Morgunblaðið - 19.07.2009, Side 18
18 Útgáfa
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
L
angar þig að gefa út bók
en færð engu tauti við
hefðbundna forleggjara
komið? Þá er Blurb
málið fyrir þig. Um er
að ræða bandarískt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í prentun og útgáfu
bóka fyrir almenning. Allt sem þarf
er að skila handriti tilbúnu til prent-
unar og ábyrgjast að a.m.k. eitt ein-
tak af bókinni muni seljast. Í flest-
um tilvikum má reikna með að
höfundurinn gefi sig fram sjálfur til
að uppfylla það skilyrði. Eða þá
móðir hans.
Alls gaf Blurb út 300 þúsund titla
með þessum hætti á síðasta ári og
tekjur fyrirtækisins jukust úr einni
milljón dollara í 30 milljónir dollara
á tveggja ára tímabili. Ekkert lát er
á eftirspurn.
En hvernig virkar þetta?
Menn byrja á því að hlaða niður
sérstöku forriti, BookSmart, sem
nálgast má á heimasíðu fyrirtæk-
isins, blurb.com, og hanna bókina
síðan sjálfir. Höfundurinn ber alla
ábyrgð á texta, myndum og útliti og
engu er breytt í meðförum Blurb.
Það er eins gott að vera með staf-
setninguna á hreinu!
Þegar bókin er tilbúin í end-
anlegri mynd prentar Blurb hana og
sendir heim að dyrum á kostnað við-
takanda. Blurb prentar bækur jöfn-
um höndum í lit og svart/hvítu og í
sex mismunandi stærðum og snið-
um. Hægt er að velja um kiljur eða
harðspjalda bækur og nokkrar gerð-
ir af pappír.
Kaupandi greiðir kostnað
Kostnaður er býsna misjafn eftir
lengd bókar og broti en hægt er að
hafa hana frá 20 síðum upp í 440.
Hver prentuð bók kostar á bilinu
4,98 upp í 186,95 dollara, þ.e. 635
upp í 23.800 kr. á genginu þegar
blaðið fór í prentun. Nákvæma
verðskrá er að finna á heimasíðu
Blurb.
Umfang útgáfunnar veltur alfarið
á höfundinum. Hafi hann bara í
hyggju að láta prenta eina bók fyrir
sig og sína verður hún ekki gerð að-
gengileg öðrum. Hafi hann aftur á
móti áhuga á því að koma verkinu á
framfæri getur hann sér að kostn-
aðarlausu farið þess á leit við Blurb
að fyrirtækið setji hana inn á lista
sinn á heimasíðunni yfir útgefnar
bækur. Þá getur hver sem er, hvar
sem er, pantað bókina, látið prenta
og senda sér heim. Viðkomandi
kaupandi greiðir allan kostnað við
þá prentun sem er sá sami í hvert
skipti og bókin er prentuð nema höf-
undurinn ákveði annað. Hann getur
að vísu ekki lækkað verðið – sem er
í raun bara framleiðslukostnaður og
þóknun Blurb – en hann getur
hækkað það. Geri hann það hirðir
höfundurinn sjálfur mismuninn. Á
Blurb er hægt að verðleggja bækur
í þrennskonar gjaldmiðlum, doll-
urum, sterlingspundum og evrum.
Velji höfundur að kynna bókina á
heimasíðu Blurb birtist mynd af
henni með stuttri kynningu, auk
þess sem hægt er að skoða fyrstu
fimmtán blaðsíðurnar rafrænt.
Að öðru leyti hvílir kynning á út-
gáfunni alfarið á herðum höfundar.
Fróðlegt er að slá inn leitarorðið
„Iceland“ á blurb.com en þá kemur
fram aragrúi bóka, einkum ferða- og
ljósmyndabækur eftir útlendinga
sem hér hafa stungið við stafni og
heillast af landinu.
Ljósmyndir og hrekkjusvín
Meðal höfunda sem fært hafa sér
Blurb í nyt eru hjónin Gunnar
Gunnarsson og Harpa Karlsdóttir.
Gunnar hefur þegar gefið út þrjár
ljósmyndabækur með þessum hætti
og Harpa tvær kómískar myndasög-
ur um Tralla nokkurn hrekkjusvín.
Fyrsta bókin sem Gunnar gerði
fjallar um Dorrit Moussaieff for-
setafrú, önnur hefur að geyma port-
rettmyndir sem hann hefur tekið
gegnum tíðina og í þeirri þriðju leik-
ur Gunnar sér með myndir af hálf-
um andlitum þekktra Íslendinga.
Blaðamaður handleikur bæk-
urnar heima hjá Gunnari og getur
vitnað um að gæði prentunarinnar
eru alveg hreint prýðileg. Hér er
sannarlega um alvöru útgáfu að
ræða.
Gunnar segir Trallabækurnar
hafa kostað tæplega 6 þúsund kr.
heim komnar hvort stykki en ljós-
myndabækurnar voru heldur dýr-
ari, í kringum 15 þúsund kr.
Gunnar kveðst ekki hafa neinar
væntingar til sölu en tíminn verði að
leiða það í ljós. „15 þúsund krónur
er frekar hátt verð fyrir bók og því
er ekki að neita að gengi krónunnar
mætti vera hagstæðara. Við skulum
sjá til.“
Þegar bókunum er flett vekur at-
hygli að Blurb-lógóið er að finna á
titilsíðunni. Gunnar segir ekki nauð-
synlegt að hafa það en geri menn
það ekki hækki verðið um 10 doll-
ara. „Ætli þeir líti ekki öðrum þræði
á þetta sem auglýsingu.“
Engin takmörk
Gunnar hefur starfað sem ljós-
myndari í meira en tvo áratugi og
hefur verið að fara yfir myndasafn
sitt að undanförnu. Hann leitaði hóf-
anna hjá Forlaginu um útgáfu en
hafði ekki árangur sem erfiði.
„Bókaútgefendur eru ekki að eyða
peningum sem stendur,“ segir hann.
Þá var Gunnari bent á Blurb. „Ég
hafði litla trú á þessu í upphafi en
þegar ég fór að kynna mér málið
betur komst ég að raun um að þetta
er bráðsniðugt.“
Hann segir BookSmart-forritið
tiltölulega auðvelt í notkun en ekki
sé verra að hafa grunn í útlits-
hönnun og umbroti. Blurb býður
upp á staðlað umbrot en höfundar
geta líka látið hugmyndaflugið ráða.
„Það eru í raun engin takmörk fyrir
því hvað hægt er að gera.“
Gunnar er kominn á bragðið og
sér fram á frekari útgáfu. „Ég er
með eina bók til viðbótar í vinnslu
og fleiri í kollinum.“
Þar sem draumarnir
Mikill er máttur útgef-
enda. Þeir ráða hvað
kemur út og hvað ekki
í bókmenntum og tón-
list. Höfundar geta
raunar freistað þess
að gefa út sjálfir en
því fylgir ósjaldan
mikil fjárhagsleg
áhætta, einkum ef
menn eru illa kynntir.
Nú eru á hinn bóginn
komnir fram aðilar
sem gera tónlist-
armönnum og rithöf-
undum kleift að koma
sér á framfæri með
litlum tilkostnaði.
Galdraorðin eru
Blurb og TuneCore. Morgunblaðið/HeiddiHöfundar Hjónin Harpa Karlsdóttir og Gunnar Gunnarsson með bækurnar sem þau hafa gefið út fyrir tilstilli Blurb. Hann ljósmyndar en hún teiknar.
‘‘ÉG HAFÐI LITLA TRÚ ÁÞESSU Í UPPHAFI ENÞEGAR ÉG FÓR AÐKYNNA MÉR MÁLIÐ BET-
UR KOMST ÉG AÐ RAUN
UM AÐ ÞETTA ER BRÁÐ-
SNIÐUGT.
VÉLASALAN
Klettagörðum 25 S:5200000 I www.velasalan.is I velasalan@velasalan.is
VÉLASALAN
Ægisvagn með
fortjaldi
Eigum til sölu örfáa
tjaldvagna á gamla
verðinu.
Upplýsingar í síma 6182050