Morgunblaðið - 19.07.2009, Blaðsíða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
8 1 3 7
2 6 4 8
5
3 5 2
7 8
1 4
5 6
2 7 1 3
1 2
4
6 2
9 8 7 3
5
6 5 4
7 8 6
2 8 1
1
5 1 2 9 6 3
5 9 1 7
7 8
6
8
5 4 9 2
3 2 7
5
9 1 2
2 4 1 8 3
5 7 1 6 4 9 8 2 3
4 9 8 3 2 5 1 7 6
2 3 6 8 1 7 9 4 5
6 1 5 2 8 4 7 3 9
7 8 3 1 9 6 4 5 2
9 4 2 5 7 3 6 8 1
1 2 9 7 3 8 5 6 4
8 6 4 9 5 2 3 1 7
3 5 7 4 6 1 2 9 8
7 3 2 6 4 1 9 5 8
5 8 4 3 9 2 1 6 7
6 9 1 5 7 8 4 2 3
1 7 9 8 5 6 3 4 2
3 6 8 2 1 4 5 7 9
4 2 5 7 3 9 8 1 6
2 5 6 4 8 3 7 9 1
8 1 7 9 6 5 2 3 4
9 4 3 1 2 7 6 8 5
2 9 6 5 1 7 3 4 8
4 3 7 9 8 6 1 5 2
1 8 5 3 2 4 7 6 9
9 6 8 2 5 3 4 1 7
3 7 1 4 6 8 2 9 5
5 4 2 7 9 1 8 3 6
6 5 3 1 7 2 9 8 4
8 2 4 6 3 9 5 7 1
7 1 9 8 4 5 6 2 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 19. júlí, 200. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Því getum við öruggir
sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi
mun ég óttast. Hvað geta mennirnir
gjört mér? (Hebr. 13, 6.)
Margir Íslendingar kjósa að njótalandsins í sumar, líklega fleiri
en nokkru sinni. Það er hið besta mál
og vonandi fá allir gistingu í nágrenni
uppáhalds staðarins síns.
x x x
Þrátt fyrir villandi heiti sitt er Vík-verji ættaður af Vestfjörðum.
Hann er því ánægður með að heyra
að sá landhluti er vinsæll í sumar.
Vestfirðir hafa orðið útundan hjá
mörgum, kannski vegna hræðslu við
slæma vegi. Þeir hafa batnað mikið.
x x x
Hver upplifir landið á sinn hátt áferðalögum, til dæmis á göngu,
siglingu eða hestbaki. Það er heldur
ekkert að því að njóta þess í gegn um
bílgluggann. Sumir komast í gírinn
með því að skoða fugla eða blóm. Vík-
verji er einn þeirra sem lætur ljós-
myndavélina ráða för.
x x x
Ljósmyndunin er dásamleg della.Hún er dýr þótt ekki þurfi leng-
ur að kaupa filmur og framköllun, því
tækin kosta ekki svo lítið á þessum
síðustu og verstu tímum. En þetta er
hagkvæmt áhugamál því það skilar
svo mörgum ánægjustundum og gef-
ur lífsfyllingu.
x x x
Skemmtilegast þykir Víkverja aðleita uppi myndefni, ramma það
inn og smella af. Það er þó aðeins
hráefnisöflunin, öll úrvinnslan er eft-
ir. Þá þarf að færa myndirnar inn í
tölvuna og vinna þær fyrir birtingu á
vef eða fyrir prentun á pappír. Mynd-
vinnslan er í huga margra ljósmynd-
ara jafn mikilvæg eða mikilvægari en
að smella af.
x x x
Ekki er nóg að fara á veiðar ogsækja góðan afla. Vissulega er
mikilvægt að ná í gott hráefni en allt-
af þarf að snyrta það, elda og bera
matinn á borð, svo gripið sé til sam-
líkingar sem góður ljósmyndari not-
aði eitt sinn á námskeiði í mynd-
vinnslu. Þá fyrst er hægt að njóta
réttanna. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 atgervi, 4
mygla, 7 sundfugl, 8
smá, 9 álít, 11 lofa, 13
tölustafur, 14 drepur,
15 nabbi, 17 mynni, 20
drýsils, 22 óþéttur, 23 af-
kvæmi, 24 ákveð, 25
öngla saman.
Lóðrétt | 1 úrskurður, 2
spökum, 3 efnislítið, 4 í
vondu skapi, 5 þráttar, 6
reiður, 10 stælir, 12
keyra, 13 ástríða, 15
þroti, 16 lófar, 18 róg-
ber, 19 verða dimmur, 20
tímabilið, 21 eyðimörk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 refjóttur, 8 seint, 9 múður, 10 aum, 11 aflar, 13
afræð, 15 lokks, 18 sagan, 21 kát, 22 garða, 23 aular, 24
raupsamur.
Lóðrétt: 2 erill, 3 játar, 4 tomma, 5 urðar, 6 Esja, 7 úrið,
12 auk, 14 fáa, 15 logi, 16 kerla, 17 skaup, 18 staka, 19
guldu, 20 nýra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 e5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 f5 4. d4 e4 5.
Bg5 Rce7 6. Rd2 h6 7. Bxe7 Rxe7 8. e3
g6 9. g4 Bg7 10. gxf5 Rxf5 11. Dg4 Re7
12. Dxe4 O-O 13. Dg2 d6 14. Bd3 c5 15.
O-O-O cxd4 16. exd4 Bf5 17. Bxf5 Hxf5
18. Hhe1 Hc8 19. Dxb7 Rc6 20. Rb3
Hc7 21. He8+ Dxe8 22. Dxc7 Hxf2 23.
Dxd6 Kh7 24. Kb1 a5 25. a3 a4 26. Rc1
Dc8 27. R1e2 Df5+ 28. Ka2 Dc2 29.
Hc1 Db3+ 30. Kb1
Staðan kom upp í landskeppni
Frakklands og Armeníu sem lauk fyrir
skömmu í París í Frakklandi. Ar-
menski stórmeistarinn Tigran L. Pet-
rosjan (2600) hafði svart gegn franska
kollega sínum Joel Lautier (2658).
30… Rxd4! 31. Hg1 Dc2+ og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fæddist fótur.
Norður
♠K63
♥KG
♦DG109
♣DG94
Vestur Austur
♠D98 ♠Á1074
♥109653 ♥ÁD
♦754 ♦8632
♣75 ♣832
Suður
♠G52
♥8742
♦ÁK
♣ÁK106
Suður spilar 3G.
Austur passaði í byrjun – og það er
mikilvægt – síðan opnaði suður á
grandi og norður hækkaði í þrjú.
Hjartafimma út. Eftir tilgangslausa yf-
irlegu setti sagnhafi kónginn í borði, en
austur drap og tók á drottninguna líka.
„Það er nefnilega það,“ hugsaði sagn-
hafi og bjóst við hinu versta, en þá
skipti austur óvænt yfir í tígul. Fædd-
ist fótur.
Spilið liggur skýrt fyrir á þessum
tímapunkti. Austur virðist eiga ♠Á, en
varla drottninguna líka í ljósi þagn-
arinnar í upphafi. Áætlunin er að
þrýsta á vestur. Sagnhafi tekur alla
láglitaslagina og endar heima með ♠G5
og ♥8, en ♠K63 í borði. Vestur hefur
þá annaðhvort farið niður á staka ♠D
og tvö hjörtu, eða ♠Dx og eitt hjarta.
Það er auðlesið hvort heldur er og
framhaldið spilast eftir því.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur lagt hart að þér til þess að
tryggja þér og þínum öryggi í lífinu. Marg-
ar hendur vinna létt verk. Spilaðu málin
eftir eyranu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Spennandi fundur með manneskju
sem þú lítur upp til er eins og viti í myrkr-
inu. Gerðu þitt besta í stöðunni og láttu það
fréttast að þú sért tilbúinn í hvað sem er.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert að pæla í daglegri hegðun
þinni og skilur að það eru litlu hlutinrnir
sem hafa mestu áhrifin á þig. Vertu fær um
og til í að skilja það sem aðrir óttast.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú verður að setjast yfir fjármálin,
hversu leiðinlegt sem þér nú þykir það.
Hertu upp hugann – þú stendur vel fyrir
þínu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Láttu ekkert vaxa þér svo í augum að
þú guggnir á því. Einhver tekur eftir
merkjasendingum þínum á undan þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt að skoða allar hliðar mála
vandlega áður en þú stekkur á réttu lausn-
ina. Gleymdu þeim því ekki. Láttu ekki ein-
hver smáatriði vefjast fyrir þér, heldur
taktu tækifærinu opnum huga.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vogin lendir hugsanlega í útistöðum
við fjölskyldumeðlimi og maka í dag.
Reyndu að breyta þeim aðstæðum sem þú
ert ósátt/ur við.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Stundum skjóta gamlir draug-
ar upp kollinum og hafa áhrif á líf manns.
Ef þú vilt vera svolítið brjálaður, vertu það
þá með hjartanu, ekki munninum. Sýndu
stórhug og réttu fram sáttahönd.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að skipuleggja hlutina
betur svo þér takist að sinna þeim verk-
efnum sem þú þarft að inna af hendi. Nú er
rétti tíminn til þess að gera það.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú gætir selt snjó á norð-
urheimskautinu ef því væri að skipta þessa
dagana. Aðrir sjá að þú hittir naglann á
höfuðið. En um leið og þú ferð að dæma
gjörðir annarra koma þær aftur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Reyndu að umbera fólk þótt það
geti verið þreytandi á stundum. Nema þú
biðjir ekki um neitt, þá verður ekkert gert.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Skínandi hlutir eru oft bara end-
urkast af einhverju öðru, eins og sólinni.
Mundu bara að frelsi þitt endar þar sem
frelsi annarra tekur við.
Stjörnuspá
19. júlí 1627
Tyrkjaráninu lauk. Ræningjar
frá Algeirsborg héldu heim á
leið eftir að hafa numið á brott
allt að fjögur hundruð manns,
myrt fjörutíu og rænt miklum
fjármunum. Þeir komu að
landinu 20. júní og gerðu
strandhögg í Grindavík, á
Austfjörðum og í Vest-
mannaeyjum.
19. júlí 1813
Gengið var á hæsta tind Ís-
lands, Hvannadalshnjúk á
Öræfajökli, í fyrsta sinn. Það
gerðu Hans Frisak, norskur
landmælingamaður, og fylgd-
armaður hans, Jón Árnason
hreppstjóri.
19. júlí 1938
Farið var á bíl suður yfir Kjöl í
fyrsta sinn. Komið var að Gull-
fossi eftir 34 klukkustunda
ferð úr Svartárdal.
19. júlí 1953
Minnisvarði um Stephan G.
Stephansson skáld var afhjúp-
aður við hátíðlega athöfn að
Arnarstapa á Vatnsskarði í
Skagafirði en þá voru liðin um
hundrað ár frá fæðingu hans.
19. júlí 1989
Bygging þyrlupalls í Kolbeins-
ey hófst. Á hann voru festir
ratsjárspeglar og jarðskjálfta-
mælar. Kolbeinsey er 74 km
norðvestur af Grímsey og er
nyrsti grunnlínupunktur fisk-
veiðilögsögunnar.
19. júlí 1999
Bandaríski kvikmyndaleik-
arinn Kevin Costner kom til
landsins vegna gerðar sjón-
varpsþátta um stangveiði.
„Mér finnst fólkið hérna alveg
einstaklega vingjarnlegt,“
sagði hann við blaðamann
Morgunblaðsins í lok heim-
sóknarinnar, „og íslenskar
konur, vá, þær eru í einu orði
sagt stórkostlegar“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„ÉG verð heima á afmælinu, en skrepp kannski
eitthvað út úr bænum til að hrella vini mína í sveit-
inni,“ segir Hafsteinn Austmann, myndlistar-
maður, sem á 75 ára afmæli í dag. Hann segir það
ekki koma til greina að ferðast til útlanda þegar
íslenska sumarið er í hámarki, eins og núna. Frek-
ar vill hann vera heima, en hann býr í Reykjavík
ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Þ. Stephensen
leikkonu. Saman eiga þau tvær dætur og sex
barnabörn.
Ýmislegt er á döfinni hjá Hafsteini, en 12. júlí
síðastliðinn opnaði sýning í Dronninglund Kunst-
center á Jótlandi, í nágrenni Álaborgar, á verkum 32 virtra vatnslita-
málara frá Norðurlöndunum. Hafsteinn er eini þátttakandinn frá Ís-
landi, en sýningin stendur til 30. ágúst. Hann þekkir marga af þeim
sem sýna í Dronninglund og hefur sýnt með nokkrum þeirra áður.
Þá bauð menningarmálaráð Kópavogs Hafsteini nýlega að sýna í
Listasafni Kópavogs næsta vor. „Þá ætla ég að halda eitthvað upp á
afmælið. Þar verða myndir frá því að ég sýndi hérna heima fyrst, lík-
lega frá 1956. Þetta verður einhvers konar yfirlitssýning, það skásta
sem ég held ég hafi gert,“ segir hann og hlær. onundur@mbl.is
Hafsteinn Austmann Kristjánsson er 75 ára
Frá Danmörku í Kópavog
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is