Morgunblaðið - 19.07.2009, Qupperneq 44
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 20°C | Kaldast 8°C
Norðaustanátt, víða
3-10 m/s. Skýjað aust-
anlands og við norður-
ströndina, annars bjart veður.
Hlýjast suðvestantil. »8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Kristin eyja, týnd í
Atlantshafi
Forystugrein: Þung undiralda í Íran
Pistill: Svartnætti og sigurgleði
Reykjavíkurbréf: Við ráðum við
þetta – en með hvaða hætti?
Ljósvakinn: Lýsingar í útvarpi skila
sínu
ATVINNA»
TÓNLIST»
Er Jackson vinsælli en
Elvis og Bítlarnir? »39
Nokkrir leikarar í
kvikmyndasögunni
hafa gert sig seka
um að búa sér til
hreim, en mistekist
algjörlega. »37
KVIKMYNDIR»
Hræðilegur
hreimur
FÓLK»
Pitt og Jolie vilja gera
framhaldsmynd. »42
TÓNLIST»
Það var fjör á baráttu-
tónleikum. »41
Tónlistarmaðurinn
Robert Wyatt hefur
farið óhefðbundnar
leiðir í tónlist og
m.a. uppskorið að-
dáun Bjarkar. »37
Öðruvísi
listamaður
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kyrrsettu tjaldvagninn
2. Flókin þyrluaðgerð við …
3. Var hún of falleg fyrir fangelsið?
4. „Hrein og klár viðskipti“
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
DOKTOR Sturla Friðriksson, erfða-
og vistfræðingur, kom nýlega úr
sinni 50. ferð í Surtsey. Hann var
lengi í stjórn Surtseyjarfélagsins og
átti mikinn þátt í að Surtsey var
gerð að vísindarannsóknarstöð.
„Ég var drifinn með í þessa ferð.
Ég er búinn að fara þangað svo oft,“
sagði Sturla. Hann var í hópi tíu líf-
fræðinga sem fóru í árlegan leið-
angur í Surtsey 13.-16. júlí. Þyrla
Landhelgisgæslunnar flutti hópinn
til og frá Surtsey. Leiðangursstjóri
var Borgþór Magnússon, for-
stöðumaður vistfræðideildar Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands.
Sjómenn urðu varir við Surts-
eyjargosið að morgni 14. nóvember
1963. Sturla fór fyrst út í Surtsey
vorið 1964. Þá stóð eldgosið sem
hæst og eyjan var að myndast.
„Ég skrapp út til þess að verða
vitni að því fyrsta sem kynni að finn-
ast þar lífrænt. Það var ekki fyrr en
á öðru ári (1965) að ég fann fjörukál
rétt fyrir ofan flæðarmálið. Þetta er
jurt sem ekki vex að staðaldri í
Surtsey en er þarna öðru hverju.
Næst kom melgresi og síðan komu
fjöruarfi og blálilja á þriðja ári,“
sagði Sturla. Hann hefur farið í
Surtsey flest árin síðan og stundum
oftar en einu sinni á ári.
Sturla er fæddur 1922 og þegar
minnst var 40 ára frá upphafi goss-
ins var Sturla 81 árs. Hann fór í eyna
það ár og með í för var Englend-
ingur. „Það er sagt um gamalt fólk á
ensku: „He is as old as the hills“
(hann er jafn gamall og fjöllin). Ég
gat sagt við Englendinginn að ég
væri tvöfalt eldri en fjöllin! Það er
merkilegt að koma á stað þar sem
maður er tvöfalt eldri en fjöllin,“
sagði Sturla.
Surtsey er nú á heimsminjaskrá
UNESCO. Sturla þakkar það ekki
síst þeirri ákvörðun að friða eyna.
Það hafi hafi verið afar rétt ákvörð-
un á sínum tíma. Sturla nefndi að til
væru aðrar eldeyjar sem ekki hefði
verið lokað fyrir almennri umferð.
Þangað hafi borist ýmislegt með far-
artækjum og ferðafólki.
„Það að gera Surtsey að vís-
indalegri rannsóknarstöð er ein-
stakt. Þess vegna er Surtsey meðal
annars fræg, fyrir að Íslendingar
skyldu gera þetta.“
Sturla telur merkilegasta framlag
rannsókna í Surtsey vera að þar hafi
verið hægt að fylgjast með þróun líf-
ríkisins. „Surtsey er eins og pínulítil
útgáfa af Íslandi. Þegar Ísland reis
undan jökli var það alveg nakið. Það
að geta fylgst með eyju úti í Atlants-
hafi, hvernig líf berst að henni og
þróast, er alveg stórmerkilegt og
hliðstæða þess hvernig líf barst til
Íslands,“ sagði Sturla.
Rannsóknir hafa sýnt að lífið hef-
ur borist til Surtseyjar með sjó og
vindum. Einnig með fuglum, reka og
fiskum. Þannig fannst m.a. sjórekið
pétursskip, egghylki skötu, sem
hafði rekið úr fjöru á fastalandinu.
Við pétursskipið loddi mikið af fræj-
um plantna ofan af landi.
Ljósmynd/Sigurður H. Magnússon
Líffræðingar í Surtsey Frá vinstri: Erling Ólafsson, Viggó Þór Marteinsson, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Ingvar Atli
Sigurðsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sturla Friðriksson, Erpur Snær Hansen, Karl Gunnarsson, Borgþór Magnússon
og Sigurður H. Magnússon. Sturla Friðriksson (í miðið) fór fyrst í Surtsey til rannsókna vorið 1964.
Tvöfalt eldri en fjöllin
Dr. Sturla Frið-
riksson fór í 50.
skipti í Surtsey
Ljósmynd/Sturla Friðriksson
Gróður Fyrsta samfélag plantna myndaðist þar sem melgresi, fjöruarfi og
blálilja uxu saman. Sturla hefur fylgst með vexti og þróun þess í 44 ár.
Í HNOTSKURN
»Nú fannst 61 tegund há-plantna í Surtsey og hafði
þeim fækkað um tvær frá
2008.
»Fuglalíf var með svipuðumóti og síðustu ár. Mesta
athygli vöktu tólf krossnefir.
»Líflegt smádýralíf er íSurtsey og hafa nýjar teg-
undir borist þangað.
ERNA Einars-
dóttir, nýútskrif-
aður fatahönn-
uður frá hol-
lenska lista- og
hönnunarháskól-
anum Gerrit
Rietveld Aca-
demie, hefur
vakið mikla at-
hygli fyrir hönn-
un sína, og hefur verið valin til að
sýna á tískuvikunni í Amsterdam
sem stendur yfir 22.-26. júlí.
Lokaverkefni hennar í skólanum
var að hanna nýtt útlit fyrir ís-
lensku fjallkonuna. „Hún þurfti
eitthvað nýtt „identity“ þannig að
hún er orðin svolítill pönkari, hörð
gella og ákveðin. Ég vann mikið
með keðjur, gallaefni og nýtt „fág-
að“ pönk-element, var að prjóna og
vefa með keðjum í nær allri hönn-
uninni. Ég lagði mikla áherslu á
textíl og einföld snið,“ segir Erna.
Hvað framtíðina varðar segist
Erna vilja vinna á Íslandi.
„Mig langar mikið til að vinna
heima og byggja upp fataiðnaðinn
hér. Það er margt hæfileikafólk
hérna og við ættum að geta byggt
upp dálítið stóran markað.“ | 38
Hannaði
nýtt útlit
fjallkonu
Erna Einarsdóttir
FRÉTTAÞULURINN Walter Cron-
kite er látinn, 92 ára gamall. Var
banameinið æðasjúkdómur sem
fylgdi heila-
hrörnun hans.
Cronkite var
einn þekktasti
fréttaþulur
Bandaríkjanna
og var gjarna
kallaður „Walter
frændi“ þar í
landi. Hann var
þekktur fyrir ró-
lyndi sitt og naut
mikils trausts bandarísks almenn-
ings. Var hann í könnunum oft út-
nefndur sá maður sem fólk treysti
best.
Cronkite var fréttastjóri kvöld-
frétta CBS frá 1962 til 1981 og
flutti löndum sínum fréttir af morð-
inu á John F. Kennedy, Víetnam-
stríðinu, fyrstu mönnunum á tungl-
inu, Watergate-hneykslinu, kalda
stríðinu og fleiri stórmálum tutt-
ugustu aldarinnar.
Í kjölfar frétta af andláti Cron-
kite lýsti Barack Obama Banda-
ríkjaforseti honum sem traustri
rödd í ótraustum heimi. „Hann
bauð okkur að trúa sér og hann
brást okkur aldrei.“ skulias@mbl.is
„Hann brást
okkur aldrei“
Walter Cronkite
’Staðreyndin er að talsverður hlutikvenna sem beittar eru ofbeldi afmaka sínum slíta sambúðinni. Þó erusambandsslit engin trygging fyrir þvíað ofbeldinu linni heldur getur ofbeld-
ismaðurinn tvíeflst við þau og ofbeldið
jafnvel orðið lífshættulegt. Í því sam-
hengi má nefna að nærri helmingur
þeirra 340 kvenna sem leituðu í
Kvennaathvarfið í fyrra komu ekki
vegna ofbeldis af hálfu þáverandi
maka heldur fyrrverandi eiginmanns
eða sambýlismanns, barnsföður eða
ættingja. » 25
SIGÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR OG
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR
’Góðir Íslendingar! Við eigum ekk-ert erindi inn í evrópskt risaveldimeð sterka hneigð til samlögunar ogmiðstýringar. Höfnum umsókn um„aðild“ að þessu bandalagi! Aðildin er
í reynd innlimun í stórveldi með
heimsveldisdrauma » 25
JÓN VALUR JENSSON
’Það var einn flokkur sem ég taldilíklegastan til að geta staðið ívegi fyrir fullveldisafsalinu sem blasirvið íslenskri þjóð. Þessi flokkur erVinstri grænir. Ég kaus VG með þá trú
í hjarta að ykkur gæti ég treyst til að
standa við gefin loforð. Stór hafa orð-
in verið er komið hafa frá forystu
flokksins en þegar á reynir virðist erf-
itt að standa við þau. » 25
ERLA JÓNA STEINGRÍMSDÓTTIR
’Ég þekki ekki þá er fara fyrir þjóð-inni núna eða þeirra tónlist-arsmekk, vera má að eitthvert þeirraer sæst hafa á skuldsetninguna óg-urlegu hafi hlýtt á Þorláksmessu-
tónleika Bubba Morthens sem hefur
vitnað til þess að Mayarnir hafi, að
sögn, spáð fyrir um heimsenda árið
2012, á Þorláksmessu eða við vetr-
arsólstöður. » 26
ARNLJÓTUR B. BERGSSON
’Á Ingólfstorgi hefur þróast sér-stakt mannlíf bifhjólamanna,krakka á hjólabrettum og fólks semnýtur útivistar og veitinga. Svonamannlíf verður ekki búið til með skipu-
lagi og yfirvöldum ber að hlúa að því.
» 26
HELGI ÞORLÁKSSON
Skoðanir
fólksins
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar