Morgunblaðið - 19.07.2009, Page 33
Auðlesið 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Meiri-hluti Alþingis samþykkti
á fimmtu-dag
þings-ályktunar-til-lögu
ríkis-stjórnarinnar um að
leggja fram um-sókn um aðild
að Evrópu-sam-bandinu.
Til-löguna studdu 33
alþingis-menn, 28 voru á móti
og tveir greiddu ekki at-kvæði.
Össur Skarphéðinsson
utanríkis-ráðherra sagði við
upp-haf þing-fundar að hann
væri sammála þeim sem
segðu að Íslendingar muni
ekki fá neinar varan-legar
undan-þágur frá
sam-eigin-legri
sjávar-útvegs-stefnu ESB.
Hann hélt því fram að við
þyrftum ekki slíkar
undan-þágur vegna sérstöðu
okkar. Stefnt er að því að
afhenda aðildar-umsóknina á
fundi ráðherra-ráðs ESB í
Brussel 27. júlí
næst-komandi.
Ísland sækir um ESB-aðild
Morgunblaðið/Ómar
Betur fór en á horfðist þegar
farþega-báturinn Andrea II
strandaði á sand-rifi austan
við Lund-ey í Kolla-firði á
miðviku-dag. Sjö far-þegar
voru um borð auk áhafnar
þegar báturinn tók niðri, en
engan sakaði. Andrea var
með hóp ferða-manna í
fugla-skoðun við Lundey á
vegum Hvala-lífs ehf. og að
sögn farar-stjórans, Láru
Henrys-dóttur, strandaði
báturinn þegar siglt var frá
eynni. Kallað var til
björgunar-sveita
Lands-bjargar og fluttu þær
far-þega og farar-stjóra í
Eldinguna II sem færði þá til
hafnar.
Farþega-bátur
strandaði
Morgunblaðið/Ómar
Enginn komst af þegar
rússnesk-smíðuð
farþega-þota Caspian
Airlines með 168 manns
innan-borðs hrapaði stuttu
eftir flug-tak frá Imam
Khomeini-flug-velli í Teheran í
Íran á miðviku-dag. Talið er
að eldur hafi komið upp í
vélinni. Flug-vélin sundraðist
og brakið dreifðist víða.
Meðal hinna látnu voru
átta liðs-menn íranska
unglinga-lands-liðsins í júdó
sem hugðust stunda æfingar
með armenskum félögum
sínum.
Flug-slys
í Íran
Ung stúlka greindist með
svína-flensu hér á landi í
síðustu viku. Móðir
stúlkunnar sem hefur
hjúkrað fár-veikri dóttur
sinni síðan á laugar-dag og
er nú sjálf orðin veik, segir
helsta ráð lækna við
spurningum um pestina
vera ábendingu um
vef-slóðina influensa.is.
Tvær dætur konunnar
komu til landsins á
miðviku-dag í síðustu viku
frá Banda-ríkjunum. Á
föstudags-kvöld byrjaði yngri
dóttirin að kenna sér meins
í hálsi og var orðin verulega
veik morguninn eftir. Eldri
dóttirin hefur ekki kennt sér
meins og er hún farin til
Þýskalands. Konan lýsir
sjúkdóms-einkennum sínum
og dóttur sinnar svo: „Þetta
byrjar sem særindi í hálsi og
leiðir út í eyru. Fljót-lega fer
að bera á ein-kennum í
öndunar-færum og miklum
þyngslum fyrir brjósti.
Flensunni fylgja miklir
bein-verkir, hár hiti og
gríðarlegt mátt-leysi. Við
minnstu áreynslu, eins og
að standa upp eða ganga,
er hætta á að falla í yfir-lið.
Einnig fylgja upp-köst og
jafn-vel niður-gangur.“
Ísland hefur tryggt sér
300 þúsund skammta af
bólu-efni gegn flensunni.
Tamiflu og Relenza eru
helstu inflúensu-lyfin.
Fleiri greinast
með svína-flensu
Tökur á nýrri íslenskri
gaman-mynd með rómantísku
ívafi hefjast í næstu viku.
Myndin heitir Þetta reddast!
Leik-stjóri myndarinnar er
Börkur Gunnarsson.
„Myndin er um blaða-mann
sem er kominn á síðasta
séns bæði í sam-bandi sínu
og í vinnunni. Hann var einu
sinni efnilegur blaða-maður
en strax um þrítugt er hann
farinn að drekka það stíft að
hann er farinn að vinna
vinnuna sína illa og sinna
dömunni sinni enn verr en
áður. Hann ætlar að redda
sam-bandinu með því að
bjóða dömunni í rómantíska
ferð á hótel Búðir á
Snæfellsnesi, en fær þá
skipun frá rit-stjóranum sínum
um að fara í vinnu-ferð upp að
Búrfells-virkjun. Hann reynir
því að slá tvær flugur í einu
höggi með því að bjóða
dömunni í rómantíska
vinnu-ferð að Búrfells-virkjun,“
segir Börkur um sögu-þráðinn.
Björn Thors sem fer með
hlut-verk blaða-mannsins og
Guðrún Bjarnadóttir leikur
kærustu hans. Meðal annarra
leikara má nefna Jón Pál
Eyjólfsson sem leikur
ljós-myndara sem fer með í
ferðina, og tekur hann líka
kærustuna sína með, sem er
leikin af Maríönnu Clöru
Lúthersdóttur.
Stefnt er að frum-sýningu
eftir um það bil ár.
Morgunblaðið/Golli
Börkur Gunnarsson.
Þetta reddast!
Rúrik Gíslason er lík-lega
orðinn launa-hæsti íslenski
knatt-spyrnu-maðurinn á
Norður-löndum eftir að hann
skrifaði undir fimm ára
samning við
danska
félagið OB frá
Óðins-véum.
OB keypti
Rúrik af Viborg
á um það bil
eina milljón
evra, um 180
milljónir íslenskra króna, og
samdi við hann til fimm ára.
Hann kvaðst mjög ánægður
með að vera áfram í
Danmörku. „Hér hef ég verið í
tvö ár, þekki liðin og
leikmennina, kann
tungumálið og þarf ekki að
flytja langt. Danska
úrvalsdeildin er mjög sterk og
ég tel betra að vera hér áfram
en að flytja í nýtt land og byrja
upp á nýtt,“ sagði Rúrik.
Rúrik seld-
ur til OB
Rúrik Gíslason
FH stór-tapaði leiknum gegn
Aktobe frá Kasakstan í 2.
um-ferð for-keppni
Meistara-deildar Evrópu í
knatt-spyrnu á
Kapla-krika-velli síðast-liðinn
miðviku-dag, en þetta var fyrri
viður-eign liðanna.
Atvinnu-mennirnir frá
Kasakstan voru vægast sagt
frískir og höfðu öll völd á
vellinum. Aktobe burstaði
FH-inga og voru loka-tölur
leiksins 4:0 og komu öll
mörkin í síðari hálf-leik.
Aktobe
burstaði
FH-inga
Mann-réttinda-sinnar segja
að for-seti rússneska sjálf-
stjórnar-lýð-
veldisins
Tsjetsjeníu,
Ramzan Kady-
rov, hafi verið
á bak við
morðið á
mann-
réttinda-
frömuðinum
Natalíu Estemírovu á mið-
viku-dag. Ó-dæðið hefur verið
for-dæmt um allan heim. Es-
temírova, sem var fimmtug,
hafði af-hjúpað mörg mál þar
sem víga-menn á vegum
stjórnar Kadyrovs höfðu stað-
ið fyrir pyntingum, mann-
ránum og af-tökum.
Kadyrov vísaði öllum ásök-
unum á bug og sagðist ekki
„drepa konur“. Morðið væri
smánar-legt hneyksli, hann
sagðist sjálfur ætla að hafa
um-sjón með rann-sókninni
og láta elta uppi hina seku.
Morð í
Tsjetsjeníu
for-dæmt
Natalia
Estemirova