Morgunblaðið - 19.07.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Í leiðara í dagblaðinu FinancialTimes á föstudag segir að helstu
ógnirnar, sem blasi við Íslendingum
á leiðinni í Evrópusambandið, séu
að umsóknin verði pólitískum
hrossakaupum og skrifræði að
bráð.
Ljóst sé að Ísland geti ekki fariðinn á undan Króatíu og nú
strandar mál
Króata á
landamæra-
deilu við Evr-
ópusambands-
ríkið Slóveníu.
Ýmis önnurríki eru á aðildarbuxunum, þar
á meðal Tyrkland
og Makedónía.
Tyrkir hafa mikið lagt á sig til aðuppfylla skilyrði um aðild, en
nokkur aðildarríki hafa sagt að þau
muni ekki samþykkja Tyrkland.
Í nokkuð kostulegri greiningu áviðskiptavef í Aserbaídsjan sagði
að 33 fulltrúar kaupskaparstefn-
unnar - merkantílistar - hefðu greitt
atkvæði með aðildarumsókn, en 28
víkingar fullir af frelsisást hefðu
greitt atkvæði gegn.
Inntaka Íslands, sem í raun færirEvrópu ekkert, samhliða neitun
til Tyrklands mundi þýða brot á
gildum, sem ESB hefur sett sér
sjálft, sérstaklega gildum jafnréttis,
umburðarlyndis og lýðræðis,“ segir
í greiningunni. „Í raun mun það
þýða að 70 milljóna manna ríki,
reyndar múslímskt, á minni rétt á
að verða hluti af ESB en kristin
eyja, sem er týnd í Atlantshafi.“
Vitaskuld er það alltaf áfall þegarútlendingar átta sig ekki á að
Ísland er upphaf og endir alls.
Umsókn Íslands snýst hins vegarekki bara um Ísland.
Kristin eyja, týnd í Atlantshafi
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 12 skýjað Lúxemborg 13 skýjað Algarve 19 heiðskírt
Bolungarvík 10 skýjað Brussel 14 léttskýjað Madríd 14 heiðskírt
Akureyri 7 alskýjað Dublin 11 skýjað Barcelona 18 heiðskírt
Egilsstaðir 5 alskýjað Glasgow 14 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 rigning London 15 léttskýjað Róm 24 léttskýjað
Nuuk 11 heiðskírt París 14 skýjað Aþena 28 heiðskírt
Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 15 súld Winnipeg 9 heiðskírt
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 15 skúrir Montreal 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 19 skýjað Berlín 15 skúrir New York 23 þoka
Stokkhólmur 20 heiðskírt Vín 18 léttskýjað Chicago 16 alskýjað
Helsinki 18 heiðskírt Moskva 18 þoka Orlando 27 heiðskírt
VEÐUR
19. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.28 3,1 9.45 1,0 16.06 3,5 22.33 0,9 3:55 23:14
ÍSAFJÖRÐUR 5.42 1,8 12.01 0,6 18.18 2,1 3:26 23:53
SIGLUFJÖRÐUR 1.46 0,4 8.15 1,1 14.01 0,5 20.25 1,3 3:08 23:37
DJÚPIVOGUR 0.29 1,6 6.37 0,7 13.15 2,0 19.38 0,7 3:16 22:52
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á mánudag
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast
á Vestfjörðum og við suðaust-
urströndina. Skýjað að mestu
en úrkomulítið, en léttskýjað
suðvestantil. Hiti 15 til 22 stig
SV-lands, en annars 8 til 15.
Á þriðjudag og miðvikudag
Norðaustanátt, víða 5-8 m/s.
Dálítil súld eða rigning með
köflum um norðan- og aust-
anvert landið en annars yfirleitt
þurrt og bjart. Hiti 5 til 16 stig,
hlýjast suðvestanlands.
Á fimmtudag og föstudag
Útlit fyrir áframhaldandi norð-
læga átt. Þungbúið og svalt fyr-
ir norðan og austan, en mildara
og bjart með köflum sunn-
anlands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustanátt, víða 3-10 m/s.
Skýjað austanlands og við
norðurströndina, annars bjart
veður. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast
suðvestantil.
FÁIR eru sennilega betur að sér í fræðum austur-
þýsku leyniþjónustunnar STASI en Svavar Gestsson
stúdent, fyrrum námsmaður í Austur-Þýskalandi.
Síðan Svavar var stúdent í Þýskalandi kommúnism-
ans hefur hann að vísu gegnt mörgum störfum, eins
og því að vera ritstjóri Þjóðviljans, málgagns Al-
þýðubandalagsins sáluga, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins, formaður Alþýðubandalagsins, ráð-
herra Alþýðubandalagsins og sendiherra Íslands, fyrst
í Svíþjóð, svo í Danmörku.
Toppnum náði svo stúdentinn frá Austur-Þýska-
landi, þegar eitt hans aðalegg gerði hann, hænuna, að
formanni samninganefndar Íslands í því mikla hagsmunamáli Íslendinga, Ice-
save-deilunni. Vitanlega er eggið Steingrímur J. Sigfússon, arftaki Svavars í
vinstri pólitík á Íslandi og hugmyndafræðilega af sama meiði og guðfaðir hans í
pólitík, Svavar Gestsson.
Svavar óð fram í morgunfréttum RÚV síðasta þriðjudag, engu búinn að
gleyma af STASI-fræðum sínum, og sakaði embættismenn Seðlabank-
ans um að vera „komin í pólitískan málflutning.“
Lögfræðingarnir, þau Sigríður Logadóttir, aðallög-
fræðingur Seðlabanka Íslands, og Sigurður Thorodd-
sen, höfðu gert utanríkismálanefnd munnlega grein
fyrir mati lögfræðideildar Seðlabankans á Icesave-
samningunum og afhent minnisblað í kjölfarið. Árétt-
að var í tölvupósti til formanns utanríkismálanefndar,
að um minnisblað væri að ræða. Endanlegt álit yrði
hluti af heildarskýrslu Seðlabankans sem kynnt
yrði á miðvikudag.
Annar „vel upp alinn“ arftaki á vinstri vængn-
um, Árni Þór Sigurðsson, formaður utanrík-
ismálanefndar Alþingis, var ekki seinn á sér að
fara í skítug skóför Svavars Gestssonar, því hálf-
tíma eftir skítafýlubombu Svavars á embætt-
ismenn Seðlabankans var skósveinninn mættur
á morgunvakt Rásar 2, þar sem hann sagði að
álit lögfræðinganna hefði ekki verið formleg
skoðun Seðlabankans og því marklaust.
„Það dregur verulega úr trúverðugleika álits-
ins, ef það er ekki unnið fyrir hönd stofnunar,
heldur aðeins persónulegt álit viðkomandi starfs-
manns,“ sagði Árni Þór orðrétt! Hélt svo áfram:
„Það er einfaldlega verið að blekkja þingnefnd-
irnar með þessum hætti. Ég velti fyrir mér hvort
menn séu þarna á einhverju einkatrippi. Mér virð-
ist sem viðkomandi starfsmaður sé enn að vinna fyr-
ir Davíð Oddsson.“
Árni Þór var á þriðjudag krafinn þess á Alþingi að
hann bæði lögfræðingana afsökunar á ummælum
sínum, en hann var vitaskuld ekki maður til þess.
Því var þess beðið með nokkurri eftirvæntingu
á miðvikudag, að skýrsla Seðlabankans og
þar með talið hinn lögfræðilegi hluti hennar
yrði opinbert plagg. Svein Harald Øygard seðla-
bankastjóri og lögfræðingar bankans sem unnu minn-
isblað sem lagt var fram á fundi utanríkismálanefndar
vísuðu á blaðamannafundi í hádeginu á miðvikudag
ásökunum Árna Þórs Sigurðssonar um að lögfræð-
ingarnir hafi villt á sér heimildir algjörlega á bug.
Øygard sagði það einfaldlega tímasóun að ræða mál
af þessu tagi.
Þar með voru formaður samninganefndar Íslands um
Icesave og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, þeir
Svavar Gestsson og Árni Þór Sigurðsson, ómerkir orða
sinna. Árni Þór sagði að þessu tilefni í Morgunblaðinu á
fimmtudag að teldu lögfræðingar Seðlabankans að hann hafi vegið að starfs-
heiðri þeirra, bæðist hann afsökunar. Hann teldi þó að hann hafi ekki vegið að
honum! Gerist hún öllu aumari afsökunarbeiðnin?!
Það verður ekki annað séð en heimilisböl hins örþreytta Steingríms J. Sigfús-
sonar, fjármálaráðherra og formanns Vinstri grænna, vaxi frá degi til dags.
Hann er „bombarderaður“ af sínum flokksmönnum úr eigin heimabyggð, þar
sem hollustan við hann hefur hingað til náð út fyrir gröf og dauða. Er það
einhver furða að hann sé bæði þreyttur og niðurlútur?
Hann hefur þetta allt saman einn í fanginu og nú er
hann að reyna að reisa sér „pólitískan bautastein“
sem felst í því að sannfæra þjóðina um að hún
verði að kokgleypa hinn hroðalega vonda Ice-
save-samning, sem pólitískur guðfaðir hans
álpaðist, af stöku þekkingar- og reynsluleysi, til
þess að samþykkja og telja fínan samning.
Hann situr uppi með það að hafa gengið til
kosninga með þá yfirlýstu stefnu VG að leið-
arljósi að hafna inngöngu í ESB; hann situr uppi
með það að hafa gengið til kosninga með þá yf-
irlýstu stefnu VG að hafna frekari virkjana-
framkvæmdum og álverum; hann situr uppi með
það að hafa sagt fyrir jól að við skyldum aldrei
borga Icesave-skuldbindingar einkabankans,
Landsbankans, og hann situr uppi með það að VG
höfðu þá yfirlýstu stefnu að engar uppsagnir yrðu í
ríkisgeiranum. Nema hvað? Formaður BSRB er
enn bara í leyfi sem slíkur, en hann heitir Ög-
mundur Jónasson og er heilbrigðisráðherra.
Steingrímur J. blessaður er því á útopnu
frá því eldsnemma á morgnana þar til hann
dettur út af seint, seint á kvöldin, að hrinda
í framkvæmd öllum þeim málum sem VG
ætluðu að berjast gegn, fyrir kosningar.
Nú vantar bara að hann bíti höfuðið af
skömminni og leggi til við utanríkis-
ráðherra og fyrrum flokksbróður sinn
og Svavars, að hann geri Svavar nokk-
urn Gestsson að formanni samninga-
nefndar í aðildarviðræðum við ESB!
agnes@mbl.is
Agnes segir …
Sva-var og er – sáraeinfalt!
Svein Harald Øygard Árni Þór Sigurðsson
Svavar Gestsson Steingrímur J. Sigfússon
HS Veitur hf Brekkustíg 36 260 Reykjanesbæ
Sími 4225200 www.hs.is hs@hs.is
KÖRFUBÍLL TIL SÖLU – TILBOÐ ÓSKAST
HS Veitur hf óska eftir tilboðum í Mercedes Benz körfubíl
með Ruthmann körfubúnaði. Bifreiðin er árgerð 1988, ekinn
um 140.000 km og selst í núverandi ástandi.
Bifreiðin er staðsett í Reykjanesbæ og þeir sem hafa áhuga
á að skoða hana geta haft samband við Geir Sigurðsson í
síma: 860 5260.
Fyrirliggjandi eru nýjar skoðunarskýrslur frá Bílaumboðinu
Öskju hf og Vinnueftirlitinu og er unnt að nálgast þær hjá
Geir.
Tilboð skal senda undirrituðum eigi síðar en þriðjudaginn
28. júlí 2009 kl. 16.00. Tilboð má senda í tölvupósti.
HS Veitur hf áskilja sér rétt til þess að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
HS Veitur hf
Guðmundur Björnsson, innkaupastjóri
Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ
Sími: 422 5200
Netfang: gudmund@hs.is