Morgunblaðið - 19.07.2009, Blaðsíða 15
varamaður hér en byrjunarliðs-
maður annars staðar.“
Orðsporið jók ekki á framann
Þrátt fyrir afrek sín er Solskjær
ekki hinn upprunalegi „Super-sub“.
Þann titil bar David Fairclough,
miðherji Liverpool, fyrstur manna
á ofanverðum áttunda áratugnum.
Fairclough sló í gegn strax á sínu
fyrsta tímabili á Anfield og skoraði
sjö mörk í fjórtán leikjum, þar af
kom hann níu sinnum inn á sem
varamaður.
Hann hélt uppteknum hætti
næstu árin og gerði 55 mörk í 153
leikjum fyrir Rauða herinn áður en
hann hvarf á braut árið 1983.
Seint verður þó sagt að Fairclo-
ugh hafi tekið hlutskipti sínu með
sama jafnaðargeði og Solskjær.
„Orðsporið jók ekki á frama minn,“
útskýrði hann síðar. „Í dag er litið á
varamenn sem ferskfætlur sem
skipta sköpum í leikjum. Á minni
tíð þýddi það að sitja á bekknum
einfaldlega að maður var ekki nægi-
lega góður til að komast í liðið.“
Þarna hittir Fairclough naglann
á höfuðið. Með tilkomu fleiri vara-
manna hafa sterkustu félögin
stækkað leikmannahópa sína jafnt
og þétt og ekki er óalgengt að fjöldi
landsliðsmanna komist ekki í byrj-
unarliðið hverju sinni. Þjálfarar eru
taktískari en áður og nota skipt-
ingar óspart. Í dag er engin nið-
urlæging í því fólgin að sitja á tré-
verkinu hjá Manchester United eða
Barcelona.
Entist í 180 sekúndur
Hér hefur verið einblínt á vel-
heppnaðar skiptingar. Eins og gef-
ur að skilja tekst þjálfurnum ekki
alltaf jafn vel upp þegar þeir senda
nýja menn á vettvang. Það var til
að mynda stutt gaman hjá Bólivíu-
manninum Marco Etcheverry í leik
gegn Þjóðverjum á HM í Banda-
ríkjunum 1994. 180 sekúndum eftir
að hann hafði komið inn á var hon-
um vísað af velli fyrir gróft brot. Af
hverju ætli Etcheverry hafi hlotið
viðurnefnið El Diablo eða Kölski?
Terry Neill, stjóri Arsenal, fékk
líka klums undir lok úrslitaleiksins
um enska bikarinn 1979. Fimm
mínútum eftir að hann hafði skipt
David Price út fyrir Steve Walford
í stöðunni 2:0 hafði Manchester
United jafnað. Arsenal brá sér hins
vegar beint í sókn og Alan Sunder-
land gerði út um leikinn. Enginn
fagnaði því marki jafn innilega og
Walford.
Enginn knattspyrnumaður gleðst
þegar hann er tekinn af velli – og á
ekki að gera það. Menn verða þó að
sýna þjálfara, stuðningsmönnum og
síðast en ekki síst varamanninum
tilhlýðilega virðingu.
Þannig vakti það heimsathygli
þegar Cristiano Ronaldo varð
ókvæða við þegar honum var skipt
út af í leik með Manchester United
gegn Manchester City undir vorið.
Ýmsir lásu í líkamstjáningu hans
þann dag og hugsuðu með sér:
„Þessi maður er á förum.“
Ein æsilegasta skipting sögunnar
fór fram í undanúrslitaleik Egypta
og Senegala á Afríkumóti landsliða
2006. Þögn sló á viðstadda þegar
Hassan Shehata þjálfari kallaði
sjálfa þjóðhetjuna Mido óvænt af
velli meðan staðan var jöfn seint í
leiknum. Samþykkti miðherjinn
með semingi að koma út af en hellti
sér yfir aumingja Shehata. Meðan
þeir félagar hnakkrifust á hliðarlín-
unni – svo ganga þurfti á milli – reif
varamaður Midos, Amr Zaki, sig
upp í teignum og skoraði sigurmark
Egypta. Við það lækkaði rostinn í
Mido en egypska knattspyrnu-
sambandið dæmdi hann eigi að síð-
ur í sex mánaða keppnisbann.
nnar
Böðull Ole Gunnar Solskjær kremur hjörtu Bæjara árið 1999. Teddy
Sheringham tyllir sér á tá.
Teiknimyndir 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
fyrr en 49 árum síðar. Horst Eckel er alltént fyrsti
löglegi varamaðurinn í knattspyrnuleik.
Bara ef maður meiddist
Englendingar eru íhaldssamir eins og við þekkjum
og leyfðu ekki varamenn fyrr en leiktíðina 1965-66.
Fyrstu tvö árin mátti heldur ekki skipta um
leikmann nema meiðsli kæmu upp. Frá og
með tímabilinu 1967-68 hefur hins vegar
mátt gera það á taktískum forsendum.
Fyrsti varamaðurinn í ensku knattspyrn-
unni var Keith Peacock sem kom inn á í lið
Charlton Athletic fyrir Mike Rose markvörð
eftir ellefu mínútur í leik gegn Bolton
Wanderers 21. ágúst 1965.
Peacock lék allan sinn feril með Charlton
og margir muna eftir syni hans, Gavin, sem
lék m.a. með Chelsea og Queen’s Park
Rangers.
Í rúma tvo áratugi var liðum aðeins heim-
ilt að tefla fram einum varamanni í ensku
knattspyrnunni, sem einatt klæddist treyju
númer tólf. Árið 1987 var varamönnum
fjölgað í tvo. Fljótlega eftir það varð einnig leyfilegt
að hafa varamarkvörð til taks á bekknum og 1996
var varamönnum fjölgað í fimm. Enska deildakeppn-
in varð í fyrra með þeim síðustu til að heimila sjö
varamenn. Svo sem kunnugt er má þó aðeins nota
þrjá þeirra hverju sinni.
‘‘ÁRATUGUM SAMANVAR ÓHEIMILT AÐSKIPTA MÖNNUM INNÁ Í KAPPLEIKJUM,
GILTI ÞÁ EINU HVORT
MEIÐSLI KOMU UPP
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Í yfir þrjátíu ár stóð yfir baráttatveggja afla, stanslaus og þrá-hyggjukennt valdatafl án sig-urvegara, því orrustur voru
unnar reglulega en stríðið var aldrei
unnið. Baráttan var kómísk útgáfa
af kalda stríðinu enda voru það
svarti njósnarinn og hvíti njósnarinn
sem börðust í seríunni Spy vs Spy,
gerðir út af sendiráðum starfandi
undir stefnu heimsyfirráða.
Teiknimyndaserían á rætur sínar
að rekja til kúbanska flóttamannsins
Antonio Prohías sem flúði til Banda-
ríkjanna en Prohías var orðinn
landsþekktur á Kúbu fyrir pólitískar
teiknimyndir sínar sem birtar voru í
kúbanska blaðinu El Mundo. Árið
1960 tók stjórn Fidels Castro yfir
ritstjórn El Mundo og þá flúði
Prohías til New York. Í New York
þróaði Prohías Spy vs Spy og var
hinni orðlausu teiknimyndaseríu
ætlað að vera ádeila á vopnakapp-
hlaup kalda stríðsins alveg frá því
hún birtist fyrst 1961. Teiknimynda-
serían náði strax mikilli útbreiðslu í
hinu truflaða tímariti MAD sem
framan af var góð söluvara á Íslandi
og fannst á flestum íslenskum heim-
ilum langt fram á níunda áratuginn.
Endurtekur sagan sig?
Þrátt fyrir að kalda stríðið hafi
fyrir löngu vikið fyrir dópstríði,
hryðjuverkastríði og menningar-
legum átökum þá eru Spy vs Spy
ennþá í fullu fjöri og leggja þeir
gildrur hvor fyrir annan sem aldrei
fyrr.
Það skyldi þó samt ekki vera að
Spy vs Spy fái gamla hlutverkið sitt
á ný? Einhverjum væri fyrirgefið að
draga þá ályktun enda hefur tor-
tryggni á milli stórvelda aukist mik-
ið eftir frostavetur í hagkerfi heims-
ins.
Breska leyniþjónustan MI5 hefur
þannig beðið um aukið rekstrarfé til
að fylgjast með Rússum og Kínverj-
um og Rússar leka eftirlitsmyndum
af breskum diplómötum í fjölmiðla
eins og James Hudson, sendiráðs-
maður í Moskvu, fékk að reyna á
dögunum eftir að hann var mynd-
aður í félagsskap vændiskvenna.
Það er því enn líf í njósnaþjón-
ustum austurs og vesturs og kannski
meira líf en margur kynni að halda.
Ástæðan gæti verið sáraeinföld. Í
staðinn fyrir vopnakapphlaupið í
kalda stríðinu er annars konar kapp-
hlaup hafið sem er viðskiptalegs eðl-
is. Rússarnir hafa fullreynt vopna-
kapphlaupið og tapað, það er því
spurning hvort viðkvæðið nú sé ein-
faldlega „banks not tanks“ eða bank-
ar í stað skriðdreka.
Ef svo er munu Spy vs Spy lifa
áfram enn um sinn þó óvíst sé að
þeir sjálfir muni grípa til efnahags-
legra aðgerða fremur en vopna eins
og venjan er í teiknimyndaseríunni
kaldhæðnu. Gildrur munu því verða
lagðar enn um sinn, bæði í teikni-
myndaseríunni og á vettvangi al-
þjóðaviðskipta og stjórnmála.
Gumað að gildrum
Glúrnir Njósnararnir tveir í Spy vs Spy, eða njósnari á móti njósnara, eru úrráðagóðir eins og alvöru njósnarar þó
þeir séu bara peð í valdatafli og geti í raun ekki unnið stríðið.