Morgunblaðið - 21.07.2009, Side 15

Morgunblaðið - 21.07.2009, Side 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009 Þetta helst ... ● ÍSLENSKA upplýsingatæknifyr- irtækið LS Retail var útnefnt „Hugbún- aðarframleiðandi ársins“ af Microsoft í liðinni viku. LS Retail komst einnig ann- að árið í röð í svokallaðan „innri hring“ Microsoft-samstarfsaðila í við- skiptalausnum, en einungis allra bestu samstarfsaðilar Microsoft á al- þjóðavísu fá inngöngu í þann hóp eða um 1%. Kemur þetta fram í tilkynningu frá LS Retail. Meðal lykilatriða sem horft var til við útnefninguna voru framúrskarandi árangur í sölu, afbragðsgóð sér- fræðiþekking á vörum og þjónustu Microsoft og mikil ánægja við- skiptavina. Verðlaunin fær fyrirtækið ekki síst fyrir að hafa vaxið hratt síð- ustu mánuði þrátt fyrir erfitt efnahags- ástand. bjarni@mbl.is Verðlaunað af Microsoft ● FIMM háttsettir starfsmenn kaup- hallarfyrirtækisins Nasdaq OMX hafa hætt störfum á undanförnum fimm mánuðum. Magnus Böcker bættist í hópinn í gær, en hann hef- ur séð um skráningar hlutafélaga í kauphöllina. Nasdaq OMX er eigandi Kauphallar Íslands. Mun Böcker hefja störf sem for- stjóri kauphallarinnar í Singapúr. Áður hafa Chris Concannon, yf- irmaður Nasdaq OMX Europe, og Dar- ren Mulholland, yfirmaður tæknideild- ar, hætt störfum hjá félaginu auk þeirra Davids Warrens fjármálastjóra og Böckers. Fimm háttsettir hættir hjá Nasdaq OMX GUÐLAUGUR Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), segir að fyrirtæk- ið muni leitast við að sækja fimm milljarða króna á innlendum lánfjár- markaði á næstu vikum með skulda- bréfaútgáfu: Annaðhvort í gegnum íslenska banka eða lífeyrissjóði, út- skýrir stjórnarformaðurinn. „Það verður ekki erfitt,“ segir Guðlaugur Gylfi spurður hvað gerist, takist félaginu ekki að fjármagna þessa fimm milljarða. „Bara spurn- ing um hvaða kjör við fáum.“ Hann nefnir að skammt sé síðan fyrirtækið tók fimm milljarða króna skammtímalán og segir að það hafi gengið vel. Varðandi langtímafjárþörf segir Guðlaugur Gylfi að OR standi ágæt- lega. Segir endurfjármagnsþörf litla. Aftur á móti nefnir hann að fyrir- tækið þurfi að leita á innlendan markað með skammtímafjármögn- un. Evrópski fjárfestingabankinn neitaði að ganga frá 170 milljón evra lánafyrirgreiðslu til OR vegna óvissuþátta í íslensku efnahagslífi, sem fyrirtækið hafði fengið vilyrði fyrir og átti að ganga frá 15. júlí sl. Lánið átti að nýta til að fjármagna framkvæmdir við jarðgufuvirkjun við Hverahlíð á Hellisheiði, sem síð- an átti að veita Norðuráli orku. Guðlaugur Gylfi segir að neitunin hafi lítil áhrif á rekstur OR: Það þýð- ir að jarðgufuvirkjunin fari sex mán- uðum seinna af stað en lagt var upp með. Hann segir að neitunin hafi engin áhrif fyrir borgarbúa, lánið var einungis tengt þessari virkjun sem átti að selja orku til Norðuráls í Helguvík. Guðlaugur Gylfi segir að endur- fjármögnunarþörf bankans sé lítil og spurður um hvort stórir gjalddagar séu á lánum segir hann svo ekki vera. „Gjalddagar okkar miðast við það að við séum farnir að selja orku. Og þá bara kemur tekjustreymi inn á móti,“ svarar hann. helgivifill@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Lán Orkuveita Reykjavíkur þarf skammtíma fjármögnun. OR vill annað 5 milljarða lán Fékk fyrir skömmu 5 milljarða lán FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÓVISSA um stýrivaxtastig, verð- bólgu og þróun efnahagsmála al- mennt er svo mikil að fjárfestar á skuldabréfamarkaði eru ragir við að kaupa lengri skuldabréf ríkissjóðs nema með ríflegum afslætti. Er þetta ein af ástæðunum fyrir því að á föstudag tók Seðlabankinn engum tilboðum í þrjá skuldabréfa- flokka, sem þá voru boðnir til sölu. Önnur ástæða er sú að á stuttum tíma hefur framboð á skuldabréfa- markaði verið mjög mikið og getur verið að suma fjárfesta skorti lausafé til að taka þátt í nýjum útboðum. Skammt er síðan Seðlabankinn seldi fjögurra mánaða ríkisvíxla fyrir 40 milljarða króna. Gerðu ráð fyrir vaxtalækkun Umframeftirspurn var eftir þeim víxlum og þegar sú staðreynd er bor- in saman við afar dræmar viðtökur við bréfunum, sem boðin voru til sölu á föstudag, rennir það stoðum undir þá kenningu að fjárfestar forðist nú lengri bréf á því verði, sem Seðla- bankinn vill fá fyrir þau. Á föstudag- inn bauð Seðlabankinn til sölu skuldabréf á gjalddaga á árunum 2011, 2013 og 2025, en engum tilboð- um var tekið. Þá reyndi Seðlabankinn fyrir skömmu að selja íbúðabréf að nafn- virði 20 milljarða króna, en tók að- eins tilboðum í stysta flokkinn. Þegar fréttir bárust af því að pen- ingastefnunefnd útilokaði ekki vaxtahækkun á næstunni mun það hafa komið fjárfestum á óvart. Eins og einn viðmælandi Morgunblaðsins orðaði það þá hafði markaðurinn gert ráð fyrir frekari vaxtalækkun- um í verðlagningu skuldabréfa. Velta á skuldabréfamarkaði nam 15,7 milljörðum króna og lækkaði ávöxtunarkrafa allra ríkisskulda- bréfa. Velta með „lengri“ ríkisbréf, þ.e. bréf á gjalddaga á árunum 2013, 2019 og 2025 nam alls ríflega 7,7 milljörðum króna í gær og sýnir það að þeir eru til sem vilja fjárfesta í þeim bréfum. Þrátt fyrir lækkun gærdagsins er ávöxtunarkrafa á þessum bréfum hins vegar á bilinu 8,47-8,83%. Er eðlilegt að Seðla- bankinn hugsi sig tvisvar um bjóðist honum tilboð af þessu tagi í skuldabréfaútboðum. Vilja síður fjárfesta í lengri skuldabréfum Engum tilboðum var tekið í útboði, sem haldið var á föstudag Stýrivextir Peningastefnunefnd hefur ekki útilokað vaxtahækkun á næsta stýrivaxtafundi hennar og sló það suma fjárfesta út af laginu. Morgunblaðið/Ómar Síðustu tilraunir Seðlabankans til að selja ríkis- og íbúðabréf hafa gengið illa. Óvissa er sögð hluti vandans, en einnig mikið framboð á skuldabréfum að und- anförnu. * *      , , * ) -+       , , ./0 1/2           , , 45 6 ."+       , , *+ 7 *+ 89     , , ARÐGREIÐSLUR Sjóvár árið 2007, vegna afkomu félagsins árið 2006, námu 7,3 milljörðum króna, eða um 61% af hagnaði árs 2006, sem var um 11,9 milljarðar króna. Árið 2007 var hagnaður á rekstri Sjóvár um fjórir milljarðar króna og var ekki greiddur arður út fyrir það ár. Í frétt Morgunblaðsins síðastlið- inn laugardag var 7,3 milljarða króna arðgreiðslan fyrir árið 2006 sett í samhengi við afkomu félags- ins árið 2007 til að varpa ljósi á fjár- streymi úr félaginu til eigenda þess og stöðu þess á því ári. Telur Morg- unblaðið að ljóst megi vera af lestri fréttarinnar að fjallað var um arð- greiðslur Sjóvár árið 2007 í þessum tilgangi. Vegna fréttar um arðgreiðslur ● SIGURÐUR Helgason, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, verður til- nefndur í stjórn flugfélagsins á hlut- hafafundi 6. ágúst og verður stjórn- arformaður, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Enn eru tvær vikur til stefnu og mögulega gætu stjórn- artilnefningar breyst. Heimildarmaður á þó ekki von á því. Katrín Olga Jó- hannesdóttir, framkvæmdastjóri hjá Skiptum, og Pétur J. Eiríksson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, verða tilnefnd sem nýir stjórn- armenn. Núverandi stjórnarmenn Icelandair Finnur Reyr Stefánsson og Martha Eiríksdóttir (stjórnarmaður í Íslands- banka) verða tilnefnd, samkvæmt heimildum. Íslandsbanki á um helm- ingshlut í flugfélaginu eftir veðköll og er viðskiptabanki þess. helgivifill@mbl.is Sigurður Helgason fer aftur til Icelandair HLUTAFÉ tryggingafélagsins VÍS, sem er í eigu Exista, hefur verið auk- ið tvisvar frá því skömmu fyrir ára- mót. Nýr hlutabréfaflokkur var stofnaður sl. vetur, B-flokkur, utan um 100 milljónir króna að nafnvirði, líkt og fréttastofa Stöðvar 2 hefur greint frá. Fyrir síðustu áramót var hlutafé aukið um einn milljarð, í 2,5 milljarða, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þá var óráðstöfuðu eigin fé breytt í hlutafé til þess að styrkja stöðu tryggingafélagsins gagnvart erlendum aðilum, sam- kvæmt heimildamanni. Hlutafé VÍS skiptist í tvo flokka sem bera mismikið atkvæðamagn; A-hluta og B-hluta. Exista upplýsir ekki hvers vegna hlutafé er tvískipt. Hluthafar B-flokks fara með 75% at- kvæðismagn í VÍS. Samkvæmt upplýsingum frá Ex- ista lagði fyrirtækið dótturfélagi til fjármuni í síðari hlutafjáraukning- unni. Ekki fæst uppgefið á hvaða gengi, því er fjárframlagið óþekkt. Sláturfélag Suðurlands er þekkt- asta dæmið um íslenskt fyrirtæki sem skiptir hlutafé í A- og B-hluta. Í Skandínavíu og Bandaríkjunum er þetta fyrirkomulag vel þekkt, þá t.d. halda fjölskyldur áhrifum sínum í fyrirtæki við skráningu á hlutabréfa- markað. Þekkt dæmi er bílarisinn Ford. helgivifill@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bræður Ágúst og Lýður Guðmunds- synir hafa farið fyrir Exista. VÍS eykur hlutafé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.