Morgunblaðið - 19.07.2009, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Margir muna eftir atriðinu úr The
Empire Strikes Back þar sem Han
Solo er frystur í karbónat. Atriðið var
afar áhrifaríkt á sínum tíma og virðist
auglýsingin fyrir kvikmyndina Capti-
vity með Elishu Cuthbert ætla að
sækja í smiðju George Lucas hvað
þetta varðar.
Frystur Han Solo var svikin í hendur
óvina í Star Wars kvikmyndinni The
Empire Strikes Back, frystur og
gefin Jabba the Hutt til varðveislu.
Ungum aðdáendum Star Wars þótti
atriðið sérlega ógnvekjandi.
Óhuggulegt Í auglýsinga-
spjaldi fyrir kvikmyndina
Captivity er Elisha Cuthbert
tengd við karbónat frystingu
Han Solo.
ÁHRIFARÍKT
Friedrich Anton Christian Lang
gerði afar áhrifaríkar myndir
eins og Metropolis og M í
Þýskalandi áður en hann fluttist
til Bandaríkjanna. Áhrifa hans
gætir víða t.d. í kvikmyndunum
Blade Runner og Batman, sem
leikstýrt var af Tim Burton.
Uppruni Metropolis eftir Fritz Lang hefur verið mörgum innblástur.
Framtíð Borgarlandslagið í Blade
Runner minnir mikið á Metropolis.
FRAMTÍÐARSÝN
FRITZ LANG
Það er vafamál hvort fleiri muna eftir kvikmynd Brian De Palma The
Untouchables eða meistaraverki Sergei Eisensteins The Battleship Po-
temkin. Margir vita þó að hið fræga tröppuatriði í mynd De Palma þar
sem lokauppgjörið fer fram á móti mönnum Al Capone er fengið úr kvik-
mynd Eisensteins. Í kvikmynd Eisensteins er um að ræða átakamikið at-
riði þegar hermenn gera árás á fólk í tröppum í Odessa og fjöldi manns
fellur í valinn. Í De Palma kvikmyndinni eru það tröppur á járnbrautarstöð
í Chigaco sem verða vettvangur uppgjörsins milli hinna ósnertanlegu og
glæpamannanna.
POTEMKIN EISENSTEINS
Eftirgerð Kvikmynd Brian De Palma um hina ósnertanlegu nýtir sér
hið magnaða atriði frá Eisenstein.
Frumgerð Þekkt atriði úr kvikmynd Eisensteins um beitiskipið Potemkin.
„Hann er með hárkollur sem eru
eldri en hún,“ upplýsti uppistand-
arinn og grínistinn Jackie Mason og
uppskar skellihlátur frá áhorf-
endum. Brandarinn og fleiri í svip-
uðum dúr úr smiðju Masons snerust
um hjónaband söngvarans og leik-
arans Franks Sinatra, sem hafði
gengið að eiga kornunga og lítt
þekkta leikkonu, Miu Farrow, í Los
Angeles 19. júlí 1966.
Brúðguminn brást hinn versti við
og uppástóð Mason að hann hefði
staðið að baki nafnlausum hótunar-
bréfum, sem honum bárust í kjölfar-
ið. Vegna meintra tengsla Sinatra
við mafíuna, þótti heldur ekki loku
fyrir það skotið að hann hefði lagt á
ráðin um skotárás á Mason í hót-
elherbergi í Los Angeles í nóvember
sama ár. Hann slapp með skrekkinn,
en þrjú skot lentu á stól sem hann
var nýstiginn uppúr.
Mikill aldursmunur
Hvort sem Sinatra var með eigið
hár eða hárkollu, blasti við að hann
leit frekar út eins og afi brúðarinnar
en eiginmaður. Hann var að verða
fimmtíu og eins árs, þrjátíu árum
eldri en brúðurin, sem þar að auki
var ákaflega barnaleg útlits, grönn
eins og fermingarstrákur og með
drengjakoll. Algjör andstæða eig-
inkonu Sinatra númer tvö, hinnar ít-
urvöxnu og íðilfögru Övu Gardner,
sem var eitt helsta kyntákn hvíta
tjaldsins á fimmta og sjötta áratugn-
um. Þau skildu 1957 eftir sex ára
stormasamt hjónaband.
Ólíkara par en þau Sinatra og
Farrow var vandfundið. Hann hafði
að mörgu leyti vafasamt orð á sér,
ekki síst í kvennamálum. Hún virtist
sakleysið uppmálað. Hann var löngu
orðinn heimsfrægur skemmtikraftur
og kom jöfnum höndum fram einn
síns liðs eða með félögum sínum í
The Rat Pack, Rottugenginu, eins
og hópurinn, sem samanstóð auk
hans af þeim Dean Martin, Sammy
Davis Jr., Peter Lawford og Joey
Bishop, var kallaður. Þeir voru allir
annálaðir kvennabósar. Hún var
einkum þekkt fyrir að vera dóttir
leikkonunnar Maureen O’Sullivan
og leikstjórans Johns Farrows og
leik sinn í Payton Place, vinsælli
sjónvarpssápuseríu.
Frægð hennar og leið hans
Eftir brúðkaupið sagði Farrow
skilið við félaga sína í sápunni að
áeggjan eiginmannsins og landaði
sínu fyrsta aðalhlutverki í mynd
Romans Polanskis, Rosemary’s
Baby (1968), sem fékk feikigóða
dóma og er talin til sígildra verka
kvikmyndasögunnar. Mia Farrow
varð því ekki aðeins heimsfræg fyrir
að giftast Frank Sinatra, heldur líka
vegna eigin verðleika.
Brúðkaupið vakti að vonum mikla
athygli og þótti mörgum það dæmt
til að bresta, einkum vegna aldurs-
munar hjónakornanna. Þeir reynd-
ust sannspáir því þau voru skilin inn-
an tveggja ára. Ástæðan var sögð sú
að Farrow, sem hafði samþykkt að
leika ásamt manni sínum í The De-
tective (1968), hopaði af hólmi á síð-
ustu stundu því hún var önnum kafin
að leika í Rosmary’s Baby. Sinatra
var svo gróflega misboðið að hann
mætti fyrirvaralaust í settið og af-
henti konu sinni skilnaðarpappírana
að tökuliði og leikendum aðsjáandi.
Að svo mæltu fór hann – sína leið.
Þótt Sinatra væri sérdeilis upp-
sigað við Mason, kom fyrir að hann
sjálfur gerði opinberlega grín að
Farrow og hjónabandi þeirra.
„Loksins fann ég kvenmann sem ég
get haldið framhjá,“ sagði hann ein-
hverju sinni þegar hann tróð upp á
skemmtistað. Ekki fylgir sögunni
hvernig „brandarinn“ mæltist fyrir.
Veslings Mason var hins vegar bar-
inn og nefbrotinn eftir að Sinatra og
frú komu þar sem hann skemmti á
frægu hóteli. Hann gat nefnilega
ekki stillt sig um að beina orðum sín-
um til Sinatra og spyrja háum rómi
hvað væri eiginlega að, hvers vegna
hann [Sinatra] væri ekki uppi á her-
bergi?
Frank Sinatra kvæntist fjórðu og
síðustu eiginkonu sinni, Barböru
Marx, 1976. Hann lést á áttugasta og
þriðja aldursári árið 1998.
Eftir skilnaðinn við Sinatra hefur
Mia Farrow tvívegis gengið í hjóna-
band, sem bæði hafa farið út um þúf-
ur. Hún giftist tónlistarmanninum
André Previn 1970, þau skildu 1979,
og ári síðar giftist hún kvikmynda-
leikstjóranum Woody Allen, þau
skildu 1992.
Stóri dagurinn Brúðkaupsveislan var haldin á Sands-hótelinu í Los Angeles.
Á þessum degi...
19. JÚLÍ 1966
GENGU MIA
FARROW OG
FRANK SINATRA
Í HJÓNABAND
Eiginkona númer tvö Sinatra var
kvæntur Övu Gardner áður en Mia
Farrow kom til sögunnar.
Grínisti Jackie Mason varð hált á
svellinu fyrir að gera grín að Frank
Sinatra og ungu frúnni.