Morgunblaðið - 21.07.2009, Side 14
Hnausþykkur Þorsteinn Joð með glæsilegan 91 sentimetra hæng sem hann tók í Hnausastreng í Vatnsdalsá.
Ljósmynd/Sigurður Árni
STANGVEIÐI
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
golli@mbl.is
„ÞETTA byrjaði eiginlega á þriðju-
dagsmorguninn, það var hífandi rok
en menn náðu þó tíu fiskum í
Hnausastrengnum. Þá var byrjað
að kólna eftir langt hitaskeið,“ sagði
Þorsteinn J. Vilhjálmsson sem var
við Vatnsdalsá í síðustu viku að taka
upp kynningarefni og veiða. Þor-
steinn fór síðan ásamt Pétri Péturs-
syni leigutaka og Sigurði Árna Sig-
urðssyni leiðsögumanni í þennan
þekktasta veiðistað árinnar morg-
uninn eftir. „Við ætluðum að taka
smávídeó og skreppa svo upp á dal,“
sagði Þorsteinn. „Við vorum komnir
þarna um hálfníu og Pétur setur
strax í fisk sem hann síðan missir
en setur strax í annan á Hairy
Mary-tvíkrækju á harðastrippi og
landar honum. Þá var komið að Sig-
urði Árna sem setti strax í fisk og
náði honum.“ Þorsteinn sagði gang-
inn hafa verið eftir þessu allan
morguninn. Hafi þeir félagarnir
veitt í Hnausastreng, á Skriðuvaði
og í Hólakvörn og samtals sett í
nítján laxa á vaktinni og náð fimm-
tán þeirra.
Gárutúbur góðar í strekkingi
Þrátt fyrir þessa frábæru veiði
sagði Þorsteinn þá félaga ekki hafa
staðið mjög stíft við. Hellt var upp á
kaffi á bakkanum og miklum tíma
eytt í myndatökur. „Menn lögðust
ekki alveg yfir þetta.“ Þorsteinn
sagði það hafa komið sér á óvart
hvað gárutúburnar virkuðu ótrú-
lega vel við þessar aðstæður. „Það
var stífur strekkingur. Við þurftum
frekar stutt köst þarna við grjót-
garðinn og flugan var þokkalega
sýnileg í öldudalnum.“ Hann sagði
marga laxana hafa tekið með látum
og steypt sér á flugurnar meðan
aðrir tóku hægar. „Sá stærsti sem
ég náði var 91 sentimetra, alveg við
grjótgarðinn. Hann velti sér yfir
fluguna fjórum sinnum áður en
hann tók hana að lokum.“
Þorsteinn sagði að upplifunin
hefði verið ótrúleg. Lax hefði ekkert
verið að sýna sig en þó verið mjög
mikið af honum. „Ég held við höfum
séð tvo laxa stökkva þennan morg-
uninn. Þessir fiskar sem við fengum
voru rígvænir, ofboðslega vel haldn-
ir og sterkir. Þetta voru þessir dag-
ar þegar Vatnsdalur vaknaði eftir
hitakófið.“ Hann sagði fisk kominn
víða upp um alla á. „Það var hell-
ingur af fiski uppi í Stekkjarfossi og
menn voru að ná þeim þar á hitchið
líka.“ Hann bætti við að gárutúb-
urnar væru langsterkastar á svæð-
inu og nefndi Collie dog og Sunray
shadow í millistærð. „Þegar áin
vaknar úr hitakófinu er fiskur á
ferðinni út um allt að finna sér staði
í ánni og maður gengur kannski
ekki að honum vísum á neinum stað
nema kannski í Hnausastreng.“
Mun betri veiði en í fyrra
Á heimasíðunni vatnsdalsa.is er
haldin mjög nákvæm veiðibók sem
sýnir vel hvaða veiðistaðir og veiði-
flugur gefa best hverju sinni. Þar
segir að hinn 19. júlí hafi verið
komnir 210 laxar á land, sem mun
vera miklu betri veiði en á sama
tíma í fyrra. Á síðunni munu fljót-
lega birtast vídeómyndir þær sem
Þorsteinn J. tók í síðustu viku.
„Vatnsdalur vaknaði“
„Velti sér fjórum sinnum á fluguna áður en hann tók“
Settu í 19 laxa á morgunvaktinni í Hnausastreng
Svissneskur veiðimaður, sem
ásamt sonum sínum og félögum
veiddi í sumum af bestu hún-
vetnsku laxveiðiánum í kringum
helgina, átti þar frábæra daga. Á
tveimur dögum náðu þeir 50 löx-
um í Laxá á Ásum á stangirnar
tvær. Þeir létu ekki þar við sitja og
tóku einnig 30 laxa úr Víðidalsá á
fjórar stangir, líka á tveimur dög-
um. Hluti hópsins leit einnig við
hjá Blöndu og tók þar ellefu laxa.
Samtals tóku þeir því 91 lax á rúm-
um fjórum dögum.
Sonur veiðimannsins á ung-
lingsaldri og vinur hans á sama
aldri deildu stöng á síðustu vakt-
inni í Víðidalsá á laugardaginn.
Þegar vinurinn veiddi þann
stærsta lax sem hann hafði nokk-
urn tímann veitt, 88 sentimetra
hrygnu, fór nú aðeins um soninn
en hann tók síðan við stönginni og
veiddi nákvæmlega jafnstóran lax
á sömu flugu og sama stað. Þegar
veiðimennirninr ungu komu í hús
eftir þessi ævintýri var engin leið
að ná af þeim brosinu.
Þetta er fimmtánda sumarið
sem þessi svissneski veiðimaður
kemur hingað til lands að veiða og
hefur hann iðulega veitt í Laxá á
Ásum. Hann segist aldrei hafa
veitt jafnvel og nú í sumar.
Um 400 laxar eru komnir á land
í Víðidalsá samkvæmt veiðibók.
Tóku 91 lax á rúmlega fjórum dögum
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009
„ÞAÐ ER full ástæða til að hvetja fólk til að skilja ekki eftir verðmæti þar
sem þau sjást í bílunum. Við höfum fengið töluvert af tilkynningum um inn-
brot í bíla á almenningsstæðum. Síðast á laugardag var farið inn í fimm
bíla á stæðinu við Mógilsá við Esjurætur, hliðarrúður brotnar og verðmæti
hreinsuð burt,“ segir Árni Þór Sigmundsson, stöðvarstjóri lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins í Mosfellsbæ.
„Þetta er andvaraleysi, fólk á ekki von á því að svona gerist í alfaraleið
en raunin er önnur. Þetta er í raun árvisst. Þjófarnir leita fanga á bílastæð-
um við Esjurætur, skóla, Í Heiðmörk, við ylströndina í Nauthólsvík, kvik-
myndahús borgarinnar og víðar,“ segir Árni Þór Sigmundsson, stöðv-
arstjóri hjá lögreglunni.
Brotist inn í bíla sem lagt
er á almenningsstæðum
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
veiðideild
Húsgagnahöl l inni , s ími 585 7239. L indir , Skógar l ind 2, s ími 585 7262
efni í lundaháfa
Opið 7 dagavikunnar
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna