxaflóa og Breiðafirði.
Fækkunin kemur Val á óvart en
hann leggur áherslu á að enn eigi
eftir að rannsaka málið til hlítar.
Von er á fréttatilkynningu um
málið frá Hafrannsóknastofnun á
næstunni. skulias@mbl.is
Hafa ekki séð færri
síli á Breiðafirði
Valur Bogason
NÍUNDA tilfelli
svínaflensunnar
var tilkynnt land-
lækni á föstudag.
Sá sem greindist
er þrítugur karl-
maður. Hann hef-
ur ekki verið er-
lendis nýlega og
tengist ekki öðr-
um greindum til-
fellum svo vitað
sé. Er hann ekki illa haldinn og á
batavegi.
Frá þessu greinir landlæknisemb-
ættið á heimasíðu sinni. Matthías
Halldórsson landlæknir segir það
koma á óvart að tilfellin séu ekki
orðin fleiri. Búast megi við fleiri til-
fellum á næstunni. skulias@mbl.is
Níunda íslenska
svínaflensutilfellið
Matthías
Halldórsson