Morgunblaðið - 21.07.2009, Side 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
3 5 9
3 6
8 4
4 5
7 6 8 3
9 2
6 8
9 2 7 4 5
1
6 3
7
7 2 1
5 6
1 5
6 3 9 4
9 2
3 7 8 6 4
1 8
2
9 8 1
3 5 9
4
2 6 7
8 7 4
9 4 1 8 7
7 3
5 3
3 5 1 7 4 6 2 9 8
7 9 2 8 1 5 6 4 3
6 4 8 9 3 2 7 5 1
2 7 5 4 6 3 1 8 9
1 8 6 5 2 9 4 3 7
9 3 4 1 8 7 5 2 6
8 2 9 6 5 1 3 7 4
5 1 7 3 9 4 8 6 2
4 6 3 2 7 8 9 1 5
4 6 1 3 7 5 2 8 9
8 2 3 6 4 9 5 1 7
9 5 7 2 1 8 6 3 4
2 1 9 5 6 4 3 7 8
5 3 6 9 8 7 4 2 1
7 8 4 1 3 2 9 5 6
3 4 2 7 9 1 8 6 5
1 9 5 8 2 6 7 4 3
6 7 8 4 5 3 1 9 2
2 8 1 4 3 7 9 6 5
7 6 4 9 5 8 2 3 1
5 3 9 6 2 1 8 4 7
1 5 3 2 4 6 7 8 9
4 7 6 5 8 9 1 2 3
9 2 8 7 1 3 4 5 6
8 9 2 3 7 5 6 1 4
3 4 7 1 6 2 5 9 8
6 1 5 8 9 4 3 7 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 21. júlí, 202. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út
fara frá bústað sínum, mun ofan stíga
og ganga eftir hæðum jarðarinnar.
(Mík. 1, 3.)
Hvort ferð þú til Írak eða Íraks?spurði viðmælandi Víkverja
sem hafði ekki minnsta grun um að
hann væri á leið á þær framandi og
róstugu slóðir. Raunar kom í ljós að
viðmælandinn var að velta fyrir sér
málfræðinni, hvort essið ætti að vera
þarna eður ei.
Víkverji hallast að essinu enda
löngum verið þeirrar skoðunar að
beygja eigi landaheiti, alltént falli
þau að íslenskum beygingarreglum.
Fara menn ekki alveg eins til Íraks
og Íslands?
Er annars ekki rökrétt að beygja
Írak eins og Ísak? Færi Víkverji ein-
hvern tíma til Íraks myndi hann þá
vonandi snúa aftur heim frá Íraki.
x x x
Sumum hefur raunar þótt Víkverjiganga fulllangt í þessum efnum
en hann vill ólmur fara til Kínu og
Kanödu. Það gengur ekki? segja
menn. Það er ljótt. Hvers vegna í
ósköpunum? spyr Víkverji á móti.
Við förum til Ameríku og Ítalíu,
hvers vegna ekki til Kínu?
Víkverji er líka talsmaður þess að
beygja Japan og Kasakstan eins og
Kjartan, þ.e. að menn komi frá Jap-
ani og Kasakstani. Vel mætti líka
hugsa sér að beygja Tógó eins og
Gógó. Þá myndu menn vitaskuld
fara til Tógóar. Kamerún á auðvitað
að beygja eins og Sigrún. Menn
myndu þá koma frá Kamerúnu og
fara til Kamerúnar.
x x x
Ef út í það er farið hefur Víkverjialdrei botnað í því hvers vegna
Íslendingar hafa þýtt landaheitið
Sverige sem Svíþjóð. Svírgía væri
miklu tilkomumeira og nær lagi. Sví-
ar yrðu þá Svírglar.
Eins mætti hæglega kalla Noreg
Norgíu og Norðmenn Norgla.
Mergjuð orð, Norgill og Svírgill!
Þau myndu að sjálfsögðu beygjast
eins og Þengill.
Ferðasagan gæti þá verið svona:
Víkverja langaði til Kínu en vegna
veikrar stöðu krónunnar kaus hann
að fara frekar til Kamerúnar með
bráðhressum Svírgli sem hann
kynntist í Kanödu. Næst langar Vík-
verja til Tógóar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hljóðfæri, 4
drykkjumaður, 7 ves-
almenni, 8 jarðávöxtum, 9
lítinn snáða, 11 heiti, 13
þráður, 14 hvetur, 15
hrörlegt hús, 17 auka-
skammtur, 20 ótta, 22 eld-
stæði, 23 í átt til baka, 24
syndajátning, 25 venja.
Lóðrétt | 1 örin, 2 mót-
vindur, 3 fyrirhöfn, 4
brott, 5 doka við, 6 for-
móðirin, 10 fiskveiðar, 12
bjargbrún, 13 illgjörn, 15
dramb, 16 skelfir, 18 ger-
um við, 19 éta upp, 20
eydd, 21 borgaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 táldregur, 8 flóar, 9 getur, 10 ker, 11 skapa, 13
allur, 15 þvarg, 18 skörp, 21 rit, 22 ferma, 23 uglur, 24
skammdegi.
Lóðrétt: 2 ámóta, 3 dýrka, 4 eigra, 5 umtal, 6 ofns, 7 ár-
ar, 12 pár, 14 lok, 15 þófi, 16 afrek, 17 gramm, 18 stuld,
19 örlög, 20 pera.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á opna skoska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Edinborg. Guðmundur Kjartansson
(2.356) hafði svart gegn indverska
stórmeistaranum Arun Prasad (2.556).
40. … Hxf1! 41. Dh5 svartur hefði
einnig unnið eftir 41. Dxf1 Hd1 42. Df2
Dg5+ 43. Kf3 Dxf5+. 41. … Hg1+ og
hvítur gafst upp. Frammistaða Guð-
mundar á mótinu var frábær og tefldi
hann af miklum krafti. Hann lagði þrjá
stórmeistara að velli og var óheppinn
að vinna ekki þrjá til viðbótar. Hann
fékk 6½ vinning af 9 mögulegum og
náði stórmeistaraáfanga. Jafnframt
var hann á meðal efstu manna á mótinu
en nánari upplýsingar um árangur
hans er að finna á www.skak.is.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Trompþvingun.
Norður
♠D64
♥K652
♦Á75
♣854
Vestur Austur
♠ÁG1085 ♠97
♥DG97 ♥1083
♦KD4 ♦G109862
♣10 ♣73
Suður
♠K32
♥Á4
♦3
♣ÁKDG962
Suður spilar 6♣.
Opnun vesturs á 1♠ er pössuð til
suðurs. Dobl virðist rétta sögnin, en
suður er „Hammanisti“ og stekkur í
3G. Norður hækkar 4G og suður skýt-
ur á 6♣. Útspilið er ♦K.
Sagnhafi verður að slá því föstu að
vestur sé með hjartalengdina. Sé svo,
má kreista fram tólfta slaginn með
trompþvingun. Talning í láglitnum er
gagnleg og sagnhafi trompar því tígul í
öðrum slag. Hann tekur trompin og
notar innkomuna á ♣8 til að stinga tíg-
ul aftur. Sést þá að vestur á þrjá tígla
og eitt lauf. Og vonandi fjórlit í hjarta
til hliðar við hinn sannaða spaðalit.
Suður dælir út trompum um stund
og staldrar við þegar eitt er eftir. Vest-
ur hefur þá þegar orðið þvinguninni að
bráð, annaðhvort farið niður á ♠Á ann-
an eða fækkað við sig hjörtum. Sagn-
hafi spilar í samræmi við það.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhverjir vilja efna til óvinafagn-
aðar út af fjármálum. Vertu með svörin
við algengum spurningum á reiðum hönd-
um og þá er allt klárt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fikraðu þig í átt að markmiði þínu
með eitt takmark í huga, en þröngt sjón-
arhorn. Haltu sambandi við vini þína.
Taktu ekki fleiri hluti að þér en þú ræður
við.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér tekst einhvern veginn ekki
að ná til þeirra sem þú vilt að kynnist
málstað þínum. Breyting á þér breytir
öllu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér finnst engu líkara en allir séu
í hægagangi í kringum þig. Notaðu tím-
ann til að anda og íhuga.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sestu niður með fjölskyldunni til að
ræða um framtíðarþarfir. Einhver þér
nákominn þarf á upplyftingu að halda.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Frelsi þitt skiptir þig miklu máli og
í dag hefurðu þörf fyrir að sinna þínum
eigin málum. Ef þú sýnir þolinmæði og
heldur þetta tímabil út átt þú eftir að
uppskera ríkulega.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það eru allar líkur á því að þér takist
nú ætlunarverk þitt, en aðeins ef þú
treystir á sjálfan þig. Vertu heiðarleg/ur í
öllum tilfellum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Uppfærðu óskalistann, þú ert
vaxin/n upp úr því sem þú hélst að þig
langaði í. Ef þú hlustar vel gætirðu kom-
ist að einhverju mikilvægu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sjálfsöryggi þitt hjálpar þér til
að vinna fólk á þitt band. Hreinsaðu út úr
skápum, raðaðu í hillur og losaðu þig við
það sem þú ert hætt/ur að nota.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er oft betra að geyma hlut-
ina hjá sér um stund heldur en að deila
þeim strax með öðrum. Reyndu samt að
þreyja þorrann því allt lagast þetta að
lokum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Búðu þig undir miklar breyt-
ingar sem dynja yfir innan skamms.
Hafðu í huga að samskipti þín við aðra
endurspegla það hver þú ert.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Margar hugsanir sem skýtur upp í
kollinum á þér enda sem vangaveltur.
Talaðu um þær breytingar sem þú vilt sjá
á kringumstæðum þínum og hvernig þið
getið unnið saman að þeim.
Stjörnuspá
21. júlí 1846
Sigurður Breiðfjörð dó í
Reykjavík, 48 ára. Hann var
helsta rímnaskáld nítjándu
aldar og naut mikillar alþýðu-
hylli.
21. júlí 1936
Sverðfisk rak á land við Breið-
dalsvík, en fá dæmi voru þess
að slíkur fiskur hefði fundist
norðar en við Englands-
strendur. Fiskurinn var 265
sentimetrar á lengd, þar af
var sverðið 78 sentimetrar.
21. júlí 1939
Tveir þýskir kafbátar, U-26 og
U-27, komu til Reykjavíkur,
rúmum mánuði áður en síðari
heimsstyrjöldin skall á. Þetta
voru fyrstu kafbátar sem kom-
ið höfðu í íslenska höfn og
„þótti bregða til nokkurrar
nýlundu“, að sögn Morg-
unblaðsins.
21. júlí 1959
Hvítur hrafn náðist í Ólafsvík.
Hann var til sýnis í Miðbæj-
arskólanum í Reykjavík í
nokkra daga. Í desember
slapp hrafninn úr búri og var
skotinn. Fuglinn mun nú vera
á Náttúrufræðistofnun Ís-
lands.
21. júlí 1963
Skálholtskirkja var vígð við
hátíðlega athöfn að við-
stöddum áttatíu prestum, pró-
föstum og biskupum. „Skál-
holt er meira en minningin,
hærra en sagan,“ sagði Sig-
urbjörn Einarsson biskup í
vígsluræðunni. „Heill og bless-
un búi hér og breiðist héðan
út.“
21. júlí 1987
Héðinn Steingrímsson varð
heimsmeistari í skák á móti
fyrir börn, 12 ára og yngri.
Hann varð alþjóðlegur meist-
ari 1994 og stórmeistari 2007.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Nýirborgarar
Akranes Gyða Karen
fæddist 30. júní kl. 15.13.
Hún vó 3.605 g og var 52
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Árný Rós Böðv-
arsdóttir og Guðlaugur
Tómasson.
Reykjavík Dísa Kristín
fæddist 24. mars kl. 14.
Hún vó 3.240 g og var 49
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Valgerður Unn-
arsdóttir og Hilmar Jens-
son.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum
á barn@mbl.is
Morgunblaðið/Heiðar
Við Kaffivagninn Það hefur heldur betur verið veður til að sitja úti við und-
anfarna daga, í það minnsta á sunnanverðu landinu. Sumir gestir Kaffi-
vagnsins nýttu sér blíðuna einmitt til að eiga unaðsstund úti undir húsvegg.