Morgunblaðið - 19.07.2009, Side 16
16 Kvikmyndir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
allskonar textatengsl. Þá eru Lu-
cas og Spielberg mennirnir á bak
við Star Wars og Indiana Jones og
þeir vinna mjög náið saman. Þetta
er eitthvað sem við skoðum tölu-
vert. Það sem ég var að einbeita
mér sérstaklega að í ritgerðinni
minni, var hinsvegar að skoða
hugmyndafræði kvikmynda og ég
tók fyrir Hayes-kóðann og hvernig
hann hafði áhrif á hugmyndafræði
Hollywood-mynda.
Hayes-kóðinn var settur á 1930
og í raun hertur 1934 og hann
stuðlaði að ákveðinni kapitalískri
sýn sem átti að koma fram í Holly-
wood-myndum. Þetta voru reglur
og viðmið sem voru sett fram og
giltu um allar kvikmyndir sem
voru gefnar út.
Þessi kóði virkaði sem miðstýr-
ing á kvikmyndagerð og hafði mik-
il áhrif á hugmyndafræðina að
baki þeim. Mér finnst eitt
skemmtilegasta dæmið hvernig
snúið var út úr leikritinu Idiot’s
Delight frá 1936 sem var ádeila á
Ítalíu fasismans. Leikritið segir
frá því hvernig vopnasölumenn
geta haft áhrif á stríðsrekstur.
Leikritið var gríðarlega vinsælt og
var keypt af MGM í Hollywood
sem skrifaði nýtt handrit sem svo
var sent til Hayes-stofunnar en
þar var því hafnað. MGM hringdi
því í ítalska ræðismanninn í
Hollywood til að fá hann sem ráð-
gjafa. Því var einnig hafnað á
þeirri forsendu að Ítalir gætu
móðgast. Þremur árum síðar
kemur kvikmyndin út og þá kom í
ljós að Mussolini var látinn sam-
þykkja handritið sem þá var bara
orðið ástarsaga pars, sem leikið
var af Clark Gable og Normu
Shearer. Kvikmyndin gerðist ekki
einu sinni lengur í Ítalíu og
leikararnir töluðu esper-
anto.“
Áhugavert nám
Gunnar segir að þeir
sem hafi veg og vanda
af kvikmyndafræð-
inni í háskólanum
séu Björn Ægir
Norðfjörð sem út-
skrifaðist sem
doktor frá Illinois-
háskóla og Guðni
Elísson.
Námið er fjöl-
breytt að sögn Gunn-
ars. „Það er meðal
annars farið vítt og
breitt um sögu kvik-
myndanna, allskonar
stefnur og straumar út-
skýrðir, eitthvað farið í
sígildar Hollywood-
kvikmyndir, japanskar
kvikmyndir, film noir,
hryllingsmyndir og allskonar
þjóðarkvikmyndir. Það sem ég hef
hinsvegar rosalega gaman af eru
þýskar kvikmyndir á milli 1919 og
1933. Það er svona mitt uppáhald.
Expressjónisminn sérstaklega,
myndir á borð við Metropolis og
M eftir Fritz Lang. Það er reynd-
ar mjög áhugavert að skoða
myndir Tims Burtons og þessa
áratugar því þeim svipar mjög til
þessara þýsku í stíl.“
Gunnar segir að víða sé hægt
að sjá vensl í kvikmyndum. T.d.
noti George Lucas samskonar
myndskeið í Star Wars-myndum
og Leni Riefenstahl notaði þar
sem hópsenur nasista eru í raun
endurnýttar í hópsenur sem sýna
heri keisarans í stjörnustríði.
Einnig er atriði í Sigri viljans
mjög keimlíkt lokaatriðinu í Nýrri
von, fyrstu Star Wars-myndinni.
Fyrir áhugasama er því mun
meira að baki því sem sést á tjald-
inu en bara myndskeið og texti og
því fær kvikmyndin alveg nýja
merkingu þegar þessi þekking er
fengin.
Gunnar segist hafa haft áhuga á
kvikmyndum áður en hann fór í
áfangann í MR. „Ég var sér í lagi
hrifinn af Kevin Smith, svona
ungur og tiltölulega óháður kvik-
myndagerðarmaður sem gerði
Clerks og Mallrats. Ég horfði líka
voðalega mikið á vídeósafn bróður
míns og eyddi mörgum kvöldum í
að horfa á myndir með vinum
mínum.“
Gunnar heldur áfram í meist-
aranám í vetur og mun taka
áfanga í Þýskalandi í Johannes
Gutenberg-háskólanum í Mainz á
vegum Erasmus-skiptinámsins.
Hann gerir ráð fyrir að halda
áfram að skoða hugmyndafræði
og ritskoðun í kvikmyndum. „Það
væri gaman að koma á markvissri
kennslu í kvikmyndafræði fyrir
yngri nemendur. Kvikmynd er
ótrúlega þægileg og hrein
skemmtun sem segir manni samt
svo margt. Ég myndi líka kjósa að
vinna við einhvers konar kvik-
myndaumfjöllun í fjölmiðlum og
hef meðal annars verið að vinna
fyrir Kviku hjá RÚV, en annars
læt ég það bara ráðast og ímynda
mér að ég fái nóg að gera enda er
þetta frábært fag.“
Morgunblaðið/Heiddi
Fróður Gunnar Tómas er nýútskrifaður úr
kvikmyndafræði í Háskóla Íslands og hyggur á
frekara nám í fræðunum enda um sérlega
heillandi heim að ræða.
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
K
vikmyndaáhugi þjóð-
arinnar hefur lengi vel
verið mikill enda blóm-
leg kvikmyndagerð í
landinu og löng hefð
fyrir því að sækja kvikmyndahús.
Reykjavíkur Biograftheater sýndi
reglulega kvikmyndir upp úr 1906
og var nafninu breytt í Gamla bíó
sem starfaði í því húsi þar sem nú
er Íslenska óperan frá 1927. Nýja
bíó var svo stofnað 1912 og starf-
aði það einnig lengi. Á
Íslandi hefur fjöldi kvik-
myndahúsa verið starf-
ræktur í gegnum tíðina
og voru sum þeirra
þekkt fyrir að leggja
áherslu á mismunandi
geira kvikmynda-
heimsins.
Víðtæk vensl
Gunnar Tómas Krist-
ófersson er eins og svo margir
landar hans heillaður af hvíta
tjaldinu en hann mun hafa verið
fyrstur til að ljúka BA-prófi í kvik-
myndafræði frá Háskóla Íslands í
vor. Lokaritgerð hans fjallaði um
iðnvædda hugmyndafræði í klass-
ískum Hollywood-kvikmyndum.
Hægt er að taka námið sem
aðalfag til 120 eininga en einnig er
hægt að taka bókmenntafræði með
sem er nokkuð vinsæl blanda, eða
hafa kvikmyndafræðina sem auka-
fag.
Áhugi Gunnars kviknaði hins-
vegar á lokaári í MR en þar var
áfangi um kvikmyndagerð sem
Einar Árnason kvikmyndatöku-
maður sá um. „Ég slysaðist inn í
þennan áfanga og hann opnaði
þennan heim kvikmynda fyrir mér
og því að það lægi eitthvað á bak
við allt sem væri sagt og gert í
þessum miðli sem væri mikilvægt
að skilja,“ segir Gunnar og nefnir
sem dæmi eina sögu: „Í kvikmynd-
inni Chinatown segir Einar t.d. frá
annarri mögulegri merkingu
myndarinnar þar sem illmennið í
kvikmyndinni er í rauninni að
reyna að klóna sig. Hann vilji því
sænga hjá barni sínu og barna-
barni til að klóna sjálfan sig í ein-
hverju mikilmennskubrjálæði.
Þegar hann benti á þetta fannst
mér mjög merkilegt hvernig hægt
væri að túlka myndina á annan
hátt og sjá allskonar hluti á bak
við það sem var í raun verið að
segja.“
Gunnar segir einnig að bók-
menntafræðin geti verið hagnýt
hvað kvikmyndafræði varðar enda
talsverð vensl á milli fræðanna.
Mikið er um tilvísanir á milli mis-
munandi miðla og eins innan miðla
í tímarúmi.
Ritskoðun og miðstýring
Þekkt er dæmi úr Star Wars-
kvikmyndinni frá 1977 þar sem
Han Solo hleypur á eftir fáeinum
stormsveitarmönnum keisarans
aðeins til þess að hlaupa fyrir horn
og sjá að þeir eru fleiri en hann.
Han Solo hleypur því til baka með
stormsveitarmennina á hælunum
og hefur ítrekað verið vísað í at-
riðið í kvikmyndum síðan, meðal
annars í Indiana Jones and the
Temple of Doom.
„Það er farið að einhverju leyti í
Gunnar Tómas Krist-
ófersson segir kvikmynd-
ir geyma ýmsan dulin
boðskap sem opnar
manni nýjan heim þegar
skilaboðin eru ráðin.
Margræðni myndanna
Í fyrstu Star Wars kvikmyndinni frá 1977 eru atriði sem eiga ættir sínar
að rekja til áróðursmynda Leni Riefenstahl. George Lucas leikstjóri not-
aði myndskeið sem minntu mikið á samkomur nasista í seinni heimstyrj-
öldinni í atriði þar sem herafli hins illa keisara kemur fyrir. Þá er loka-
atriðið þar sem hetjurnar fá heiðursmerki frá Leiu prinsessu undir
miklum þýskum áhrifum.
Keimlíkt Lokaatriði úr Star Wars, A New Hope.
Uppruni Atriði úr Sigri viljans eftir Leni Riefenstahl.
ÁHRIF FRÁ RIEFENSTAHL
‘‘HAYES KÓÐINN FRÁ1930 VIRKAÐI SEM MIÐ-STÝRING Á KVIKMYNDA-GERÐ OG HAFÐI MIKIL
ÁHRIF Á HUGMYNDA-
FRÆÐINA AÐ BAKI
ÞEIM.
TIL DÆMIS SNÉRIST
LEIKRITIÐ IDIOT’S DE-
LIGHT ÚR ÁDEILU Í ÁST-
ARSÖGU EFTIR BEIT-
INGU HAYES KÓÐANS.